Morgunblaðið - 21.08.1987, Side 39

Morgunblaðið - 21.08.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 39 35 63 21 56 /9 56 28 27 10 *í8 /9 38 63 29 70 56 99 Takið eftir I byrjun september eykst pláss fyrir barnaefni í Morg- unblaðinu. Það verður hægt að birta sögur, ljóð, teikning- ar og fleira frá ykkur, krakkar. Hvemig væri að nota tækifærið og segja frá sumrinu? Varstu kúasmali? Fórstu í loftbelg? Sólaðirðu þig á ströndinni eða fórstu í lest? Varstu í tjaldi eða sum- arbústað? Gróðursettirðu tré eða passaðir böm? Skrifaðu vv okkur og segðu frá og teikn- aðu myndir með. Heimilis- fang Bamasíðunnar er annars staðar á síðunni. Það verður gaman að fá póstinn frá ykkur. 2 \A taylop Hjálpaðu hundinum niður Hundurinn yrði glaður ef þú gætir reiknað út hvaða röð hann ætti að velja til að komast niður og ná sér í gott bein. Rétta aðferðin er sú sem hefur tölur sem hægt er að deila í með 7. Nú er um að gera að kunna 7 sinnum töfluna eða drífa sig að læra hana. Ef þú hefur fundið svarið sendu okkur það þá. Heimilis- fanPð en Barnasfðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. Af hverju var myndin? Á Barnasíðu fyrir hálfum mán- uði var mynd teiknuð frá skrýtnu sjónarhorni. Þetta var mynd af kló. Hvað er þetta? Hérna er önnur mynd af hlut sem þið þekkið öll. Hluturinn er teiknaður þannig að það sést undir hann og uppeftir honum. Hvað heldur þú að þetta sé? Hve margir eru lyklarnir? Guðjón hefur fengið þennan ljómandi fallega lás. En hvað hald- ið þið að hann hafi fengið marga lykla með honum? Hvernig væri að fara í Jósep segir? Þetta er einfaldur og skemmtilegur leikur þar sem ekki þarf annað til leiksins en fólk. 1. Einn er valinn til að vera Jósef. 2. Jósef segir öllum í leiknum hvað eigi að gera. Hann gæti sagt fólki að klappa lófunum, hoppa, standa á öðrum fæti eða halda fyrir annað augað. Jósef segir 3. Varaðu þig samt. Þegar Jósef segir þér að gera eitthvað máttu aðeins gera það að hann segi fyrst Jósef segir. Ef Jósef segir ekki Jósef segir og þú hoppar eða klappar þá ertu úr það sem eftir er leiksins. 4. Sá sem einn stendur eftir og hefur ekki látið blekkjast verður næsti Jósef. Á myndunum sjáið þið Guð- jón, Gumma og Guðnýju í Jósef segir. Guðjón er Jósef. Á mynd 1 segir Guðjón: Jósef segir upp með hendur. Bæði Gummi og Guðný gera eins og Jósef segir. Á mynd 2 hefur Guðjón hins vegar gefið skipun á þess að segja Jósef segir á undan og Gummi hefur ekki hlustað nógu vel og sett niður hendurnar. Gummi er því úr leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.