Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 55

Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 Minning Ingvar Arnarson Fæddur 15. maí 1970 Dáinn 6. september 1987 Hann Ingvar er dáinn, lét lífíð í hörmulegu bílslysi á sunnudags- morguninn, staðreynd sem erfítt er að sætta sig við. Á sorgarstundu, þegar ungur maður, sem virðist eiga framtíðina bjarta fyrir sér, er hrifínn burt frá ástvinum, eru margar spumingar sem leita á hug- ann, en fátt um svör. Ifyrir u.þ.b. tíu árum flutti Ingvar með fjölskyldu sinni í Laugames- hverfíð og varð Hanna Kristín, systir hans, fljótt vinkona mín. Ég fór því að venja komur mínar á heimili þeirra og veitti strax eftir- tekt litla bróður hennar Hönnu, honum Ingvari, sem þá var aðeins sjö ára gamall. Á þeim ámm var maður nú ekkert að veita svona smásnáðum mikla eftirtekt, en það gegndi öðm máli með hann Ingvar. Fljótlega sé ég að þar var á ferð- inni óvenjulega sjálfstæður og vel gerður strákur, sem ég leit á alla tíð sem jafnaldra minn. Hann hafði svo einlæga og eðlilega framkomu og bjó yfír svo miklum persónutöfr- um, að maður komst ekki hjá því að veita honum athygli. í gegnum árin hef ég átt með honum margar skemmtilegar stundir, þegar við ræddum saman um allt milli himins og jarðar, og alltaf var stutt í brosið hjá honum. Það var hægt að tala um alla hluti við Ingvar, hann var einn af þeim sem ávallt var hægt að leita til og alltaf var reiðubúinn að rétta hjálp- arhönd. Ingvar sagði mér kvöldið áður en hann lést að nú væri hann ný- byrjaður að læra hárgreiðslu og líkaði stórvel, og einnig væri hann búinn að kaupa sér bíl, svo nú gæti hann aldeilis „rússað" um bæinn. Hann var ekki sá sami litli strákur sem ég hafði fyrst kynnst fyrir tíu árum, heldur var hann orð- inn stór og myndarlegur ungur maður, en með sama góða hjarta- lagið og áður, sæll og ánægður með lífíð og tilveruna. Nokkrum klukku- stundum síðar var hann allur. Á þessari sorgarstundu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur til Rúnu, Ása, Hönnu Kristínar, Dagmar og annarra ástvina hans. Ingvar Amarson var sérstakur drengur sem ég mun ævinlega vera þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast. Við sem eftir lifum'munum ávallt eiga eftir minninguna um góðan dreng. Anna Sigríður Orlygsdóttir í dag kveðjum við einn besta vin okkar, Ingvar Amarson. Ingvar flutti hingað í hverfið 1978 og lágu leiðir okkar saman í Laugamesskólanum ári síðar. Við voram síðan öll saman í bekk út grannskólann. Á þessum áram mynduðum við vissan kjarna sem átti eftir að hald- ast óbreyttur, því þegar leiðir okkar skildu eftir 9. bekkinn og við fóram í sitthvom skólann, héldum við enn hópinn. Það vora margar góðar stundir sem við áttum saman sem aldrei munu gleymast og skrítið er til þess að hugsa að þessar góðu stundir munu aldrei endurtaka sig, heldur aðeins lifa í endurminning- unni. Síðasta kvöldið okkar með Ingv- ari er ógleymanlegt, hann var svo hress og kátur eins og vanalega og talaði um hvað tilveran bæri björt núna. Það er alveg ótrúlegt hvað hlutimir era fljótir að gerast. Ein- mitt þegar allt gengur svo vel er klippt á. Við munum sakna Ingvars sárt, það verður erfítt að sætta sig við tilverana í framtíðinni án hans. Minning hans lifir að eilífu. Við vottum hans nánustu samúð okkar. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Gunna og Hrefna Það er með hryggum huga að við tökum okkur penna í hönd til þess að kveðja góðan vin okkar, Ingvar Amarson. Ingvar var næstelstur þriggja systkina, og þótt við hefðum stutt kynni af honum áttum við mjög skemmtilegar stundir saman og alltaf var hann jafn kátur og hress. Ingvar var aðeins sautján ára er hann lést af slysföram. Hugur Ingv- ars stefndi til frekara náms og var hann ætíð bjartsýnn á framtíðina. Fyrir valinu varð hárskeraiðn, þó að margt annað hafi komið til greina. Hann var sérlega gjafmildur og hugsaði mikið um að þeim sem vora í kringum hann liði vel. Svona reiðarslag eins og dauði ungs manns, sem manni fínnst að eigi alla framtíð fyrir sér, er eitt af því óskiljanlega. Við huggum okkur við það, að Guð sætti okkur með tímanum