Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
Rykkrokk
við Fellaskóla
Lj6smynd/BS
Ljósmynd/BS
Gítarleikari og söngvari Bootlegs sýndi rétta þungarokkstilburði.
l Wfm a&' jWH| Ugl
Prima. Á inn- felldu myndinni má sjá glæsilega tilburði söngvar- ans. 11) _ 9 ,ij ajBKI
Ljósmynd/BS
Síðasta laugardag hélt félags-
miðstöðin Fellahellir útitónleika
tiu hljómsveita i porti Fellaskóla.
Hljómsveitirnar komu sin úr
hverri áttinni og sviðsreynsla var
mismikil. Ekki verður hér rakin
frammistaða þeirra sveita sem
vanari geta talist, en reynt að
segja frá þeim óreyndari.
Bláa bílskúrsbandið var fyrst á
svið með Hendrixblendið rokk.
Prima kom næst, en sú sveit hefur
ekki sést opinberlega áður utan
skóla og félagsmiðstöðva. Prima
spilaði létta popptónlist með léttum
textum og er til alls líkleg í vin-
sældabaráttunni. Söngvarinn er
með skemmtilega óþvingaða sviðs-
framkomu og þokkalega rödd. Af
hljóðfæraleikurum var trommuleik-
arinn bestur. Bootlegs var næst á
svið, en sveitin sú hefur ekki sést
síðan í Músíktilraunum Tónabæjar.
í hljómsveitina hefur bæst gítarleik-
ari sem gefur góða viðbót við
pönkað þungarokkið. Greinilegt var
að þeir sem einna helst höfðu gam-
an af Bootlegs voru pönkarar á
svæðinu. Segir það sitt um „speed
Bootlegs
metal" tónlist sem stendur nær
pönkinu en margir hefðu haldið.
Islensku textamir voru einnig pönk-
aðir og góðir sem slíkir. Bootlegs
hefur bætt sig mikið frá Músíktil-
raununum og munar þar kannski
mestu um gítarleikarann nýja sem
þéttir hljóminn hjá sveitinni.
Á eftir Bootlegs kom Múzzólíní
en Múzzólínídrengjum voru mis-
lagðar hendur þennan dag, hafa
áður verið betri.
Skagahljómsveitin Óþekkt andlit
var næst á sviðið. Sveitin tók eitt
lag og síðan sleit gítarleikari henn-
ar og söngvari streng. Álög tautaði
hann þegar hann þusti af sviðinu
til að skipta um strenginn, en hann
sleit einmitt streng í Músíktilraun-
unum þar sem sveitin vakti mikla
athygli. Þetta atvik varð til þess
að raska nokkur keyrslunni hjá
Óþekktum andlitum, en undir lokin
sýndu drengimir á sér allar sínar
bestu hliðar. Lokalagið vísaði síðan
skemmtilega í átt að tónlistarinn-
blæstrinum, en hljómsveitin endaði
á Joy Division-laginu góðkunna
Love Will Tear Us Apart.
Blátt áfram kom næst á svið, en
hljómsveitin var að koma fram í
fyrsta skipti eftir að hafa verið í
öðru sæti í hljómsveitarkeppninni í
Húsafelli. Ekki gekk sveitinni vel
að ná saman til að byija með og
var reyndar fremur ósamstæð allan
tímann. Söngkonan var þokkaleg,
en rythmagrunnurinn var oft gis-
inn. Gítarleikarinn er efnilegur en
passar ekki vel inn í það sem hljóm-
sveitin er að gera þessa stundina.
Það myndu kannski stífari æfingar
bæta.
Á eftir Blátt áfram áttu þeir
Bubbi og Megas að koma fram en
þeir töfðust og S/H draumur kom
þá næst á svið. Þetta vora síðustu
tónleikar sveitarinnar að sinni því
Ljósmynd/BS
Pétur Þórðarson, gítarleikari
Óþekktra andlita.
hú er að hefja vinnslu á stórri plötu.
Af frammistöðu hljómsveitarinnar
þetta kvöld er óhætt að reikna með
framúrskarandi plötu.
Bubbi og Megas vora næstir og
sungu gamla slagara, enda komu
þeir fram í þeim tilgangi að sýna
stuðning við Rykkrokkið en ekki
að stela senunni sjálfir. Það gerði
hinsvegar næsta hljómsveit, Bleiku
bastamir.
Bleiku bastamir hafa spilað einu
sinni áður og þá undir dulnefni. Það
var fyrir tæpum mánuði og þá var
hljómsveitin tveggja vikna gömul.
Síðan hefur bæst við gítarleikari
og hljómsveitin er hætt að vera
efnileg og orðin góð. Tónlistin var
hæfileg blanda af pönki, rokki,
rytmablús og rockabilly og textam-
ir vora skemmtilegir. Ekki á sveitin
langt í land til að verða í hópi þeirra
bestu og víst er að framförin frá
Casablanca er ótrúleg.
Á eftir Bleiku böstunum komu
Rauðir fletir og á hæla þeim komu
Sykurmolamir, góðir að vanda.
Þessir hljómleikar sýndu vel hver
breiddin er í rokkinu á suðvestur-
landi, a.m.k. Ekki vora áheyrendur
jafn margir og búast hefði mátt
við, en þeir sem heima sátu misstu
af fyrirtaks skemmtan.
Þökk sé Fellahelli og þeim sem
sáu um tónleikahaldið.
Þess má geta hér að Bylgjan tók
upp alla tónleikana og herma fregn-
ir að úr upptökunum verði sniðinn
þáttur sem síðar verður útvarpað
fyrir þá sem ekki áttu þess kost
að vera viðstaddir.
Árni Matthíasson
Ijósmynd/BS
Bleiku bastamir komu mjög á óvart á tónleikunum.
Ljósmynd/BS
Óþekkt andlit, ein efnilegasta hyómsveitin í dag.