Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 41

Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 41 Minning: Guðmunda Sigríður Jónsdóttir Fædd 5. desember 1909 Dáin 12. ágúst 1987 Móðursystir mín, Guðmunda Sigríður Jónsdóttir, andaðist í Landakotsspítala í Reykjavík mið- vikudaginn 12. ágúst, eftir alllanga legu þar. Guðmunda var elsta barn þeirra Karítasar Magnúsdóttur og Jóns J. Bjarnasonar skipstjóra á Isafirði. Systkini hennar eru Karítas Giss- urína Jónsdóttir, sem andaðist í æsku, 4 ára gömul, dr. Bjarni Jóns- son, læknir í Reykjavík, kvæntur Þóru Árnadóttur, Kjartan Gissur Jónsson, verslunarmaður í Reykjavík kvæntur Unni Ágústs- dóttur og móðir mín, Guðrún Jónsdóttir, skrifstofumaður í Reykjavík gift Sveini R. Jónssyni, hún lést 1980. Eiginmaður Guð- mundu var Bjarni Pálsson, lögfræð- ingur og lengi skrifstofustjóri Tollstjóraembættisins í Reykjavík. Bjarni andaðist 3. apríl 1972. Guðmunda og Bjarni áttu eina dóttur barna, Hrefnu Bjarnadóttur sem gift var Sigfúsi Thorarensen verkfræðingi, en þau slitu samvist- um. Börn þeirra eru Oddur Bjarni og Sigríður Birna. Oddur Bjarni og kona hans Kristín Hrólfsdóttir eiga eina dóttur, Hildi Sif, 3ja ára. Sigríður Birna og maður hennar Þorsteinn M. Gunnarsson eiga dótt- ur og son, Eddu Ósk, 3ja ára og Rúnar Helga, 3ja mánaða. Kynni mín af Guðmundu heitinni og Bjarna manni hennar voru mik- il, einkum á æskuárum mínum, en mikill samgangur var með Guð- mundu og ömmu minni Karítas, sem ég og móðir mín áttum lengi heimili með. Sem ungur drengur naut ég því oft góðs atlætis og vin- áttu þæði á heimili þeirra og gjarnan á sumrin í stuttum ferðum úti í náttúruna. Mér var tamt löngu eftir að Bjarni heitinn eiginmaður Guðmundu var látinn að hugsa um þau í sömu andránni. Það sýnir, að mínum dómi, vel hversu samrýmd og samhent þau voru og það góða tilfinningalega jafnvægi sem á milli þeirra var gerði þeim svo undur auðvelt að sýna öðrum blíðu og nærgætni. Með aldri og þroska kynnist ég Guðmundu móðursystur minni síðan á annan hátt eins og eðlilegt er. Þá lærði ég að meta þroskaða og lífsreynda konu, sem öllum vildi gott gera og lagði ekki illt til nokk- urs manns. Guðmunda var afar bókelsk og hefði við nútíma aðstæð- ur eflaust lagt stund á langskóla- nám. Hún var mjög áhugasöm um þjóðmál og umhverfi sitt og eftir að ég fór að taka þátt í stjórn- málastarfi snérust samfundir okkar fyrst og fremst um nýjustu atburði á þeim vettvangi sem hún fylgdist vel með alla ævi. Mér fundust þessi samtöl ávallt ánægjuleg og lær- dómsrík þar sem svo oft var vikið allt öðmvísi að málum en hefð- bundin þrætubók stjórnmálanna gerir ráð fyrir. Guðmunda fæddist í upphafi ald- arinnar, lifði tvær heimsstyijaldir, fullveldi Islands, heimskreppuna, alþingishátíð, hernám, stofnun lýð- veldisins og stjórnmálaátök eftir- stríðsáranna. Hún lifði óg mundi allt það tímabil þegar Island breytt- ist úr einu snauðasta fiskimanna- og bændaþjóðfélagi Evrópu í fyrir- myndar iðnvætt velferðai'ríki þar sem í stað barnadauða er hæstur meðalaldur og mestu lífslíkur í ver- öldinni. Ungu fólki gefast nú æ færri tækifæri til að kynnast og umgang- ast kynslóð Guðmundu. Eg tel mig hafa verið mjög gæfusaman að fá að kynnast lífsviðhorfi þessarar kynslóðar Islendinga bæði hjá minni ágætu frænku og mörgum jafnöldr- um hennar. Þessi kynslóð hefur lagt fram stóran skerf í íslandssög- unni. Jafnt þeir, sem markað hafa spor á vettvangi mennta, lista, vísinda og stjórnmala og hinir sem hljóðlátlega hafa skilað farsælu ævistarfi án annarrar umbunar en þeirrar, sem fullvissan um vel og alúðlega unnið verk veitir