Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
5
Bú ’87:
Bændablaðið býður
upp á danska skinku
Á Bú ’87, fá gestir tækifæri til
að bera saman gæði íslenskrar
skinku og skinku sem sem keypt
er í Danmörku. Það er Bjarni
Harðarson ritstjóri Bændablaðs-
ins, sem stendur að samanburðin-
um en hann telur að jafn mikið
sé smyglað af danskri skinku til
landsins og íslenskir framleið-
endur, framleiða.
„Með þessu erum við að vekja
athygli á að á íslenskum markaði
er tvennskonar skinka, íslensk og
útlensk. Menn hafa viljað horfa
fram hjá að hér sé smyglað þó að
obbinn af smurbrauðsvörum, til-
búnum réttum og hótelréttum séu
með smyglaðri skinku," sagði
Bjarni. „Fólk hefur verið sólgið í
að koma og prófa þetta, en við
höfum sett skinkuna í tvær skálar
og beðið fólk að dæma um hvor
tegundin er betri. Að vísu var ein-
ungis um skinku frá einum íslensk-
um framleiðanda að ræða en um
helgina hyggst ég bjóða upp á
skinku frá fleiri framleiðendum."
Hann sagði að danska skinkan
Umferðaróhapp
á Snæfellsnesi
Borg, Miklaholtshreppi.
SEINNI part fimmtudags varð
umferðaróhapp í Kolbeinsstað-
arhreppi, fólksbíll lenti í árekstri
við dráttarvél.
Engin slys urðu á fólki, en bíllinn
er mikið skemmdur. Litlar skemmd-
ir urðu á dráttarvélinni.
Páll
væri mun ódýrari en íslenska skink-
an enda gæðin eftir því.
Könnunin leiddi í ljós að 34
fannst íslenska skinkan betri en 25
féllu fyrir dönsku skinkunni.
FÍI:
Leitað eft-
ir erlendu
vinnuafli
ÚTLIT er fyrir að vinnuafls-
skortur í íslenskum iðnfyrirtækj-
um verði 10-12% af mannafla i
haust eða nær tvöfalt meiri en í
fyrra. Þetta kom fram í könnun
sem Félag íslenskra iðnrekenda
hefur framkvæmt meðal ís-
lenskra iðnfyrirtækja. Svipuð
könnun var framkvæmd á siðasta
ári og reyndist vinnuaflsþörfin
þá vera um 6% af heildarmann-
afla.
I könnuninni var einnig spurt um
viðhorf iðnrekenda við því að fá
útlendinga til starfa í fyrirtækjum.
Kom fram verulegur áhugi á því
og mörg fyrirtæki töldu að erlent
vinnuafl gæti gengið í þau störf sem
fólk vantaði í. Stjórn félagsins hef-
ur ákveðið að kanna möguleika á
því að fá fólk frá nágrannalöndun-
um til starfa á Islandi og hefur
undirbúningur þegar verið hafinn.
Bú ’87:
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ríf ci’'^toðraðar
*arr
Kálfar á Bú ’87 vekja verðskuldaða athygli sýningargesta.
Um 30.000 sýningargestir
Úrvalshross boðin upp í dag
„Þetta var góður dagur í dag
enda veðrið frábært," sagði
Magnús Sigsteinsson fram-
kvæmdastjóri Bú '87 og taldi
hann að þegar hefðu um 30
úsund manns séð sýninguna.
dag er hestamarkaður á dag-
skrá kl. 18:30 og verða 14
hestar, tveir úr hverjum lands-
fjóðrungi, boðnir upp. Selj-
endur hafa skuldbundið sig til
að taka einu af þremur hæstu
tilboðunum.
í gær hófust sýningar á kyn-
bótahrossum og sagði Magnús
að hún vekti verðskuldaða at-
hygli sýningargesta. Sýnd eru
tólf úrvals stóðhestar og tvær
hryssur með afkvæmum og
verða hestamir sýndir á hverjum
degi alla helgina en búvörusýn-
ingunni lýkur að kvöldi næst-
komandi sunnudags.
I dag verða kynbótahross og
stóðhestar sýnd á útisvæðinu kl.
15 og sér Þorkell Bjamason um
sýninguna. Matreiðslumeistari
kynnir úrvalsrétti, kl. 16 og Ey-
fírðingar halda héraðsvöku, kl.
17 og kl. 20:30.
■ÍÖHÍlt
I Í4* 14 H
FRUMSÝNA TOPP GRÍN- OG SPENNUMTND ÁRSINS:
TVEIR Á
TOPPNUM
TVEIR A
TOPPNUM
MEL
BIBSOIM
OAIMIMY
ELOVER
LETHAL WEAPON
Mel Gibson og Danny Glover eru hér óborganlegir í hlut-
verkum sínum, enda eru einkunnarorð myndarinnar grín;
spenna og hraði. Vegna velgengni Lethal Weapon í
Bandaríkjunum var ákveðið að frumsýna myndina sam-
tímis í tveimur kvikmyndahúsum í Reykjavík, en það
hefur ekki verið gert við erlenda mynd áður.
Blaðadómar: „Það er óhætt að gefa mynd-
inní full meðmæli. Hún er ekki bara
spennandi heldur eiunig bráðf yudiu...
útkoman verður því hiu skemmtilega
bíóferð".JFJ-DV.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover.
Tónlist: Eric Clapton. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýndkl.5 —7 — 9 —11. Bönnuð börnum.