Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 1
96 SIÐUR B/C
11
inrgiMiMðMfe
STOFNAÐ 1913
203. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nýtt sáttatilboð Bandaríkjastjórnar í hvalveiðideilunni:
Gengið til móts við óskir
íslenskra stjómvalda
Á FUNDI með íslensku sendi-
nefndinni í Ottawa í Kanada i
gær afhenti dr. Anthony Calio,
sjávarútvegsráðherra Banda-
ríkjanna, Ingva S. Ingvarssyni,
sendiherra íslands í Washington,
sem var í forsvari fyrir íslensku
nefndinni vegna fjarveru
Steingríms Hermannssonar, ut-
anríkisráðherra, sáttatilboð til
lausnar hvalveiðideilu íslenskra
og bandarískra stjómvalda. í
sáttatilboðinu felst að Banda-
ríkjamenn geta fallist á að
fslendingar veiði 20 sandreyðar
auk fyrirheits um meira sam-
starf ríkjanna innan Alþjóða-
hvalveiðiráðsins en verið hefur
undanfarið.
Þannig eru bandarísk stjómvöld
reiðubúin til að styðja vísindaveiðar
íslendinga en þó með þeim hætti
að íslensk stjómvöld leggi vísinda-
áætlun sína fyrir vísindanefnd
Alþjóðahvalveiðiráðsins tii sam-
þykktar. Bandarísk stjómvöld em
reiðubúin að styðja Islendinga á
þeim vettvangi en ganga ekki gegn
þeim eins og þau gerðu á síðasta
þingi hvalveiðiráðsins.
Þess má geta að í dag eiga að
hefjast yfírheyrslur þingnefnda yfír
William Verity, sem Bandaríkjafor-
seti hyggst skipa viðskiptaráðherra
í stað Malcolm Baldridge, sem lést
í sumar, en skipun forsetans verður
að hljóta staðfestingu sérstakrar
nefndar þingsins eins og komið
Engin áhætta tekin
Reuter
Meðfylgjandi mynd var tekin í
Dtisseldorf í gær þegar hundr-
uð breskra knattspymuáhuga-
manna komu þangað til þess
að fylgjast með landsleik Eng-
Iands og Vestur-Þýskalands.
Minnugir blóðbaðsins á Heys-
el-leikvanginum i Belgiu árið
1985 tóku yfirvöld enga áhættu
þegar áhorfendum var hleypt
inn á leikvanginn. Eftir hörm-
ungarnar á Heysel-leikvangin-
um þar sem knattspyrnubullur,
áhangendur Liverpool og Ju-
ventus, börðust með vopnum
og öðru tiltæku, hefur öryggis-
gæsla á knattspyrnuvöllum
Evrópu verið hert til muna með
góðum árangri.
Sjá ennfremur síður 33 og 65.
heftxr fram í fréttum.
íslenska ríkisstjómin og utanrík-
ismálanefnd Alþingis munu funda
um hvalveiðideiluna í dag.
Sjá ennfremur fréttir á bls.
2, 4 og baksiðu.
Filippseyjar:
Ráðuneyti Aquino
biðst allt lausnar
Manilu, Reuter.
ALLIR 26 ráðherrar Corazon
Aquino sögðu af sér í gær. Gerðu
þeir það til þess að hún ætti
hægar með að endurskipuleggja
ráðuneyti sitt i kjölfar uppreisn-
arinnar á dögunum. Að sögn
blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar,
Teodoro Begnino, gerðist þetta
sjálfkrafa án þess að nokkur
bæri tillögu um fjöldaafsögnina
fram. „Nær allir okkar virtust
hafa fengið hugmyndina sam-
stundis, vegna þess að okkur
fannst að undir þessum kringum-
stæðum væri nauðsynlegt að við
legðum fram lausnarbeiðni,"
sagði Begnino.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær Aquino leggur fram nýjan
ráðherralista, en gamla ráðuneytið
mun starfa áfram þar til forsetinn
hefur fallist á lausnarbeiðnimar.
Ofangreint bar til eftir að sérleg-
ur aðstoðarmaður Aquino sakaði
þtjá viðskiptajöfra og einn háttsett-
an herforingja um að hafa stuðlað
að óstöðugleika á Filippseyjum í því
skyni að fá almenningsálitið gegn
stjóm Aquino. Nú em 13 dagar liðn-
ir frá því að uppreisnin var brotin
á bak aftur.
Áður hefur svipuð uppstokkun
orðið í ráðuneyti Filippseyja. Hún
varð í nóvember á siðastliðnu ári
þegar upp komst að herforingjar,
sem taldir vom sérlega hliðhollir
Juan Ponce Enrile, þáverandi vam-
armálaráðherra, lögðu á ráðin um
valdarán.
