Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Útgefandi mfrlftfeffe Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjöm Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Rannsóknaskipið „Bjarni Sæmundsson" i Grænlandssundi. Eftirbátar í framleiðni Hafrannsól í Norðurhöl Fjölmiðlar birtu á dögunum skýrslu Iðntæknistofnunar um framleiðni vinnuafls. Hún sýnir að íslendingar eru eftirbát- ar viðmiðunarþjóða, bæði austan hafs og vestan, hvað framleiðni varðar. Við stöndum verulega að baki velmegunarþjóðum, að þessu leyti, hvort heldur notaður er samanburður landsfram- leiðslu á hvem íbúa eða lands- framleiðslu á hvem vinnandi einstakling. Raunar hefur lands- framleiðsla á hvem vinnandi mann hvergi aukizt jafn lítið — í viðmiðunarríkjunum — og hér á landi. Það blasir við eftir þessar nið- urstöður að gera verður stórátak til að auka framleiðni hér á landi til þess að íslenzkir atvinnuvegir verði samkeppnisfærir — og megnugir þess að rísa undir jafn góðum lífskjörum og bezt þekkj- ast annars staðar. Almenn lífskjör ráðast fyrst og fremst af þeim verðmætum, sem til verða í þjóðarbúskapnum, ásamt þeim kjömm í milliríkjaverzlun, sem okkur tekst að ná. Verð- mætasköpun og viðskiptakjör em meginuppsprettur þjóðar- tekna. Þær setja okkur síðan eyðslumörk, bæði í einkaneyzlu og samneyzlu. Ráða raunar einn- ig ferð í sparnaði okkar og fjárfestingu. Hvemig stendur á því, kann einhver að spyrja, að „láglauna- land“, eins og ísland er af sumum talið, er ekki samkeppn- isfært í verðsamkeppni fram- leiðslu við aðrar þjóðir? Við skulum gefa okkur tilbúið og ýkt dæmi til að auðvelda skýringu. Tímakaup við einhvers konar framleiðslu, til dæmis á striga- pokum eða einhverri annarri vöm, getur verið hið lægsta í veröldinni, en greitt kaup á hvem framleiddan poka eða ein- ingu hið hæsta, ef framleiðnin er nógu lítil. Og staðreyndin er sú að framleiðni er hér vemlega minni en í samkeppnislöndum okkar. Raunar er framleiðni hvað minnst í höfuðatvinnuveg- um þjóðarinnar. Astæður minni framleiðni hér en annarsstaðar, em efalítið margskonar. Ein ástæðan, máski meginástæðan, er óða- verðbólga áttunda áratugarins og fyrstu ára þess níunda — og sá óstöðugleiki í efnahagsmálum og á vinnumarkaði, sem í kjölfar hennar fylgdi. Á verðbólguámn- um bjuggu atvinnugreinar og fyrirtæki við hallarekstur, ár eftir ár, gengu á eignir og söfn- uðu skuldum. Innlend sparifjár- myndun hmndi og þröngur lánsfjármarkaður laut um of pólitískri stýringu, stundum fremur en arðsemissjónarmið- um. Við slíkar kringumstæður - sem og ofsköttun á sumum svið- um - gátu fyrirtæki ekki byggt sig upp eða tæknivæðst til sam- ræmis við öra framþróun at- vinnurekstrar þar sem vaxtarskilyrði hans vóm hvað bezt. Fleira kemur sjálfsagt til, eins og vanmat á gildi rannsókna í þágu atvinnuveganna, sem em minni hér en víðast annars stað- ar, ónóg sérhæfing, of lítill sveigjanleiki í rekstri, sums stað- ar lök stjórnun og loks launa- kerfi sem er alltof sjaldan vinnu- eða afkastahvetjandi. Það ber að fagna því að ríkis- stjómin hefur ákveðið að veita þremur milljónum króna til framleiðniátaks í iðnaði, gegn því að vinnuveitendur leggi fram sömu upphæð til átaksins. Hér er stigið skref rétta átt. Fleiri þurfa að fylgja á eftir vegna þess að „aukin framleiðni er far- sælasta leiðin til þess að nýta auðlindir, tækni og vinnuafl á sem beztan hátt... til að efla atvinnulíf og bæta lífskjör", eins og segir í skilgreiningu Fram- leiðnimiðstöðvar Japans á framleiðnihugtakinu. Mergurinn máls er þó sá að búa íslenzkum atvinnugreinum og fyrirtækjum þau rekstrarskil- yrði, sem gera þeim kleift að byggja sig upp og tæknivæðast til jafns við hliðstæðan atvinnu- rekstur annarsstaðar. Það þarf jafnframt að stórefla hverskonar rannsóknir í þágu atvinnuveg- anna, innan fyrirtækja, atvinnu- greina og hjá opinberam rannsóknarstofnunum. Mestu máli skiptir þó að slaka ekki á verðbólguvömum. Verðbólga áttunda áratugarins var sá Þrándur í Götu framfara í íslenzku atvinnulífí, sem mest hefur skaðað okkur. Verðbólga gengins áratugar er meginorsök minni framleiðni, hægari