Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 21

Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 ”21 Umræður á röngum for- sendum eru marklausar eftirJón Kristjánsson Morgunblaðið hefur flallað nokkuð um samvinnumál nú að undanfömu. Þeir eru ekki fæddir í gær á Moggan- um og þessi umræða þjónar ákveðn- um tilgangi. Hún á að sýna að umsvif Sambandsins séu svo mikil að ríkisvaldinu og þar með lýðveldinu íslandi stafi ógn af. Einn þáttur þess- arar umfjöllunar var sá að leggja forsætisráðherranum Þorsteini Páls- syni þá klissju í munn að hann vildi vera forsætisráðherra lýðveldisins íslands en ekki Sambandslýðveldis- ins íslands. Já, fyrr má nú vera hræddur við Sambandið. Þessi fyrirgangur á rætur sínar að rekja til þess að Sambandið og nokkur samstarfsfyrirtæki þess buðu í Útvegsbankann. Þá sögu þarf ekki að rekja. Hins vegar hagræðir Morg- unblaðið dálítið sannleikanum í sinni umfjöllun til þess að ná þeirri niður- stöðu sem þeir telja henta málstað sínum. Það vill því miður oft brenna við þegar rætt er um samvinnumál í blaðinu. Skipulag samvinnu- félaganna Mesta rangfærslan í þessari um- ræðu allri er sú að samvinnuhreyf- ingin í landinu er sögð vera ein samsteypa sem lúti í raun sömu stjóm. Til þess að sýna fram á hve fráleit þessi umræða er verður ekki hjá komist að rekja enn einu sinni megindrættina í skipulagi og upp- byggingu samvinnustarfsins í landinu, og biðjja Morgunblaðið að birta þessar línur lesendum sínum til fróðleiks. Grunneiningamar í samvinnu- starfínu í landinu eru kaupfélögin. Starfandi kaupfélög eru nú 36 talsins og er hveiju um sig stjómað af kjör- inni stjóm og aðalfundi. Þau eru með öðmm orðum algjörlega sjálfstæðar einingar. Kaupfélögin eiga sameigin- legan vettvang, sem Sambandið er til þess að sjá um fyrir sig ákveðin verkefni. Meðal þess sem Sambandið hefur á hendi er rekstrarleg ráðgjöf ef um hana er beðið, en þessa ráð- gjöf hafa margir viljað túlka sem yfirstjóm Sambandsins yfir kaup- félögunum. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er öfiugt fyrirtæki í einkageiranum. Ef sagt er að Sambandið og kaupfélög- in séu eitt fyrirtæki mætti alveg með sama rétti segja að frystihúsin innan Sölumiðstöðvarinnar væri hluti af henni, og sama fyrirtækið. Mér er til efs að frystihúsaeigendur eða for- svarsmenn Sölumiðstöðvarinnar líti svo á, og við samvinnumenn höfum ekki eitt mikilli prentsvertu til þess að halda slíku fram. Auðhringnr? Sambandið hefur þá sérstöðu með- al íslenskra stórfyrirtækja að vera stjómað af aðalfundi, þar sem sitja fulltrúar sem eru kosnir samkvæmt reglum fulltrúalýðræðisins, en ekki með tilliti til þess hve mikið fjármagn liggur að baki atkvæði þeirra. Þessi fundur kýs stjóm Sambandsins og felur henni mikla ábyrgð. Að kalla fyrirtæki með slíkan bakgrunn auð- hring er mikil fjarstæða. Það er reyndar einkennileg sú löngun sem einkaframtaksmenn hafa til þess að setja keppinautum sínum skorður með löggjöf. Ef það skortir laga- ákvæði um einokun og hringamynd- un í landinu er það ekki síður vegna einkaframtaksins en samvinnuhreyf- ingarinnar. Vel má vera að ástæða sé til þess að endurskoða slíka löggjöf, en það er ekki vegna samvinnuhreyfíngar- innar hérlendis og ástæðulaust er að blanda henni sérstaklega inn í þá umræðu, frekar en umsvifum ann- arra