Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Minning: Guðmundur Pálsson Jórunn Svava Arna- dóttir — Minning Fólk kemur og fer, og sumt fólk er erfiðara að kveðja en annað, eink- um þegar ekki er vitað hvenær endurfundir verða. En sjaldnast er þó á kveðjustund hugsað um að ef til vill verði engir endurfundir. Þegar ég kvaddi frænda síðast þá hugsaði ég ekki um hvort eða hvenær ég hitti hann aftur, heldur gekk ég að því sem vísu að ég, að lokinni árvissri sumardvöl minni í Bolung- arvík færi á Fjörugrandann til að hitta „foreldra" mína í Reykjavík, elsku Siggu og frænda. En svo ge- rist hið óvænta, — dauðinn — og alltaf eru allir jafn óviðbúnir banki * hans. Sem böm vissum við systkinin á Þjóðólfsvegi af bróður hennar mömmu og konunni hans sem voru leikarar í Reykjavík en þekktum þau raunar lítið, nema í gegnum útvarp- ið. Við kölluðum hann aldrei annað en „frænda" og ætluðumst til þess að þegar við töluðum um hann að þá vissu allir um hvern við værum að tala, og svo er með mig enn í dag, — „frændi“. Mér finnst fyrstu kynni mín af frænda vera þegar þau Sigga komu keyrandi vestur á nýrri Volkswagen bjöllu og við systkinin fengum ásamt vinum að sitja á stuðaranum og borða rabarbara úr garðinum hennar Ingu-ömmu. Svo liðu árin. Og þar kom að ég eins og flest landsbyggð- arbörn vildi halda til höfuðborgarinn- ar í skóla. Húsnæðisvandi minn í Reykjavík var leystur. Sigga og frændi buðu pabba og mömmu að taka unglinginn inn á heimilið sitt meðan á náminu stóð. Ég gerði mér eiginlega ekki grein fyrir því fyrr en löngu seinna hversu dýrmætt þetta var mér, að eignast heimili í Reykjavík sem líktist heimili foreldra minna í Bolungarvík. Frá þessum árum á ég dásamlegar minningar. Fjölskyldulífið einkenndist af ein- stakri hlýju og gleði, og þær voru ófáar stundimar sem við Hrafnhildur lágum í krampahlátri í borðkróknum á Framnesveginum yfir einhveiju sem frændi var að segja okkur, og á sunnudagsmorgnum las hann oft fyrir okkur upp úr bókum af ýmsu tagi. Við fórum mikið á skíði og í bíltúra um nágrenni Reykjavíkur. Það var eiginlega ómögulegt fyrir þau að losna við mig nokkum tíma, því að með þeim vildi ég helst vera. Ég fékk líka þau einstöku forréttindi á meðan ég bjó hjá Siggu og frænda, að fá að fara í leikhúsið þegar mig langaði til. Fyrir mig var það ævin- týri. Æ síðan þá hefur þetta heimili staðið mér og mínum opið, og ég hef í ófá skipti leitað ráðlegginga og aðstoðar til frænda með alla mögu- lega hluti. Fyrir allt þetta er ég ósegjanlega þakklát. Ég hef í raun ekkert leyfi til að syrgja, heldur ber mér að þakka þau forréttindi að hafa fengið að kynnast og eiga sam- fylgd með manni eins og frænda, því þar sem hann var þar var gott að vera. Elsku, elsku Sigga, Hrafnhildur, Inga-amma, Stína, Viggi og böm: við, foreldrar mínir og systkini biðj- um hið góða að gefa ykkur styrk, gleðjumst yfir minningunni og horf- um fram á við, þannig vildi frændi hafa það. Guð geymi minningu elsku frænda. Sossa Fædd 19. júlí 1918 Dáin 16. ágúst 1987 Hún Svava er dáin. Elstu börnin spyija af hverju og sitja hljóð og