Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 16

Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 -1 Heimsókn í ætt- bálkaþorpið í Nantou Taiwan: áfram, fram að hemámi Japana 1895, að þeir stöðvast nær alveg fram yfir 1948. Ættbálkafólkið lítur öðruvísi út en við, sagði ung stúlka við mig og taldi þann útlitsmun greinilega ekki ættbálkafólkinu í vil. Hún sagði, að það hefði yfirleitt stærri augu og nánast ekki skásett. Það er tvímælaus ókostur. Andlitsdrætt- ir væru mjög ókínverskir. Sumir ættbálkanna em hávaxnari en Ta- iwanar, þegar á heildina er litið. Þeir tala ekki heldur sama tungu- málið. Síðan rak hana í vörðurnar og hún var ófáanleg til að tjá sig meira um málið. Opinberlega má ekki líta niður á ættbálkafólkið né mismuna því. En það býr í sérstökum þorpum, yfir- leitt sunnan og austan til á Taiwan og það lætur lítið fara fyrir sér. Þetta er iðjusamt fólk, vinnur margt við tevinnsluna og hjá hrísgijóna- bændum. Það er listfengt og hannyrðir þess og handverk er frá- brugðið því, sem maður sér í minjagripabúðunum í Tapei. Máluð teppi þeirra þykja til dæmis sérstæð og útskurðurinn er gerólíkur hefð- bundnum kínverskum tréskurði. Hann er grófari og hrárri, en það er í honum áleitni og húmor. Sjálfsagt er alrangt að segja að ættbálkafólkið búi við ofsóknir. Taiwanar vilja að sönnu helzt ekki umgangast það. En menn vilja gjarnan skoða það úr fjarlægð. Eins og til dæmis þama í ættbálkaþorp- inu inn á milli fjallanna í Nantou á Mið-Taiwan. Lítið umfram það. En opinberlega er stefnan sem sagt jafnrétti og væntanlega bræðralag og auk þess má ekki gera lítið úr Amifólk til sýnis Taiwanar. Sagan segir, að flest þessa fólks hafi komið frá Suður Kína og þeir sem státnastir eru, rekja ættir sínar til þriðju aldar. Ekki mun þetta hafa verið ýkja margt fólk, en á sjöttu og sjöundu öld bættist í hópinn fólk frá öðrum hlutum Suðaustur Asíu. Taiwan varð vemdarsvæði Kínverska keisaradæmisins rétt upp úr 1200, og því segja Taiwan- ar, að ættbálkafólkið sé óumdeilan- lega af sama stofni og þeir. Þegar Hollendingar gengu á land á eynni árið 1624 voru þar fyrir um hundr- að þúsund manns og töldu sig Kínveija. Síðan héldu flutningar TEXTI OG MYNDIR: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Paiwakona við sauma STÚLKUR í bláum kjólum, með bryddingum og pífum, stíga dans. Hann er fjörlegur og allt að því kærulaus í fyrstu, en svo verða hreyfingarnar hægari og dramatiskari, skapsmunir hitna og sveifl- urnar aukast. En að lokum fer allt vel. Það er gott, því að inntakið er leitin að ástinni og baráttan við óvininn. Sem má ekki tala um, hver er. Það er viðkvæmt mál. Eins og margt er hér á Taiwan. En þetta eru léttfættar, Iaglegar stúlkur og nokkur hundruð taiwan- skir túristar klappa þeim lof í lófa. Svo er farið i hringdans og áhorfendur taka þátt í honum og horfa með einbeitni niður á fætur stúlknanna, hvemig þær bera sig til og hvenær eigi að lyfta vinstra eða hægra fæti. Þessar stúlkur em af Yamiætt- bálknum og einu sinni á dag er haldin danssýning fyrir gestina, sem koma í „ættbálkaþorpið“ til að skoða, hvemig fmmbyggjamir höfðu það í gamla daga. Hvemig þeir byggðu og skreyttu húsin sín, borðuðu, hvemig þeir skemmtu sér. Til dæmis með því að dansa eins og bláklæddu stúlkumar. Af tæplega tuttugu milljónum íbúa Taiwan em um þrjú hundmð svokallaðra fmmbyggja og þessir fmmbyggjar em ekki aldeilis undir einum og sama hattinum. Þeir skiptast í níu ættbálka. Þar á með- al er Sauættbálkurinn, sem hún var af, hún yndislega gamla mín, sem sigldi fýrr um daginn með mig á bátnum sínum yfír Vatn hins milda tungls og lífgefandi sólar. Auðvitað getur maður ekki vitað allt. Þá væri lítið spennandi. Og ég hafði að vísu heyrt um einhveija óskilgreinda uppmnalega íbúa Ta- iwan, án þess að hugsa meira út í það. En þegar farið er að spyija kom margt mér á óvart. Eins og hvílík stéttaskipting er milli Taiwana, og þá er átt við eink- um og sér í lagi það fólk, sem flúði frá meginlandinu, eftir valdatöku kommúnista í Kína. Og hins vegar ættbálkanna níu. Ótrúlega lítil blóð- blöndun hefur orðið milli þessara aðila. Aðallega af því, að Taiwanar líta á það með illa dulinni andúð. Þetta er ekki fólk, sem við viljum samneyti við, segir ljúft og elsku- legt fólk, hvítt í framan af einlægni og velvild. Það getur samt fáar skýringar gefið á því, hver ástæðan sé, því að í aðra röndina, gætir ein- hvers konar öfundar í fmmbyggj- anna garð. Maður spyr, hvort þeir hafí kannski staðið með Japönum. Þar gæti verið komin skýring. En hún fær ekki staðizt heldur, því að ættbálkafólkið hataði Japani jafnvel meira en aðrir Taiwanar. Ættbálkafólkið er blandaðra en Húsin, hlaðin úr höggnum steini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.