Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir LARS LUNDSTEN Finnland: Stóru flokkarnir deila um f ory stu hlutverkið í finnsku ríkissljórninni í FINNLANDI blasa nú við fyrstu átökin í þeirri „rauð-bláu“ stjórnarsamsteypu hægrimanna og jafnaðarmanna, sem setið hefur við völd undanfarinn þrjá og hálfan mánuð. Hægriflokkur- inn Kokoomus og Jafnaðarmannaflokkurinn deila nú um það hvor eigi fyrst að komast að með sín stefnumál. Jafnaðarmenn vilja endurskipuleggja vinnumarkaðinn, hægrimenn vilja endur- skipuleggja skattakerfið. Báðir helstu stjómarflokkarnir hafa viðurkennt, að hvorki vinnumálalöggjöfin né skattakerf- ið séu auðveld viðureign. Kratar og hægrimenn leggja áherslu á að endurskoðunin muni taka lang- an tíma, jafn langan kjörtímabil- inu, sem er fjögur ár. Nú er aftur um það deilt hvar eigi að byija. Flokkarnir eru jafnsterkir og hvorugur vill láta hinum eftir for- ystuna. Hægriflokknum og Jafnaðar- mannaflokknum gengur reyndar mjög vel saman í flestum málum, t.d. varðandi fjárlagafmmvarp ársins 1988. Stjómmálaskýrendur í Helsinki hafa beðið eftir átökum milli hægrimanna og krata, en hingað til án árangurs. A haustin hafa stjómarflokkar ávallt farið í hár saman vegna deilna um fjárlagafrumvarpið en nú hefur Qárlagafrumvarpið þok- ast áfram sem næst án deilna og þrátt fyrir, að bæði Erkki Liikan- en fjármálaráðherra og stjómar- samsteypan í heild eru óreynd í gerð fjárlaga. Fyrr á árum voru stjómarflokkamir gjaman með nokkur hundmð óákveðin mál í fjárlögum um þetta leyti, en í ár em aðeins 15—20 mál, sem bíða eftir afgreiðslu í ríkisstjóminni. Að undanfömu hafa samt kom- ið upp nokkur mál, sem duga sem átakamál innan ríkisstjómarinn- ar. Kratar, og einkum verkalýðs- armur flokksins, vilja sýna meiri hörku í að koma á endurbótum á vinnamarkaðinum. Jafnaðarmenn í forystu alþýðusambandsins segj- ast ekki nenna að halda áfram viðræðum við vinnuveitendasam- bandið og vilja láta ríkisstjómina um að semja lög um aukna þátt- töku starfsfólks í stjóm fyrirtækja og um fleiri mál í þeim dúr. Hæg- riflokkurinn segist ekki vera reiðubúinn til að ræða um nýja löggjöf, fyrst verði aðilar vinnu- markaðarins að ræða málin betur. Umbætumar á vinnulöggjöf- inni snúast aðallega um starfsör- yggi verkamanna og rétt starfsmanna til að taka þátt í stjóm fyrirtækisins. Ríkisstjómin kvað á um það í stjómarsáttmála sínum, að aðalverkefni hennar yrði að auðvelda endursköpun efnahagskerfísins. Það, sem átt er við með „endursköpun efna- hagskerfisins", er, að margar iðngreinar í Finnlandi þurfa mik- illar endurskipulagningar við á næstu árum til þess að geta stað- ið sig í alþjóðasamkeppni. Stjóm- arflokkamir em sammála um að taka fullt tillit til tækniþróunar í heiminum en vilja þó ekki gleyma atvinnuhagsmunum þeirra manna sem vinna í úreltum verksmiðjum. Undanfarin ár hefur mörgum stómm verksmiðjum verið lokað, einkum í málmiðnaði. Stéttarsam- tök verkamanna hafa krafíst þess, að ríkið komi til hjálpar þar sem einkaframtakið getur ékki haldið Harri Holkeri forsætisráðherra. Þinghúsið i Helsinki. verksmiðjum starfandi en þeir róttækustu hafa ennfremur kraf- ist þess, að fyrirtækjum, og einkum þá