Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 20

Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Lífeyrissjóðasamböndin saman í samningagerðinni Framkvæmd haf- inn vegna stækk- unar Háskólabíós JARÐVEGSFRAMKVÆMDIR og ýmis undirbúningur eru nú að hefjast vegna fyrirhugaðrar stækkunar Háskólabíós. Ætlun- in er að bæta við þremur fyrirlestrar- og kennslusölum, sem munu rúma samtals um 700 manns. Ætlunin er að þeir verði einnig notaðir sem bíósalir á kvöldin og þar að auki sem ráð- stefnuaðstaða. Vonir standa til að hægt verði að hefja kennslu í einhverjum af nýju sölunum í árslok 1989. „Það er fyrst og fremst verið að leysa úr aðkallandi þörf Háskól- ans á stórum kennslusölum, þ.e.a.s. sölum sem rúma yfir 100 manns í sæti,“ sagði Þórir Einars- son, formaður byggingarnefndar, í samtali við Morgunblaðið. „Skortur á slíkum sölum er búið að vera viðvarandi og knýjandi vandamál í skólanum. Við höfum meira að segja þurft að kenna í stóra salnum í Háskólabíó og feng- um þar reynslu af því að hægt er að nota svona sali undir kennslu. Það verður mikil bót af þessari fjölgun sala, sér í lagi fyrir fyrstu árgangana í stóru deildunum." Svona er ætlunin að viðbótin við Háskólabíó tengist aðalbygging- unni. Við bætast þrír salir sem samtals munu rúma um 700 manns. Ríkið gerði sjóðunum tilboð um 6,25% vexti af skuldabréfum FULLTRÚAR fjármálaráðuneytisins hafa afhent fulltrúum Sambands almennra lífeyrissjóða sama tilboð I skuldabréf lífeyrissjóðanna og fulltrúum Landssambands lífeyrissjóð- anna hafði áður verið afhent. Fulltrúar sambandsins tilkynntu á fundinum að þetta tilboð væri ófullnægjandi. Ekki hefur verið boðaður annar fundur um þetta mál en aðilar voru sammála um nauðsyn þess að hraða samningagerð en samn- ingum um þetta á að vera lokið fyrir 1. október samkvæmt lögum. Morgunblaðið/Kristján Jarðvegsframkvæmdir og ýmis undirbúningur eru nú að hefjast vegna stækkunar Háskólabíós. Minníspemngar í tilefni afmælis Olafsvíkur um leið þátt í því að kaupa flygil í Fulltrúar ' lífeyrissjóðasam- bandanna áttu með sér fund á miðvikudag þar sem ákveðið var að standa saman að þessari samn- ingagerð. Áður höfðu fulltrúar Sambands almennra lífeyrissjóða neitað að mæta á fund með full- trúum fjármálaráðuneytis og Landssambands lífeyrissjóðanna á mánudag til að mótmæla þeim orðum Péturs Blöndal formanns landssambandsins í frétt í Morg- unblaðinu sl. sunnudag þess efnis að ekkert samband hefði verið haft við lífeyrissjóðina við gerð Atlantshaf sf lug: Tekur eldsneyti á íslenzku skipi IHÓP þeirra flugmanna sem ætla að leika eftir afrek Charles Lind- bergs og fljúga yfir Atlantshafið er skoski verkfræðingurinn Jim Montgomerie. Farkostur hans verður „gyrokopti11, lítil þyrla sem ber einn mann. Hyggst Mont- gomerie lenda á þilfari skipa frá Færeyjum, Grænlandi, Kanada og íslandi og taka eldsneyti í hafi. Frá þessu er greint í nýjasta tölu- blaði breska tímaritsins Flight International. Þar segir að þyrla verkfræðingsins verði knúin hreyfli af Limbach gerð. Ekki er greint frá því hvenær Montgomerie ætlar að leggja af stað. Tímaritið segir einnig frá fyrir- hugaðri flugferð Eppo Harbrink Numan. Ætlar hann að fljúga frá Rotterdam í Hollandi til Oshkosh í Bandaríkjunum. Numan ferðast í „flygildf‘, örsmárri flugvél úr fis- léttum gerviefnum. Fjórtán fyrirtæki styrkja ferðina og meðal þeirra vöru- tegunda sem Numan hefur með- ferðis verður skammbyssa frá Smith & Weston af tegundinni 357 Magn- um. nýja húsnæðislánakerfisins. Tilboð ríkisins hljóðar upp á 6,25% vexti umfram verðbólgu á næsta ári eða þá sömu og gilda á þessu ári. Áður hafði verið sa- mið um 5,9% vexti af þessum bréfum en samið er til tveggja ára í senn, með endurskoðunará- kvæðum. Þá bauð ríkið 6% vexti af skuldabréfunum fyrir árið 1989 og 5,75% vexti fyrir árið 1990. Áður höfðu fulltrúar lífeyr- issjóðanna kynnt fulltrúum ríkis- ins hugmyndir um að vextir af skuldabréfunum keyptum á næsta ári yrðu 7,5%. Hrafn Magnússon fram- kvæmdastjóri SAL sagði að þetta tilboð ríkisins gæti ekki orðið að samkomulagi eins og það væri borið fram og þessir vextir sem í tilboðinu fælust væru óraun- hæfir miðað við lánsfjármarkað- inn. í tilefni 300 ára verslunarafmælis Ólafsvíkur og 100 ára samfelldrar barnafræðslu á staðnuni hefur