Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
Hraðflutningurinn
gefur hæsta verðið
Grimsby, Englandi. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Úlfari Ágústasyni.
Hraðflutningaskipið Anne
Lise kom í annað sinn með fisk-
farm til Grimsby á þriðjudag.
Verð hefur heldur farið lækk-
andi á mörkuðunum við Humb-
er-fljót eftir að kom fram í
vikuna og taldi starfsmaður hjá
Stafnesi Ltd. í Grimsby að verðið
hefði almennt lækkað um 10%
frá því á mánudag.
166 tonna farmur seldist fyrir
9,5 milljónir króna og var meðal-
verð 57,52 krónur. Söluverð sólkola
var 167 krónur kflóið, smálúða seld-
ist á 153 krónur kflóið en tvær
lúður, 25-30 kfló hvor, seldust á
yfír 300 krónur kflóið. Stórþorskur
fór á 96 krónur, smáþorskur á 62
krónur og ýsa á 77 krónur kílóið.
Að sögn uppboðshaldaranna sem
seldu fiskinn úr Anne Lise er hann
afbragðsgóður. Þó ekki eins góður
og fyrri farmurinn en skipið tafðist
um tvo daga í þessari ferð vegna
vélarbilunar. Þeir töldu að ef skipið
héldi áfram að koma með sambæri-
lega vöru myndi sá fískur seljast á
hæsta verði þess dags sem salan
færi fram, en ekki væri ástæða til
að ætla að verðið yrði mikið hærra
en fyrir þann físk sem næstur
kæmi.
Utanríkisráðheira frest-
ar forúthlutunarfundi
Símamynd/Einar Falur
Grænlensk stúlka spreytir sig á þvi að stjórna Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum sem haldnir
voru fyrir börn í Nuuk í gær.
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
ákveðið að fresta um óákveðinn
tima forúthlutunarf undi um
framkvæmdir Bandaríkjamanna
á Keflavíkurflugvelli sem halda
átti í dag.
Að sögn Þorsteins Ingólfssonar,
forstöðumanns vamarmálaskrif-
stofunnar, þarfnast svona fundur
ákveðinn undirbúning og hefur
hann af ýmsum ástæðum ekki get-
að farið fram.
Á hvequ hausti um þetta leyti
eru haldnir s.k. forúthlutunarfundir
þar sem Bandaríkjamenn leggja
fram framkvæmdaáætlun fyrir
næstu ár. Áætlunin nær til bæði
viðhalds og allra nýframkvæmda. Á
forúthlutunarfundunum eru þessar
framkvæmdir ræddar á fyrsta stigi
Grunaður um
en síðan af réttum aðilum í hvoru
landinu fyrir sig. í lok október er
síðan haldinn formlegur fundur þar
sem endanlega er gengið frá mál-
inu.
Vamarmálanefnd hefur séð um
þessar viðræður fyrir hönd íslend-
inga ásamt ráðgjöfum þegar þörf
hefur krafíð.
Fyrstusinfóníutónleikarnirá Grænlandi
Sinfóníuhljómsveit íslands
hélt í gær i íþróttahúsinu í
Nuuk fyrstu sinfóníutónleika
sem haldnir hafa verið á Græn-
landi.
Tónleikamir vom bamatónleik-
ar og mættu nokkur hundmð
grænlensk böm til þess að hlýða
á leik Sinfóníunnar. Andrúmsloft-
ið minnti einna helst á popptón-
leika en í lok þeirra fengu nokkur
böm að spreyta sig á því að
stjóma hljómsveitinni. í gærkvöldi
hélt síðan Sinfóníuhljómsveitin
aðra tónleika í íþróttahúsinu en í
dag mun hún leika við vígslu norr-
æns menningarhúss í Nuuk.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins:
Lágmarksverð á loðnu
1.600 krónur á tonnið
tvær íkveikiur »Þýðir í raun fijálst loðnuverð,“ segir Óskar
J Vigfússon, fulltrúi sjómanna í yfimefnd
UNGUR maður hefur verið
handtekinn, grunaður um að
hafa kveikt í tveimur húsum að-
faranótt mánudagsins. Hann
hefur verið úrskurðaður í 60
daga gæsluvarðhald og verið
gert að sæta geðrannsókn.
