Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 Minning: Andreas Lapas flugvirki Fæddur 28. september 1948 Dáinn 29. ágúst 1987 Andreas Lapas fæddist 28. sept- ember 1948 í Nicosiu á eynni Kýpur. Foreldrar hans, sem eru bæði grískrar ættar, eru Christos trésmiður Lapas og kona hans, Maria Lapaz, sem rekur saumastofu í Nicosiu. Þau hjón eiga auk Andre- asar tvær dætur, Anthollu, skrif- stofustúlku á Kýpur, gift og á tvö böm, o g Helenu, kennara sem starf- ar á vegum gríska menntamála- ráðuneytisins í Aþenu, gift Nicosi, frettamanni hjá gríska sjónvarpinu. Þau eiga einn son. Er Andreas, eða Andrew einsog hann var kallaður hér, hafði lokið skólanámi á Kýpur árið 1966, hélt hann til London til náms í flugvirkjun i College of Aeronautical and Automobile Eng- ineering í Chelsea, London, og lauk þar námi með prýði árið 1972. Andrew var góður námsmaður og gekk námið vel. Hann fékk styrki frá breska ríkinu í tvö ár en að öðru leyti kostaði hann nám sitt sjálfur. Árið eftir að Andrew kom til London kynntist hann íslenskri stúlku sem þar vann, Jóhönnu Jó- hannsdóttur. Hún er dóttir hjón- anna Jóhanns Magnússonar, skipstjóra og síðar hafnsögumanns í Reykjavík, og konu hans Margrét- ar Sigurðardóttur. Andrew og Jóhanna crenem í hiónaband 21. Sporðagrunni 10. Síðar keyptu þau íbúð á Lynghaga 14 en fluttu seinna í eigin íbúð á Fálkagötu 6. Þar býr Jóhanna enn með þremur bömum sínum, Jóhanni Christos, 17 ára menntaskólanema, Maríu 10 ára og Alexander 6 ára. Fyrst eftir að Andrew kom til íslands var ekkert fast starf fáan- legt við flugvirkjun. En í stað þess að gefast upp tók hann að sér starf á Vélaverkstæðinu Kistufelli fyrsta veturinn. Síðar fékk hann starf sem flugvirki hjá flugfélaginu Vængj- um. Þar vann hann í tvö ár. Eftir það starfaði hann hjá Flug- leiðum þar til hann veiktist alvar- lega árið 1984. Þessi erfíðu veikindi hafa reynt mikið á aðstandendur Andrews og ástvini en Jóhanna hefur sýnt óbilandi kjark og þraut- seigju. Hér að framan hefur verið laus- lega drepið á lífsferil Andreasar Lapaz. Hann reyndi margt. Lenti hann á unglingsámm í þeirri upp- lausn og óreiðu sem fylgdi stríði Tyrkja og Grikkja á Kýpur. Fer síðan til náms í Bretlandi tæpra 18 ára og er þar í sex ár og flyst svo til íslands og eignast þar heimili. Vinnur níu ár hjá Flugleiðum, með- al annars í Alsír og Nígeríu. Á alltof stuttri ævi reyndi hann meira en margur annar sem gefínn er meiri tími. Til að gera langa sögu stutta er við hæfi að vitna í þjóðskáldið Jón- svefnugum segg, er sjötugur hjarði. Ég votta Jóhönnu og bömum hennar innilega samúð mína og fjöl- skyldu minnar. Brynjólfur Ingólfsson Laugardaginn 5. september var mágur okkar, Andreas Lapas, jarð- settur á grísku eyjunni Kýpur, aðeins 39 ára gamall. Andreas var fæddur í Nikósíu á Kýpur 28. nóvember 1948. Foreldr- ar hans em María og Christos Lapas, en þau em grískir Kýpurbú- ar. Christos er trésmiður og rak sitt eigið verkstæði þar til hann lét af störfum vegna aldurs. María er saumakona og hafði hún nokkrar stúlkur í vinnu þegar hún starfaði við sauma. Andreas á tvær systur, þær Anthoullu og