Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 1

Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 1
96 SIÐUR B/C 11 inrgiMiMðMfe STOFNAÐ 1913 203. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Nýtt sáttatilboð Bandaríkjastjórnar í hvalveiðideilunni: Gengið til móts við óskir íslenskra stjómvalda Á FUNDI með íslensku sendi- nefndinni í Ottawa í Kanada i gær afhenti dr. Anthony Calio, sjávarútvegsráðherra Banda- ríkjanna, Ingva S. Ingvarssyni, sendiherra íslands í Washington, sem var í forsvari fyrir íslensku nefndinni vegna fjarveru Steingríms Hermannssonar, ut- anríkisráðherra, sáttatilboð til lausnar hvalveiðideilu íslenskra og bandarískra stjómvalda. í sáttatilboðinu felst að Banda- ríkjamenn geta fallist á að fslendingar veiði 20 sandreyðar auk fyrirheits um meira sam- starf ríkjanna innan Alþjóða- hvalveiðiráðsins en verið hefur undanfarið. Þannig eru bandarísk stjómvöld reiðubúin til að styðja vísindaveiðar íslendinga en þó með þeim hætti að íslensk stjómvöld leggi vísinda- áætlun sína fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins tii sam- þykktar. Bandarísk stjómvöld em reiðubúin að styðja Islendinga á þeim vettvangi en ganga ekki gegn þeim eins og þau gerðu á síðasta þingi hvalveiðiráðsins. Þess má geta að í dag eiga að hefjast yfírheyrslur þingnefnda yfír William Verity, sem Bandaríkjafor- seti hyggst skipa viðskiptaráðherra í stað Malcolm Baldridge, sem lést í sumar, en skipun forsetans verður að hljóta staðfestingu sérstakrar nefndar þingsins eins og komið Engin áhætta tekin Reuter Meðfylgjandi mynd var tekin í Dtisseldorf í gær þegar hundr- uð breskra knattspymuáhuga- manna komu þangað til þess að fylgjast með landsleik Eng- Iands og Vestur-Þýskalands. Minnugir blóðbaðsins á Heys- el-leikvanginum i Belgiu árið 1985 tóku yfirvöld enga áhættu þegar áhorfendum var hleypt inn á leikvanginn. Eftir hörm- ungarnar á Heysel-leikvangin- um þar sem knattspyrnubullur, áhangendur Liverpool og Ju- ventus, börðust með vopnum og öðru tiltæku, hefur öryggis- gæsla á knattspyrnuvöllum Evrópu verið hert til muna með góðum árangri. Sjá ennfremur síður 33 og 65. heftxr fram í fréttum. íslenska ríkisstjómin og utanrík- ismálanefnd Alþingis munu funda um hvalveiðideiluna í dag. Sjá ennfremur fréttir á bls. 2, 4 og baksiðu. Filippseyjar: Ráðuneyti Aquino biðst allt lausnar Manilu, Reuter. ALLIR 26 ráðherrar Corazon Aquino sögðu af sér í gær. Gerðu þeir það til þess að hún ætti hægar með að endurskipuleggja ráðuneyti sitt i kjölfar uppreisn- arinnar á dögunum. Að sögn blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar, Teodoro Begnino, gerðist þetta sjálfkrafa án þess að nokkur bæri tillögu um fjöldaafsögnina fram. „Nær allir okkar virtust hafa fengið hugmyndina sam- stundis, vegna þess að okkur fannst að undir þessum kringum- stæðum væri nauðsynlegt að við legðum fram lausnarbeiðni," sagði Begnino. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær Aquino leggur fram nýjan ráðherralista, en gamla ráðuneytið mun starfa áfram þar til forsetinn hefur fallist á lausnarbeiðnimar. Ofangreint bar til eftir að sérleg- ur aðstoðarmaður Aquino sakaði þtjá viðskiptajöfra og einn háttsett- an herforingja um að hafa stuðlað að óstöðugleika á Filippseyjum í því skyni að fá almenningsálitið gegn stjóm Aquino. Nú em 13 dagar liðn- ir frá því að uppreisnin var brotin á bak aftur. Áður hefur svipuð uppstokkun orðið í ráðuneyti Filippseyja. Hún varð í nóvember á siðastliðnu ári þegar upp komst að herforingjar, sem taldir vom sérlega hliðhollir