Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
íslensku fiskmarkaðarnir;
Meðalverð er yf-
ir 40 kr. á þorski
Verðsveiflur á Bretlandsmarkaði
MEÐALVERÐ fyrir kílóið af þorski fór yfir 40 krónur á íslensku
fiskmörkuðunum í gær. A Fiskmarkaðinum hf. í Hafnarfirði voru
seld um 65,8 tonn að meðalverði 40,57 krónur. Á Faxamarkaði voru
seld 24,4 tonn fyrir 40,30 krónur að meðalverði. Verð þetta samsvar-
ar um 62 krónum á kíló í Bretlandi vegna meir kostnaðar við sölu
þar. Svo hátt verð fékkst hins vegar ekki í Bretlandi í gær.
Að sögn Helga Jónssonar hjá HF í Hull um 165 tonn af þorski
Fiskmarkaðinum í Hafnarfirði er
þetta í fyrsta skipti sem meðalverð
á togaraþorski fer yfir 40 krónur
og jafnframt fékkst þar í gær hæsta
meðalverð fyrir karfa, sem fengist
hefur hingað til, en það var 21,32
krónur á kílóið. Helgi sagði að upp-
haflega hefði verið ráðgert setja
megnið af þessum fiski í gáma og
selja erlendis. Að sögn Bjarna Thors
hjá Faxamarkaði samsvarar verðið,
sem fékkst þar fyrir þorskinn í
gær, í skilaverði um 62 krónum
fyrir kílóið á Bretlandsmarkaði. Svo
hátt verð fékkst hins vegar ekki í
Bretlandi í gær, en þá seldi Ymir
og var meðalverð 57,74 krónur á
kílóið.
Talsverðar verðsveiflur hafa ver-
ið á gámafiski í Bretlandi undan-
fama daga sem rekja má til þess
að einu af leiguskipum Eimskips,
sem flutti gámafisk á Bretlands-
markað, seinkaði um einn sólar-
hring. Fyrir bragðið var fremur lítið
framboð á uppboðsmörkuðum á
mánudag og verð tiltölulega hátt,
en hins vegar óvenju mikið framboð
á þriðjudag, sem lækkaði verðið
talsvert. Verð fór svo aftur hækk-
andi á miðvikudag.
Á mánudag voru seld um 104
tonn af gámafiski í Bretlandi fyrir
7,8 milljónir króna og var meðal-
verð 74,83 krónur á kílóið. Af
þessum afla voru 58 tonn þorskur
sem fóru á 72,67 kr. að meðalverði
og 30 tonn af ýsu sem fóru á 81,83
kr. að meðalverði. Á þriðjudag voru
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
I/EÐURHORFUR I DAG, 21.08.87
YFIRLIT á hádegi í gær: 1020 mb hæð var yfir Grænlandi en um
600 km suöur af Hornafirði var 1004 mb lægð að eyöast. Við vest-
urströnd Skotlands var vaxandi 1000 mb lægð á hreyfingu norðaust-
ur.
SPÁ: I dag lítur út fyrir norð- og norðaustanátt á landinu. Skýjað
verður um landið norðvestanvert og þokuloft á annesjum en yfir-
leitt léttskýjað syðra. Hiti 7—10 stig norðanlands en allt að 17 stiga
hiti syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Hæg norðau&tanátt — víða
skýjað á Norður- og Austurlandi en bjartviðri í öðrum landshlutum.
Hiti 8—12 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
jT Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr aö ísl. tima hitl veður Akureyri 10 þoka Reykjavík 14 lóttskýjað
Bergen 15 skýjað
Helsinki 19 léttskýjað
Jan Mayen 7 skýjað
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 13 skýjað
Nuuk 6 súld
Ósló 21 úrkoma
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 12 þoka
Algarve 29 heiðskfrt
Amsterdam 22 mistur
Aþena 30 léttskýjað
Barcelona 29 heiðskfrt
Berlfn 19 léttskýjað
Chicago 14 heiðskfrt
Feneyjar 28 heiðskfrt
Frankfurt 23 lóttskýjað
Glasgow 18 rigning
Hamborg 20 hálfskýjað
Las Palmas 31 skýjað
London 28 lóttskýjað
LosAngeles vantar
Lúxemborg 22 lóttskýjað
Madrfd 33 heiðskírt
Malaga 31 helðskfrt
Mallorca 30 lóttskýjað
Montreal 16 léttskýjað
NewYork 23 lóttskýjað
Parfs 27 ióttskýjað
Róm 30 þokumóða
Vín 23 lóttskýjað
Washlngton 23 mistur
Winnipeg 11 lóttskýjað
seld 555 tonn af gámafiski fyrir
31,4 milljónir króna og fór meðal-
verð þá niður í 56,61 krónur á kílóið.
Af aflanum voru 261 tonn þorskur,
meðalverð 53,72 kr. og 183 tonn
ýsa, meðalverð 56,48.
Á miðvikudag voru seld 247 tonn
af gámafiski á 14,8 milljónir króna.
