Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
HEIMILISIÐNAÐAR-
SKÓLINN
Laufásvegi 2
&ími 17800
Innritun er hafin
Vefnaður 14. sept.
Útskurður 16. sept.
Prjóntaekni 23. sept.
Leðursmiði 26. sept.
Þjóðbúningasaumur 2. og 3. okt.
Tauþrykk 6. okt.
Fatasaumur 12. okt.
Bótasaumur 13. okt.
Tuskubrúöugerö 13. okt.
Knipl 14. okt.
Innritun fer fram á skrifstofu
skólans að Laufásvegi 2. Nám-
skeiðaskrá afhent þar og hjá ísl.
heimilsiðnaöi Hafnarstræti 3.
Upplýsingar í sima 17800.
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn sími 28040.
Kl. 20.30 i kvöld er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42.
Dorkas konur sjá um samkom-
una með miklum söng og vitnis-
burðum. Stjórnandi Ásta
Jónsdóttir. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK
Biblíulestur i Langagerði 1 í
kvöld kl, 20.30. Allir velkomnir.
Fimir fætur
Dansæfing verður í Hreyfils-
húsinu sunnudaginn 13. sept-
ember kl. 21.00. Mætið
tímanlega. Nýir félagar ávallt
velkomnir.
Upplýsingar i sima 74170.
Gúmmíbátasigling á
Hvítá
Brottfarir: laugardaginn 5. sept.,
sunnudaginn 6. sept., laugar-
daginn 12. september og
sunnudaginn 13. september kl.
9.00. Verð kr. 3500 pr. mann.
Nýi feröaklúbburinn
símar 12448 og
19828.
Hreinsunar-og
málningardagur
á skiðasvæði fólagsins verður
sunnudaginn 13. sept. kl. 10.00
stundvíslega. Boðið verður uppá
stórkostiega grillveislu kl. 13.00
með öllu tilheyrandi. Einnig
verða bornar fram nýbakaöar
kökur frá Svansbakaríi í Hafnar-
firði kl. 15.30.
Allir félagar og keppnisfólk deild-
arinnar eru hvattir til að mæta
stundvíslega og hafa með sér
vinnuvettlinga og hlifðarfatnað.
Verið velkomin.
Stjórnin.
VEGURINN
Kristið samféiag
Þarabakki 3
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30.
Allir velkomnir.
Vegurinn.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.I., Oldugötu 3.
Brottför í ferðirnar er kl. 20.00
föstudag.
Ferðafélag íslands.
£
UTIVISTARFERÐIR
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferðir 11 .-13.
sept.:
1. Landmannalaugar — Jökulgil.
Jökulgil er fremur grunnur dalur
sem liggur upp undir Torfajökul
til suðausturs frá Landmanna-
laugum. Jökulgil er rómað fyrir
litfegurð fjalla sem aö því liggja.
Eru þau úr lípariti og soðin sund-
ur af brennisteinsgufum. Gist í
sæluhúsi F.i. í Laugum (hitaveita
er í sæluhúsinu, góö eldunarað-
staða og svefnpláss notaleg). Það
er einungis unnt að fara í Jökul-
gilið á haustin þegar vatn hefur
minnkað í Jökulgilskvíslinni.
Missið ekki af þessari ferð.
2. Þórsmörk — Langadal.
Gist í Skagfjörðsskála / Langadal.
Þórsmörk er aldrei fegurri en á
haustin og aðstaðan hjá Ferða-
félaginu fyrir ferðamenn er
frábær.
Helgarferðir
11.-13. sept.
1. Þórsmörk, haustlitir. Góð
gisting i Útivistarskálunum, Bás-
um. Gönguferðir við allra hæfi.
2. Vestmannaeyjar. Kl. 19.30.
Með skipi eða flugi. Svefnpoka-
gisting. Gönguferðir um Heima-
ey. Bátasigling í kringum eyjuna.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1. simar: 14606 og 23732.
Útivist.
UTIVISTARFERÐIR
Haustlita- og grillveislu-
ferð í Þórsmörk helgina
18.-20. sept.
Gisting i Útivistarskálunum Bás-
um meöan pláss leyfir, annars
tjöld. Fjölbreyttar ferðir. Grill-
veisla og kvöldvaka á laugar-
dagskvöldinu. Pantið tímanlega.
Fararstjórar: Bjarki Haröarson
og Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir.
Uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1, símar: 14606 og
23732. Sjáumst!
Útivist.
Dagsferðir sunnudag-
inn 13. sept.:
1) Kl. 08 Þórsmörfc — dagsferö.
Dvalið i Þórsmörk um 3 V* klst.
Farnar gönguferðir. Verð kr.
1.000.
2) Kl. 09 Hlöðufell — Hlöðuvellir.
Ekið um Þingvelli, Kaldadalsveg
að Brunnum en þar er beygt á
linuveginn og ekið norðan
Skjaldbreiðar að Hlöðuvöllum.
Verð kr. 1.000.
3) Kl. 13 Höskuldarvellir -
Vigdísarvellir.
Ekiö suður með sjó (þjóðveg-
inn), siðan afleggjarann að
Höskuldarvöllum. Gengið þaðan
um Sog að Djúpavatni og Mó-
hálsadal að Vigdísarvöllum.
