Morgunblaðið - 21.08.1987, Side 52
0BRUI1RBÓT
-AFÖKYGGISASTÆDUM
Nýjungar
í 70 ár
ISGuðjónáhf.
I
91-27233
FOSTUDAGUR 21. AGUST 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Póstur og sími:
Símakerfið
„aflúsað“
AÐ undanförnu hefur orðið
vart við bilun i sjálfvirku
símstöðinni í Reykjavík en ein-
göngu á númerum sem byija á
6. Hefur samband rofnað við
þessi númer þrisvar síðan á
föstudag. Ekki er vitað með
vissu hvað veldur.
„Eitthvað hefur komist inn í
tölvustýringuna þannig að fyrst
varð vart við truflun á tímabilinu
átta til níu á fostudag. Síðan olli
bilunin aftur rofi á þriðjudag milli
klukkan sex og átta,“ sagði Þor-
varður Jónsson framkvæmdar-
stjóri tæknideildar Pósts- og síma.
„Unnið hefur verið að viðgerð að
næturlagi og reynt að komast eft-
ir hvað valdi. I fyrrinótt rofnaði
sambandið í hálfa klukkustund
milli klukkan tvö og þrjú þegar
verið var að þrengja þá möguleika
sem valdið geta þessari bilun. A
tæknimáli kallast viðgerð sem
þessi að „aflúsa" kerfið."
Stefán Valgeirsson:
Óráð að
selja ríkis-
bankana
„ÞETTA er alveg furðuleg máls-
meðferð,“ sagði Stefán Valgeirs-
son, formaður bankaráðs
Búnaðarbankans, þegar Morgun-
blaðið spurði hann álits á þeirri
hugmynd að selja Búnaðarbank-
ann samhliða Utvegsbankanum.
„Það er búið að selja Útvegs-
bankann eftir venjulegum við-
skiptaháttum."
„Ég hef alltaf talið það vera óráð
að selja ríkisbankana. Búnaðar-
bankinn hefur til dæmis tekið lán
erlendis og fengið betri kjör vegna
þess að hann er ríkisbanki. Það er
enginn launung að ævintýrið með
Útvegsbankann hefur gert okkur
Islendingum erfiðara fyrir á erlend-
um fjármagnsmörkuðum.
Ég hélt að stjómvöld ættu að
hugsa meira um viðskiptakjör en
ekki bara um þetta frelsi sumra sem
þau virðast bera svo fyrir bijósti.
Þetta er ekki frelsi Sambandsins.
Mér finnst þetta fáránleg hugmynd
og ég væri algjörlega á móti sölu
bankans ef til þess kæmi.“
Eðvarð Þór
setti Norður-
landamet
í baksundi
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson setti
í gærkvöldi Norðurlandamet í
200 m baksundi á Evrópumótinu
sem fram fer í Strassborg í
Frakklandi.
í úrslitasundinu synti Eðvarð á
2.02,79 mínútum og lenti í fjórða
sæti. Hann átti sjálfur gamla Norð-
urlandametið.
Nánar á bls. 51.
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins:
Ekki næg ástæða til að
slíta stjómarsamstarfi
fengi Sambandið ekki Utvegsbankann keyptan
STEINGRÍMUR Hermannsson utanríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins segir að þótt óánægja myndi ríkja í Framsóknar-
flokknum ef gengið yrði framhjá Sambandinu við sölu á hlutabréfum
Útvegsbankans væri slíkt ekki næg ástæða til stjórnarslita. Sam-
kvæmt könnun sem gerð var i flokksráði Sjálfstæðisflokksins á
miðvikudag mun mikill meirihluti flokksráðsmanna vera andvígur
því að Útvegsbankinn verði seldur Sambandinu frekar en þeim 33
aðilum tengdum sjávarútvegi sem einnig hafa boðið í hlutabréf bank-
ans, og telja að ef slíkt gerist ætti að slíta stjórnarsamstarfinu.
Ekki hefur verið birt niðurstaða
úr athugun Sjálfstæðisflokksins en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins urðu úrslitin á áðurgreind-
an veg. Þegar Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins var spurður um
hvort þetta þýddi ekki að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi slíta stjómar-
samstarfinu ef Útvegsbankinn yrði
seldur Sambandinu sagði hann:
„Þetta var engin atkvæðagreiðsla,
aðeins samráð mitt við mína flokks-
menn. Ég hef hinsvegar eftir þetta
samráð vitneskju um það að við
höfum tekið á málinu í samræmi
við þá meginskoðun sem uppi hefur
verið meðal okkar fólks. Og ég veit
nú um þess hug og við höldum á
okkar málum í samræmi við það.