hveijum heilbrigðum manni. Guðmunda frænka mín skilaði sínu ævistarfi farsæliega. Hún var trygglynd, full mannúðar og kær- leika sem óx á grundvelli eigin lífsreynslu. Allmörg síðustu ár Guðmundu héldu þær saman heimili mæðgurn- ar hún og Hrefna og þar uxu barnabörn hennar tvö Oddur Bjami og Sigriður Birna að mestu úr grasi. Þau nutu allra bestu mann- kosta ömmu sinnar og munu alla ævi búa að góðu vegnesti frá henni. Þar fara verðmæti sem hvorki möl- ur né ryð fá grandað. Á þessu sameiginlega heimili þeirra Hrefnu naut Guðmunda góðrar og nær- færnar aðhlynningar einkadóttur sinnar síðustu árin. Guðmunda var svo lánsöm að njóta allgóðrar líkamlegrar heilsu og fullkominnar.andlegrar heilsu til síðustu stunda. Eins og ávallt þegar elskaður ástvinur kveðui- þennan heim er harmur kveðinn að aðstand- endum og vinum. Eg þakka frænku minni þroskandi samvistir og kær- leik og bið ástvinum hennar einkum dóttur hennar Hrefnu, barnabörn- um og barnabarnabörnum allrar Guðs blessunar. Kjartan Gunnarsson Amma mín, Guðmunda Sigríður Jónsdóttir, andaðist 12. ágúst 1987 á áttugasta og öðru aldursári eftir erfiða sjúkrahúslegu. Hún var fædd á Isafirði 5. desem- ber 1905, dóttir Jóns Jóhannesar Bjarnasonar skipstjóra og Karítasar Magnúsdóttur. Hún var Vestfirð- ingur alla ævi þótt hún væri búsett í Reykjavík frá lokum fyrrastríðs. Hugur hennar leitaði oft heim og þangað sótti hún efnivið í sögur og ævintýri. I Reykjavík stundaði hún ýmsa Sölvi Ólafsson — Minning í dag, föstudag, verður útför Sölva Ólafssonar gerð frá Keflavík- urkirkju. Sölvi Guðbjarni Isfjörð Ólafsson, eins og hann hét fullu nafni, fædd- ist á Flateyri við Önundarljörð þann 6. júlí 1922, sonur Ólafs Jónssonar, skipstjóra, Ólafssonar, útvegsbónda á Aðalbóli í Lokinhamradal og konu hans, Ástu Magnúsdóttur, Krist- jánssonar, skipstjóra á Bíldudal. Hann var tíundi í röð 12 systkina, en 9 þeirra komust á legg. Þtjár systur lifa hann: Kristjana, ekkja Bergsteins Sigurðssonar, Kristín, ekkja Jóns Ásgeirs Brynjólfssonar og Jóna sem hefur átt við langvar- andi heilsuleysi að stríða. Sigrún systir þeirra lést fyrir rúmu ári. Þann 1. mars 1935 lést faðir hans, 59 ára gamall. Ásta flutti þá búferlum frá Flateyri til Keflavíkur með Sölva, sem þá var 13 ára, og Odd bróður hans, sem var 7 ára og yngstur systkinanna. Systur þeirra, Sigrún og Kristjana, fluttu til Keflavíkur nokkru áður. Fjöl- skyldan bjó lengi í húsi við Klapp- arstíginn í Keflavík. Sama vor og þau komu til Keflavíkur lést Oddur bróðir þeirra og var því skammt stórra högga á milli í Ijölskyldunni sem gengu nærri dreng á ferming- arári. Þegar nákominn frændi og vinur er allur koma minningar í hugann og líða hjá sem myndir. Eg var ekki hár í loftinu þegar ég fór með foreldrum mínum og systkinum í heimsókn til frændfólksins í Keflavík. Þessar heimsóknir voru gagnkvæmar og þá þurfti ekki til þess ákveðið tilefni eins og nú. Það þótti sjálfsagt að treysta sem best fjölskylduböndin. Eg man að Sölvi frændi var hrókur alls fagnaðar á þessum stundum. Það var glatt á hjalla þegar fjölskyldan kom saman og slegið á létta strengi. Áður fyrr voru ekki bílar á hveiju heimili og ég minnist ferðalaga með frænda úr Keflavík og Ijölskyldu hans, sem veittu ánægju og urðu ógleymanleg minning. Það sem mér fannst ein- kenna frænda alla tíð var hve fús hann var að fara með manni aðra mílu bæði maður hann um að fara með sér eina. Hann var fús að veita aðstoð ef á þurfti að halda og ég naut þess oft hve nafnið hans var vel kynnt. Sölvi Ólafsson skráði sinn kafla í verslunarsögu Suðurnesja. Hann var einn af þeim kaupmönnunum, sem