stórfyrirtækja. Sannleikurinn er sá að kaupfélögin eða Sambandið hafa ekki einokunar- aðstöðu á neinu sviði. Það er að vísu svo á nokkrum stöðum, þó örfáum, út um landsbyggðina sem kaupfé- lagsverslun er ein starfandi í viðkom- andi byggðarlagi. Það er undantekn- ingarlaust vegna þess að einkaframtakinu hefur ekki þótt svara kostnaði að setja sig þar nið- ur. Þess má og geta að markaðs- svæðin eru alltaf að stækka og þróunin stefnir óðfluga í þá átt að landshlutamir og jafnvel allt landið verði eitt markaðssvæði. Staðhæfingar um einokun og hringamyndun byggja á röngum for- sendum og em því marklausar. Sérréttindi? Ein staðhæfingin enn sem gjaman er dregin upp þegar mikið liggur við er að samvinnuhreyfíngin njóti sér- réttinda í skattamálum. Þetta hefur aldrei verið rökstutt með viðhlítandi hætti. Sannast sagna hefur tekju- skattur ekki íþyngt fyrirtækjarekstri nú undanfarin ár og er einkarekstur þar síst undanskilinn. Það er undar- legt að kveina fyrir hönd tekjuskatts- iausra fyrirtækja að einhver skattfríðindi samvinnuhreyfingar- innar sem em ekki til nema í höfði samkeppnisaðilanna séu að gera út af við einkaframtakið í landinu. Hvað skil á óbeinum sköttum eins og sölu- skatti snertir þolir samvinnuhreyf- Jón Kristjánsson ingin áreiðanlega samjöfnuð við hvem sem er og þá er ekki sterkt til orða tekið. Lokaorð Þróunin hér á næstu ámm og ára- tugum mun áreiðanlega verða sú að fyrirtæki með ólík rekstrarform munu heyja samkeppni. Það er eðli- legt og verður áreiðanlega fólkinu í landinu til góðs, að hafa hér blandað hagkerfi. Það er eðlilegt að það séu skiptar skoðanir um ágæti samvinnu- reksturs, einkareksturs eða ríkis- reksturs, en tilbúnar forsendur í rökræðum um þessi efni og síendur- teknar rangfærslur em þreytandi fyrir þá sem vita betur. Þau atriði sem þurfa að vera ljós í þessari umræðu em þau að samvinnuhreyf- ingin er fjöldahreyfíng margra eininga sem hver lýtur sinni stjóm. Hún nýtur engra sérréttinda fram yfir einkaframtakið og hefur ekki einokun á neinu sviði. Höfundur er einn af alþingis- mönnum Framsóknarflokks. „ÞEGAR ÉG RÉÐ DEREK FYRIR 18 ÁRUM VISSI ÉG AÐ HANN MYNDI SLÁ ÖLL SÖLUMET í BRETLANDI!“ Jón Olgeirsson, FYLKI LTD Hinn 8. janúar s.l. setti Derek enn nýtt, breskt sölumet. Þá seldi hann 279 tonn af þorski úr tog- aranum Vigra fyrir rúmar 16 milljónir króna. Þegar ég réð Derek fyrir 18 árum seldi hann aðal- lega afla úr Norðursjó. Núna sérhæfir hann sig í sölu stórra farma af þorski af íslandsmiðum. Og árangurinn er glæsilegur. Derek er mættur á markaðinn við sólarupprás, fer á milli kaupenda, hlustar, þreifar fyrir sér, finnur hvernig vindurinn blæs . . . punktar hjá sér verð og undirbýr hernaðaráætlun dagsins; þína sölu. Kl. 7:00 byrjar slagurinn. Derek er tilbúinn. Uppboðið hefst. Hraðinn er ótrúlegur. Spenna og átök. í sömu andránni gerast hundrað hlutir sem geta haft áhrif á söluna. Með leikni leiðir hann kaupendur að takmarkinu - nýju bresku sölumeti fyrir þig. Ertu með afla? Hafðu samband. FYLKIR LTD ÖRUGGASTA LEIÐIN AÐ SÖLUMETI WHARNCI.IFFE ROAD. FISH DOCKS. GRIMSBY. TELEX 527173 FYLKIR G. BRETLANDI. PÓSTFAX 55134. SÍMAR: (90-44-472) 44721 OG 53181. HEIMASÍMAR: 43203 (JÓN OLGEIRSSON) OG 823688 (THEODÓR GUÐBERGSSON). ARGU5/SIA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.