Helenu. Antho- ulla er skrífstofustúlka og býr á Kýpur. Hún er gift Louise, sem er verslunarmaður og eiga þau tvo syni. Helena er kennari en starfar í gríska menntamálaráðuneytinu og býr í Aþenu. Hún er gift Nikos, sem er fréttamaður hjá gríska sjón- varpinu. Þau eiga einn son. Andreas var alinn upp hjá foreldmm sínum, en einnig um tíma hjá móðursystur sinni og manni hennar. Amma Andreasar bjó á heimili foreldra hans þegar hann var bam. Hún var honum mjög kær, en ömmur gegna mikilvægu hlutverki í lífí bama á Kýpur. Þegar Andreas hafði iokið al- mennri skólagöngu á Kýpur 18 ára gamall, hélt hann til Englands til að læra flugvirkjun. Hann dvaldi þar næstu sex árin og lauk námi í flugvirkjun frá The College of Aero- nautical and Automobile Engineer- ing, Chelsea, London, með góðum árangri, en Andreas var ágætur námsmaður. Andreas fór aðeins einu sinni til Kýpur meðan á náms- tímanum stóð. Hann fékk engin námslán né önnur lán. í tvö ár fékk hann styrk frá enska ríkinu, en að öðru leyti fjármagnaði hann sitt nám sjálfur með vinnu á kvöldin og um helgar. Ári eftir að Andreas kom til Englands hitti hann systur okkar, Jóhönnu Jóhannsdóttur, sem síðar varð eiginkona hans. Þau fluttu til íslands eftir að Andreas lauk námi árið 1972. Þeg- ar heim var komið var enga vinnu við flugvirkjun að fá, þess í stað fékk hann vinnu hjá vélaverkstæð- inu Kistufelli og vann hann þar í einn vetur. Vorið eftir réðst hann til starfa hjá flugfélaginu Vængjum og starfaði sem flugvirki þar í tvö ár. Þá fékk hann vinnu hjá Flugleið- um og var það starf mjög kærkom- ið. Þar starfaði hann í níu ár. Andreas kvæntist systur okkar, Jóhönnu, 21. desember 1968. Þau eignuðust þrjú böm, Jóhann Christ- os 17 ára menntaskólanema, Maríu 10 ára og Alexander 6 ára. Fyrstu fímm hjúskaparár sín leigðu þau hjá foreldrum okkar á Sporða- grunni 10. Þá keyptu þau sér íbúð á Lynghaga 14 og bjuggu þar í fímm góð ár með góðum grönnum, en síðan fluttu þau að Fálkagötu 6, þar sem Jóhanna og bömin búa nú. Sennilega eiga ísland og Kýpur aðeins það eitt sameiginlegt að vera eyjur. Hér var allt svo ólíkt því sem Andreas átti að venjast, fólkið, tungan, veðurfarið, maturinn og ekki síst hefðir og venjur. Okkur hættir svo oft til að dæma allt og alla út frá okkar eigin lífsreynslu, en gleymum því svo oft að annars staðar em í gildi aðrar hefðir og reglur sem em okkur framandi. Andreas hafði sterkar tilfínningar til föðurlandsins og fólksins síns. Hann fór oft heim til sín og tók fjölskylduna með sér. Þar var hann í sínu rétta umhverfí. Andreas var samviskusamur og duglegur maður. Hann vann alltaf mjög mikið og hlífði sér ekki þrátt fyrir veikindi sem hann átti við að stríða frá unga aldri. Helsta áhugamál hans var stang- veiði, en hann hafði mikla ánægju af veiðitúmm. Andreas var myndarlegur maður, suðrænn í útliti, sannur Grikki jafnt utan sem innan. Fyrir þremur ámm veiktist Andreas alvarlega og þurfti að líða nær óbærilegar kvalir, jafnt andleg- ar sem líkamlegar. í öllum veikind- um hans stóð Jóhanna við hlið hans og sýndi ótrúlegan styrk og dugn- að. Tryggð hennar og væntumþykja sem hún sýndi