við að sjá hann aldr- ei framar í þessu lífí. Að leiðarlokum viljum við þakka Ingvari fyrir góða vináttu og tryggð sem aldrei brást. Við biðjum góðan Guð að styrkja Rúnu, Hönnu Kristínu, Dagmar, Ásmund og aðra aðstandendur. Blessuð sé minning hans. Laugi, Jóhanna og Þóra. Sunnudaginn 6. september síðastliðinn barst okkur sú hræði- lega frétt að okkar kæri vinur og félagi, Ingvar Arnarson, hefði látist af slysföram. Viljum við minnast hans hér með fáeinum orðum. Osjálfrátt koma upp í hugann allar þær ánægjustundir sem við áttum saman með Ingvari. Hann var ávallt léttur í lund og ósjálfrátt hreifst maður af glaðværð hans. Sorgiegt er til þess að hugsa, að 55 hann hafí svo ungur verið hrifínn á brott úr þessum heimi en við huggum okkur við það að einhvem tímann, einhvers staðar, munum við hitta hann aftur. Minning hans mun ávallt lifa í hugum okkar. Við vottum foreldr- um hans, þeim Ása og Rúnu, systram hans, Hönnu Kristínu og Dagmar litlu, okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja þau í þeirra miklu sorg. Nonni, Siggi, Sverrir, Gaui, Marta og Ámi. Sunnudaginn 6. september bár- ust okkur þau sorglegu tíðindi að vinur okkar og félagi, Ingvar Am- arson, hefði látist af slysföram þá um morguninn. Við sem voram vinir hans allar götur síðan í bamaskóla viljum nú' á þessari stundu kveðja hann og þakka þær mörgu og góðu stundir er við áttum saman. Ingvar var sá er við leituðum til og treystum jafnt í sorg sem gleði. Ósjaldan var það Ingvar sem átti upphafíð að okkar mestu gleðistundum. Þegar dauðinn knýr svo snögg- lega að dyram kemur rót á hugann, minningar og löngu liðnir atburðir rifjast upp og fylla að hluta það mikla skarð sem okkar ástkæri vin- ur skilur eftir sig í vinahópi sínum. Minningin um þennan góða dreng mun lifa í hjörtum okkar um ókom- in ár. Foreldram hans, þeim Ása og Rúnu, og systram hans, Hönnu Kristínu og Dagmar litlu, vottum við okkar dýpstu samúð í sorg þeirra. Skorri, Andri, Ingi, Ásgeir og Rikki Kaldal. Gísli Þorsteinsson frá Laufási - Minning Fæddur 23. júní 1906 Dáinn 10. júlí 1987 Laugardaginn 18. júlí var móður- bróðir minn, Gísli Þorsteinsson, jarðsettur frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum. Eftir langa sjúkra- legu var dauðinn honum kærkomin líkn. Gísli var fæddur 23. júní 1906 og var þriðji í röðinni af tólf bömum hjónanna í Laufási. Ekki átti Gísli kost á að ganga menntaveginn, en var vel sjálf- menntaður og vel talandi á nokkur erlend tungumál. Hann var mjög listhneigður, málaði og teiknaði mikið, en var lítið fyrir að flíka því. Gísli bjó alla sína ævi hér í Eyjum, að frátöldum nokkram áram sem hann var í Reykjavík. Gísli var einn af stofnendum og aðaleigendum Fiskiðjunnar hf. og bar hann hag fyrirtækisins mjög fyrir bijósti til hinstu stundar. Gísli kvæntist Ráðhildi Árnadótt- ur en þau slitu samvistir. Þeim varð ekki bama auðið en áttu kjörson, Gísla Má, sem er verkfræðingur að mennt, hann er kvæntur Sigrúnu Valbergsdóttur og eiga þau tvö böm, Kára og Völu. Gísli var sérstaklega bamgóður maður og nutu litlu frændsystkinin hér í Eyjum þess, því ég held að nú seinni árin hafi samvistimar við litlu frændsystkinin verið hans bestu stundir. Hann gat setið tímum saman og teiknað fyrir þau eða sagt þeim sögur svo unun var að. Nú hefur frændi minn verið lagð- ur til hvíldar við hlið foreldra sinna sem hann ætíð mat svo mikils. Megi hann hvíla í friði. Elínborg Jónsdóttir Mig langar í nokkram fátækleg- um orðum að minnast Gísla Þor- steinssonar frá Laufási í Vestmannaeyjum, sem andaðist í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. júlí síðastliðinn. Hafði Gísli um nokkurt skeið háð vonlausa baráttu við sjúk- dóm sinn, svo fráfall hans kom ekki á óvart, en þó er það svo að þegar gamall og góður vinur hverf- ur á braut, er sæti háns orðið autt Minning: Halldóra J. Kjerúlf Fædd 8. desember 1901 Dáin 31. ágúst 1987 Samferðakona mín, Halldóra, lést í Sjúkrahúsi Akraness að kvöldi hins 31. ágúst sl. eftir stutta legu þar. Fundum okkar bar fyrst saman er ég og ijölskylda mín fluttumst að Reykholti, Borgarfírði árið 1967. Þessi virðulega og fallega