Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
13
eftir Guðmund
Björnsson
Eins og kunnugt er voru sam-
hliða 9,5% meðalhækkun símgjalda
þann 1. júlí sl. gerðar breytingar á
uppbyggingu gjaldskrárinnar.
Breytingarnar miða m.a. að því að
færa símagjöld nær raunkostnaði.
Kostnaður við byggingu og rekstur
langlínukerfa hefur farið lækkandi
undanfarin ár miðað við staðar-
kerfi. Á sama tíma hefur notkun
langlínukerfa aukist verulega. Eðli-
legt er því að notendur kerfanna
njóti þess að einhveiju leyti með
lækkuðum töxtum.
Hveijar voru þessar breytingar
sem gerðar voru á gjaldskrá Pósts
og síma?
— Langlínutaxtar voru lækkaðir
verulega.
— Tekinn var upp nýr ódýrari
langlínutaxti frá kl. 23.00 til
8.00 og um helgar.
— Kvöldtaxti byijar fyrr, eða kl.
18.00 í stað kl. 19.00 áður.
Þessar breytingar hafa í för með
sér tekjutap fyrir stofnunina og til
að vega upp á móti því voru ákveðn-
ar eftirtaldar gjaldskrárbreytingar:
— Inniföldum skrefum var fækkað
úr 600 í 400 utan höfuðborgar-
svæðisins, en úr 300 í 200 innan
höfuðborgarsvæðisins.
— Verð á hveiju skrefi var hækkað
um 10 aura sérstaklega.
— Skrefatalning staðarsímtala var
tekin upp um land allt á þeim
tíma sem símtöl hafa verið án
tímamarka og talið á 12 mín.
fresti.
Haldið hefur verið fram að breyt-
ingin komi þyngra við notkun
heimilissíma á höfuðborgarsvæðinu
en utan þess. Breytingin sem gerð
var á gjaldauppbyggingu hefur
sömu áhrif á verð staðarsímtala um
land allt og gildir þannig ekkert
sérstaklega fyrir íbúa höfðuborgar-
svæðisins, heldur landsmenn alla.
Það er rétt að ef símar eru nær
eingöngu notaðir fyrir staðarsímtöl
má búast við nokkurri hækkun
símareikninga, en hins vegar lækk-
un ef um notkun langlínu er að
ræða. Tilgangur gjaldskrárbreyt-
ingarinnar má heldur ekki gleym-
ast, en hann var sá að minnka
óeðlilega mikinn mun á verði stað-
ar- og langlínusímtala.
Benda má á, að höfuðborgar-
svæðið er lang stærsta símasvæði
landsins, með um 60% símnotenda
og er það ástæðan fyrir færri inni-
földum skrefum í afnotagjaldi þar.
Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að
hringja milli 10 símstöðva á staðar-
taxta. Þó hefur fækkun á inniföld-
um skrefum á höfuðborgarsvæði
orðið minni en annars staðar við
þær breytingar sem nú eru gerðar
á gjaldskránni fyrir símaþjónustu.
I stóru úitaki sem geit var á
símanotkun í Reykjavík í lok síðasta
árs kom fram að lítilla breytinga
er að vænta varðandi fjölda um-
framskrefa ef á heildina er litið og
gengið er út frá óbreyttum fjölda
og skiptingu símtala. í þessari
könnun kom einnig fram að yfir
60% af skrefanotkun símnotenda í
Reykjavík er vegna langlínusímtala
séu sfmtöl til útlanda ekki meðtalin.
Það er því ljóst að hin mikla lækk-
un langlínusímtala kemur íbúum
höfuðborgarsvæðisins einnig til
góða.
Þá er það ekki síður mikilvægt
fyrir aldraða og öryrkja að lækkun
verði á langlínusímtölum. Símtöl
þessara hópa eru ekki einskorðuð
við staðarsímtöl því það er ekki
alltaf svo að nánustu ættingjar og
vinir búi nærri þannig að hringja
megi á milli á staðartaxta. Fyrir
þessa hópa er einnig mikilvægt að
kvöldtaxtinn byijar nú fyrr eða kl.
18.00 í stað kl. 19.00 áður.
„Þau eru verst hin þöglu svik,
að þegja við öllu röngu“
verið tekin upp. Skv. upplýsingum
þaðan verður það gert síðar á þessu
ári eða því næsta.