stórfyrirtækjum eins og margir vinnuveitendur í málm- iðnaðinum em, verði gert skylt að koma í veg fyrir atvinnuleysi, sem stafar af hagræðingn í fyrir- tækjum eða öðm þess háttar. Matti Puhakka vinnumálaráð- herra (jafnaðarm.) hefur lýst því yfír, að hann ætli að semja laga- fmmvörp um endursköpun vinnu- markaðarins strax í september. Puhakka fór fyrir tæpri viku til Svíþjóðar ásamt völdurn hópi fréttamanna til þess að kynna sér hvernig samstarfi starfsliðs og stjómenda væri háttað í fyrirtækj- um þar. Puhakka og flokksbræður hans í Jafnaðarmannaflokknum fullyrða nú, að samstarf vinnu- veitenda og verkalýðs sé á stein- aldarstigi í Finnlandi ef borið er saman við fyrirkomulagið í Svíþjóð. Harka jafnaðarmanna í þessum málum er skiljanleg, ekki síst vegna þess, að stærsta aðildarfé- lag alþýðusambandsins er mál- miðnaðarsambandið. Þeir málmiðnaðarmenn ganga að kjör- borði nú síðar í haust og jafnaðar- menn óttast, að kommúnistar geti náð meirihluta á þingi málmiðnað- armanna. Kommúnistar segja, að jafnaðarmenn hafi svikið hugsjón- ir verkalýðshreyfingarinnar með því að fara í stjóm með hægri- mönnum og ýmsir kratar eru sammála þessu. Þess vegna verð- ur Jafnaðarmannaflokkurinn nú að sýna hörku í haust. Álit flokks- ins í augum verkamanna þolir ekki ásakanir um að krataráð- herrarnir séu einungis taglhnýt- ingar Harri Holkeris forsætisráð- herra. Holkeri og hægriflokkur hans þurfa einnig að sýna fram á, að þeir séu ekki allt of háðir krötum. í fjárlagaviðræðum hafa engin meiri háttar vandamál komið í ljós og er það ekki síst því að þakka, að félagslegar áætlanir hægri- manna og jafnaðarmanna hafa verið mjög álíka. Jafnaðarmenn sæta stöðugum árásum frá kom- múnistum og hægrimenn verða að vara sig á spjótalögunum frá Miðflokknum og nokkrum smá- flokkum. Etir að ríkisstjómin í vor ákvað að skera niður landbúnað- arframleiðsluna hafa miðflokks- menn ásakað Kokoomus um að vera í „stjóm þeirra velefnuðu borgarbúa", sem skilja ekki vandamál sveitarinnar. Ráðstöfun nk- isins á gras- kögglaverk- smiðium eftir Pál Ólafsson í frétt á bls. 22 í Morgunblaðinu 28. júlí síðastliðinn, sem er nokkrar línur, er sagt frá ráðstöfun ríkis- valdsins á graskögglaverksmiðjum í eigu þess, örlögum og niðurrifi. Líklega er það tilviljun að fyrir ofan þessa litlu frétt er frétt af hinu svokallaða Hafskipsmáli, þar sem ungir menn er börðust fyrir tilveru- rétti fyrirtækis síns, eru látnir sæta ábyrgð og bankastjórar fyriitækis' þess voru ákærðir. Þá er einnig frétt á næstu síðu blaðsins, þar sem segir frá því að Þingeyingar gráti að gi’asköggla- verksmiðja í meirihluta eigu ríkisins skuli ekki hafa verið reist þar. Allar þessar fréttir hafa það sameiginlegt að skattborgarinn hefur orðið að borga eða átt að borga. I Hafskips- málinu er engum hlíft, þar skulu menn vera ábyrgir gerða sinna en í gjaldþrota- og milljónatöpum hjá graskögglaverksmiðjum ríkisins eru allir hlutir fegraðir og beinlínis sagt rangt frá, sennilcga til þess að hlífa þeim mönnum sem hafa valdið skattborgaranum milljóna- tjóni. I 23 ár hef ég búið við skipulag í minni framleiðslugrein sem vel gæti átt heima í löndum austan járntjalds eða í þeim löndum S- Ameríku, sem