hag- vaxtar og lakari lífskjara hér en í þeim ríkjum, sem lengst hafa náð á þessum vettvangi. eftir Svend Aage Malmberg Gíbraltar Norðurhafa Heimsókn fjölda stórra hafrann- sóknaskipa til Reykjavíkur nú í ágúst á vegum NATO og ráðstefna í Hveragerði um flotastöðu stór- veldanna nyrst í Norður-Atlantshafi og í Norðurhöfum syna glöggt áhugaverða legu íslands í hafinu. Landið er á mörkum stærsta inn- hafs heimshafanna, Norðurhafa (Norður-íshaf og Norðurhaf). Þetta stóra innhaf (12 millj. km 2nær frá Beringsundi milli Alaska og Síberíu að íslandi og Færeyjum sem em eins og klettar í hafinu eins og Gíbraltar við mynni Miðjarðarhafs- ins gamla, Mare Nostmm Róm- verjanna. „Föðurland vort hálft er hafið“ í lofti og legi við Island takast á kaldir og hlýir loft- og hafstraum- ar, freri norðursins og sólvarmi suðursins. Þessum staðháttum við neðansjávarhryggi og víðáttumikið landgrunn fylgja gjöful fiskimið sem em undirstaða lífs á landinu. Þau em annað tveggja lífbelta landsins eða eins og skáldið kvað „Föðurland vort hálft er hafið“. Alþj óðahafrannsóknir Hafrannsóknir Islendinga snúast að vonum einkum um fiskinn í sjón- um. Eins var með rannsóknir annarra þjóða á íslandsmiðum, en með 200 sjómílna efnahagslögsögu breyttist þetta og dró úr þátttöku annarra þjóða um leið og Islending- ar efldu sínar rannsóknir. Aðrar hafrannsóknir við ísland og í ná- lægum höfum hafa aftur í vaxandi mæli orðið alþjóðlegar vegna þýð- ingar þessara hafsvæða fyrir skiln- ing á veðurfari, hafsbotnsferlum og gerð jarðar, og öðmm eðlis- og efnahvörfum á jörðinni. Það em því ekki aðeins rannsóknir í þágu hem- aðar sem fara fram í hafinu við ísland og á nálægum hafsvæðum, góðu heilli, þótt óneitanlega veki þær athygli og ugg fyrir hvað þær virðast vera stórfelldar. Mjög áhugavert væri reyndar að komast í þessi gagnasöfn frá NATO. Alþjóðahafrannsóknaráðið stendur þannig t.d. fyrir um- fangsmiklum rannsóknum í Norð- urhafí og norðanverðu Atlantshafi (NANSEN Project) til könnunar á eðlis- og efnabúskap hafsins á þess- um slóðum, sem hafa þýðingu fyrir þróun veðurfars á jörðinni allri. ís- lendingar em þátttakendur í þessu verkefni bæði á heimaslóð (Græn- landssundi) og í samnorrænu verkefni við Færeyjar. Mörg önnur samvinnuverkefni íslenskra og er- lendra stofnana um rannsóknir í sjó og lofti mætti upp telja auk hefð- bundinna fískirannsókna að ógleymdum hvalrannsóknum. Yfir- leitt reynum við að standa með öðmm þjóðum í rannsóknum á Norðurhöfum og öðmm nálægum hafsvæðum til aukins skilnings á aðstæðum á heimaslóð þar sem lífíð er í svo ríkum mæli háð umhverfís- aðstæðum, um leið og við beinum áhrifum okkar á rannsóknirnar vegna sérstöðu okkar. Rannsóknir í Græn- landshafi norður a. Tilgangur þessa pistils er ann- ars að ljalla um sérstakt alþjóðlejgt verkefni í Norðurhafi þar sem Is- lendingar verða virkir þátttakend- urí Þetta em rannsóknir í Norður-Grænlandshafi frá Sval- barða að Jan Mayen og suður undir Grænlandssund. (Greenland Sea Project). Þessar rannsóknir hófust í ár (1987) og standa þær í 5 ár til að byrja með. Rannsóknaskipið „Tilgangur þessa pistils er annars að fjalla um sérstakt alþjóðlegt verkefni í Norðurhafi þar sem Islendingar verða virkir þáttakend- ur. Þetta eru rannsókn- ir í Norður-Grænlands- hafi frá Svalbarða að Jan Mayen og suður undir Grænlandssund. (Greenland Sea Project). Þessar rann- sóknir hófust í ár (1987) og standa þær í 5 ár til að byija með.“ „Bjami Sæmundsson" verður þann- ig í september n.k. við rannsóknir frá Jan Mayen og Scoresbysundi á Austur Grænlandi að Grænlands- sundi. Rannsóknimar fara fram í samvinnu við danska vísindamenn frá Grænlensku fiski- og umhverfis- málastofnuninni sem verða með í fömm. Verkefnið er stutt af sér- stakri fjárveitingu í íslensku fjár- lögunum, af Norðurlandaráði og grænlensku hafrannsóknunum með Grænlandshaf norður rannsóknir. Yfirlitsmynd af hafstraumum og sjógerðum í Norðurhöfum. Þessi höf greinast í Norður-íshaf og Norðurhaf, sem aftur greinist í Grænlandshaf norður, íslandshaf og Noregshaf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.