Að lokum vil ég gera samanburc
á breytingum á afnotagjaldi síma
og verði fyrir umframskref annars
vegar og nokkrum þjónustugjöldurr
og vísitölum hins vegar. Frá 1. jan.
1984 til 30. júní 1987, eða fram
að gjaldskrárbreytingunni 1. júl
sl., hækkaði lánskjaravísitalan. um
99%, gengi SDR um 66%, áskrift
dagblaðs um 120%, húshitun hjá
Hitaveitu Reykjavíkur um 108% og
launavísitala um 136% meðan af-
notagjald síma hækkaði um 2% og
gjald fyrir umframskref um 2%
Það er því ljóst að Póstur og sím
hefur á þessu tímabili lagt sitt a!
mörkum til þess að halda útgjöldurr
heimilanna niðri.
Höfundur er aðstoðarpóst- og
símamálastjóri.
eftirJónas
Pétursson
Það hefir tekið mig nokkurn tíma
að jafna mig á þeim freftum, sem
borist hafa af tillögum svonefndrar
sláturhúsanefndar. Ekki fyrst og
fremst vegna þess, hvað þær eru
vitlausar (það er e.t.v. það skársta
við þær), heldur vegna þess tákns,
sem þær eru um þjóðfélagsgerð.
Þær vitna um valdið í þjóðfélaginu!
Vald, sem metur aðeins fjármagn,
skreytir sig með arðsemistali, —
maðurinn skiptir liltu máli! Bænd-
ur! Heitið er orð, sem andúð hefur
verið ræktuð á í fjölmiðlafárinu. í
stíl við það eru þeir utangarðs í
ráðabrugginu um sláturhúsin. Sú
lítilsvirðing á bændum og því fólki,
sem hrærist í samhengi allra þess-
ara hluta, þeim lífsmætti umhverfis
hvers tíma, sem fólginn er í starfs-
keðju stijálbýlisins í landinu — sú
lítiisvirðing, sem sláturhúsatillög-
urnar fela í sér, er eitt dæmið um
óhugnað stjórnarfars, sem yfir okk-
ur virðist skollið.
Umbóta er þörf í sláturhúsamál-
um. En úrræðin verða að koma og
munu koma og hljóta að verða
framkvæmd af bændafólkinu í ljósi
þess ástands, sem um þessar mund-
ir er að skapast, þar sem fækkun
sláturfjár, sölumöguleikar, neyzla
og auknar hreinlætiskröfur horfa
við. Eg er sannfærður um að bænd-
ur og þeirra fólk, þeir sem við
sölumálin fást og félagsmál byggð-
anna, þeir leysa þessi mál á þann
hátt, sem beztu manna yfirsýn býð-
ur. Þeir eiga að gera það og munu
gera það — af því að þeir skilja
ennþá skyldur — dýrmætasta eig-
inleika bændasamfélags. Ég vona
og treysti að enn beri sveitafólkið
þetta aðalsmerki í sér!
Ég tók dálítið stórt upp í mig í
bytjun. En hvaða orð á að hafa um
plagg, sem mælir fyrir að leggja
Jónas Pétursson
„Ég tók dálítið stórt
upp í mig í byrjun. En
hvaða orð á að hafa um
plagg, sem mælir fyrir
að leggja niður slátur-
hús á Akureyri og
Vopnafirði! Þurrka
bara af sláturhús á
norðaustursvæði lands-
ins, sem býr yfir beztu
sauðfjárræktarskilyrð-
um eins og Vopnafirði,
Bakkaf irði og Þistil-
firði!“
niður sláturhús á Akureyri og
Vopnafirði! Þurrka bara af slátur-
hús á norðaustursvæði landsins,
sem býr yfir beztu sauðijárræktar-
skilyrðum eins og Vopnafirði,
Bakkafirði og Þistilfirði! Þar sem
samhæfð eru orðin störfin við fjár-
búskapinn og slátrunarstörfin á
haustin! Auðvitað óaðskiljanlega
þætti, sem lífið hefir kennt. Þess
dæmi nægja.