Um kl. 3.30 aðfaranótt mánu-
dagsins var tilkynnt um eld í íbúð
á 2. hæð hússins númer 13a við
Garðastræti. Maður, sem var í íbúð-
inni, brenndist illa og er talinn í
lífshættu. Lék strax granur á að
kveikt hefði verið í.
Snemma morguns á mánudaginn
kom upp eldur í Gistihúsinu í Braut-
arholti 22. Þar hafði verið kveikt í
rúmfötum í herbergi og er maðurinn
einnig gmnaður um þann verknað.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur
að málinu.
YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað á fundi sinum í
gær að lágmarksverð á loðnu veiddri til bræðslu frá 9. september
til 31. desember verði 1.600 krónur á hvert tonn. Verðið er miðað
við 16% fituinnihald og 15% fitufritt þurrefni. Verðið var ákveðið
samkvæmt tillögu fulltrúa kaupenda gegn atkvæði fulltrúa útgerðar-
manna, en oddamaður og fulltrúi sjómanna sátu hjá. Óskar Vigfússon,
fulltrúi sjómanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann liti svo
á að með þessari ákvörðun hefði loðnuverð í raun verið gefið fijálst
því ólíklegt væri að nokkur sjómaður fengist til loðnuveiða fyrir
þetta verð. Verksmiðjurnar myndu þar af leiðandi greiða verð eftir
eigin greiðslugetu og benti Óskar í því sambandi á að Krossanesverk-
smiðjan myndi standa við verðtilboð sitt frá þvi um siðustu helgi.
Samkvæmt ákvörðun yfímefndar 1%, sem þurrefnismagn breytist frá
breytist áðumefnt lágmarksverð
um 74 krónur til hækkunar eða
lækkunar fyrir hvert 1%, sem fítu-
innihald breytist frá viðmiðun og
hlutfallslega fyrir hvert 0,1%. Verð-
ið breytist um 158 krónur til
hækkunar eða lækkunar fyrir hvert
viðmiðun og hlutfallslega fyrir
hvert 0,1%. Ennfremur greiði kaup-
endur 2,50 krónur fyrir hvert tonn
til reksturs Loðnunefndar. Ákvæði
um ákvörðun fítu- og þurrefnisinni-
halds svo og afhendingarskilmálar
em óbreytt.
Það vom fulltrúar kaupenda,
þeir Einar Jónatansson og Vilhjálm-
ur Ingvarsson, sem lögðu fram
tillöguna, en fulltrúi útgerðar-
manna, Sverrir Leósson, greiddi
atkvæði á móti. Oddamaður, Bene-
dikt Valsson, og fulltrúi sjómanna,
Óskar Vigfússon, sátu hjá eins og
áður segir.
„Ég hefði viljað hafa verðið mun
lægra til að sýna enn betur fárán-
leikann f þessu," sagði Óskar
Vigfússon í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég mat það svo, að til að
nálgast sem mest fíjálsa verðlagn-
inu á loðnu hafi þetta verið skásti
kosturinn af mörgum slæmum.
Fulltrúar seljenda hafa frá upphafí
óskað eftir því að á þessu yrði fíjáls
verðlagning, en því var hafnað af
hálfu kaupenda í Verðlagsráði. Við
gerðum okkur grein fyrir að eftir
að málið var komið í yfímefnd var
Hvalamálið:
Óvíst hvortVerity
verður krafínn sagna
Frá Jóni Ásgeiri Sigurdssyni, fréttaritara
ÓVÍST er hvort hvaiamálið
kemur til umfjöllunar, þegar
William Verity, sem Banda-
ríkjaforseti tiinefndi nýlega í
embætti viðskiptaráðherra,
verður yfirheyrður fyrir þing-
nefnd. Viðskiptanefnd öld-
ungadeUdar Bandarikjaþings
tekur í dag, fimmtudag, af-
stöðu til embættishæfni Verity
á grundvelli skriflegs og munn-
legs vitnisburðar hans fyrir
nefndinni.
„Við vomm rétt í þessu að fá
skrifleg svör Williams Verity við
spumingum okkar," sagði Emilio
Pardo blaðafulltrúi viðskipta-
nefíidar öldungadeildar Banda-
rflqaþings er fréttaritari
Morgunbladsins i Bandaríkjunum.