Meðalverð var 59,64 krónur á kíló-
ið. Af aflanum voru 84 tonn þorskur
sem fóru á 63,16 kr. að meðalverði
og 90 tonn af ýsu sem fóru á 57,39
krónur að meðalverði. Ennfremur
seldi Gídeon VE í Hull á miðviku-
dag 92 tonn fyrir 5,2 milljónir og
var meðalverð 55,80 krónur á kílóið.
Enginn gámafiskur var á Bret-
landsmarkaði í gær svo vitað sé en
þá seldi Ýmir HF 165 tonn fýrir
samtals 9,5 milljónir króna eða
57,74 krónur að meðalverði eins og
áður segir.
Yfirburðasigur á skákmótinu í Gausdal:
Margeir vann átta
skákir af níu og
hækkaði um 30 ELO-stig
MARGEIR Pétursson vann
síðustu skák sína við Svíann
Ernst á skákmótinu í Gausdal í
Noregi og sigraði með yfirburð-
um á mótinu, fékk 8,5 vinninga
af 9. Þröstur Þórhallsson náði
sínum fyrsta áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli á mótinu.
Margeir var búinn að vinna mót-
ið þegar ein umferð var eftir en
hann lét það ekki aftra sér frá að
vinna Ernst með svörtu. Margeir
beitti uppáhaldsafbrigði sínu af
Sykileyjarvörn og eftir ónákvæmni
Svíans og síðan afleik átti Margeir
auðvelt með að innbyrða vinning-
inn. Margeir fékk 8,5 vinninga eins
og áður sagði, Þjóðvetjinn Sehner
varð í 2. sæti með 7 vinninga og
náði um leið áfanga að stórmeist-
aratitli og Shussler frá Svíþjóð varð
3. með 6,5 vinninga. Þröstur Þór-
hallson fékk 5,5 vinninga og
Hannes Hlífar Stefánsson 5 vinn-
inga en hann vann Heydal frá
Noregi í síðustu umferð.
Þetta er annað mótið á stuttum
tíma sem Margeir vinnur og með
þessum sigri hækkaði hann um 30
ELO-stig. Margeir sagði í samtali
við Morgunblaðið að í Gausdal hefði
honum einnig tekist að gera upp
sakir við þrjá skákmenn sem hafa
verið honum erfiðir: Ernst, Bretann
Hepten, sem Margeir tapaði klaufa-
lega fyrir síðast þegar þeir tefldu
saman árið 1981, og Norðmanninn
Tisdall, en allar fyrri skákir þeirra
hafa endað með jafntefli þótt Mar-
geir hafi verið kominn með vinn-
ingsstöðu.
Margeir fékk í vor leyfi frá störf-
um hjá Búnaðarbankanum til að
sinna skákinni betur og sagði hann
að það hefði skilað árangri í sum-
ar. Einnig hefði það að tefla á
skákmóti í Sovétríkjunum opnað
fyrir sér nýjan heim. Margeir mun
næstu vikur vinna að verkefnum í
bankanum en ráðgerir að tefla á
íslandsmótinu sem hefst um miðjan
september og síðan á tveimur er-
lendum mótum í október og
nóvember.
Þegar Margeir var spurður hvort
árangur Jóhanns Hjartarsonar á
millisvæðamótinu í Ungvetjalandi
setti ekki vissa pressu á hina
íslensku stórmeistarana sagði hann
að slíkt væri í raun ágætt. „Jóhann
vísaði okkur veginn með því að
verða fyrstur til að ná áfanga að
stórmeistaratitli. Ég hef að vísu
ekki trú á að við náum allir jafn
langt og Jóhann en það er aldrei
að vita,“ sagði Margeir Pétursson.
Þröstur Þórhallsson:
Náði áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli
„ÞAÐ GEKK á ýmsu í þessari
síðustu skák minni en ég varð
að vinna hana til að ná áfangan-
um og það hafðist að lokum,“
sagði Þröstur Þórhallsson 17 ára
skákmaður sem náði sér í fyrsta
áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli á alþjóðlega skákmótinu í
Gausdal í Noregi.
Þröstur tefldi við Finnann
Lindstedt í síðustu umferð og hafði
hvítt. Finninn beitti afbrigði af
spönskum leik og fómaði fyrst peði
og síðan hrók fyrir sóknarfæri. En
Þröstur náði að lokum að vekja upp
nýja drottningu og vann skákina.
Þröstur hefur verið víðförull í
sumar. Hann fór beint til Noregs
frá Filippseyjum þar sem hann
tefldi á heimsmeistaramóti ungl-
inga ásamt Hanr.esi Hlífari Stefáns-
syni og þeir fara báðir til London
þar sem þeir byrja að tefla á laugar-
daginn í opnu skákmóti, kenndu við
Lloyds. Áður höfðu þeir teflt á móti
í Bandaríkjunum.
Þegar Þröstur var spurður hvort
hann væri ekkert orðinn leiður á
skákinni svaraði hann því ákveðið
neitandi: „Þetta er svo garnan!"