Fyrir skömmu hlýddi ég á þátt
í útvarpinu þar sem komið var inn
á svonefnda Áshildarmýrarsam-
þykkt. Sögulegan fund af Suður-
landi þar sem 12—15 bændur komu
saman til að mótmæla yfirgangi
hins danska valds. Vitna í Gamla
sáttmála, sem fól í sér ákvæðið í
niðurlagi sáttmálans: lausir ef
hann rýfst að beztu manna yfir-
sýn! Þetta var árið 1496. Ég minni
á þennan merkilega atburð. Ég hef
munað hann af því að Olafur Thors
nefndi hann í lýðveldisræðu 1954.
Valdi skal veijast, hvort sem
danskt er eða íslenzkt og sjálfstæð-
isbarátta er eilíf! Þegar íslenzkt
vald brýtur , egn réttlætiskenr "
sem enn varii með íslenzkri þjói,
sem ann frelsi, félagshyggju og
gildi mannsins umfram fjármagns-
dýrkun valdahyggjunnar!
Hér er eitt málið, sem krefst
baráttu fyrir byggð um allt ísland!
Höfundur er fyrrverandi alþingis-
maður.
TAFLA 1
Saxnanburður á verði slmtala í tveimur gjaldflokkum,
fyrir og eftir gjaldskrárbreytinguna l.júli 1987.
Allar upphæðir eru án söluskatts.
1. janúar l.júlí
1987 1987
NÆTUR OG
HELGAR OG
LENGD SÍMTALS DAG TAXTI HELGAR TAXTI DAG TAXTI KVÖLD TAXTI NÆTUR TAXTI
Staðartaxti:
3 mín. 9 mín. 30 min. 1.98 kr 3.30 kr 7.92 kr 1.32 kr 1.32 kr 1.32 kr 2.34 kr 3.90 kr 9.36 kr 1.95 kr 2.73 kr 5.46 kr 1.95 kr 2.73 kr 5.46 kr
Hærri langlinutaxti:
| 3 min. 21.12 kr 9 min. 60.72 kr 30 min. 199.32 kr 14.52 kr 40.92 kr 133.32 kr 19.11 kr 54.21 kr 177.06 kr 13.26 kr 36.66 kr 118.56 kr 10.33 kr 27.88 kr 89.31 kr
BREYTINGAR FRÁ
1.1.1984 TIL OC MEÐ 30.6.1987
Þegar talað er um skrefamæl-
ingu staðarsímtala á kvöldin er
nauðsynlegt að hafa í huga hvaða
upphæðir er verið að tala um. Hvað
kosta þessi símtöl? Meðfylgjandi
samanburður .(tafla 1) á verði
símtala í tveimur gjaldflokkum sýn-
ir að 9 mín. staðarsímtal kostar
eftir að skrefatalningunni var kom-
ið á 2,73 kr. og 30 mín. símtal 5,46
kr. auk söluskatts. Ég bendi á þetta
sérstaklega hér þar sem ég hef orð-
ið þess var í samtölum við fólk að
það telur að gjöld þessi séu veru-
lega hærri. Gjald fyrir jafnlangt
símtal, þ.e. 30 mín. á sama tíma á
hæsta langlínutaxta er allt að 22
sinnum dýrara.
Ég vil vekja athygli á hinni miklu
lækkun langlínutaxta sem ákveðin
var 1. júlí, en mjög margir símnot-
endur nota langjínukerfið mikið og
flestir eitthvað. Á lengstu leið lækk-
ar 9 mín. símtal um 6,51 kr. á
dagtaxta og jafn langt símtal um
helgar um 13,04 kr. Um helgar
lækkar 30 mín. símtal um 44,01
kr., úr 133,32 kr. í 89,31 kr.
Skrefatalning staðarsímtala utan
dagtíma er ekkert séríslenskt fyrir-
brigði. Flest nágrannalöndin svo
sem Danmörk, Svíþjóð og Þýska-
land hafa innleitt skrefatalninguna,
en í Noregi hefur hún ekki enn
Guðmundur Björnsson
„Benda má á, að höfuð-
borgarsvæðið er lang
stærsta símasvæði
landsins, með um 60%
símnotenda og er það
ástæðan fyrir færri
inniföldum skrefum í
afnotagjaldi þar. Á höf-
uðborgarsvæðinu er
hægt að hringja milli
10 símstöðva á staðar-
taxta.“
Breytingar á gjaldskrá
fyrir símaþjónustu