Verð kr. 600.
Brottför frá Umferöarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bil. Fritt fyrir börn i fylgd fullorð-
inna.
Ferðafélag íslands.
Metsölublad á hverjum degi!
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar |
fundir — mannfagnaöir ! Miðbær Verslunar-/veitingahúsnæði ca 150-200 fm tilkynningar \
Aðalfundur
Aðalfundur handknattleiksdeildar Fylkis
verður haldinn 17. september kl. 19.30 í
félagsheimili Fylkis við Fylkisvöll.
Stjórnin.
Byggung Kópavogi
Aðalfundur BSF Byggung Kópavogi verður
haldinn í Hamraborg 1,3. hæð fimmtudaginn
10. september kl. 20.15.
Dagskrá:
- Venjulega aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Norræna
Félagið
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar Norræna félagsins verður
haldinn í Borgartúni 22, Reykjavík, mánudag-
inn 14. september 1987 kl. 18.00.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag
félagsins.
3. Kosning stjórnar, varastjórnar og endur-
skoðenda fyrir næsta starfsár.
4. Kosning fulltrúa og varamanna á sam-
bandsþing skv. lögum félagsins.
5. Önnur mál.
húsnæði öskast
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjav/k - ísland
2ja-3ja herb. íbúð
Sjálfbjörg vinnu- og dvalarheimilið óskar að
taka á leigu 2ja-3ja herb. íbúð fyrir tvo þýska
hjúkrunarfræðinga.
Upplýsingar hjá skrifstofustjóra í síma
29133.
r
Tilboð merkt: „M — 6470“ sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 15. september.
Ágætu húseigendur
Við erum ungt par utan af landi og erum á
ferð til Reykjavíkur þar sem við verðum við
nám í vetur. En líkt og með svo marga aðra
eigum við í engin hús að vernda í höfuðstaðn-
um. Okkur datt því í hug að ef til vill væri
til fólk í Reykjavík sem hefði eitthvert hús-
næði aflögu og treysti sér ekki út á hinn
járnkalda leigumarkað, en vantaði jafnvel
aðstoð við húsverkin, þvo glugga, ryksuga
stofuna, bóna bílinn o.s.frv., eða væri bara
í leit að félagsskap frá ungu og lífsglöðu
fólki. Við erum reglusöm, glaðlynd, áreiðan-
leg og tökum öllum tillögum fegins hendi.
Ef þetta gæti hentað ykkur þá endilega sláið
á þráðinn, síminn er 91-29743.
Kær kveðja, Nonni og Helga.
Norræna eldfjallastöðin
leitar að leiguhúsnæði fyrir hluta af starfsemi
sinni. Einbýlishús í nágrenni Háskólans væri
góður kostur.
Hafið samband í síma 27898 frá kl. 9.00-17.00.
t. -____
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
— 13 vikna haustnámskeið hefst mánudag-
inn 21. september.
— Kennt verður á öllum stigum ásamt bók-
menntaklúbbi, barnaflokki og unglinga-
flokki.
— Einkatímar eftir óskum.
— Undirbúningur fyrir próf í A.F. í París.
Innritun ferfram á bókasafni Alliance Franca-
ise Laufásvegi 12, alla virka daga frá kl.
14.00 til 19.00, og hefst fimmtudaginn 10.
september.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á
sama tíma.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15%
staðgreiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
Ath. Greiðslukortaþjónusta (Eurocard-Visa).
Akureyrarbær auglýsir
Samkeppni: Ráðhústorg
— Skátagil
Akureyrarbær efnir til samkeppni um skipu-
lag og mótun Ráðhústorgs og Skátagils,
skv. samkeppnisreglum arkitektafélags ís-
lands.
Þátttaka er heimil öllum íslenskum ríkis-
borgurum og erlendum mönnum með fasta
búsetu á íslandi.
Verðlaun verða alls kr. 900 þús., þar af verða
fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 500 þús.
Að auki er dómnefnd heimilt að verja kr. 200
þús til innkaupa á tillögum.
Skilafrestur er til 26. nóvember.
Keppnislýsing fæst afhent endurgjaldslaust
hjá trúnaðarmanni samkeppninnar, Valgerði
H. Bjarnadóttur, skrifstofa „Brjótum
rnúrana", Kaupangi v/Mýraveg, 600 Akur-
eyri, sími 96-26845.
Keppnislýsingin verður einnig fáanleg á skrif-
stofu A.I., Freyjugötu 41, Reykjavík og hjá
Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1,
Reykjavík.
Önnur keppnisgögn verða fáanleg hjá trún-
aðarmanni samkeppninnar gegn 1.500 kr.
skilatryggingu.
Dómnefnd.
Bakkastæði
Bifreiðastæði á gamla hafnarbakkanum,
„Bakkastæði" verður opnað og gjaldskylt frá
þriðjudeginum 15. sept. nk. Gjaldið er kr.
60,- fyrir hálfan dag og kr. 120,- fyrir heilan
dag. Hægt er að sækja um föst stæði fyrir
2ja mán. tímabil í einu. Slíkt fastagjald kost-
ar kr. 3.500,-.
Umsóknir um þau sendist til Stöðumæla-
sjóðs, Skúlatúni 2 fyrir 15. sept nk.
Gatnamálastjóri.