Morgunblaðið - 21.08.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
49
Lífeyrissjóðir styrki aldraða
Það virðist vera orðin föst regla
hjá yfirmönnum verkalýðssamtaka
að það hleypur illt blóð í þá þegar
fer að dimma. Það er ekki talinrl
góður eiginleiki.
Nú koma fram í fjölmiðlum þeir
Guðmundur J. Guðmundsson og
Þröstur Ólafsson og æsa til átaka
á vinnumarkaðinum og syngja
gömlu þuluna um að verkalýðurinn
sé illa haldinn þótt búið sé að hækka
launin um hundrað þúsund krónur
á ári í lægstu launaflokkunum auk
hefðbundinna taxtahækkana og
aukinnar félagslegar þjónustu.
Verkalýðsforingjar hafa þakkað sér
góða kjarasamninga á liðnum árum
en alla þá kjarabót tóku atvinnurek-
endur á sig.
Vegna skrifa Carls Hennings
Petersens í Morgunblaðið miðviku-
daginn 19. ágúst s.l. langar undir-
ritaðan að leggja fáein orð í belg
sem óbreyttur Flugleiðafarþegi.
Ég get vel skilið gremju Peters-
ens vegna þess, sem hann mátti
þola af hendi Flugleiða vegna yfir-
bókana og seinkana. Slíkt er ill-
þolanlegt og raunar ótækt, en
margir farþegar Flugleiða hafa
þurft að glíma við félagið af þessum
sökum.
Hins vegar langar mig að vekja
athygli á því, að hafi Flugleiðamenn
talið lendingu í Kaupmannahöfn
óráðlega vegna þoku þá hljóti sú
ákvörðun að lenda annars staðar
við betri skilyrði að vera hafin yfir
gagnrýni. Hins vegar má draga í
efa ágæti þeirrar ákvörðunar ann-
arra flugfélaga að lenda á Kastrup-
flugvelli þrátt fýrir slæm skilyrði.
Það hlýtur að vega þyngra að
Auk þess er margt í umræddum
samningum fáránlegt, að minnsta
kosti frá sjónarhól Alþýðubanda-
lagsins. Það beitti sér fyrir því að
tollar væru felldir niður af bílum
að hluta og þetta varð til þess að
innflutningur þeirra jókst gífurlega
svo að nú horfir til vandræða í
umferðinni. Bifreiðasalar græddu
heil ósköp á þessu, ég sé svo sem
ekki eftir því, en þetta getur tæp-
lega talist í samræmi við stefnu
Alþýðubandalagsins. Eitt sinn sagði
við mig forstjóri að það væri nauð-
synlegt að hafa Alþýðubandalagið
og er þessi tollasamningur dæmi
um það.
Nú hefur þessi nýja ríkisstjórn
þakkað fyrir bifreiðasalana með því
komast heiiu og höldnu á áfanga-
stað en að mega þola óþægindi
vegna óhagstæðra veðurskilyrða.
Um ágæti og hæfni íslenskra
flugmanna efast undirritaður ekki
og þykir grein Petersens einmitt
undirstrika þann skilning sem þeir
hafa á veðráttu, sem margir erlend-
ir flugmenn hafa því miður ekki.
Og treysti flugmenn Flugleiða flug-
vélum félagsins fyrir lífi sínu og
annarra, þá hlýtur flugfloti félags-
ins að uppfylla tilskildar kröfur um
búnað slíkra farartækja.
Því hljóta Flugleiðir að eiga
þakkir skildar fyrir það, að tefla
ekki lífi farþega sinna í hættu með
glæframennsku, sem því miður hef-
ur kostað margan flugfarþegann
lífið.
í Flugleiðavél er farþeginn a.m.k.
eins öruggur og unnt er við nútíma-
aðstæður og tel ég það meira virði
en töf og rifinn bakpoki.
- 4727-8554.
að afla fjár til félagslegrar þjónustu
með því að leggja fjögurra krónu
skatt á hvert einasta kíló hverrar
einustu bifreiðar í landinu. Komm-
arnir ættu að vera ánægðir. Ég er
mest hissa á því að þeir skuli ekki
allir hafa kosið B eða D listann,
þeir gera það næst.