Juan Ponce Enrile, þáverandi vam- armálaráðherra, lögðu á ráðin um valdarán. Sovétríkin: Verður Mathias Rust náðaður? Moskvu, Reuter. í GÆR var getum að því leitt í vikuritinu Mosk vufré ttum að hinn 19 ára gamli Mathias Rust kynni'að verða náðaður, en hann var í síðustu viku dæmdur til fjögurra ára þrælkunar fyrir að hafa rofið sovéska lofthelgi og lent á Rauða torginu án leyfis. Vikuritið hefur stutt viðleitni Sovétleiðtogans Mikhails Gorba- chevs til aukinnar opinberrar umræðu með ráðum og dáð. Þar sagði að ef Rust væri náðaður af einhveijum háttsettum embættis- manni væri þar einmitt sú tegund af geðþóttaskriffínsku, sem Sovét- stjómin berðist hvað harðast gegn. „Algerlega öðm máli gegnir hins vegar um náðun, sem byggð er á lagalegri forsendu," sagði í blaðinu. Almennt var farið betri orðum um Rust en í öðmm blöðum. Sagt var að hann væri ungur og ístöðu- laus drengur í flóknum heimi. „Aðrir í hans aðstöðu hefðu orðið skríll, eiturlyQaneytendur eða gengið í sértrúarsöfíiuði, en Rust flaugtil Moskvu," sagði að lokum. Danmörk: Schliiter fær umboð til stj órnarmyndunar Sagði af sér sex stundum fyrr Kaupmannahöfn, Reuter. POUL Schliiter, forsætisráð- herra Danmerkur, skýrði frá því í gær að Margrét II. Danadrottn- ing hefði kvatt sig á sinn fund og falið sér að mynda nýja ríkis- stjórn. Aðeins sex tímum áður hafði SchlUter sagt af sér vegna fylgistaps í þingkosningunum á þriðjudag, þrátt fyrir fyrri yfir- lýsingar hans um að fjórflokka- stjórnin myndi sitja áfram hvað sem kosningaúrslitum liði. Þegar Schliiter kom frá fundi við drottningu í Amalienborgarhöll til- kynnti hann að minnihlutastjóm hans myndi sitja enn um sinn, enda þótt hún hafi aðeins 70 þingsæti af 179 á bak við sig. Schliiter hyggst birta ráðherralista sinn í dag eftir að hafa rætt við hina stjómar- fiokkana. Schliiter, sem er fyrsti forsætis- ráðherra íhaldsfiokksins á þessari öld, sá sig tilneyddan til afsagnar eftir að fjórflokkastjóm hans tapaði sjö þingsætum í kosningunum í fyrradag. Leiðtogar sex fíokka af níu á þingi báðu hann hinsvegar að freista þess að koma saman starfhæfri ríkisstjóm að nýju. Jafnaðarmannaflokkurinn, undir stjóm Ankers Jergensen, tapaði minna fylgi en áður hafði verið spáð og fékk 54 menn kjöma. Hann er því enn stærsti flokkur Dan- merkur. Stjómmálaskýrendur eru al- mennt á því að hin óvænta lausnar- beiðni Schluters í gær hafí verið til þess ætluð að knýja Radikale venstre og Framfaraflokkinn til stuðnings við sig. Á síðasta kjörtímabili varði Radikale venstre stjóm Schluters falli. Sá þingmeiri- hluti var þó naumur, aðeins eitt sæti. Eftir kosningamar í fyrradag varð þó ljóst að til þess að stjómin héldi velli þyrfti hún að reiða sig á Framfaraflokk Mogens Glistrup, en fyrir kosningar höfðu allir stuðn- ingsflokkar Ihaldsflokksins lýst því yfír að þeir myndu ekki undir nokkrum kringumstæðum taka þátt í samkrulli með Framfaraflokknum. Hvort Schluter tekst ætlunarverk sitt ætti að koma f ljós í dag. Sjá einnig síðu 31. Iranirhóta hefndum Bahrain, Reuter. ÍRASKAR herflugvélar gerðu loftárásir á Iran í gær og voru skotmörkin inni í landi, en ekki við Persaflóa eins og til þessa. íransstjórn sagðist myndu hefna árásanna grimmilega. Friðarvæntingar á flóanum þykja nú hafa fokið út í veður og vind eftir að bundnar höfðu verið vonir við vopnahléskrðfu Öryggisráðs SÞ. Á flóanum eru nú saman komin herskip fímm ríkja auk flota að- liggjandi ríkja. Þá eru ítalskir tundurduflaslæðarar einnig á leið til Persaflóa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.