Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
„Hænufet stigið
í lausnarátt“
— segir Úlfar Björnsson, skrif-
stofustjóri fræðsluskrifstofunnar
SIGURÐUR Hallmarsson, áður
skólastjóri á Húsavík, hefur
verið settur fræðslustjóri Norð-
urlandsumdæmis eystra. Um
fræðslustjórastöðuna hefur
staðið mikill styrr siðan i vetur,
er Sturlu Kristjánssyni, þáver-
andi fræðslustjóra, var vikið
úr embætti, og starfsmenn
fræðsluskrifstofunnar hafa
ekki verið allskostar ánægðir
með allan framgang mála.
Blaðamaður Morgunblaðsins
leitaði álits tveggja þeirra í gær
eftir að ljóst var að Sigurður
Hallmarsson hefði verið skip-
aður i stöðuna.
„Okkar skoðun er sú að endan-
leg lausn á þessu máli sé ekki
ennþá fundin, en hún finnst ekki
fyrr en búið er að koma málum
Sturlu á hreint,“ sögðu þau Úlfar
Björnsson, skrifstofustjóri, og
Katrín Ragnarsdóttir á fræðslu-
skrifstofu Norðurlandsumdæmis
eystra.
„Það má hins vegar segja það
að með þessari ákvörðun að setja
Sigurð Hallmarsson í stöðuna sé
verið að stíga í áttina til lausnar
málsins, en það er okkar álit að
þar sé ekki nema hænufet stigið
í lausnarátt," sagði Úlfar.
„Við höfum litið á Ólaf Guð-
mundsson, sem hér hefur gegnt
fræðslustjórastöðunni, sem sér-
stakan mann Sverris Hei-manns-
sonar, en það eitt að setja annan
mann í hans stað er engin endan-
leg lausn. Við lítum svo á að
Sturlu hafi verið fórnað í þessu
Úlfar Björnsson
máli, en auðvitað hefði átt að
byija á því að leysa hans mál,“
sagði Katrín.
Þau sögðu að það að ráða Sig-
urð í starfið væri það fyrsta í
þessu máli sem gert hefði verið
með fullu samþykki heimamanna
og væri litið svo á að hann væri
hlutlaus aðili í málinu, öfugt við
Ólaf, og því yrði engin andstaða
við hann í þessu starfi.
Katrín Ragnarsdóttir
„Það er hins vegar ekki búið
að bíta úr nálinni, og við eigum
eftir að sjá hver eftirleikurinn
verður, og reyndar held ég að
ýmis teikn séu á lofti um að viðun-
andi lausn finnist," sagði Úlfar.
Katrín bætti við að svo virtist sem
menntamálaráðherra, Birgir
Isleifur Gunnarsson, hefði gert sér
grein fyrir því hver vandinn væri,
og væri vonandi reiðubúinn að
finna á honum lausn.
Yinnuslys
í Slipp-
stöðinni
VINNUSLYS varð í Slippstöðinni
í gærmorgun um klukkan niu.
Maður sem var að störfum við
vél sem klippir járn klemmdist með
fingur á milli með þeim afleiðingum
að flytja varð hann á spítala. Meiðsli
hans voru þó ekki talin mjög alvar-
leg.
Frystitogarinn
Mánaberg:
Aflaverð-
mæti orðið
110 milljón-
ir króna
Frystitogarinn Mánaberg kom
i gærmorgun til Ólafsfjarðar
með 170 tonn af þorskflökum og
er áætlað aflaverðmæti um 21-22
milljónir króna.
Fiskmarkaður Norðurlands:
Sex fiskverkunaraðilar
hafa sótt um tengingu
SEX fiskvinnslustöðvar á Norð-
urlandi hafa nú þegar sótt um
að tengjast Fiskmarkaði Norð-
urlands hf. en stefnt er að því
að tíu aðilar tengist markaðnum
til að byrja með og er búist við
að þeir verði allir tengdir honum
um næstu mánaðamót.
Þeir fiskverkendur sem þegar
hafa ákveðið að tengjast fjar-
skiptamarkaðnum eru Fiskiðjan á
Sauðárkróki, Þormóður Rammi á
Siglufirði, Hraðfrystihús Magnús-
ar Gamalíelssonar á Ólafsfirði,
Kaldbakur á Grenivík, Fiskiðju-
samlag Húsavíkur og Hraðfrysti-
hús Þórshafnar.
„Á meðan þeir sem tengjast
verða ekki fleiri en 10 er stefnan
sú að þeir gefi iiðrum fiskkaupend-
um kost á að fylgjast með og bjóða
í afla og síðar meir reiknum við
svo með að þeim fjölgi sem tengj-
ast fjarskiptamarkaðnum,“ sagði
Sigurður P. Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri fiskmarkaðsins.
