Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
51
SUND/EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ Í STRASSBORG
Glæsilegt IMorður-
landamet Eðvarðs
— í 200 m baksundi. Synti á 2.02,79 mínútum og lenti ífjórða sæti
Eðvarð Þór Eðvarðsson setti í
gærkvöldi glæsilegt Norður-
landamet í 200 m baksundi á
Evrópumeistaramótinu í sundi í
Strassborg í
Frakklandi. Hann
synti á 2.02,79
mín. og hafnaði í
4. sæti. Sergey
frá Sovétríkjunum
varð Evrópumeistari, synti á
1.59,35 mín. og var aðeins sek-
úndu frá heimsmetinu.
Eðvarð Þór sýndi það og sannaði
að hann er kominn í röð fremstu
Valur
Jónatansson
skrífarfrá
Frakklandi
Zabolotnov
baksundsmanna heims. Að hafna
í 4. sæti á svo sterku móti sem
þessu er frábært, því 10 af 12
bestu baksundmönnum heims eru
Evrópubúar. Eðvarð var fyrstur
Vestur-Evrópubúa í greininni.
í undanrásunum í gærmorgun
hugsaði hann aðeins um að kom-
ast í A-úrslit og hafnaði þar í 6.
sæti á 2.03,62 mín. Hann sagði
eftir undanrásirnar að hann ætti
meira inni og það sýndi hann svo
í úrslitunum í gærkvöldi.
Eðvarð byrjaði úrslitasundið frek-
ar rólega en bætti stöðugt við og
hélt góðum stíganda út sundið.
Hann var í 6. sæti eftir 50 metra,
5. sæti eftir 150 m og vann sig
svo upp um eitt sæti á síðustu
50 metrunum. Hann bætti Norð-
urlandamet sitt um tæpa sekúndu.
Zabolotnov og Polianskiy, heims-
methafi, höfðu nokkra yfirburði
og skiptust á um að hafa forystu.
Munurinn á þeim í lokin va.r að-
eins 2/100 hlutar úr sekúndu.
Austur-Þjóðverjinn Frank Bal-
trusch var þriðji á 2.00,22 mín.
Thomas Deutsch, Ungveijalandi,
varð fimmti á 2.03,18 mín.
Patrick Kuhl, A-Þýskalandi, sjötti
á 2.03,30 mín. Frank Hoffmeist-
er, V-Þýskalandi, í sjöunda á
2.03,34 mín og Stefano Batti-
stelli, Ítalíu, áttundi á 2.03,84
mín.
Til gamans má geta þess að tími
Eðvarðs í gær hefði nægt honum
á verðlaunapall á Ólýmpíuleikun-
um í Los Angeles og á heims-
meistaramótinu í Madrid í fyrra.
Eðvarð á því framtíðina fyrir sér
sem sundmaður aðeins 20 ára
gamall.
„Toppurinn
á feriinum"
-sagði Eðvarð eftir úrslitasundið
„ÉG hef aldrei verið ánægð-
ari með nokkurt sund. Þetta
er toppurinn á ferlinum,"
sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson
eftir Norðurlandametið í 200
metra baksundi i gær.
Eðvarð var að vonum ánægður
með árangurinn og sagði að
þetta væri uppskeran af þrotlaus-
um æfíngum í heilt ár. „Ég setti
strax stefnuna á Evrópumótið eft-
ir heimsmeistaramótið í Madrid í
fyrra. Ég hef æft mjög vel og það
hefur verið þess virði“.
„Þetta mót er mun sterkara en
heimsmeistaramótið í fyrra, en
þá var ég í 8. sæti. Ég hef lært
að því hvað fór miður þar og nýtti
mér það í dag. Það er alltaf gam-
an að bæta Norðurlandametið.
TOMAS Darnyi frá Ungverja-
landi setti glæsilegt met í 400
m fjórsundi karla í fyrradag
og vestur-þýska karlasveitin
setti þá heimsmet í 4x200 m
skriðsundi.
Tomas Damyi er tvítugur.
Hann bætti heimsmetið um
hálfa sekúndu og Evrópumetið um
tæpar þtjár sekúndur, synti á
4.15,42 mín., en eldra metið var
4.16,12 mín., og var það í eigu
Bandaríkjamannsins Wharton.
Yfirburðir Darnyi voru töluverðir
í lokin. Landi hans og félagi, Joz-
ef Szabo, varð annar á 4.18,30
mín. En það var Sovétmaðurinn
Vadim Iaroschuk sem hélt uppi
hraðanum í sundinu. Hann hafði
nauma forystu allt þar til skrið-
sundið var eftir. Þá tók Damyi
til sinna ráða og hreinlega stakk
hann af. Iaroschuk hafnaði í
fjórða sæti á eftir Kuhl frá A-
Þýskalandi.
