Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
íslenska hljómsveitin
virkjar íslenska listamenn
Morgunblaðið/Sverrir
Þrír stjórnarmanna islensku hyómsveitarinnar, Ásgeir Sigurgests-
son, Sigurður I. Snorrason og Guðmundur EmOsson.
Skipaðir skoðunar-
menn kvikmynda
STJÓRN íslensku hljómsveitar-
innar kynnti í gær tónleikaröð
sem ber yfirskriftina „Námur“.
Að sögn Guðmundar Emilssonar
stjórnanda hljómsveitarinnar er
hér um að ræða áætlun sem lýk-
ur sennilega ekki fyrr en í
upphafi næsta áratugar. Mark-
mið hennar er að efla sköpun
íslenskrar listar sem túlki mis-
munandi timabil íslandssögunn-
ar, stóratburði jafnt sem daglegt
líf.
Með yfirskrift tónleikaraðarinnar
er vísað til þeirra orða Einars Ben-
ediktssonar að „mesti og besti
auður hvers lands er fólkið sjálft,
sem lifir þar, hugsar og starfar."
Vilja forráðamenn hljómsveitarinn-
Þórshöfn, Fœreyjum.
FYRSTA kennslubókin í íslensku
fyrir grunnskóla í Færeyjum,
Grannamálið fyrir vestan, kom
út 7. september. Höfundur bók-
arinnar er Arni Dahl bókmennta-
fræðingur. Hann afhenti forseta
íslands eintak af bóldnni þegar
hún heilsaði upp á íslendinga í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn á
meðan á opinberri heitnsókn
hennar stóð til Færeyja.
í bókinni er íslensk hljóðfræði,
sögutextar eftir íslenska höfunda
og textar við sönglög. Þá eru í
bókinni teiknimyndasögur, auglýs-
ingar, lesendabréf og fleira dægur-
efni til kynningar.
íslenska hefur á undanfömum
árum verið kennd í nokkrar vikur
í efstu bekkjum grunnskólans. Til-
koma nýju kennslubókarinnar gerir
að verkum að kennslan kemst í
fastara form. Ámi Dahl sagðist
vona að það liði^ ekki á löngu þar
tii samin yrði á íslandi kennslubók
í færeysku fyrir íslenska unglinga.
Einnig er unnið að kennslubók í
Byggingarsam vinnufélagið
Búseti hefur samið við verk-
takafyrirtækið Hagvirki hf., um
að kaupa allar 46 íbúðirnar í
fjölbýlishúsinu við Frostafold
18-20 í Grafarvogi fyrir 170
milljónir króna.
Búseti fékk vilyrði fyrir láni úr
Byggingasjóði verkamanna í mars
til kaupa á 30 íbúðum. Formaður
Búseta, Páll Gunnlaugsson, segist
ar virkja menn úr mörgum listgrein-
um til þess að nema þjóðararfínn
líkt og málm úr jörðu.
Hljómsveitarmeðlimir ætla ein-
ungis að flytja íslenska tónlist í
vetur. Að sögn Snorra I. Snorrason-
ar gjaldkera verður efniskrá þeirra
ekki kynnt með löngum fyrirvara.
Taka þarf mið af því hvenær tón-
skáld ljúka þeim verkum sem
ætlunin er að frumflytja.
Líklega verður efnt til fjögurra
áskriftartónleika í vetur, hinna
fyrstu 28. nóvember. Þar verður
fyrsta „Námaverkið" frumflutt. Það
skrifar Þorkell Sigurbjömsson við
ljóð Sigurðar Pálssonar tónskálds.
Báðir yrkja þeir gagngert fyrir
Kristján Jóhannson sem verður ein-
íslensku fyrir framhaldsskóla sem
kemur út í kringum áramótin. Höf-
undur hennar er Turið Joensen.
Hún er bókmenntafræðingur og
hefur meðal annars þýtt Sölku
Völku á færeysku. Bók Turiðar
heitir „Lærið íslendskt" og er ætluð
framhaldsskólum og almenningi
sem vill auka kunnáttu sína í ís-
lensku.
Turið sagði að vaxandi áhugi
væri í Færeyjum fyrir íslandi og
líka fyrir íslenskunni. í fyrra bindi
bókarinnar er hljóðfræði og mál-
fræði en í seinna bindinu verða
textar og orðasafn.