þjónuðu Keflvíkingum, þegar bærinn var að þenjast út. Kaup- mennirnir á horninu eiga sinn kafla í verslunarsögunni. Þeir gegndu stærra hlutverki en að selja mönn- um nauðsynjavöru. Þeir voru félagar og vinir fólksins sem versl- aði hjá þeim. Frændi eignaðist marga trausta viðskiptavini. Hann byijaði reyndar sem sendill hjá kaupfélaginu og síðar innanbúðar- maður og braust þannig áfram af dugnaði og eljusemi. Sölvi giftist eftirlifandi konu sinni, Sigríði Þorgrímsdóttur, Guð- mundssonar og konu hans, Guðnýju Pálínu Pálsdóttur, þann 4. des. 1943. Einkadóttir þeirra er Þuríður Sölvadóttir bankafulltrúi, gift Berg- sveini Alfonssyni varðstjóra í slökkviliði Reykjavíkur. Börn þeirra eru Linda Björk nýstúdent, unnusti hennar er Matthías Matthíasson, og Sölvi Þór, 10 ára gamall. Sigríð- ur Gunnarsdóttir, dótturdóttir þeirra, ólst upp á heimili afa og ömmu. Hún rekur snyrtivöruversl- un í Keflavík og er gift Rúnari Þórmundssyni, slökkviliðsmanni. Þau eiga einn son, Bergsvein Al- fons. Sölva var mjög annt um fjölskyldu sína og stoltur af henni í besta skilningi þess orðs. Þau hjónin nutu verka sinna og dugnaðar við að byggja upp Sölva- búð í stóru og myndarlegu húsi við Hringbraut 99 í Keflavík, sem þau reistu. Á þessum árum unnu þau hjón bæði mjög mikið og ég minnist þess að frændi taldi það einu færu leiðina til þess að renna stoðum undir verslunarrekstur, ef hann ætti að bera sig. Um tíma rak hann þó verslunina með öðrum. Hann skynjaði vel tímanna tákn og sá fyrir að stórmarkaðirnir tækju yfir að mestu. Það varð til þess að hann dró saman seglin, auk þess sem hann vildi hafa meiri tíma til að sinna konu sinni, sem er illa farin af liðagigt. Hann gerðist þá um- boðssali og eftirlitsmaður ' við skólana í Keflavík og fórst það verk vel úr hendi. Sölvi var afar trygglyndur maður og góður vinur vina sinna. Odd- fellow-félagsskapurinn var honum mikils virði. Hann sótti vel fundi reglunnar, fyrst í Reykjavík og síðar í Keflavík, en hann var einn af stofnendum stúkunnar þar. Hann vissi að það er hægt að eiga mikið til að vera meira og láta gott af sér leiða. Hann var sjálfstæður og vildi njóta verka sinna, en hann var einnig maður jafnaðar og sann- girni. Hann var afdráttarlaus og hreinskiptinn og sagði meiningu sína ef honum fannst hallað réttu máli. Þau hjónin ferðuðust mikið innan lands sem utan meðan heilsa og kraftar leyfðu. Lífsgleðin ein- kenndi þau bæði alla tíð og umskiptin vom því mikil þegar heilsan tók að gefa sig, fyrst hjá henni og síðan hjá honum. Síðustu misserin sem hann lifði voru erfið. Sjúkdómsbaráttan og álagið á heimilinu var meira en góðu hófi gegndi, þótt reynt væri að létta byrðarnar. Sölvi var í góð- um höndum lækna Landspítalans sem gerðu sitt til þess að sigrast á því krabbameini sem hrjáði hann. Það var þeim áfall að sú barátta tapaðist. Sölvi lét aldrei af því að blessa hendur þeirra, þótt honum fyndist meðferðin taka langan tíma. Úndir það síðasta hafði hann á orði við mig að nú færi að styttast í þessu hjá sér. En hann vildi ekki láta hafa neitt fyrir sér. Hann ók sjálfur bíl sínum til Reykjavíkur þegai1 hann lagðist banaleguna. Hann gat jafnvel gert að gamni sínu þá. Sagðist fremur vilja aka sjálfur en sitja í hjá mér. Hann hafði mestar áhyggjur af því að deyja frá óloknum skylduverkum og vildi komast eina míluna enn með ástvinum sínum. En hann vissi jafn vel og ég að það er aðeins eitt máttarverk sem stendur öllum til boða í þessu lífi. Það er að sjá hul- inn kærleiksmátt Guðs á bak við öll atvik, sigra og ósigra, og fylgja þeim Kristi sem tekur byrðar manna á sig í lífi og dauða. Eg