Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 42

Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 4- felk í fréttum Bæring með orfið og ljáinn með nýslegna spilduna að baki sér. Morgunblaðið/Ámi „Aldrei sett rafmagns- hitun í húsið“ — segir Bæring- Elísson I Stykkishólmi Stykkishólmi. BÆRING Elísson í Stykkis- hólmi er nú 88 ára og sér lítið á. Hann var lengi bóndi í Bjarnarhöfn, einu mesta stórbýli á Snæfellsnesi, og áður vann hann ýmis störf í Reykjavík, dugnaðarmaður sem um leið og hann horfir fram á við gleymir ekki spar- semi og reynslu liðinna daga. Kona hans er Árþóra Friðriks- dóttir, Vestur-Skaftfellingur. Þau hjón búa nú á Borg, fog- rum stað í Hólminum, þar sem Ágúst Þórarinsson kaupmaður reisti sér myndarlegt íbúðarhús og bjó ásamt Ásgerði konu sinni til dánardægurs. Það er myndar- legt tún í kringum húsið og einn daginn tók fréttaritari eftir því að Bæring var þar við slátt og veifaði orfi og ljá eins og í gamla daga af stakri kunnáttu. „Já,“ segir Bæring, „maður verður að halda sér við og iðjulaus á ég bágt með að vera. Eg get sagt þér eitt, að ég hefí aldrei sett rafmagnshitun í húsið, ég kyndi miðstöðina með gamla ofninum og það gengur vel. Ég fæ í eld- inn allt það timbur sem kunnin- gjamir ætla öskuhaugunum og þar em bæði plankar og svo venjuleg borð. Spýtumar sem ég læt í eldinn hef ég nokkum veg- inn jafnstórar, eða eftir því sem hægt er, og ég er aldrei eldiviðar- laus. Á summm er ég úti við þetta, en svo í kjallaranum þegar veturinn kemur. Þetta er ágæt æfíng og kemur sér vel. Bæring heldur áfram: „Mér finnst stund- um að mörgu sé hent sem áður þótti gott að nýta. Og svo er talað um sparnað. Það hljómar sumt af því einkennilega í eyr- um,“ og um leið benti Bæring á Hér er Bæring við timburstaflann með verkfærin og tilbúinn í slaginn. fara furðu létt með að kljúfa í stóran hlaða af timbri við húsið eldinn. og tók um leið sleggju og virtist — Árni Stefnivargar heimspressunnar reyna að hlaupa Madonnu uppi. Nýju brúðumar hans Jim Hensons. Prúðuleikarar- nir og Picasso Jim Henson, höfundur Prúðuleik- aranna, var í vanda staddur þegar hann átti að hanna nýja kyn- slóð leikara fyrir þáttinn „Inner Tube“, eða „Inni í imbakassanum". Honum fannst að hann hefði ein- faldlega misst ímyndunaraflið. Andinn kom hins vegar yfír hann þegar hann skoðaði afríska högg- myndalist í Metropolitan-safninu í New York, og þaðan sækir hann innblásturinn að nýju brúðunum sínum. Henson á ekki leiðum að líkjast í þessu efni; „Brúðurnar líkjast i mörgu sumum málverkum Picassos", fullyrðir hann, „enda sóttu listamenn á borð við Picasso og Matisse mikið til lista Afríku og frumstæðra þjóða". Þá er bara að bíða og sjá hvort að þessar listrænu og skringilegu brúður veki jafn mikla lukku og Kermit, Svínka, Fossi og allir hinir. COSPER Ég ætla að fá þennan hérna, ég byrja á megrunakúr á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.