Bók Turiðar er gefín út með styrk
frá Vestnorrænu samstarfsnefnd-
inni. Það er námsgagnastofnun
Færeyja sem gefur báðar bækumar
út. í fréttatilkynningu um bækum-
ar segir að með útgáfu þeirra sé
reynt að styrkja sambandið milli
bræðraþjóða svo þær verði betur í
stakk búnar að veijast erlendum
menningaráhrifum sem hellast yfír
smáþjóðir. — Sig. Jóns.
búast við að Búseti fái lán hjá
sjóðnum í mars á næsta ári fyrir
þeim 16 íbúðum í fjölbýlishúsinu
við Frostafold sem Búseti hefur
enn ekki fengið lán fyrir.
Reykjavíkurborg úthlutaði Bú-
seta lóðinni Frostafold 18-20 vorið
1985 en Búseti var stofnaður 26.
nóvember 1983. Þar sem Búseta-
menn fengu ekki lánsloforð fyrir
fleiri en 15 íbúðum fyrst í stað
söngvari með hljómsveitinni.
Ennfremur verður frumsýnt nýtt
myndverk Gunnars Amar Gunnars-
sonar myndlistarmanns.
Viðfangsefni listamannana
þriggja er landnámstímabil íslands-
sögunnar. íslenska hljómsveitin
falaðist eftir verkum þeirra síðast-
liðið vor. Hafín er gerð myndbands-
þáttar um „Námur" og undirbúin
er útgáfa myndskreyttrar bókar um
verkin og listamennina. Myndverkin
sem við sögu koma verða væntan-
lega sýnd í Reykjavík og nágrenni
og tónverkin gefín út á hljómplöt-
um. Þá fyrirhugar hljómsveitin að
endurflytja tónleikaröðina í heild
aldamótaárið 2000 þegar þúsund
ár verða liðin frá kristnitökunni.
Að sögn Snorra var rekstur
hljómsveitarinnar tekinn til ræki-
legrar endurskoðunar á síðasta
starfsári, því sjötta síðan hún tók
til starfa. í skýrslu sem þá birtist
kemur í ljós að reksturinn hefur
verið nær hallalaus, en stofnkostn-
aðarskuldir em enn ógreiddar.
Ríkisstyrkur hefur staðið í stað að
verðgildi en lækkað úr 25% í 10%
af rekstrartekjum. „Það er áfram
markmið okkar að reka þessa
hljómsveit án ríkisstyrkja. Takist
hinsvegar ekki að eyða skuldum
hljómsveitarinnar sem nema einni
og hálfri milljón króna gætu þær
eytt okkur," sagði Guðmundur.
Þingflokkur og miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins héldu sam-
eiginlegan fund á mánudag þar
sem annarsvegar var rætt um
flokksstarf Sjálfstæðisflokksins
næstu mánuði og hinsvegar störf
og starfshætti flokksins.
Á fundinum var rætt um greinar-
gerð frá sameiginlegri nefnd
þingflokks og miðstjómar Sjálf-
stæðisflokksins sem hafði verið
falið að gera tillögur um flokks-
starf og starfshætti Sjálfstæðis-
ENGAR endurbætur hafa enn
verið gerðar á veginum I
afsöluðu þeir sér lóðinni til Hag-
virkis.
Félagsmenn Búseta þurfa að
greiða 15% af andvirði íbúðanna
við Frostafold er þeir flytjast í þær
en afganginn lánar Byggingar-
sjóður verkamanna til 30 ára.
Ibúamir þurfa að greiða afborgan-
ir af láninu mánaðarlega, svo og
húsgjöld fyrir sameiginlegum
rekstrarkostnaði.
Menntamálaráðuneytið hefur
skipað eftirtalda skoðunarmenn
kvikmynda skv. 58. gr. laga um
vernd barna og ungmenna nr.