Morgunblaðsins ræddi við hann á
þriðjudagskvöld. „Ég hef ekki
skoðað þau enn og get því ekki
sagt hvort vikið verður að hvala-
málinu, þegar Verity kemur fyrir
viðskiptanefndina á fímmtudag-
inn.“
William Verity, sem Ronald
Reagan forseti tilnefndi nýlega
viðskiptaráðherra, kemur fyrir
viðskiptanefndina fyrir hádegi í
dag og svarar spumingum nefnd-
armanna um feril sinn og stefnu-
áform sem ráðherra. Nefndar-
menn taka á gmndveili þessa
fundar afstöðu til þess hvort þeir
telja Verity hæfan til að gegna
embætti viðskiptaráðherra. Old-
ungadeildin tekur afstöðu til
embættishæfni Verity í framhaldi
af umfjöllun viðskiptanefndarinn-
ar. Samkvæmt bandarísku stjóm-
arskránni ber öldungadeildinni að
ijalla um og veita samþykki við
tilnefningum forsetans á háttsett-
um embættismönnum.
„Ef minnst verður á hvalamál-
ið, verður það í framhaldi af
spumingum viðvíkjandi sjávarút-
vegsráðuneytinu og fískveiðum.
Núna er ómögulegt að spá hvort
hvalamálið kemur upp á borðið,
hvort einhver þingmannanna
spyrst fyrir um það eður ei,“ sagði
Emilio Pardo.
í skriflegum spumingum
nefndarmanna til Williams Verity,
er hann spurður um hvalamálið.
William Verity
Svör hans hafa borist viðskipta-
nefndinni og byggja nefndarmenn
spumingar sínar f dag á þeim. „Ég
skal ábyrgjast að Verity verður
spurður um hvalamálið á fímmtu-
daginn," sagði Craig Van Note
talsmaður Monitor-hvalavinasam-
takanna við fréttaritara Morgun-
blaðsins.
útséð að um fíjálst verð yrði að
ræða. Ennfremur var ljóst að sam-
komulag næðist ekki enda var
óbrúanlegt bil á milli kaupenda og
seljenda. Við tókum því til bragðs
að bjóða upp á 100 krónu lágmarks-
verð fyrir tonnið, en um það var
auðvitað ekki að ræða samkvæmt
lögum. Eitthvað varð þó að gera
til losna út úr þessu, en þó þannig,
að eftir stæði að um fíjálsa verð-
lagningu yrði að ræða þegar út
væri komið. Ég held að þessi sam-
þykkt þýði því í raun fíjálsa verð-
lagningu enda á ég bágt með að
trúa að nokkur maður fari á sjó
fyrir þetta verð. Það hefur líka sýnt
sig undanfama daga að verksmiðjur
em reiðubúnar til að bjóða í loðn-
una og það hlýtur að verða ofan
á,“ sagði Óskar Vigfússon.
Þess má geta, að samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hafa
a.m.k. tvær verksmiðjur, auk
Krossanesverksmiðjunnar, lýst sig
reiðubúnar til að greiða 2.000 króna
lágmarksverð fyrir tonnið af loðnu.
Félag- starfsfólks í hús-
g-agnaiðnaði og við-
semjendur:
Fyrsti sátta-
fundurinn í dag
FYRSTI sáttafundur í deilu Fé-
lags starfsfólks I húsgagnaiðnaði
við viðsemjendur sína verður hjá
rfkissáttasenýara í dag og hefst
klukkan þijú. Félagið hefur boðað
verkfall frá og með 15. september
hafi samningar ekki tekist.
Félagið undirritaði kjarasamning
við Vinnuveitendasamband íslands í
vetur. Þar vom inni ákvæði um að
hvor aðila um sig gæti óskað eftir
gerð fastlaunasamnings og ef samn-
ingar tækjust ekki fyrir 1. september
væm samningar uppsegjanlegir með
hálfs mánaðar fyrirvara.
Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði
gerir kröfur um 40 þúsund króna
lágmarkslaun, og laun fyrir aðstoðar-
menn, sem hafi tekið námskeið og
hafi sex ára starfsreynslu, verffi
51.600 krónur.