Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 Utanríkismálanefnd fund- aði um hvalveiðideiluna sýnt sveigjanleika í þessu máli af sinni hálfu, eins og hún gerði með sinni ákvörðun 27. ágúst með því ma. að breyta sinni áætlun, og sú breyting er í engu virt þá eigum við auðvitað að taka slíka ákvörðun út af borðinu. og mótmæla þeirri lítilsvirðingu sem okkar utanríkis- ráðherra er sýnd með því að skipa mann úr viðskiptaráðuneytinu formann nefndarinnar sem fundar í Ottawa. Við höfum fengið mjög alvarleg skilaboð frá Bandaríkja- stjóm og það hefur kannski skýrt stöðu málsins," sagði Hjörleifur. Höldum á málinu með reisn „Mín skoðun er sú að það hefði verið eðlilegra og betra að viðræðu- nefndin yrði undir forustu utanrík- isráðuneytisins en þessi skipan nefndarinnar endurspeglar það sem virðist hafa komið fram áður að það sé viðskiptaráðuneytið sem hafí náð yfírhÖndinni í þessu máli og þess- vegna þurfum við ekki að vera svo undrandi yfír því að Bandaríkjafor- FRÉTTIR af ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar um að Steingrímur Hermannsson utanrikisráðherra sæti ekki fund viðræðunefnda íslands og Bandaríkjanna, bárust inn á fund utanríkismálanefndar Alþingis sem boðaður hafði verið til að ræða um hvalamálið að beiðni Hjörleifs Guttormssonar alþing- ismanns. A fundinn mættu einnig Haildór Ásgrimsson sjávarút- vegsráðherra og Arni Kolbeins- son ráðuneytisstjóri. Engar ákvarðanir voru teknar á fundin- um en rætt var um þær ákvarð- anir sem teknar höfðu verið af hálfu rikisstjórnarinnnar undan- farna daga. Rætt var við fulltrúa stjóm- málaflokkanna í neftidinni að fundinum loknum og fara viðtölin hér á eftir: Trúi því að málið leysist „Ég er alltaf bjartsýnn og trúi því að þetta mál leysist eins og alltaf þegar svona vinaþjóðir leysa sín málefni," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson formaður utanríkismála- nefndar og fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins. „Þótt þetta mál sé stórt í augum manna þá er það ekki stór- mál miðað við öll þau stóru mál sem í gangi em í veröldinni svo ég efa ekki að þetta leysist farsællega," sagði Eyjólfur Konráð síðan. Snýst ekki lengoir um hvalveiðar „Mér sýnist að þetta mál sé nú þannig statt milli ríkjanna að það snúist ekki lengur um hvalveiðar heldur sé þetta spuming um almenn samskipti milli sjálfstæðra ríkja og þar hefur verið komið fram á mjög gróflegan hátt gagnvart íslending- um,“ sagði Hjörleifur Guttormsson fulltrúi Alþýðubandalagsins.. „Það er alveg ljóst að Banda- ríkjastjóm ætlar að koma fram við okkur núna eins og bananalýðveldi. Ég tel að þegar ríkisstjómin hefur VEÐURHORFUR í DAG, 10.09.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Hæð yfir Grænlandi og iægð milli Islands og Noregs. SPÁ: í dag verður norðankaldi víða um landið, en líklega hægari vindur austanlands. Um norðanvert landið veröur dálítil rigning og 3—7 stiga hiti, en bjart veður að mestu og 8—12 stiga hiti sunnan- lands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðan- og norðaustanátt með skúrum um noröanvert landið en bjart syðra. Hiti 4—8 stig norðan- lands en 8—12 stig á Suður- og Suðvesturlandi. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyrl Reykjavík hitl 7 12 veður skýjaö skýjaö Bergen 12 skýjað Heislnki 16 skúr Jan Mayen 8 rlgn.ogaúld Kaupmannah. 17 skýjað Narssarssuaq 4 skýjsð Nuuk 3 þokafgr. Osló 17 hálfskýjaö Stokkhólmur 16 hálfskýjað Þórshöfn 10 alskýjað Algarve 28 sltýjað Amstardam 18 skýjað Aþena 28 léttskýjað Barcelona 27 hálfskýjað Berlln 17 skýjað Chlcago 14 helðskfrt Feneyjar 23 skýjað Frankfurt 20 hálfskýjað Glasgow 13 rigning Hamborg 17 skýjað Las Palmas 28 skýjað London 18 skýjað Los Angeles 18 þoka Lúxemborg vantar Madrfd 31 skýjað Malaga 27 skýjað Mallorca 31 lóttskýjað Montraal 18 rlgn.