Damyi er 20 ára menntaskóla-
nemi og vinur hans Szabo aðeins
18 ára. Þessir sundmenn komu
vemlega á óvart. „Evrópumeist-
aratitillinn var mér mikilvægari
en heimsmetið. Ég hugsaði aðeins
um að koma fyrstur í mark. En
Að vinna Vestur-Þjóveijann Hoff-
meister er nokkuð sem mig hefur
aðeins dreymt um.“
Hvemig leggst 100 m baksund-
ið i þig?
„Nú, bara vel. Ég veit nokkuð vel
hvar ég stend. Þrír fyrstu í 200
eiga allir sekúndu betri tíma en
ég í ár. Ég á því ekki von á að
vinna þá. En ég þori næstum að
lofa íslandsmeti."
Er Norðurlandametið í 100 m
ekki í hættu?
„Nei, ég á ekki von á því. Svíinn
Baron á Norðurlandametið, 56,53
sekúndur og var það sett er hann
vann gullverðlaunin á ÓI 1980.
Ætli ég láti hann ekki halda met-
inu eitthvað lengur," sagði Eðvarð
eftir sundið í gær.
það er gaman að hafa sett heims-
met,“ sagði þessi hógværi
Ungveiji á blaðamannafundi eftir
sigurinn.
Sérfræðingar telja þennan sund-
mann einn þann fjölhæfasta sem
komið hefur fram á sjónarsviðið
síðan Mark Spitz var á toppnum
eftir 1970.
Vestur-þýska karlasveitin setti
glæsilegt heimsmet í 4x200 m
boðsundi, 7.13,10 mín. Fyrra
metið átti sveit Bandaríkjamanna,
7.15,69 mín. Austur-þýska sveitin
varð í öðru sæti á 7.14,27 mín.
og var einnig undir gamla heims-
metinu. Svíar komu síðan nokkuð
óvænt í þriðja sæti.
Eftir fyrsta sprett hafði V-Þýska-
land forystu, Frakkland var í öðru
og A-Þýskaland í þriðja. Eftir 2.
sprett komst A-Þýskaland í annað
sæti og í fyrsta eftir 3. sprett.
Endaspretturinn var mjög svo jafn
og spennandi milli Austur- og
Vestur-Þýskalands. Michael
Gross tók síðasta sprett fyrir
Vestur-Þjóðveija og skreið fram-
úr Austur-Þjóðveijanum þegar 25
metrar voru eftir. Gross náði jafn-
framt besta brautartímanum,
1.46,81 mín.
EAvarð Þór EAvarsson.
EM-úrslit
Úrslit í gær:
200 m baksund karla
Sergey Zabolotnov, Sovétr....l.59,35
Igor Polianskiy, Sovétr..1.59,37
Frank Baltrusch, A-Þýskal. .2.00,22
Eðvarð Þór Eðvarðsson....2.02,79
Tamas Deutsch, Ungveijal. ..2.03,18
Patrick Kuhl, A-Þýskalandi ..2.03,30
Frank Hoffmeister, V-Þýskal.
._.........................2.03,34
Stefano Battistelli, ftalíu.2.03,84
100 m skriðsund karla
Sven Lodziewski, A-Þýskal....49,79
Stephan Caron, Frakklandi....49,88
Dirk Richter, A-Þýskalandi...50,35
23. Magnús Ólafsson (ísl.met)
.............................52,36
100 m baksund kvenna
Kristin Otto, A-Þýskalandi ...1.01,86
Sveja Schlicht, V-Þýskalandi 1.02,21
Kathrin Zimmermann, A-Þýskal.
...........................1.02,55
400 m skriðsund kvenna
Heike Friedrich, A-Þýskal.(Evróp-
um.).....................4.06,39
Astrid Strauss, A-Þýskal..4.07,71
Stela Pura, Rúmeníu......4.09,65
4x100 m skriðsund kvenna
1. Austur-Þýskaland (mótsm.)
...........................3.42,58
Otto, Stellmach, Meissner, Friedrich.
2. Holland.................3.45,93
Muis, Plaats, Muis, Brienesse.
3. Vestur-Þýskaland........3.46,49
Bofinger, Schlicht, Pielke, Seick.
Friðrik Ólafsson:
"Erumá
réttri leið“
„ÉG er mjög ánægður. Við
stefndum alltaf á að hann
bætti árangur sinn á þessu
móti og það tókst vonum
framar. Æfingaplanið hefur
því gengið upp,“ sagði Friðrik
Ólafsson, þjálfari, í samtali
við blaðamann Morgunblaðs-
ins í gær.
Arangurinn var vonum framar
og bætir hressilega upp á
„móralinn" hjá íslenska liðinu.
