Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 22

Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Flugslysið í Detroit: V oru vængbörð- in í láréttri stöðu? Washington, Reuter. SÉRFRÆÐINGAR bandarísku flugmálastofnunarinnar rann- saka nú hvort mannleg mistök hafi valdið flugslysinu við Detro- it á sunnudag. Tala látinna er enn ekki fulljós en vitað er að rúmlega 150 manns fórust er þotan sem var af gerðinni Mac- Donell Douglas hrapaði niður á hraðbraut fáeinum sékúndum eftir flugtak frá flugvellinum í Detroit. Forráðamen flugmálastofnun- unnar vildu ekki staðfesta að verið væri að rannsaka hvort flugmönn- um þotunnar hefðu orðið á mistök. Hins vegar sögðu ónanfgreindir heimildarmenn að grunur léki á um að vængborð vélarinnar hefðu ekki verið stillt sem skyldi. Hefðu þau ekki verið sett niður svo sem vaninn er við flugtak og lendingu. Allen McArtor, yfírmaður bandarísku flugmálastofnunarinnar, kvaðst að- spurður kannast við orðróm þennan en neitaði að tjá sig um hann svo sem fyrr segir. Hefðu vængbörðin verið í láréttri stöðu sagði McArtor að þotan hefði þurft bæði meiri hraða og lengri flugbraut í flugtaki. Sérfræðingar flugmálastofnun- arinnar hafa skýrt frá því að þotan hafí verið fullhlaðin er hún fórst. Þeir hafa og látið að því liggja að hún hafí þurft lengri flugbraut en ella þar eð óvenju heitt hafi verið daginn sem slysið varð. Talsmenn flugfélagsins North- west Airlines segja að 154 hafí farist en Öryggismálaráð sam- gönguráðuneytisins bandaríska telur að 153 menn hafi týnt lífi. Aðeins einn farþeganna komst lífs Moskva, Reuter. SOVÉSK lög sem banna samkyn- hneigð að viðlagðri þungri refs- ingu, allt að fimm ára fangelsi, verða ef til vill numin úr gildi. Þetta sagði lögfræðingur sem tek- ur þátt í víðtækri endurskoðun refsilöggjafar Sovétríkjanna í við- tali sem birtist á miðvikudag. Sofía Kelina sagði ennfremur í við- talinu við Moscow News að afnema ætti lög sem bönnuðu andsovéskan róg, og ekki ætti lengur að líta á vændi og eiturlyfjanotkun sem glæpi. Afplánun refsingar í fangabúðum skyldi einnig endurskoðuð. Að sögn Kelinu sem er meðlimur sovésku vísindaakademíunnar miða endurbæ- turnar á hegningarlögunum að því að gera þau mannúðlegri. Mörgum lagakrókum er þar ofaukið og 200 breytingar hafa verið gerðar síðan núverandi löggjöf tók gildi árið 1960. Auk þess að þyngja refsingar hafa breytingamar yfírleitt víkkað skil- greiningu refsiverðs athæfís. af, fjögurra ára gömul stúlka sem fannst á lífi í örmum látinnar móð- ur sinnar. Kelina sagði að réttarsalurinn væri ekki rétti vettvangur baráttunnar gegn vændi þó vændishúsarekstur og annað skipulagt vændi yrði enn sem fyrr refsivert. Hún sagði að ekki væri óhjákvæmilegt að líta á notkun fíkniefna sem glæp hvað þá heldur samkynhneigð þó öll þvingun til sam- ræðis yrði áfram refsiverð. Aðspurð um lögin gegn skoðunum í andstöðu við ríkið sagðist hún nokk- uð sannfærð um tilverurétt ákvæðis sem bannar andsovéskt athæfí og undirróður. Aftur á móti væri ákvæði sem bannar munnlegan óhróður um Sovétríkin, að viðlagðri þriggja ára fangavist, óþarft. Almennt séð væri nauðsynlegt að milda refsingar, skipta föngum eftir því hvort um síbrotamenn eða ekki væri að ræða og hætt skyldi að stinga mönnum inn fyrir minni háttar afbrot líkt og óspektir á almannafæri og spellvirki af minna taginu. Sovétríkin: Refsilöggjöf í endurskoðun Byssumaður truflar útsendingu Los Angeles, Reuter. MAÐUR með byssu í hendi gekk í fyrrínótt inn í uptökusal KNBC sjónvarpsstöðvarínnar sem er systurfyrirtæki NBC. Maðurinn rak byssuna i bak David Horow- itz sem var að lesa fréttimar og skipaði honum að lesa yfirlýs- ingu um CIA, bandarísku leyni- þjónustuna. Nokkram sekúndum síðar rufu tæknimenn útsend- inguna og sýndu þess ( stað merki stöðvarinnar og auglýs- ingar. Þegar Horowitz hafði lokið lestri yfirlýsingarinnar sem var að sögn áheyrenda sam- hengislaust bull, lét Gary Stoll- man, en svo hét hinn óboðni gestur, byssuna síga. Fréttamað- ur stöðvarinnar John Beard þreif þá vopnið af manninum og kom í Ijós að um leikfangabyssu var að ræða. Stollman sem sagð- ist vera sonur fyrrverandi starfsmanns stöðvarinnar yfirg- af bygginguna (fylgd lögreglu. NOTAÐU TÆKIFÆRIÐ! SKEIFUNNI KJÖRGARÐI AKUREYRI NJARÐVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.