Hann sagði að á næstu dögum
hefði hann samband við fleiri aðila
á svæðinu og sagði að reynt yrði
að gefa stærstu fiskkaupendunum
tækifæri til að tengjast. Kostnað-
ur, sem er um 40 þúsund í heildina,
felst aðallega í kaupum á mótaldi
en tengigjaldið sjálft er um 14
þúsund krónur. í byijun september
verður síðan haldið námskeið fyrir
þá aðila sem fjarskiptamarkaðnum
tengjast og um miðjan mánuðinn
er gert ráð fyrir að allt verði til-
búið fyrir uppboð á fískafla.
Eðlilegt að dreifa afla
í g-egnum fiskmarkað
„Við lítum fyrst og fremst á
þennan fj'arsiptamarkað sem til-
raunastarfsemi og vonum að þar
eigi eftir að fara fram blómleg við-
skipti,“ sagði Knútur Karlsson,
framkvæmdastjóri Kaldbaks á
Grenivík, í samtali við Morgun-
blaðið. „Fjarskiptamarkaður af
þessu tagi virðist vera eina færa
leiðin fyrir eðlilega markaðsdreif-
ingu á fiski fyrir þetta svæði og
gefur miklu betri raun heldur en
gólfmarkaður.
Reyndar höfum við hér á
Grenivík ekki átt í neinum vand-
ræðum með að losa okkur við afla
þegar við höfum viljað því mest
af okkar afla er bátafiskur, en
ekki togarafiskur, og því meira að
gera hjá okkur á vissum árstímum
en hjá öðrum fiskverkendum. Ég
álít hins vegar að það sé eðlilegra
að dreifa aflanum í gegnum mark-
að, þar sem mörgum aðilum gefst
kostur á að bjóða í hann, en það
er hins vegar alveg Ijóst að það
þarf tvö til þijú ár til þess full-
reyna þetta fyrirkomulag," sagði
Knútur.
Fáum upplýsing'ar sem
okkur vanhagar um
Fiskiðjan á Sauðárkróki mun
tengjast fiskmarkaðnum og þar
mun fiskverkendum á Skagafjarð-
arsvæðinu gefast kostur á að
fylgjast með og taka þátt í upp-
boðum. „Fiskverkendur hér í
Skagafirði hafa haft með sér ág-
ætt samstarf um dreifingu afla;
við fáum 40% togaraaflans, en
Skjöldur og Hraðfrystihúsið hf. á
Hofsósi hafa skipt afgangnum
jafnt á milli sín,“ sagði Marteinn
Friðriksson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar á Sauðárkróki. „Okk-
ur vantar stundum hráefni, en
stundum eigum við fullt í fangi
með að vinna allan aflann, og því
sjáum við þann meginkost við að
tengjast fiskmarkaðnum að geta
fengið þar upplýsingar á hveijum
tíma sem okkur vanhagar um. Við
vitum náttúrlega ekki ennþá
hvernig þetta kemur til með að
ganga; það vill oft verða þannig
að þegar vel veiðist gengur það
svo að segja jafnt yfir alla, og því
vantar yfirleitt alla fisk eða allir
hafa nóg að gera,“ sagði Marteinn.
Hráefnisöflun með
stuttum fyrirvara
Jóhann Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafn-
ar, sagði að meiningin væri að
tengjast fiskmarkaðnum og sjá
hver framvindan yrði. „Kosturinn
við markaðinn verður sá að með
einu símtali er hægt að koma skila-
boðum til allra fiskverkenda á
svæðinu að afli sé til sölu og verð
hans ræðst síðan af framboði og
eftirspurn, sem hlýtur að vera eðli-
leg aðferð við að selja fiskinn og
ákveða verðið,“ sagði Jóhann. „Út-
gerðin og fiskverkunin verður að
aðlaga sig nútímanum og tileinka
sér nýja tækni og það er það sem
við erum að gera með því að tengj-
ast markaðnum. Þetta býður upp
á þá möguleika að það ætti að
vera hægt fyrir fiskverkendur að
verða sér úti um hráefni með stutt-
um fyrirvara, eða losa sig við það
ef þeir hafa of mikið af því,“ sagði
hann að lokum.
Þetta var 5. veiðiferð togarans
síðan hann var keyptur til Ólafs-
ijarðar í apríl síðastliðnum og er
aflaverðmæti hans samtals orðið
um 110 milljónir króna.
Jón Þorvaldsson skrifstofustjóri
útgerðarfélagsins sagði að þorsk-
kvótinn væri að verða búinn hjá
þeim; ekki væru eftir nema um
200-300 tonn af honum. „Við verð-
um því að geyma okkur þorskkvó-
tann svolítið en förum á ufsa- og
karfaveiðar í staðinn," sagði Jón.
Hásetahluturinn í túrnum, sem
tók 23 daga, er áætlaður vera um
200 þúsund krónur.