hugsi. Yngri börnin gera sér óljósa grein fyrir að þetta tákni það að Svava komi aldrei aft- ur. Það getur ekki verið satt. Það voru ófá sporin fram í eldhús á stuttum fótum, til að heilsa og fá að líta í pottana. Það var gott að koma í eldhúsið til Svövu. Hlýjar móttökur og alltaf mátti eiga von á kexi eða rófubita til að bíta í. Starfsfólkið er hljótt. Enn hefur sannast að kallið kemur fyrirvara- laust. Að hún sé horfin sem alltaf var mætt fyrst manna á hveijum morgni hvernig sem viðraði. Hún Svava sem aldrei kvartaði og aldrei varð misdægurt. Hún sem kom og veitti okkur styrk með brosi sínu og framkomu þegar ljóst var að hveiju stefndi. Við þökkum fyrir að hafa fengið að dvelja hér með henni. Hún lifir í minningunni. Við biðjum algóðan Guð að styrkja dóttur hennar og tengdason, dótturdætur og litlu langömmutelp- urnar tvær sem voru sólargeislarnir í lífí hennar síðustu árin. Blessuð sé minning hennar. Börn og starfsfólk dag- heimilisins Stakkaborg. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Sumarleyfisferðir Núpsstaðarskógar 27.-30. ágúst Brottför kl. 8.00. Einn af skoðun- arverðustu stöðum á Suður- landi. Gönguferðir m.a. að Tvílitahyl og Súlutindum. Tjöld. Uppl. og farm. á skrifst. Gróf- inni 1, símar: 14606 og 23732. UTIVISTARFERÐIR Dagsferðir sunnudag 23. ágúst Kl. 8.00 Þórsmörk, einsdags- ferð. Verð kr. 1000. Kl. 13.00 Strompahellar (Blá- fjallahellar). Sérstæðar hella- myndanir. Hafið Ijós með. Verð kr. 600. Fritt f. börn m. fullorðn- um. Brottför frá BSl, bensinsölu. Engin sveppaferð á laugardag. Sveppaferð verður auglýst síðar. Útivist. ÚTIVISTARFERÐIR Helgarferð 21 .-23. ágúst 1. Þórsmörk — Goðaland. Góð gisting í Útivistarskálunum Bás- um. Ennþá er mögleiki á sumardvöl í heila eða hálfa viku. Skipulagðar gönguferðir. Farar- stjóri: Fríða Hjálmarsdóttir. Helgarferð 28.-30. ágúst Eldgjá — Langisjór — Sveins- tindur. Gist í húsi. Uppl. og farm. á skrifst. Gróf- inni 1, símar: 14606 og 23732. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir Ferða- félagsins 21 .-23. ágúst 1. Hrtardalur — gengið á Kllfs- borg. Gist i tjöldum i Hitardal. Göngu- feröir í skemmtilegu umhverfi. 2. Landmannalaugar — Kraka- tindur (1025 m). Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum og farið þaðan dagsferð á Krakatind. 3. Þórsmörk — gist í Skag- fjörðsskála/Langadal. Gönguferðir við allra hæfi — rat- leikur. Það er ekki síður ánægjulegt að ferðast um óbyggðir, þegar sumri tekur að halla. Komið í helgarferðir Feröafélagsins. 21.-26. ágúst (6 dagar) Land- mannalaugar — Þórsmörk Gengið milli gönguhúsa F.í. frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Fararstjóri: Jóhannes I. Jónsson. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, Öldugötu 3. Kynn- ið ykkur verð og tilhögun ferð- anna. Ferðafélag (slands. 