Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 31 Ólafsvík: Gestum boðið á Snæfellsjökul ólafsvík. BÆJARSTJÓRN Ólafsvíkur bauð gestum sínum er komu til afmælishalds um síðustu helgi í ferð á Snæfellsjökul. A sunnudeginum hafði verið ráðgerð ferð kringum jökulinn en hún féll niður vegna annarra við- burða í heimsókninni. Kl. 04.00 á mánudagsmorgun var því lagt upp. Ekið var frá Ólafsvík upp að snjólínu. Þar tók við dráttar- tæki er flutti fólkið hærra. Loks var svo síðasti brattinn genginn. I ferð þessari voru meðal annarra Friðjón Þórðarson alþingismaður og kona hans, Kristín Sigurðar- dóttir, Kristján Pálmason bæjar- stjóri, Guðmundur Tómasson fyrrverandi bæjarstjóri og kona hans Hjördís Harðardóttir, auk bæjarstjómarmanna og starfs- Morgunblaðið/Bjöm Amaldsson Hér má sjá Friðjón Þórðarson alþingismann við sprungu er varð á vegi ferðafólksins. manna jökulferðanna. Veður var hið besta og að sögn Friðjóns Þórðarsonar sem mun vera fýrsti starfandi alþingismaðurinn sem gengur á jökulinn var sólaruppr- ásin tignarleg og ferðin ógleyman- leg. - Helgi. Sest niður og dáðst að útsýninu. Starfsmenn Véla og þjónustu, f.v. Matthías Sturluson, Pétur Óli Pétursson og Sveinn M Sveinsson. Stærsta dráttar- vélin á Bú ’87 Á sýningarsvæði hjá Vélum og þjónustu hf. á Bú ’87 er nú til sýnis stærsta dráttarvél sem flutt hefur verið inn til lands- ins. Vélin er af gerðinni Case International 4449 með drifi á öllum hjólum. Jafnstór hjól eru að framan og aftan og er stýr- ing á báðum öxlum. Dráttarvél þessi er 9 tonn að þyngd og er með 213 ha. dísilvél. Pétur Óli Pétursson, fram- kvæmdastjóri Véla og þjónustu, sagði í samtali að ekki væri gert ráð fyrir að selja margar slíkar vélar til íslensks landbúnaðar en hins vegar hefði þegar verið seld ein slík vél til línubygginga og viðhalds hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Varðandi sölu á landbúnaðar- dráttarvélum almennt sagði Pétur að salan hjá Vélum og þjónustu hefði verið mjög mikil að undanf- ömu og t.d. hefði Vélar og þjónusta selt fleiri dráttarvélar fyrstu sjö mánuði þessa árs en allt árið í fyrra. Einnig sagði Pétur athyglisvert að á árinu 1986 hefði Case Intem- ational náð þeim áfanga að vera mest selda v-evrópska vélin á ís- landi — með lítið eitt fleiri vélar en Massey Ferguson. VÖRN GEGN VEÐRUN Það er misskilningur að járn þurfi að veðrast. Alltof lengi hafa menn trúað því að galvaníserað járn eigi að veðrast áður en það er málað. Þannig hafa menn látið bestu ryðvörn, sem völ er á skemmast og afleiðingin er ótímabær ryðmyndun. Með réttum HEMPELS grunni má mála strax og lengja þannig lífdaga bárujárns veruiega. HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn og hefur frábært veðrunarþol. íslenskt veðurfar gerir meiri kröfur til utanhússefna en veðurfar flestra annara landa. Ef steinn er óvarinn við þessar aðstæður grotnar hann niður á skömmum tíma, aðallega vegna frostþíðuskemmda. Steinsílan gefur virka vörn gegn þess konar áhrifum. Opin veggjamálning, grunnur jafnt og yfirefni á stein, múr- stein og eldri málningu. Hefur afbragðs þekju og mikið veðr- unarþol. Fjöldi lita sem halda skerpu sinni lengi án þess að dofna. SIIPPFEIAGIÐ Dugguvogi4 104 Reykjavik 91-842 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.