kona starfaði við Héraðsskólann í Reyk- holti. Starf hennar var tvíþætt; annars vegar smurði hún hinn svo- kallaða kvöldskammt sem nemend- ur fengu með sér á herbergin, og hins vegar stjómaði hún ræstingu á heimavist og í skólanum. Þessi störf vann hún af slíkri natni og umhyggju að hver sá sem fylgdist með hlaut að dást að henni. Hún gaf sér ætíð góðan tíma til að spjalla við nemendur og veit ég að margir þeirra litu á hana sem góða og umhyggjusama ömmu. Veturinn 1971 hætti hún starfí sínu við skólann sökum heilsubrests. En þrátt fyrir að hún hætti að starfa við skólann hitti ég hana og elsku- legan eiginmann hennar oft á heimili þeirra. Ætíð var mér og mínum vel fagnað þar og ekki síst bömunum mínum. Þrátt fyrir van- heilsu var hún ætíð létt í lund og viðræðugóð. Hún hafði yndi af að láta hugann reika til liðinna tíma og rifja upp samskipti sín við sam- ferðafólkið, einkum í Eyjafírði, en þar eyddi hún æskuáranum. Einnig hafði hún gaman af að fylgjast með afkomendum sínum, en þeir era orðnir margir. Hún fylgdist vel með dægurmálum líðandi stundar. Að leiðarlokum vil ég og fjöl-, skylda mín þakka henni samfylgd- ina og votta þér, Andrés minn, og fjölskyldu þinni innilega samúð okk- ar. Blessuð sé minning Halldóra. Sigríður Bjarnadóttir og við finnum betur en ella hvaða sess hann skipaði í raun og vera í daglegu lífi okkar. Gísli fæddist 23. júní 1906 í Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Þorsteins Jónssonar útvegsbónda og Elínborgar Gísladóttur, er um langan aldur bjuggu að Laufási í Vestmannaeyjum. Olst hann upp í stóram systkinahópi á heimili mik- illa umsvifa, sem hús útvegsbónd- ans var á þeim áram. Gísli kvæntist árið 1940 Ráðhildi Ámadóttur og tóku þau kjörson, Gísla Má, síðar rafmagnsverkfræð- ing er nú býr í Reykjavík. Þau slitu samvistum. Gísla mun lengst verða minnst fyrir þátt hans í atvinnuuppbygg- ingu Vestmannaeyja, byltingunni sem varð í vinnslu sjávarafurða frá einhæfri söltun yfír í margslungna hraðfrystingu. Gömlu kræmar urðu að víkja fyrir stórvirkum fiskiðju- veram. Vestmannaeyjar breyttust úr verstöð í iðnaðarbæ, er nú veitti fleiri höndum atvinnu með meira öryggi en áður var. Gísli starfaði lengi sem verkstjóri í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, hjá Einari Sigurðssyni, einum af brautryðjendum hraðfrystiiðnaðar á íslandi, og þegar Einar flutti til Reykjavíkur, tók Gísli við rekstri hennar ásamt félögum sínum, þeim Ágústi Matthíassyni og Þorsteini Sigurðssyni. Síðar byggðu þeir fé- lagar eigið fyrirtæki, Fiskiðjuna, á sanduppfyllingu þar sem gömlu kræmar stóðu áður. Á þessum áram var Fiskiðjan með myndarleg- ustu frystihúsum landsins og lengst af í hópi þeirra afkastamestu. Kynni mín af Gísla byijuðu fyrir alvöra árið 1953, þá er hann dubb- aði mig, skólastrákinn, upp í aðstoðarverkstjóra með þeim Jó- hanni Guðmundssyni og Björgvin Pálssyni yfírverkstjóra. Þetta vora erfíð en einstaklega skemmtileg ár. Það nánast flaut fiskur út úr öllum gáttum og þrátt fyrir langan vinnu- dag var alltaf tími til að slá á létta strengi og var Gísli þar fremstur í flokki. Gísli hafði skemmtilega kímnig- áfu, var mjög fróður og víðlesinn. Fylgdist hann ávallt vel með öllum nýjungum í fískvinnslu og var ávallt tilbúinn að reyna eitthvað nýtt. Hugmyndaauðgi hans var ein- stök og átti hann einkar gott með að koma hugmyndum sínum í fram- færi, enda slyngur teiknari. Gísli málaði töluvert í fristundum sínum , og bggja margar góðar myndir eft- ir hann. Var hann mjög gagnrýninn á myndir sínar, þær vora ekki falar og erfítt reyndist að fá hann til að sýna þær opinberlega. Hann var að þessu aðeins fyrir sig eins og hann sagði gjaman. Það var mjög gott að eiga Gísla fyrir vin. Hann var alltaf þarna. Það var alltaf hægt að ganga að honum vísum. Það var einstaklega notalegt að setjast niður og spjalla við hann. Iðulega kom hann á óvart með vangaveltum sínum og fékk mann til að hugsa. Ekkert var hon- um óviðkomandi. Vil ég þakka þessar stundir, vin- áttu hans og tryggð. Magnús Bjarnason Birting afmælis- og minningargreina Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.