Morgunblaðið - 21.08.1987, Side 15

Morgunblaðið - 21.08.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 15 ekki almennilega grein fyrir munin- um á taifæmi og framburði. .Nemendur okkar hafa viðunandi framburð. Það sem þá vantar er að geta brugðist fljótt við, að hafa orðin sem þarf að segja til reiðu í huganum og að mynda réttar setn- ingar án þess að hugsa mikið um það. Á þessu sviði þarf að þróa kennsluefni. Það vitum við — og það gerum við. Skóladanskan gengnr vel Ef ég færi út í skóla og spyrði nemendut hvort þeir vildu læra bókfærslu á undan algebru eða öfugt, er ég viss um að 55% svar- aði já. Allir vilja tilbreytingu, ekki síst þegar tilbreytingin hefur engar afleiðingar. Við kennum dönsku með því markmiði að ná tengslum við hin Norðurlöndin. Til þess er danska nákvæmlega jafn vel fallin og sænska og norska. Er þá ástæða fyrir okkur foreldra og skattgreið- endur til að láta henda því mikla verki sem unnið hefur verið með að þróa námsefni og mennta kenn- ara, eða til að vinna sama verk í annað og þriðja sinn, því það er ekki til vottur af námsefni eða einn stakur kennari sem hefur menntun til þess að kenna sænsku eða norsku íslendingum sem hafa ekki forsend- ur fyrir í tungunni. Ég fæst ekki við að pína nemend- ur. Ég þekki aðeins nemendur sem eru áhugasamir og velviljaðir og bera þá virðingu fyrir Skandinavíu sem ég get verið ánægður með. Sumir hafa meiri áhuga á fótbolta eða efnafræði en dönsku; þó það nú ,væri. Sumum gengur ver en öðrum að læra. Sumir hafa orðið fyrir barðinu á kennaraskortinum í landinu og hafa lært lítið fyrir. Einn og einn nemanda minna hefur búið í Svíþjóð eða Noregi eða talar sænsku og norsku heima hjá sér. Hann getur fengið að sleppa dönsku og læra sænsku eða norsku í staðinn. Þannig geta allir nemend- ur fengið að byggja áfram á því sem þeir kunna fyrir. Það er ekki minnsta ástæða til að gera meira í þeim efnum. Ekki höfum við val- frelsi milli Bandaríkja-ensku og Bretlands-ensku. Æskufólk kann dönsku betur í dag en fyrir tæpum 20 árum þegar ég kom fyrst til landsins. Það er engin hætta á að við hættum að ræða við frændþjóðir okkar. Höfundur er magister í norrænum málum, dönskukennari og kon- rektor Menntaskólans viðSund. Landakot og bílageymsla eftirÓlaf Örn Arnarson Í Morgunblaðinu 15. ágúst sl. er greint frá tillögum teiknistofu Guð- rúnar Jónsdóttur, arkitekts, um endurskipulagningu gamla bæjar- ins í Reykjavík. Tillögur þessar munu hafa verið unnar að beiðni borgaryfirvalda og skilað nú í vor. Margt athyglisvert kemur fram í tillögum þessum og sjálfsagt ýmis- legt til bóta. Eitt atriði þeirra tel ég mér hins vegar skylt að gera athugasemd við. Þar segir m.a.: „Eins og önnur hverfi í gamla mið- bænum, þjakar mikil umferð íbúana og bílastæði skortir. Ekki er raun- hæft að reisa bílastæðishús eða malbika stór bílaplön á svæðinu þar sem byggðin er fastmótuð. Við Landakotsspítala er þó eygður möguleiki á bílageymslu á bak við ' lóð sem létt gæti á umferðarþunga nágrennisins." Ekki veit ég hvemig í ósköpunum höfundum tillagnanna hefur dottið þetta í hug. Hugmyndin hlýtur að byggjast á algeru þekkingarleysi á sögu Landakotsspítala og þörfum hans nú og í framtíðinni. Kaþólska kirkjan mun hafa keypt Landakot upp úr miðri síðustu öld. Starfsemin fór hægt af stað en fyr- ir síðustu aldamót var kominn vísir að spítalastarfsemi á staðnum. Flestum er kunnugt um framlag St. Jósefssystra til heilbrigðismála. Bygging gamla spítalans árið 1902 var mikið afrek og hann var eini spítalinn sem því nafni var hægt að nefna allt til þess er Landspítal- inn var byggður 1930. Bygging vesturálmu 1935 og austurálmu um 1960 voru einnig mikil afrek og höfðu afgerandi þýðingu fyrir heil- brigðismál í þessu landi. í bygging- aráætlun systranna var alltaf gert ráð fyrir að þjónustuálma yrði byggð aftan við spítalann og er hann þvi ekki fullbyggður. Þegar Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala tók við rekstri hans 1977 var hafíst handa við frekari undirbúning málsins og húsameist- ari ríkisins, Garðar Halldórsson, fenginn til að kanna hvemig hægt Likan af fyrirhugaðri þjónustubyggingu við Landakotsspítala. „Ef arkitektar þeir, sem settu fram þessar hugmyndir um bíla- geymslu á lóð Landa- kotsspítala, hefðu haft fyrir því að kynna sér þá starfsemi, sem nú fer fram á spítalanum og þær áætlanir, sem stjórn spítalans er með á prjónunum, efast ég um að þeir hefðu nokk- urn tíma sett þær fram.“ væri að fullnægja þörfum spítalans á þeim reiti, sem takmarkast af Túngötu, Hrannarstíg, Öldugötu og Ægisgötu. Spítalinn hefur nú að mestu náð umráðarétti yfír öllum lóðunum nema lóð Vesturbæjar- skólans, sem losnar væntanlega á næstunni með byggingu nýs skóla- húss við Hringbraut. Eðlilegt hlýtur að teljast að þessi reitur nýtist sem best í þágu heilbrigðiskerfísins. Gerð hafa verið frumdrög að þjón- ustubyggingu, sem ætlað er að rúma röntgendeild, rannsóknarstof- ur og skurðstofur án þess að um fjölgun sjúkrarúma sé að ræða. Mikið af byggingunni er ætlað fyr- ir starfsemi í þágu utanspítalasjúkl- inga, sem geta sótt þangað ýmsa þjónustu án þess að leggjast inn á spítalann, en slík starfsemi ætti að geta dregið verulega úr kostnaði. Stjóm spítalans gerir sér fulla grein fyrir þeim vanda, sem við er að glíma í sambandi við bflastæði á Landakotshæð og því áiagi sem starfsemi spítalans veldur í því efni. Með endurskipulagningu á þeim reit, sem að ofan greinir og breyt- ingum á Hrannarstíg, sem hvort tveggja þarf að gera í nánu sam- starfí við borgaryfírvöld, má veru- lega bæta hér um og tillaga arkitekts spítalans gerir einmitt ráð fyrir því. Ef arkitektar þeir, sem settu fram þessar hugmyndir um bfla- geymslu á lóð Landakotsspítala, hefðu haft fyrir því að kynna sér þá starfsemi, sem nú fer fram á spítalanum og þær áætlanir, sem stjóm spítalans er með á pijónun- um, efast ég um að þeir hefðu nokkum tíma sett þær fram. Nærri aldar gömul hefð fyrir rekstri spítala á þessum stað og þarfír þeirrar þjónustu í framtíðinni hlýtur að hafa forgang fram yfir bfla- geymsluhús „til að létta á umferð- arþunga nágrennisins“. Höfundur eryfirlæknir á Landa- koti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.