„Útfærslan á sundinu tókst mjög
vel hjá honum. Hann byijaði frek-
ar rólega en jók svo hraðann eftir
þvf sem á leið. Hann sýndi í hversu
góðu úthaldi hann er. Hann er
mikill keppnismaður og veit hvað
þarf til að ná árangri á alþjóða-
mótum sem þessum.
Það getur verið erfitt að ná að
bæta sig þegar sundmenn eru
komnir eins langt og Eðvarð. En
þetta sýnir að við erum á réttri
leið,“ sagði Friðrik.
Magnús
settiís-
landsmet
ígær
MAGNÚS Ólafsson setti í gær
nýtt íslandsmet í 100 metra
skriðsundi á Evrópumeistara-
mótinu.
Magnús synti á 52,36 sek-
úndum og bætti eigið
íslandsmet um hálfa sekúndu.
Nýja Islandsmetið er hálfri sek-
úndu frá ólympíulágmarkinu sem
sett hefur verið í þessari grein.
Magnús synti í 2. riðli og varð
annar, fyrri 50 metrana synti
hann betur, 25,08 sek. Hann
hafnaði í 25. sæti af 33 keppend-
um. Hann hefði þurft að synda á
51,47 til að komast í B-úrslit.
Magnús keppir í dag í 400 m
skriðsundi ásamt Ragnari Guð-
mundssyni. Systurnar Bryndís og
Hugrún Ólafsdætur keppa í 100
m flugsundi, Amþór Ragnarsson
í 200 m bringusundi og Ragn-
heiður Runólfsdóttir í 100 m
bringusundi.
Glæsilegt heimsmet
Ungverjans Damyi
KNATTSPYRIMA
„Einsog
hnífi væri
stungið
í lærið“
„ÉG hef aldrei tognað fyrr í
lærvöðva og þetta er
óskemmtileg reynsla. Ég var á
hlaupum og jók snögglega
hraðann, en þá var eins og
hnífi væri stungið í lærið,“
sagði Ásgeir Sigurvinsson, fyr-
irliði Stuttgart, við Morgun-
blaðið, en eins og greint var frá
í gær meiddist hann, þegar um
30 mínútur voru eftir af leik
Stuttgart og Frankfurt í fyrra-
kvöld.
Vöðvi á hægra læri rifnaði og
að sögn Ásgeirs er hann fjórði
leikmaður Stuttgart, sem verður
fyrir svipuðum meiðslum á tímabil-
inu. „Mauricio Gaudino meiddist
svona í æfingabúðum hálfum mán-
uði fyrir keppnistímabilið og hann
hefur ekki enn náð sér, en spilar
samt. Ég fékk strax bólgueyðandi
sprautu og er mikið betri í dag en
í gær, en ég leik örugglega ekki
næstu tvær vikumar. Þá er hæpið
að ég verði með í landsleiknum
gegn Norðmönnum, en það verður
bara að koma í ljós,“ sagði Ásgeir.
Þar sem Stuttgart lék í fyrrakvöld
á liðið frí í bundesligunni um helg-
ina, en fer til Spánar í dag og leikur
æfíngaleik við Espanol í Barcelona
á morgun. Á þriðjudaginn er heima-
leikúr við Köln, útileikur við sama
lið í bikarnum annan laugardag og
miðvikudaginn 2. september leikur
Stuttgart við Bremen og bendir allt
til þess að Ásgeir missi af þessum
leikjum.
2. DEILD
Víkingar
efstir
eftir
sigur á
Þrótti
VÍKINGAR eru nú á toppi 2.
deildar eftir 3:2 sigur á Þróttur-
um í Laugardal í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 2:2.
Ágúst
Ásgeirsson
skrífar.
Það vom annars Þróttarar sem
hófu leikinn af miklum krafti
og fengu hvert tækifærið af öðru
til að skora. Mistókst það þar til á
15. mínútu er Sigfús
Kárason einlék upp
vinstri kantinn og
skaut bogaskoti úr
utanverðum teign-
um yfir markvörð Víkinga.
Hægðu Þróttarar á ferðinni við
markið og það notfærðu Víkingar
sér. Sneru vöm í sókn og höfðu
jafnað 5 mínútum seinna með lag-
legu marki Atla Einarssonar.
Stanzlaus sókn Víkinga hélt áfram
og á 34. mínútu náðu þeir forystu,
2:1, er Trausti Ómarsson skoraði
úr vítaspymu.
Þróttarar efldust við mótlætið og
jafnaði Sigurður Hallvarðsson, 2:2,
á 41. mínútu.
Seinni hálfleikur var tíðindalaus þar
til á lokamínútunni að Trausti
Ómarsson skoraði úr víti, sem hann
fiskaði sjálfur, og kom Víkingum
þar með í efsta sæti 2. deildar.
Maður leikslns: Trausti Ómarsson, Vfking.