Sovétríkin:
Verður Mathias
Rust náðaður?
Moskvu, Reuter.
í GÆR var getum að því leitt í
vikuritinu Mosk vufré ttum að
hinn 19 ára gamli Mathias Rust
kynni'að verða náðaður, en hann
var í síðustu viku dæmdur til
fjögurra ára þrælkunar fyrir að
hafa rofið sovéska lofthelgi og
lent á Rauða torginu án leyfis.
Vikuritið hefur stutt viðleitni
Sovétleiðtogans Mikhails Gorba-
chevs til aukinnar opinberrar
umræðu með ráðum og dáð. Þar
sagði að ef Rust væri náðaður af
einhveijum háttsettum embættis-
manni væri þar einmitt sú tegund
af geðþóttaskriffínsku, sem Sovét-
stjómin berðist hvað harðast gegn.
„Algerlega öðm máli gegnir hins
vegar um náðun, sem byggð er á
lagalegri forsendu," sagði í blaðinu.
Almennt var farið betri orðum
um Rust en í öðmm blöðum. Sagt
var að hann væri ungur og ístöðu-
laus drengur í flóknum heimi.
„Aðrir í hans aðstöðu hefðu orðið
skríll, eiturlyQaneytendur eða
gengið í sértrúarsöfíiuði, en Rust
flaugtil Moskvu," sagði að lokum.
Danmörk:
Schliiter fær umboð
til stj órnarmyndunar
Sagði af sér sex stundum fyrr
Kaupmannahöfn, Reuter.
POUL Schliiter, forsætisráð-
herra Danmerkur, skýrði frá því
í gær að Margrét II. Danadrottn-
ing hefði kvatt sig á sinn fund
og falið sér að mynda nýja ríkis-
stjórn. Aðeins sex tímum áður
hafði SchlUter sagt af sér vegna
fylgistaps í þingkosningunum á
þriðjudag, þrátt fyrir fyrri yfir-
lýsingar hans um að fjórflokka-
stjórnin myndi sitja áfram hvað
sem kosningaúrslitum liði.
Þegar Schliiter kom frá fundi við
drottningu í Amalienborgarhöll til-
kynnti hann að minnihlutastjóm
hans myndi sitja enn um sinn, enda
þótt hún hafi aðeins 70 þingsæti
af 179 á bak við sig. Schliiter
hyggst birta ráðherralista sinn í dag
eftir að hafa rætt við hina stjómar-
fiokkana.
Schliiter, sem er fyrsti forsætis-
ráðherra íhaldsfiokksins á þessari
öld, sá sig tilneyddan til afsagnar
eftir að fjórflokkastjóm hans tapaði
sjö þingsætum í kosningunum í
fyrradag. Leiðtogar sex fíokka af
níu á þingi báðu hann hinsvegar
að freista þess að koma saman
starfhæfri ríkisstjóm að nýju.
Jafnaðarmannaflokkurinn, undir
stjóm Ankers Jergensen, tapaði
minna fylgi en áður hafði verið
spáð og fékk 54 menn kjöma. Hann
er því enn stærsti flokkur Dan-
merkur.
Stjómmálaskýrendur eru al-
mennt á því að hin óvænta lausnar-
beiðni Schluters í gær hafí verið til
þess ætluð að knýja Radikale
venstre og Framfaraflokkinn til
stuðnings við sig. Á síðasta
kjörtímabili varði Radikale venstre
stjóm Schluters falli. Sá þingmeiri-
hluti var þó naumur, aðeins eitt
sæti. Eftir kosningamar í fyrradag
varð þó ljóst að til þess að stjómin
héldi velli þyrfti hún að reiða sig á
Framfaraflokk Mogens Glistrup, en
fyrir kosningar höfðu allir stuðn-
ingsflokkar Ihaldsflokksins lýst því
yfír að þeir myndu ekki undir
nokkrum kringumstæðum taka þátt
í samkrulli með Framfaraflokknum.
Hvort Schluter tekst ætlunarverk
sitt ætti að koma f ljós í dag.
Sjá einnig síðu 31.
Iranirhóta
hefndum
Bahrain, Reuter.
ÍRASKAR herflugvélar gerðu
loftárásir á Iran í gær og voru
skotmörkin inni í landi, en ekki
við Persaflóa eins og til þessa.
íransstjórn sagðist myndu hefna
árásanna grimmilega.
Friðarvæntingar á flóanum þykja
nú hafa fokið út í veður og vind
eftir að bundnar höfðu verið vonir
við vopnahléskrðfu Öryggisráðs SÞ.
Á flóanum eru nú saman komin
herskip fímm ríkja auk flota að-
liggjandi ríkja. Þá eru ítalskir
tundurduflaslæðarar einnig á leið
til Persaflóa.