1927 60 ára 1987 FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafélagsins Laugardagur 22. ágúst Kl. 10.00 Berjaferð Tínt verður i landi Ingunnarstaöa i Brynjudal. Verð kr. 800 (berja- leyfi innifalið). Sunnudagur23. ágúst Kl. 8.00 — Þórsmörk — dags- ferð. Verð kr. 1000,- Kl. 10.00 — Afmællsganga nr. 6 Gengiö veröur yfir hálsinn milli Flókadals og Reykholtsdals. Létt ganga. Þeir sem vilja geta haldið áfram með rútunni að Rauðsgili í Reykholtsdal og gengið þar um, en Rauðsgil er sórstaklega skoð- unarvert. ( Reykholti mun Snorri Jóhannesson segja frá sögu staöarins. Veriö með í siðustu afmælisgöngunni. Verð kr. 1000,- Ath.: Kl. 13.00 sunnudag verður engin ferð. Miðvikudagur 26. ágúst Kl. 8.00 — Þórsmörk — dags- ferð. Verð kr. 1000,- Þetta verður síðasta miðviku- dagsferðin á þessu sumri. Notið tækifærið og dveljið milli ferða í Þórsmörk. Brottför i dagsferöirnar er frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bfl. Fritt fyrir börn í fylgd fulloröinna. Ferðafélag islands. Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. Hljómborð til sölu Til sölu er Yamaha hljómborö, 3ja mánaða gamalt. Þeir sem hafa áhuga hringi í síma 99-3836, Guðveigur. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar \ ■ ■enHHiHNiHHie Stýrimannaskólinn í Reykjavík 30 rúmlesta réttindanám skv. lögum nr. 112/1984 hefst við Stýrimannaskólann 7. september nk. Kennt er þrjú kvöld í viku — mánudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga frá kl. 18.00-20.15. Námskeiðið er 105 kennslustundir. Kennt skv. námsskrá Menntamálaráðuneyt- isins. Siglingafræði 42 stundir Stöðugleiki 15 stundir Siglingareglur 15 stundir Siglingatæki 15 stundir (ratsjár, dýptarmælir, lóran) Eldvarnir 5 stundir Slysavarnir 4 stundir (björgunartæki á sjó) Skyndihjálp 3 stundir (blástursaðferð) Talstöðvar 6stundir (fjarskipti og tilkynningarskylda) Samtals 105stundir Þátttökugjald er kr. 7.000,- Námskeiðinu lýkur með prófi í lok nóvember. Innritun næstu daga á skrifstofu Stýrimanna- skólans daglega frá kl. 8.30 til 14.00. Upplýsingar í síma 1-31-94. Skólastjóri. Seltirningar Við viljum vekja athygli á ferð út i Viðey laugardaginn 22. ágúst með sjálfstæðisfélögum úr Reykjavik. Sjá auglýsta dagskrá. Einstakt tæki- færi til að kynnast Viðey og hittast. Meö sumarkveöju, Sjálfstæðiskonur — Viðeyjarferð Sjálfstæöisfélögin í Reykjavík efna til Viðeyjarferöar laugardaginn 22. ágúst. Farið verður frá Sundahöfn kl. 10.00 um morguninn á hátftíma fresti og oftar ef þurfa þykir, og sfðasta ferö til baka um kl. 18.00. Fariö verður í skoöunarferöir um eyjuna, fariö i leiki, sung- ið og grillaðar pylsur o.fl. Davíð Oddsson borgarstjóri og Friörik Sophusson iönaðarráðherra flytja ávörp. Skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Fjölmennið og takiö með ykkur góða skapið. Aðgangur verður ókeypis fyrir börn en kr. 450 fyrir 13 ára og eldri. Hvöt, félag Sjálfstæðiskvenna. IIFIMDAI.I.UK Viðeyjarferð Eins og áður hefur verið auglýst munu sjálfstæðisfólögin f Reykjavík halda útiskemmtun í Viöey nk. laugardag. Heimdallur er að sjálfsögðu þátttakandi í skemmtuninni og stjórn félagsins hvetur fólaga eindregið til þess að koma út i þessa merki- legu eyju og njóta skemmtunar og náttúrufegurðar. Skemmtunin er auglýst nánar annars staðar í blaðinu. Stjórnin. Stjórn Heimdallar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.