ás. klst. NewYork 23 léttskýjað Parfs 21 skýjað Róm 28 hátfskýjað Vín 18 alskýjað Waahington 22 léttskýjað Wlnnlpeg 7 reykur Morgunblaðið/KGA Frá fundi utanríkismálanefndar Alþingis um hvalamálið í gær. seti skyldi velja fulltrúa úr viðksiptaráðuneytinu til að fara með umboð sitt,“ sagði Kjartan Jóhannsson fulltrúi Alþýðuflokks- ins. „Ég treysti mér ekki að spá hver lendingin verði í þessu máli en ég hef verið harður á að við hefðum sjálfsákvörðunarrétt í því og við höldum á þessu máli af reisn gagn- vart erlendum aðilum og ef við föllum þá föllum við standandi," sagði Kjartan. „Ég er þeirrar skoð- unar að það sem í raun hafí gerst er að við höfum sýnt Bandaríkja- mönnum ákveðna tillitssemi en þeir koma ekki til móts við okkur á móti og þessvegna sé engin ástæða til að halda við tilboð sem við höfum gert. Við hljótum að leitast við að halda okkar striki." Viljum sjá hvað gerist í málinu „Við höfum ekki tekið opinbera afstöðu í þessu máli og viljum sjá hvað meira kemur upp á borðið áður,“ sagði Hreggviður Jónsson fulltrúi Borgaraflokksins. Hreggviður tók fram að hann væri áheymarfulltrúi í nefndinni og þingflokkur Borgaraflokksins myndi komast að niðurstöðu þegar þessi mál yrðu rædd á Alþingi. Tvennt skiptir sköpum nú „Það er tvennt sem skiptir sköp- um eins og málið stendur núna. Það er það að breytingar á hvalveiði- áætluninni hafa ekki greitt fyrir málinu og Bandaríkjamenn láta þá breytingu sem vind um eyrun þjóta, og hitt er að þeir hafa fylgt þessu eftir með því að skipa fulltrúa við- skiptaráðuneytisins formann við- ræðunefndarinnar. Þetta tel ég mjög alvarlegan hnút í samskiptum ríkjanna sem verður að ræða hvem- ig við verður brugðist," sagði Jón Kristjánsson fulltrúi Framsóknar- flokksins. Jón sagðist aðspurður ekki vera sammála að mál þetta væri hætt að snúast um hvalamálið en það væri farið að snúast um fleira. „Þetta snýst um hvalamálið og al- menn samskipti ríkjanna; ég held að þama verði ekki skilið á milli og með því að senda utanríkisráð- herra til viðræðna er málið auðvitað farið að snúast um það af okkar hálfu," sagði Jón. Sterk skilaboð til íslendinga „Mér hefði fundist bæði rétt og skynsamlegt að haft hefði verið samráð við utanríkismálanefnd eins og verið hefur í þessum málum fram að þessu þannig að hún hefði getað fýlgst með þeim ákvörðunum sem teknar voru, og sérstaklega þegar málið tók aðra stefnu þegar bréfa- skipti hófust milli forsætisráðherra og Bandaríkjaforseta. Ég hefði talið eðlilegt að nefndin hefði verið með í þeirri ákvörðun hvort slíkt ætti að gerast og með hvaða hætti," sagði Guðrún Agnarsdóttir fulltrúi Kvennalistans. „Úr því sem komið er er greini- legt að átök eru milli ráðuneyta Bandaríkjastjómar um það hver eigi að hafa forystu í þessu máli og ég álít það vera mjög sterk skila- boð til íslendinga þegar fulltrúi úr viðskiptaráðuneytinu, sem þegar hefur rætt við Islendinga um þetta mál, er sendur til fundar við ut- anríkisráðherra þegar okkar forsætisráðherra hefur gefíð í skyn að óskað sé eftir viðræðum við ut- anríkisráðherra um málið. Þetta álít ég vera ákveðin skilaboð til ís- lendinga. Hinsvegar er þetta flókið mál og þegar og ef Islendingar gera hlé á sínum hvalveiðum eða hætta þeim fínnst mér að það eigi að vera af sjálfsdáðum, eftir yfír- vegun og með reisn með tilliti til umhverfisvemdarsjónarmiða en ekki að láta aðra kúga sig til þess,“ sagði Guðrún. Fimmtungi f leiri sóttu Veröld nú en í fyrra FORRÁÐAMENN Kaupstefn- unnar segjast hæstánægðir með aðsókn að sýningunni Veröld ’87. Þegar sýningunni Iauk i Laugar- dalshöll um síðustu helgi höfðu 46.300 manns greitt aðgangseyri. „Þetta er stórkostlegt. Við gerð- um okkur hæstar vonir um að fá Qörutíu þúsund gesti," sagði Guð- mundur Jónsson framkvæmda- stjóri. „Á sýningunni Heimilinu '86 voru gestir þijátíu og átta þúsund þannig að aðsóknin var umtalsvert meiri í ár.“ Skipulagning sýningarinnar Ver- öld ’88 er þegar komin langt á veg. Fyrirspumir um sýningarpláss eru orðnar margar og sagði Guðmundur að ánægja þátttakenda með sýning- una í ár spillti ekki fýrir. Næstkomandi vor efnir Kaup- stefnan til vörusýningar undir heitinu Sumarið ’88. Héðni var ekki boðið MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá Steingrími Baldurssyni, föður Héðins Steingrímssonar skák- manns: „í Morgunblaðinu, föstudag- inn 4. þ.m., er sagt frá þvi, að Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, hafí dag- inn áður haldið hóf til heiðurs skákmönnunum Jóhanni Hjart- arsyni, Margeiri Péturssjmi og Héðni Steingrímssyni. í skýringarorðum undir mynd af menntamálaráðherra, eigin- konu menntamálaráðherra, Jóhanni Hjartarsyni og Margeiri Péturssyni stendur. „Héðinn Steingrímsson gat ekki verið viðstaddur." Þetta er rangt. Héðni Steingrímssyni var ekki boðið í hóf menntamálaráðherra." Reykjavík, 9. september 1987. Steingrímur Baldursson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.