litla virðingu bera fyrir lýðræði. Ég finn mig því knúinn til að upplýsa íslenska skattborgara hvernig búið er að hlunnfara hann og næstum eyðileggja framleiðslu- gi-ein innan landbúnaðarins, sem mikla framtíð átti fyrir sér. Eins og fyrrnefnd frétt ber með sér virðist sá aðili sem upplýsir fréttaritara blaðsins álíta að öllu sé búið að koma í lag hjá ríkinu og það sé búið að draga sig út úr þessari framleiðslugrein nema að það eigi enn verksmiðjuna í Gunn- arsholti. Þar verði engin framleiðsla í ár og framtíðin í óvissu. En hvílíkur málflutningur. Staðreyndin er sú að aldrei hefur framtíð ríkisverksmiðjunnar í Gunnarsholti verið jafnbjört og nú, eftir að búið er að leggja niður verk- smiðjuna á Hvolsvelli, fullkomnustu graskögglaverksmiðju landsins. En hvað gerir það til þó rókið eigi eina verksmiðju og reki. Að vísu á það ekki að skapa aðra fram- leiðendur, ef ríkið rekur hana á eðlilegan hátt, en það hefur sjaldan gerst í rekstri verksmiðjunnar í Gunnarsholti. Stjórnendur hennar hafa oftast notað aðra viðskipta- hætti en aðrir og stundað undirboð á framleiðsluna, þar sem því hefur verið viðkomið, þó þeir hafi síst haft efni á því. Sem dæmi hirti fyrrnefnt fyrirtæki markað af mér hjá fóðurblöndufyrirtæki í Sunda- höfn með undirboðum í mái 1986 en í desember var Fóður og fræ svo illa statt fjárhagslega að sögn fjár- málaráðuneytisins, að ráðuneytið greiddi fyrirtækinu kr. 5 milljónir. Þessar greiðslur verður að líta á sem beinar niðurgreiðslur á fram- leiðslu fyrirtækisins. Fyrrnefnd greiðsla ríkissjóðs er ekki eina greiðslan sem ríkissjóður hefur greitt á árinu ’86 til ríkisfyrirtækis í þessari framleiðslugrein. Til viðbótar þessari sérstöku fyr- irgreiðslu ríkissjóðs til handa Fóður og fræi í Grunnarsholti, sem stuðlað hefur að því að knésetja önnur fyrir- tæki í þessari framleiðslugrein hefur Landgræðsla ríkisins verið Páll Ólafsson „Ég finn mig’ því knúinn til að upplýsa íslenska skattborgara hvernig búið er að hlunnfara hann og næstum eyði- leggja framleiðslugrein innan landbúnaðarins, sem mikla framtíð átti fyrir sér.“ gróflega notuð með því að lána því allan áburð sem það notaði sumarið ’86. Samkvæmt fyrirspurn minni til Ríkisendurskoðunarinnar er þessi gerningur staðfestur með bréfi 22. september ’86. Landgi-æðsla ríkisins starfar samkvæmt sérstökum lögum nr. 17/165 og ég get ekki séð annað en það sé siðleysi að nota stofnun, sem starfar eftir ákveðnum lögum að vissum verkefnum, til að fjár- magna framleiðslufyrirtæki, jafn- framt efa ég að það sé löglegt. Staðan í markaðsmálum á gras- kögglum er sú í dag að nú ganga fulltrúar Landgræðslu ríkisins um og bjóða framleiðslu Fóður og fræs og Stórólfsvallarbúsins á verði sem er langt undir framleiðsluverði, væntanlega með samþykki land- búnaðarráðuneytisins, þó tap á rekstri Fóður og fræs í Gunnars- holti hafi verið á annan tug milljóna ’86. Ég mun ekki að þessu sinni ræða um gagnrýnisverða ráðstöfun Stór- ólfsvallarbúsins eða skýjaborgir sem sagt er frá í fyrrnefndri frétt. Höfundur er bóndi í Brautarholti og rek urþar grasköggla verk- smiðju. Fer inn á lang flest heimili landsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.