Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 31

Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 31 Kosningarnar í Færeyjum: Erfiðara en áður - höldum samt áfram -sagði Poul Schliiter eftir kosningaúrslitin eftirAxel Pihl-Andersen STJÓRN borgaraflokkanna fjög- urra með Poul Schlliter forsætís- ráðherra í broddi fylkingar beið ósigur í þingkonsingunum í Dan- mörku. Hins vegar bendir flest til þess að Schlllter muni stjórna viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku. Anker Jörgensen, leiðtogi flokks jafn- aðarmanna, vill hins vegar láta á það reyna hvort flokkur hans getí myndað meirihlutastjórn með Sósialíska þjóðarflokknum og Radikale venstre. Poul Schluter hefur ákveðið að he§a viðræður við fulltrúa hinna ýmsu flokka til að glöggva sig á stöðu mála og kanna möguleikana á stjómarmyndun. Stjóm borgara- flokkanna fjögurra þarf nú að reiða sig á stuðning Framfaraflokks Mogens Glistrup en talsmenn Rad- ikale venstre, sem hefur varið stjómina fram að þessu, hafa marg- lýst yfir því að ekki komi til greina að styðja stjóm sem Framfaraflokk- urinn á aðild að. „Stjómin tapaði en stjómarandstaðan vann ekki,“ sagði Niels Helveg Pedersen, leið- togi Radikale venstre, er úrslit kosninganna lágu fyrir. Hann ítrek- aði enn og aftur að flokkur hans gæti ekki átt samstarf við Fram- faraflokkinn og vísaði jafnframt á bug myndun ríkisstjómar Radikale vesntre, Jafnaðarmannaflokksins og Sósíalíska þjóðarflokksins, sem Anker Jörgensen kveðst vera hlynntur. Óvænt fall stjórnarinn- ar Fall stjómar borgaraflokkanna, sem töpuðu samtals sjö þingmönn- um, kom á óvart. Hins vegar tapaði flokkur jafnaðarmanna einnig fylgi og missti tvo fulltrúa á danska Þjóð- þinginu. Sósíalíski þjóðarflokkurinn vann umtalsverðan sigur og bætti við sig sex þingmönnum en það nægir ekki til að mynda meirihluta- stjóm rneð jafnaðarmönnum. Á hinn bóginn fengu flokkar, sem skipað hafa sér yst á báðum vængjum stjómmála, stuðning kjós- enda. Framfaraflokkur Glistrups vann verulega á og hinn nýi flokkur „Fælles kurs", sem er vinstri sinn- aður og lýtur fomstu Prebens Möller Hansen, formanns danska sjómannasambandsins, fékk fjóra menn kjöma. Staðan verður enn flóknari en ella vegna sigra þessara tveggja flokka og mannanna sem þeim stjóma. Helsta skýringin á óvæntu falli stjómarinnar, sem virtist ætla að halda velli samkvæmt skoðana- könnunum, er sú að borgaralega þenkjandi kjósendur snem við henn baki. Mörgum þykir Poul Schliiter hafa starfað meira í anda jafnaðar- mennsku en borgaralegra hugsjóna. Skattheimta hefur aukist í tíð ríkis- stjómar borgaraflokkanna og stjómin hefur ekki staðið við loforð um að selja ríkisfyrirtæki, sem var eitt helsta kosningamálið árið 1983. Að auki hefur ríkisstjómin neyðst til að gefa eftir í öryggis- og vamar- málum og hvað eftir annað hafa jafnaðarmenn og Sósíalíski þjóðar- flokkurinn getað ráðskast með utanríkisstefnu Dana. Enn tapar Jörgensen En Jafnaðarmannaflokkurinn tapaði einnig fylgi og Anker Jöreg- ensen, sem var bæði vonsvikinn og þreyttur er úrslitin lágu fyrir, varð að sætta sig við tap þriðja skiptið í röð. Fylgi flokksins er nú aðeins 29,3 prósent og vera kann að Ank- er Jörgensen ákveði að draga sig í hlé og eftirláti þeim Svend Auken og Ritt Bjerregard að stýra flokkn- um. Þótt Jörgensen