þakka Guði að nú hefur hann feng- ið hvíidina og bið eiginkonu hans og ástvinum blessunar. Guð mun nú sem ávallt leggja líkn með þraut. Skáldið tjáir það undur á eftirfar- andi hátt: „í þér er það ljós sem lýsir langt inn í dýpstu myrkur i þér er vega vísir er verður oss öllum styrkur vinnu þar til er hún hóf nám í Verzl- unarskólanum ogtók verslunarpróf. Eftir það rak hún matvöruverslun um tíma og vann á skrifstofu Laugavegsapóteks. Hún giftist þrítug Bjama Páls- syni lögfræðingi sem síðar varð skrifstofustjóri hjá tollstjóra. Var hjónaband þeirra gott og þau mikl- ir félagar. Þau eignuðust dótturina Hrefnu 4. mars 1936. Þau bjuggu lengst af á Langholtsvegi 94 í húsi sem þau byggðu. Afi Bjarni lést 3. apríl 1972. Amma var dökk yfirlitum, lág- vaxin og hæglát. Hún var ekki kona áhlaupaverkanna en seiglaðist áfram í hversdagsamstrinu og virt- ist alltaf vera að bardúsa eitthvað annaðhvort innanhúss eða úti í garði. Amma hafði mjög gaman af að lesa og las mikið bæði á íslensku og á erlendum málum, meira þó til afþreyingar en fróðleiks. Hún var ágætlega að sér um menn og mál- efni, því hún fylgdist ágætlega með. Hún kunni hafsjó af vísum og kviðlingum og gat endalaust komið á óvart með málsháttum sem pössuðu stundnni. Amma setti heið- arleika, sannsögli og þagmælsku ofar öðrum mannkostum. Þeim sem amma tók var hún trú sama á hvetju gekk, en það var ekki fyrir alla að komast í þann hóp. Fyrir þá var líka gott að leita til hennar og segja henni frá vanda- málum sínum því hún dæmdi þá ekki hart og var góður hlustandi. Amma gat verið prakkari og hún var næm á spaugilegu hliðarnar á málunum. Amma gekk ekki heil til skógar stóran hluta ævi sinnar og kvaldi það hana mjög. Ommubörnin urðu tvö og langömmbömin þijú. Hún nautþess að umgangast þau og gefa þeim tíma sinn. Eg minnist ömmu minnar sem góðs vinar og er þakklátur fyrir þann tíma sem ég hafði hana. Oddur Bjarni Thorarensen I þér er sá mikli máttur er mildar oss allar þrautir í þér verður sérhver sáttur við sáigengnar harma brautir." (Njörður P. Njarðvík.) Olafur Oddur Jónsson Hann Sölvi er farinn frá okkur úr þessum heimi yfir í annan, þar sem ég veit að honum líður vel. Aldrei hef ég fundið hvað það er erfitt að vera langt í burtu frá fjöl- skyldu og vinum eins og eftir símtalið frá íslandi þar sem hún mamma sagði mér með varfærni, sem henni einni er Jagið, að hann Sölvi væri dáinn. Ófá hafa tárin trítlað niður kinnarnar um leið og ég rifja upp kynni mín af þeim Sölva og Siggu. Minningarnar hlað- ast upp í huganum og líða fram eins og myndir á tjaldi. Minningar um hjón sem alltaf hafa verið mér svo undur góð. Fyrstu bemsku- minningarnar eru frá þeim stundum þegar ég var í fanginu á honum Sölva. Þar var gott að vera. Þar sem pabbi minn var alltaf á sjónum var Sölvi eins og auka pabbi og Sigga eins og auka mamma. Þau pössuðu mig alltaf þegar á þurfti að halda. Enn á ég heillaskeyti sem ég fékk frá Sölva ársgömul. Það var undirritað af „kossakarlinum". Á Hringbraut 99 var ég svo ótal, ótal skipti, bæði í heimsókn og pöss- un og alltaf í góðu yfirlæti. Minnin- garnar leita á hugann á þessari stundu, þar sem ég sit hér út í Noregi og kemst ekki heim til að kveðja hann Sölva. Því kveð ég hann með þessum línum. Mér þótti innilega vænt um hann og þakka honum alla tryggðina. í hjarta mínu geymi ég minninguna um kæran vin. Elsku Sigga mín, Þura, Siddý og ykkar íjölskyldur. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur með von um að Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Guðmunda Helgadóttir, Noregi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.