Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
Reuter
Morðið á Karami:
S víar láta hinn
grunaða lausan
Stokkhólmi, Beirút, Reuter.
SÆNSKUR dómari leysti í gær
25 ára gamlan líbanskan lið-
hlaupa, Elie Sleibi, úr haldi án
ákæru. Grunur hafði fallið á
manninn um að hafa átt þátt í
að myrða Rashid Karami, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Líbanons, en þarlend yfirvöld
féllu frá ákæru á hendur hon-
um á þriðjudag vegna skorts á
sönnunum.
Sænska lögreglan handtók
Sleibi 1. ágúst að ósk líbanskra
jrfirvalda.
Oði"um manni, sem grunur lá
á, var sleppt á mánudag.
Karami, sem var súnníti og
bandamaður Sýrlendinga, lést
hinn 1. júní þegar sprengja
sprakk í þyrlu hans.
Talið er að áttatíu skæruliðar
úr uppreisnarliði kúrda hafi á
þriðjudag ráðist á tyrkneska
þorpið Kilickaya í Siirt-héraði
með flugskeyti, handsprengjur
og byssur og myrt tuttugu og
fimm manns, þar af fjórtán kon-
ur og börn. Á myndinni sjást
syrgjendur við jarðneskar leifar
ættingja sinna, sem féllu í árás-
inni.
Fjöldamorðið í Tyrklandi:
Sljómin virðist stað-
ráðin í að stöðva að-
skilnaðarsinna kúrda
Ankara, Reuter.
Stjórnarerindrekar í Tyrklandi sögðu í gær að fjöldamorð, sem
skæruliðar kúrda frömdu í afskekktu þorpi á þriðjudag, hefði borið
því vitni hversu erfitt væri að beijast við uppreisnarhópa á hijóstrug-
um og torfærum landsvæðum. Tyrknesk stjórnvöld væru aftur á
móti staðráðin í að bijóta skæruliða á bak aftur.
Telja þeir ólíklegt að stjórnvöld
láti undan kröfum aðskilnaðar-
hreyfingar kúrda, sem staðið hefur
að fjórum fjöldamorðum síðan í maí.
Dagblöð og stjómmálamenn hafa
harðlega gagnrýnt flokk uppreisn-
armanna, Verkamannaflokk Kúr-
distans (PKK), fyrir fjöldamorðið
nærri bænum Emh í fjallendinu
skammt frá landamærum Sýrlands
og íraks í suðausturhluta Tyrk-
lands. 25 íbúar þorpsins Kilickaya
létu lífið.
Segja stjómarerindrekar að tyrk-
neskir stjómarerindrekar láti engan
bilbug á sér finna og standi saman
gegn PKK, sem hefur barist fyrir
sjálfstjóm átta milljóna kúrda, er
búsettir em í Tyrklandi, í þrjú ár.
Tyrkjar viðurkenna ekki réttindi
kúrda sem þjóðarbrots og leyfa
ekki að tunga þeirra sé notuð opin-
berlega. Þess má geta að rúmlega
50 milljónir manna búa í Tyrkl-
andi. PKK nýtur ekki mikils
stuðnings frá utanaðkomandi aðilj-
um og ráðherrar nefna flokkinn
aldrei með nafni. Markmið flokksins
em heldur aldrei rædd og tilslakan-
ir, sem gætu leitt til þess að klæði
verði borin á vopnin, em bannorð
þegar kúrdamir em annars vegar.
Turgut Ozal forsætisráðherra var
ekki margorður um fjöldamorðið í
Kilickaya. Hingað til hefur hann
sagt að glæpir af þessu tagi væm
verk stigamanna, sem verið væri
að bijóta á bak aftur. En Ozal hef-
ur einnig sagt að suðausturhluti
Tyrklands væri langvarandi vanda-
mál og skrifaði leiðarahöfundur
fijálslynda blaðsins Milliyet í gær
að þessi orð hans hefðu verið eins
og olía á hugsjónaeld kúrda.
Erdal Inonu, leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins, sem er í stjómar-
andstöðu, sakaði stjómina um að
geta ekki varið borgara landsins.
En slík ummæli vekja ekki mikla
athygli og vom þau sögð af pólitísk-
um toga spunnin.
Stjómarerindrekar í Ankara
segja að morðin í Kilickaya beri
þeim vanda, sem blasir við stjóm-
inni, órækt vitni. Staðurinn er
afskekktur og þar er enginn sími
eins og víða annars staðar. „Verðir
í þorpinu börðust við skæmliða í
tvær klukkustundir án þess að liðs-
auki bærist frá hemum. Sýnir það
glöggt hversu mikil þörf er á síma,
eða einhvers konar fjarskiptasam-
bandi,“ sagði vestrænn stjórnarer-
indreki.