Andreas í hans miklu erfiðleikum var einstök. Jóhann Christos, eldri sonur þeirra, hefur reynst foreldmm sínum ótrúlega vel í þeirra miklu erfíðleikum. Hann hefur sýnt mikinn þroska þrátt fyr- ir ungan aldur, en mikið hefur verið lagt á herðar hans. í þessi þijú erfíðu ár hafa starfs- félagar Andreasar hjá Flugleiðum gert alit, sem í þeirra valdi stóð, til að létta þessa þungu byrði, sem á fjölskylduna var lögð. Sá stuðn- ingur og tiyggð sem þeir hafa sýnt þeim er einstakur. Mikið hefur verið lagt á foreldra okkar að ganga í gegnum þessar þrengingar með systur okkar og mági. En þau hafa staðið við hlið þeirra eins og alltaf og hvergi bug- ast. Faðir okkar heimsótti Andreas í hverri viku og stundum oftar þessi þijú ár sem hann var á sjúkrastofn- unum. En hver heimsókn var honum erfíð, því það tekur á fólk að þurfa að horfa á ástvini sína þjást. Nú em þrautir elsku vinar okkar á enda og hann hefur öðlast friðinn eina sem gefur honum hvfld frá þjáningum hans og sorgum. Elsku Jóhanna mín, Jói, María og Alexander, megi góður Guð gefa ykkur styrk og þrek til að sigrast á sorginni og til að fínna ánægju og gleði aftur. Blessuð sé minning góðs drengs og hvfli hann í friði. Kristín og Áslaug Laugardaginn 5. september var lagður til hinstu hvfldar í grískri mold á eyjunni Kýpur Andreas Lap- as, aðeins 39 ára gamall, eftir nánast óbærileg veikindi sl. 3 ár. Andreas fæddist á eyjunni Kýpur 28. nóv. 1948. 18 ára gamall hélt hann til náms í London og nam flug- virkjun. Dvaldi hann þar í 6 ár, og lauk námi með mjög góðum vitnis- burði. Andreas var góður námsmað- ur, hafði mikla ánægju af alls kyns þrautum og flóknum reiknings- dæmum. í London kynntist hann Jóhönnu Jóhannsdóttur sem síðar varð eiginkona hans og fluttust þau til íslands að námi hans loknu. Andreas fékk vinnu hjá Flugleiðum og starfaði þar í 9 ár og undi hag sínum þar vel. Hjá Flugleiðum átti hann afbragðsvinnufélaga sem kom þó gleggst í ljós í veikindum hans, en þeir sýndu honum og fjölskyldu hans einstaka umhyggju í öllum þessum erfíðleikum. Andreas var nú ekki alltaf sáttur við að dvelja svo langt frá sínu heimalandi enda löndin ólík að sið- um, tungu og menningu. Andreas var skýr í hugsun, og hafði góða kímnigáfu, og hélt sínum skoðunum til streitu. íslendingar átta sig ekki alltaf á hugsunarhætti svo ólíkra þjóða sem Islendingar og Grikkir eru, þess vegna komu oft upp ólík sjónarmið, enda engin ástæða til að vera í einhveijum jákór. Andreas var heimakær og naut sín vel við eldamennsku á grískum réttum eins og Grikkjum er einum lagið. Hann þekkti ógrynni krydd- jurta sem hann notaði óspart í rétti sína, sem brögðuðust afbragðs vel. Andreas og Jóhanna eignuðust 3 böm, Jóhann Kristos 17 ára sem stundar menntaskólanám, Maríu 10 ára og Alexander 6 ára. Eins og fyrr var sagt átti Andre- as í miklum veikindum síðustu 3 ár ævi sinnar og stóð Jóhanna eigin- kona hans og fjölskylda hennar við hlið hans og studdu og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að gera honum lífíð léttbærara. Andreas á aldraða foreldra á lífí á Kýpur og tvær systur. Er hann nú kominn heim eftir langa