Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
29
Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson
Séra Sigurður Guðmundsson biskup afhjúpaði minnisvarðann um
fyrstu kirkjuna á Norðurlandi en hún var reist að Neðra-Asi í
Hjaltadal árið 984.
Hólum í Hjaltadal:
Minnisvarði um
fyrstu kirkjuna á Norð-
urlandi afhjúpaður
Húsavík.
Skagafjörður:
V egaframkvæmd
ir á Vatnsskarði
Varmahlíð, Skagafirði.
AÐ LOKINNI Hólahátíð sl.
sunnudag afhjúpaði biskup Is-
lands, séra Sigurður Guðmunds-
son, minnisvarða um fyrstu
kirkjuna á Norðurlandi, sem
reist var að Neðra-Ási í Hjalta-
dal árið 984.
Áletrunin á minnisvarðann er
þessi:
„Þorvaður Spak-Böðvarsson lét
gera kirkju á bæ sínum í Ási. En
kirkja sú var gerð 16 vetrum áður
en kristni var í lög tekin á íslandi".
Minnisvarðinn er reistur að til-
hlutan og á kostnað hins þjóðkunna
athafnamanns Gísla Sigurbjörns-
sonar, Grund, til minningar um
þessa fyrstu kirkju og jafnframt
þess að faðir Gísla, séra Sigurbjörn
Ásvaldúr Gíslason, er alinn upp að
Neðra-Ási og naut þar í sveit sinnar
fyrstu fræðslu hjá séra Zophoníasi
Halldórssyni, prófasti í Viðvík, sem
var mikilsmetinn klerkur á sinni tíð.
— spb
MIKLAR vegaframkvæmdir á
Vatnsskarði hafa staðið yfir nú
í sumar og sjálfsagt ekki farið
framhjá neinum sem þar hefur
farið um. Hér er um að ræða
langstærstu vegaframkvæmd í
þessum Iandshluta á þessu ári.
Vegurinn nýi er að hluta til
byggður ofan á gamla þjóðveg-
inn norðan Vatnshlíðarvatns og
fylgir honum að mestu leyti yfir
háskarðið og vestur yfir.
Það er vissulega fagnaðarefni að
ráðist er í uppbyggingu vegar yfir
Vatnsskarð, því á vetrum er skarð-
ið einn helsti farartálmi á leiðinni
Reykjavík—Akureyri sökum snjóa,
en vegurinn liggur í 440 m hæð
yfir sjávarmáli'þar sem hæst ber.
Það er verktaki vestan frá Bol-
ungavík sem annast framkvæmd
verksins, Örnólfur Guðmundsson
að nafni, og er vélakostur allur frá
ísafirði. Það eitt gefur tilefni til að
ætla að hart sé sótt í þessum verk-
taka-„bransa“.
Örnólfur sagði að verkið hefði
sóst heldur seint fyrripart sumars
og hefði margt komið til. Efnisnám-
ur hefðu reynst verri en ráð var
fyrir gert. Umferðin um þjóðveginn
hefur verið a.m.k. þrisvar sinnum
meiri en reiknað hefði verið með og
í þriðja lagi, þó ótrúlegt sé á þessu
veðurblíða sumri, klaki í jörðu,
þ.e.a.s. í mýrlendinu hefði klaki
reynst ótrúlega bölvaður viðfangs
og það var ekki fyrr en nú um
síðustu mánaðamót sem klakinn
hvarf.
„Það er allt farið að ganga mun
betur núna síðustu vikurnar," sagði
Örnólfur og var vongóður um að
tækist að ljúka verkinu á tilsettum
tíma, eða um miðjan október.
Alls eru það 6,4 km sem byggðir
verða upp í sumar og er þá eftir
einn áfangi að vestan, Bólstaðar-
hlíðarbrekkan, sem oft er mjög
viðsjárverð í hálku.
- P.D
Morgunblaðid/Páll Daífbjartsson
Örnólfur Guðmundsson verktaki
annast framkvæmdirnar og
kvaðst hann vongóður um að
tækist að ljúka verkinu á tilsett-
um tíma, eða um miðjan október.
ÞAKRENNUR HENTA
Á ÖLL HÚS
'• suuitsíii
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skemmdir eru miklar á húsinu.
PLASTMO-rennurnar eru auöveldar í uppsetningu.
PLASTMO-rennurnar passa viö gömlu járnrennurnar.
PLASTMO-samskeytin endast eins lengi og rennurnar.
PLASTMO-rennurnar fást í 3 stærðum.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Eldhúsið þar sem talið er að eldurinn hafi kviknað.
Þar brann allt sem brunnið gat.
Hús Þroskahjálpar á Suðumesjum;
Miklar skemmd-
ir í eldsvoða
Keflavík.
MIKLAR skemmdir urðu í eldsvoða á húsi Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum á miðvikudagsmorgun.
Slökkviliðið í Keflavík var kallað að húsinu, sem
er timburhús, um kl. 6.00 og var þá mikill eldur
í vesturálmu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn
en rjúfa varð þekjuna á einum stað við slökkvi-
starfið.
Kristinn Hilmarsson framkvæmdastjóri Þroska-
hjálpar á Suðumesjum sagði að engin starfsemi hefði
verið í húsinu að undanförnu vegna sumarleyfa. Þarna
hefði verið ðag- og sólarhringsvistun fyrir þroska-
hefta. Kristinn sagði skemmdirnar miklar og ljóst
væri að húsið yrði nánast fokhelt þegar búið yrði að
hreinsa út úr því. „Ljóst er að við verðum að finna
annað húsnæði þar til viðgerð hefur farið fram og
verður allt kapp lagt á að finna lausn á húsnæðis-
vanda okkar. Við höfum oft orðið að leita til einstakl-
inga og félagasamtaka um aðstoð og svo mun einnig
verða nú,“ sagði Kristinn ennfremur.
Talið er að eldurinn hafí kviknað í eldhúsi og er
rannsóknarlögreglan og rafmagnseftirlitið að kanna
orsakir bmnans. _ BB
PLASTMO-rennurnar fást (4 litum.
PLASTMO-rennur eru sterkar og hafa frábært veörunarþol.
PLASTMO framleiöir alla fylgihluti sem nota þarf.
PLASTMO leysir öll þakrennu-vandamál.
Hvort sem hús þitt er nýtt eöa gamalt þá henta
PLASTMO-rennurnar þér.
Útsölustaðir:
BB byggingavörur hf„ Suöurlandsbraut og Nethyl, Reykjavík
Málarinn hf„ Grensásvegi og Hólagaröi, Reykjavlk
JL Byggingavörur sf„ Hringbraut og Ártúnshöföa, Reykjavlk
Fittingsbúöin hf„ Kópavogi
Parma byggingavörur hf„ Hafnarfirði
Mál ni ngarþ jónustan hf„ Akranesi
Jón Fr. Einarsson - Byggingaþjónustan, Bolungarvlk
- og kaupfélögin víöa um land.
--------------Plaslmo^?--------------------------------
m 4t$nnH
MetsöluUad á hverjum degi!