Annað sem gagnrýnisvert er við
þessa kjarasamninga er að gert var
samkomulag við lífeyrissjóðina um
stóraukin lán til kaupa á húsnæði
og hafa nýbyggingar aukist vegna
þessa ráðabruggs sem verkalýðs-
hreyfingin hefur hrint í framkvæmd
með stórauknum lánum lífeyrissjóð-
anna. Þeir taka sjóðina eignarnámi
eins og vinstrimanna er siður til að
útbýta lánum til fjölmargra sem
ekki þurfa þeirra við en ekki til að
greiða fyrir þeim ellilífeyrisþegum
sem eru upp á lífeyrissjóðina komn-
ir.
Alltaf er verið að gagnrýna hve
lítið er gert fyrir aldraða og hafa
vinstrimenn tekið þetta hlutverk að
sér en vinna svo á þessu sviði gegn
yfirlýstri stefnu sinni með því að
leggja fé lífeyrissjóðanna í allt ann-
að en byggingu húsnæðis fyrir
aldraða. Hvers vegna er þetta
svona?
Nú ætla þeir að gera alla þá
gjaldþrota sem treystu á þessar
ráðagerðir í húsbyggingarmálum
með því að hleypa af stað óðaverð-
bólgu. Augljóst er hvað verið er að
bralla, allt á þetta að vera til að
eyðileggja áform nýrrar ríkisstjórn-
ar um að halda verðbólgu í skefjum.
Alþýðuflokkurinn er í stjórn og á
að rasskella hann fyrir að hafa
gengist inn á samvinnu við fyrrver-
andi ríkisstjóm og vonast til að
taka fylgi af honum af því að hann
vildi axla ábyrgð með þátttöku í
nýrri ríkisstjóm. Alþýðubandalagið
hefur alltaf unnið gegn hagsmunum
heildarinnar.
Það verður engin þjóðarsátt
segja Alþýðubandalagsmenn ogþað
hefur alltaf verið þeirra kjörorð.
Þeir heimta kjarabót og aftur kjara-
bót. Kannski væri rétt að koma
þeim í efstu skattþrepin svo að
þeir skilji að það em ekki þeir sem
bera byrðarnar af rekstri þjóðfé-
lagsins heldur þeir sem háar tekjur
hafa og leggja hvað mest á sig til
að koma sér áfram í þjóðfélaginu.
Þeim er grimmilega hegnt með
skattpíningu, em þrælar ríkisins og
félagslegrar þjónustu.
Kommarnir kunna vel kúgun
þeirra sem afla sér góðra tekna að
nafninu til. Það em köld örlög sem
okkur eru búin af vinstriöflunum.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
• •
Ond á knatt-
spyrnuvelli
Fyrir stuttu var ástand malbik-
aða vallarins við Melaskóla rætt hér
í Velvakanda. Nú er viðgerð á vell-
inum lokið og gott að sjá skjót
viðbrögð borgaryfirvalda.
Mig langar til að benda sömu
aðilum á að rétt við Hagaskóla er
lítill knattspymuvöllur sem var
malbikaður fyrir fáum ámm en
verkið var ekki betur af hendi leyst
en það að djúpar dældir em á yfir-
borði vallarins svo að stórir pollar
myndast ef dropi kemur úr lofti
enda hefur önd sést þar á sundi
eftir rigningu. Völlurinn er því ónot-
hæfur í marga daga í senn uns
vatnið þomar úr dýpstu lægðunum.
Þannig stendur nú völlurinn, sem
á sínum tíma hefur verið kostað
töluverðu til, að mestu ónotaður og
böm hafa vanist á að leita annað.
Væri nú ekki tilvalið að lagfæra
þennan völl einnig.
4428-5371
Aðgát við matreiðslu
Á heimilum leynast víða hættur sem fjölskyldan verður að gera
sér grein fyrir.
Gæta verður þess að höldur og sköft ílátanna á eldavélinni snúi
til veggjar þannig að stuttir handleggir geti ekki teygt sig í þau og
steypt yfir sig sjóðandi eða brennheitu innihaldinu.
Oryggið fyrir öllu
FLEX-O-LET
Tréklossar
Vinsælu tréklossarnir með beygjanlegu sól-
unum komnir aftur. Margar nýjar geröir.
GElSIPr
Sjúkrahús, hótel, frystihús
og sláturhús
Nokkrar 20 kg háþeyti PRIMUS-þvottavélar til sölu.
360 v, 3ja fasa, 1000 snúninga vinda, fyrir heitt og
kalt vatn.
Einnig 25 kg þurrkarar (rafmagns).
Upplýsingar gefur Jón í síma 27499.
MODELL
GIA
\
....
MODELL
DIXI
SCHUHMODE
Domus Medica
s. 18519.