biðli nú ákaft til Radikale venstre og Sósíalíska þjóðarflokksins er staða hans veik og ólíklegt að honum auðnist að gegna embætti forsætisráðherra. Poul Schlúter verður áfram for- sætisráðherra. Spumingin virðist aðeins vera sú hvort sömu fjórir flokkamir mynda stjóm eða hvort fleikri flokar verða fengnir til að treysta hana. Staðan í dönskum stjómmálum er nú flóknari en nokk- um tíma áður. Þegar úrslit kosning- anna vom ljós sagði Poul Schluter: „Þetta verður erfiðar en áður, en við viljum halda áfram“. Höfundur er blaðamaður og star- far við Reportagegruppen í Árósum. Nordfoto Anker Jörgensen, leiðtogi dan- skra jafnaðarmanna, heldur á gjöf frá flokksmönnum að afloknum kosningunum. Hann lét þó í það skína að hann myndi ekki gegna báðum embætt- um, þingmennsku og lögmanns- starfi. Kosningaþáttaka var góð, kjör- sókn var 67 prósent en einungis 61 prósent við síðustu kosningar. Þetta kom einkum Fólkaflokknum og Javnaðarflokknum til góða. Þó að Sambandsflokkurinn fengi nú hlutfallslega færri atkvæði en við síðustu þjóðþingskosningar fékk flokkurinn 700 fleiri atkvæði nú en þá. Flestir stjómmálaskýrendur líkja ástandinu eftir kosningamar við stöðu flokkanna í Bretlandi. í þeim skilningi að tveir stærstu flokkamir skeri sig úr. Einnig þykja úrslitin athyglisverð vegna þeirrar vísbend- ingar sem þau gefa um lögþings- kosningamar í Færeyjum á næsta ári. Allt bendir nefnilega til að land- stjómarmeirihlutinn falli. Verði niðurstaðan hin sama og á þriðju- dag fær landstjómin einungis 15 þingmenn af 32. Javnaðarflokkunnn kemur manni að Færeyjum, frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. ÓLI Breckmann er vinsælasti stjórnmálamaður Færeyinga. Á því leikur enginn vafi! Þetta er fullljóst eftir kosningarnar til danska Þjóðþingsins á þriðjudag. Fólkaflokkurinn kom einum manni að, Óla Breckmann sem fékk einnig flest persónubundin atkvæði og Javnaðarflokkurinn einum, Atla Dam lögmanni. Þó að Pauli Ellefsen frá Sam- bandsflokknum fengi næst flest persónubundin atkvæði nægði það ekki til þess að flokkur hans kæmi manni að. Flokkur hans, Tjóðveldis- flokkurinn, beið mikinn ósigur í kosningunum, fékk einungis um það bil 3.500 atkvæði. Sigurvegari kosninganna hlýtur að teljast Fólkaflokkurinn sem fékk 6.403 atkvæði eða 29 prósent atkvæða. Javnaðarflokkurinn fékk 5.482 at- kvæði og Sambandsflokkurinn 5.326 atkvæði. Atli Dam lögmaður Færeyinga var mjög ánægður með niðurstöð- una og sagði Færeyinga hafa sýnt þann ótvíræða vilja að flokkur sinn kæmist á Þjóðþingið. Spumingin er nú hvort Atli Dam sjálfur eða annar maður á lista Javnaðar- flokksins, Jakúp Lindenskov sem áður hefur verið á þingi, tekur sæti á hinu nýkjöma Þjóðþingi. Atli vildi ekki taka afstöðu til þessa máls að kvöldi kosningadagsins og sagði flokkinn myndu gera það. TEYGJUfí 0G ÞfíEK W GÓÐAR AÐSTÆÐUfí MEÐ VIÐUfíKENNDUM KENNUfíUM K0MA ÞÉfí ÍFÍNTF0RM Á SKEMMTILEGAN HÁTT Haustnámskeiðin hefjast 14. september. - Fjörugar hópæfingar (og núna sérstakir hjónatímar) fyrir hresst fólk á öllum aldri, morgun, kvölds og um miðjan dag. Minnum á leikhornið okkar og einnig er gæsluvöllur við Gullteig,opinn kl. 9:30-12 og 13:30-17. Innritun er hafin í símum 687801 og 687701 frá kl. 10-19 alla daga nema sunnudaga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.