Talið er að margir skæmliðanna
séu þorpsbúar, sem taki af og til
þátt í árásum. „Vandamálið er einn-
ig fólgið í því að menn em smalar
á daginn, en skæmliðar á nótt-
unni,“ sagði erindrekinn.
Herferð PKK hefur það markmið
að tjófa tengsl milli þess svæðis,
sem aðskilnaðarsinnar kalla Kúr-
distan, og tyrkensku stjómarinnar.
Um leið er reynt að fá þorpsbúa til
að ganga í lið með skæruliðum með
því að hafa í hótunum við þá.
Talið er að fómarlömb skæmliða
á þriðjudag hafi verið kúrdar. í
árásinni féllu verðir og foringjar
þorpsbúa, sem herinn hafði látið
hafa vopn til þess að þeir gætu
varist sjálfir. Herinn hefur víða lát-
ið menn hafa vopn til vamar, en
sú áætlun stjómarinnar hefur ekki
borið árangur.
Nýjasta ráðstöfun stjómarinnar
til að beijast gegn uppreisnaröflun-
um var að skipa sérstakan héraðs-
stjóra í suðausturhluta landsins.
Hann heitir Hayri Kozakcioglu og
hefur hann víðtækt vald til þess að
samræma öryggisgæslu og vamir
í þessum landshluta. Daginn eftir
að hann tók við embættinu sagði
hann við dagblaðið Hurriyeb
„Fræðilega er ekki til sú þjóð, sem
nefnist kúrdar. Þeir komu frá Mið-
Asíu og em að einu og öllu leyti
af tyrkneskum stofni og uppmna."
Vestrænn stjómarerindreki sagði
um Kozakcioglu: „Þegar maður á
borð við hann fær að ráða, er ekk-
ert útlit fyrir að gera eigi tilslakanir
gagnvart kúrdum."
Talið er að uppreisnarmenn hafi
æfingabúðir og vopnabúr í norður-
hluta Iraks. Aftur á móti var árásin
á þriðjudag gerð um fimmtíu kíló-
metra innan landamæranna og
ólíklegt talið að skæmliðar hafi
komið yfir landamærin. Tyrkneski
flugherinn varpaði sprengjum
skammt fyrir innan landamæri ír-
aks eftir fyrri árásir PKK og var
það gert með samþykki stjómvalda
í Bagdað. Tyrknesk stjómvöld hafa
aftur á móti ekki getað sýnt fram
á annað en að loftárásin hafi verið
gerð til þess að færa almenningi
heim sanninn um að hún aðhefðist
eitthvað vegna hryðjuverka upp-
reisnarmanna.
SBB
yyy
Landbúnaðarsýning
íReiðhöIIinni,
Víðidal,
14.-23. ágúst 1987
BÚ ’87 stærsta
landbúnaðarsýningin til
þessa á erindi til allra.
Stórkostleg sýning, sem er
allt í senn:
Yfirlit, kynning,
sölumarkaður og
skemmtun.
Þar er tamdi platínu-
refurinn Kalli og Stakkur
og Spori - feiknatuddar,
frá Hvanneyri, úrvalskýr
af Suðurlandi, ásamt hvers
konar búfé af gamla og
nýja skólanum.
Fjárhundamir Roy, Lars
og Ríngó sýna listir sínar.
Mjaltir í nútíma
mjaltafjósi (hefurðu séð
slíkt?) alla daga kl. 18:00.
Fjöldamörg fyrirtæki
kynna nýjungar í þjónustu
við landbúnaðinn.
Góð kaup á vörum á
tækifærisverði.
Vörukynningar.
Spumingakeppni.
Lukkupottur.
Tískusýningar, þar á
meðal stór pelsasýning.
Héraðsvökur
landshlutanna.
Griltveislur bændanna.
Matreiðslukynningar.
Nýjasta tæknin ásamt
yfirlitiyfirþróunina.
DAGSKRÁ
Föstudagur 21. ágúst
Kynbótahross og Kl. 15:00
góðhestar.
Héraðsvaka Kl. 17:00
Eyfirðinga. og 20:30
Hrossamarkaður. Kl. 18:30
Úrvalshross á upp-
boðivið Reiðhöll.
14 úrvalshestar.
Seljendur eru skuld-
bundnirtilað taka
einu af3hæstu
tilboðunum.
Sýning á söluhestum.