53/1966 sbr. og lög um bann við
ofbeidiskvikmyndum nr. 33/1983
frá og með 3. september sl. að
telja:
Adolf Pedersen, íjölmiðlafræð-
ing, Guðrúnu Birgisdóttur, fjöl-
flokksins. í nefndinni áttu sæti þau
Katrín Fjeldsted, Halldór Blöndal,
Salome Þorkelsdóttir og Kristófer
Þorleifsson. „Þessar umræður voru
í sjálfu sér ekkert ólíkar þeim um-
rseðum sem eru jafnan í gangi í
flokknum um hvemig hann geti
sinnt sínu hlutverki og komið stefnu
sinni sem best á framfæri við kjós-
endur," sagði Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við Morgun-
blaðið.
Strákagöngum. Hafa margir
bflar sem um göngin hafa ekið
orðið fyrir skemmdum vegna
þess hve hann er grýttur og
holóttur.
Siglfirðingar telja að þeir séu
alltaf hafðir útundan hjá Vegagerð
ríkisins. Vegurinn í Strákagöngum
hefur verið mjög slæmur og þrátt
fyrir að þar sé 35 km. hámarks-
hraði hafa ýmsir lent í því að
eyðileggja dekk og felgur undir
bílum sínum. Sérstaklega er þetta
slæmt fyrir aðkomufólk sem á sér
einskis ills von er það ekur þama
í gegn.
Fréttaritari hafði samband við
vegagerðarmann á dögunum sem
viðurkenndi að óeðlilega lengi
hefði dregist að heija endurbætur
á veginum.
MJ
miðlafræðing, Helgu Þórðardóttur,
félagsráðgjafa, Steingrím Þórðar-
son, kennara, Svein Klausen, M.A.,
og Auði Eydal, kennara, sem jafn-
framt hefur yfirumsjón með starfí
Kvikmyndaeftirlits ríkisins.
Skipunin gildir um fimm ára
Að sögn Kjartans Gunnarssonar
vakti nefndin meðal annars athygli
á að taka þyrfti til athugunar skipu-
lag landsfunda og flokksráðsfunda
Sjálfstæðisflokksins. Einnig var
ítarlega fjallað um störf málefna-
nefnda flokksins og ræddar
margvíslegar tillögur sem liggja
fyrir um breytingar á þeim til þess
að auka virkni þeirra. Þá var fjallað
um starf ungliðahreyfíngar Sjálf-
stæðisflokksins og sérsambanda og
talið nauðsynlegt að þessi sambönd
yrðu efld til þess að starfa af meiri
krafti hvert á sínum vettvangi.
Sérstaklega var rætt um starfsemi
Sjálfstæðisflokksins utan höfuð-
borgarsvæðisins en margt í
sambandi við starfsemi flokksins
þar vilja menn endurbæta.
Þá urðu nokkrar umræður um
skipulag skrifstofu flokksins, þá
þjónustu sem hún gæti veitt flokks-
mönnum og ýmis ný vericefni sem
hún gæti hugsanlega tekið að sér.
Hlutur og þátttaka sveitarstjómar-
manna innan flokksins var einnig
rædd og hvemig starf þeirra yrði
markvissara og meira samræmi
næðist í almennri sveitarstjómar-
pólitík flokksins.
Loks var rætt um málflutning
Sjálfstæðisflokksins, hvemig hann
gæti nýtt sér ýmiss konar skoðana-
og viðhorfskannanir og fylgst sem
best með nýjum og mismunandi
viðhorfum í ýmsum málum.
Leiðrétting
Misritun varð í ræðu Halldórs
Blöndals sem birtist í Morgunblað-
inu á þriðjudaginn og hann flutti
við setningu Háskólans á Akureyri.
Tilvitnun í kvæði Einars Bene-
diktssonar er rétt þannig:
Frá heiminum til hólmans slóstu brú,
og hámennt orðsins reiddir þú í bú.
Færeyjar:
Kennslubók í íslensku fyr-
ir grunnskóla komin út
••
Onnur bók fyrir framhaldsskóla væntanleg
Páll Gunnlaugsson formaður Búseta
Morgunblaðið/Bjami
Búseti kaupir 46 íbúða
fjölbýlishús í Grafarvogi
skeio.
(Fréttatilkynning)
Sameiginlegnr fundur miðstjórnar og þingflokks
Sjálfstæðisflokksins:
Rætt um flokks-
starf og starfshætti
Strákagöng:
Vegurinn enn
grýttur og holóttur
Siglufirði.