Morgunblaðið spurði Steingrím
Hermannsson formann Framsókn-
arflokksins hver hann teldi að
viðbrögð framsóknarmanna yrðu ef
gengið yrði framhjá Sambandinu
við sölu á Útvegsbankanum. „Ég.
hygg að framsóknarmenn myndu
telja það ákaflega furðulegt og
hlytu að líta svo á að samvinnu-
hreyfingin væri talin annars flokks
í þessu þjóðfélagi. Það stendur
hvergi í söluskilmálunum að sam-
vinnuhreyfingin megi ekki kaupa.
En að vera með hótanir um stjóm-
arslit dettur mér ekki í hug því
þetta er á valdi viðskiptaráðherra
og við verðum að sætta okkur við
það sem hann gerir eftir að hafa
ráðfært sig við okkur. Því þó að
þetta sé mikilvægt mál eru önnur
mál mikilvægari og ríkistjóminni
verður að takast þar sitt ætlunar-
verk,“ sagði Steingrímur.
Ræða átti Útvegsbankamálið á
ríkisstjórnarfundi í gær en fundin-
um var frestað fram á þriðjudag
að ósk fjármálaráðherra svo hann
gæti setið ráðstefnu um tollamál.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
átti í gær viðræður við Val Amþórs-
son stjómarformann Sambandsins
og Kristján Ragnarsson fulltrúa
hinna bjóðendanna, en vildi í sam-
tali við Morgunblaðið ekki skýra frá
efni viðræðnanna og hvorki játa því
né neita að verið væri að ræða
þann möguleika að breyta Búnaðar-
bankanum í hlutafélag og Sam-
bandið fengi keyptan meirihluta
þar. Jón sagðist reikna með að þess-
ar viðræður stæðu fram yfir helgi
og vildi ekki spá um hvort úrslit
fengjust fyrir r.æsta ríkisstjómar-
fund.
Þegar Steingrímur Hermannsson
var spurður hvort hann teldi að
lausn næðist á þessu máli sem allir
gætu sætt sig við sagði hann að
ef samvinnuhreyfingin og þeir aðil-
ar sem að Búnaðarbankanum
standa sættu sig við áðurgreinda
leið gæti það orðið lausn. „Hinsveg-
ar skiljum við það ekki vel að það
sé svona ólýðræðislegt að sam-
vinnuhreyfingin eignist meirihluta
í Útvegsbankanum en það sé í lagi
með Búnaðarbankann," sagði
Steingrímur Hermannsson.
Reykjanesbraut:
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur
HARÐUR árekstur varð á
Reykjanesbraut á móts við
Krýsuvíkurveg um klukkan
16.00 í gærdag. Vörubíll ók í
veg fyrir fullhlaðinn mjólkurbíl
með þeim afleiðingum að öku-
maður og farþegi í mjólkurbíln-
um voru fluttir á slysadeild.
Mjólkurbíllinn var á leið suður
Reykjanesbraut, en vörubíllinn
kom niður Suðurbraut og ætlaði
yfir Reykjanesbraut á Krýsuvík-
urveginn, en ók þá í veg fyrir
mjólkurbílinn. Um klukkustund
tók að skera flak mjólkurbílsins
utan af ökumanni hans og farþega
og voru þeir báðir fluttir á slysa-
deild. Farþegi í mjólkurbílnum
brotnaði á báðum fótum og hand-
legg en ökumaður vörubílsins
slapp hins vegar lítið meiddur.
Miklar annir voru hjá lögregl-
unni í Hafnarfirði í gærdag vegna
umferðaróhappa og fyrir kvöld-
mat höfðu orðið alls sjö útköll
vegna árekstra. Ekki var um al-
varleg meiðsli að ræða fyrir utan
áreksturinn á Reykjanesbrautinni.
Morgunblaðiö/Julius
Um klukkustund tók að skera flak mjólkurbílsins utan af ökumanni og farþega hans. Á myndinni má sjá björgunarmenn vinna að því
að ná hinum stórslasaða farþega út úr flaki mjólkurbilsins.