Rotaryklúbbur Ólafsvíkur látið útbúa minnispeninga. í fréttatilkynningu frá Rotary- klúbbi Ólafsvíkur segir að takmarkið sé að gefa öllum íbúum og velunnur- um Ólafsvíkur tækifæri til þess að eignast þessa minnispeninga og taka nýtt félagsheimili staðarins. Minnispeningamir eru seldir sam- an í öskju á kr. 2.800 og stakir á kr. 1.500. Eftirtaldir aðilar taka á móti pöntunum: Landsbanki íslands Ólafsvík, Sparisjóður Ólafsvíkur, Póstur og sími Ólafsvík, Magnús Eiríksson, Siguijón Bjarnason og Stefán Jóhann Sigurðsson í Ólafsvík. Tillaga unnin á vegum Þingvallanefndar: Vilja fjarlægja allar bygg- ingar austan Almannagjár LÖGÐ hefur verið fram tillaga að skipulagi þjóðgarðsins á Þing- völlum, unnin að tilhlutan Þingvallanefndar. Þar er gert ráð fyrir að útvíkka vemdarsvæði þjóðgarsins á næstu árum. Allar bygging- ar austan Almannagjár eiga að hverfa að kirkjunni og bænum undanskildum. í stað þeirra á að reisa menningarmiðstöð vestan gjárinnar sem gegnt geti fjölþættu hlutverki. Þingvallanefnd sem þeir Þorsteinn Pálsson, Hjörleifur Guttormsson og Þórarinn Sig- urjónsson skipa hefur fyrir sitt leiti fallist á tillöguna. Er nú leitað umsagna svo taka megi ákvörðun um aðalskipulag svæðis- ins. Þeim ber að skila til þjóðgarðsvarðar, Heimis Steinssonar. Heildarskipulag þjóðgarðsins hefur ekki legið fyrir fram að þessu. Við afgreiðslu fjárlaga fyr- ir árið 1985 var hálfri milljón króna veitt til þessa verks og þeir Reynir Vilhjálmsson og Einar Sæmundsen ráðnir til að annast það. Höfundar segjast hafa gefið sér þær forsendur að nauðsynlegt sé að vemda á öruggan hátt náttúru og menningarsögu Þingvalla. Það verði meðal annars gert með því að fræða gesti um gildi staðarins og virkja þá í vemdun hans. Stór hluti skipulagsvinnunnar fólst í gagnasöfnun um ferðavenjur gesta, staðhætti og náttúm stað- Menningarmiðstöð við Kárastaðastíg í tillögunni eru dregin mörk svæði sem lúta ber forræði Al- þingis og Þingvallanefndar að mati höfunda. Eiga þessir aðilar að hafa íhlutunarvald hvað varðar byggingarframkvæmdir, jarðrask og ræktun. I tillögunni er lagst gegn starf- semi vestan Almannagjár, í sigdældinni, þar sem náttúruleg- um verðmætum sé stefnt í hættu vegna átroðnings. Betur gæfist að reisa menningarmiðstöð við Kárastaðastíg, vestur af hringT sjánni. Þar sé nóg rými fyrir miðstöðina, ráðstefnuhús, hótel, bílastæði og íbúðir starfsfólks þjóðgarðsins. Höfundar telja að sameiginlegt hús Alþingis og kirkju mætti einnig tengja menn- ingarmiðstöðinni. „Svæðið vestan Almannagjár hefur ekki aðdráttarafl í augum almennings eins og stendur, en þegar nánar er að gáð hefur svæð- ið upp á ýmislegt að bjóða...Unnt er að gera reiti innan þessa svæð- is hlýlegri með skjólbeltarækt, t.d. við tjaldstæði," segir í tillögunni. Bent er á að vænta megi árang- urs borunnar eftir heitu og köldu vatni á þessum stað. Ákvæði sett um sumarbústaðina Samningar um sumarbústaði í þjóðgarðinum renna út á næstu árum. Lagt er til að þeir verði ekki framlengdir nema til fimm ára í senn. Ákvæði verði sett um hámarksstærðir húsa, hindruna- rlausa umferð og forkaupsrétt þannig að þjóðgarðurinn geti eignast þau mannvirki sem æski- legt væri vegna skipulagsins. Þá á ekki að leyfa girðingar um- hverfis sumarbústaðina. Höfundar vilja hlúa að forn- minjum í þjóðgarðinum með ýmsum hætti. Gamlar tættur og grónar rústir liggja víða í göngu- leið og þarf að leggja stíga framhjá þeim. Einnig þarf að grisja gróður þar sem tijárætur geta eyðilagt fornleifar í jörðu. Til þess að létta á tjaldsvæðinu á Leirunum vilja höfundar skipu- leggja nýtt svæði við Hrútagils- læk. Þar er mólendi í skjóli hrauns. Lagt er til að hefja tijá- rækt á svæðinu fljótlega til þess að undirbúa það og gera skjól- betra. í greinargerðinni segir að veiðimenn sem tjaldi á sama staðnum við vatnið ár eftir ár hafi valdið spjöllum. Þurfí að bregðast við því með því að loka ákveðnum svæðum en hlúa betur að öðrum. Höfundar gera einnig grein fyrir hugmyndum um breytta legu girðingar um þjóðgarðinn, þjóð- vegarins við Gjábakka og vegar- ins að Skógarhólum. Þá eru settar fram tillögur um veg með bíla- stæðum upp með Hrafnagjá, bílastæði á Hofmannaflöt og við Amarfell til þess að auðvelda umferð ferðamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.