útivist. Blessuð sé minning hans. Elsku Jóhanna mín og böm, ég votta ykkur innilega samúð mína í þessum erfíðleikum. M.S. Kveðja frá Flugvirkjafélaginu Til moldar er nú borinn á fæðing- arstað sínum Andreas Christou Lapas flugvirki. Hann fæddist í Nikósíu á Kýpur 22. nóvember 1948. Sonur hjónanna Christos Lapas, starfsmanns landbúnaðar- ráðuneytisins þar, og Mariu konu hans. Ekki kann ég sögu hans þar frekar þar til hann hverfur til náms í London og innritast að loknu und- irbúningsnámi í The College of Aeronautical and Automobile Eng- ineering 11. nóvember 1969. Ekki tók Andreas með sér gilda sjóði að heiman því að allan tímann sem hann var við nám í London, vann hann með skólanum. í London kynntist Andreas eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Jóhannsdóttur, og gengu þau í hjónaband 21. desem- ber 1968. Að ioknu flugvirkjanámi Andreasar fluttu þau hjón til ís- lands. Þá var erfítt að fá vinnu við flugvirkjun svo að Andreas hóf störf hjá vélaverkstæðinu Kistufell þar til 1. maí 1973 að hann fékk starf við flugvirkjun hjá flugfélaginu Vængir. Vinnuaðstaða flugvirkja var lengi slæm og mjög kaldsamt á vetrum að gegna nákvæmnis- vinnu í óupphituðum flugskýlum eða jafnvel úti í hvaða veðri sem var. Frá þessum tíma minntist Andreas þó sérstaklega Erlings Jó- hannessonar, sem velgjörðarmanns síns, en hann var þá yfirflugvirki Vængja. í ársbyijun 1977 fékk Andreas flugvirkjastarf hjá Flug- leiðum. Það varð mikil breyting á vinnuaðstöðu hans þar sem þá var verið að taka í notkun nýja verk- stæðisbyggingu eftir að gamla verkstæðið ásamt flugskýli höfðu brunnið á Reykjavíkurflugvelli. Andreas fékk sveinsréttindi í flug- virkjun í júlí 1977 og starfaði alla tíð síðan í iðngrein sinni hjá Flug- leiðum. Starf hans hjá Flugleiðum einkenndist af iðni og samvisku- semi. Aldrei varð þess vart að hann hlífði sér við vinnu þótt hann ætti alltaf við erfíðan sjúkdóm að stríða. Líklega hefur enginn af samstarfs- mönnum hans vitað af sjúkdómi hans fyrr en eftir að hann gekkst undir uppskurð í nóvember 1984. Hann átti ekki afturkvæmt til starfa eftir það. Við félagar í Flugvirkjafélaginu þökkum samferðina með góðúm dreng og vottum Jóhönnu, bömum þeirra og fjölskyldu innilega samúð á þessum erfíðu tímum. O.Á.P. t Móðir okkar, SONJA GÍSLADÓTTIR hjúkrunarkona, andaöist i Landakotsspítalanum i Reykjavik 7. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eva Geirsdóttir, Jón Geirsson, Sturla Geirsson, Þóra Geirsdóttir. desember 1968. Sambúð þeirra var farsæl og góð og eignuðust þau þijú böm. Er Andrew lauk námi fluttu þau heim og settust að í Reykjavík. Fyrstu fímm árin bjuggu þau í leiguíbúð hjá foreldrum Jóhönnu að as Hallgrímsson: Hvað er langlífi? Lífsnautnin fijóva, alefling andans og athöfii þörf. Margoft tvítugur meir hefur lifað LYKILLINN AÐ ANÆGJLf- LEGUM FRÍSTUNDUM Mekkanó er þroskandi leikfang, sem reynir á huga og hönd. Þaö ýtir undir hugmyndaflug og sköpunargáfu og er þvi kjörið fyrir börn á öllum aldri. Mekkanó ertil i mörgum stærðum og gerðum. Verð frá kr. 630.-. Póstsendum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.