Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 64

Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 64
t>4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN Á heimavelli! Morgunblaðið/Einar Falur Skagamenn leika á heimavelli á þriðjudaginn gegn Kalmar FF í Evrópukeppni bikarhafa. Hér eru þeir Sigurður Lárusson og Birkir Kristjánsson í baráttu við Valsmanninn Sigutjón Kristjánsson. Skagamenn leika heima gegn Kalmar FF. AKURNESINGAR œtla að nota heimavöllínn fyrir væntanlegan Evrópubikarleik gegn Kalmar FF þriðjudaginn 15 september n.k. en eins og kunnugt er hafa flestir Evrópuleikir liðsins farið fram á Laugardalsvellinum á undanförnum árum. m Astæða þessarar breytingar er sú að í síðustu leikjum liðsins hefur lítil aðsókn verið að í Reykjavík og eins er það svo að Skagamönnum FráJóni fínnst tími til komin Gunnlaugssyni að ieika á heimavelli áAkranesi sínum að nýju en það hafa þeir einu sinni áður gert gegn norska liðinu Brann fyrir réttum áratug. Þessi leikur verður tímamótaleikur fyrir Akumesinga því hann verður sá níuhundraðasti frá því íþrótta- bandalag Akranes var stofnað 1946. Leikurinn verður 27. Evrópu- leikur Akraness og hefur ekkert íslenskt lið leikið fleiri leiki á þeim vettvangi. Undirbúningur fyrir leikinn á Akra- nesi 15 september n.k. er nú að fullu hafínn og verða gerðar lítils- háttar lagfæringar á vallaraðstöðu og eins standa nú yfír framkvæmd- ir við gerð félagsaðstöðu við íþrótta- völlinn sem er eign Knattspymufé- lags ÍA og Sundfélags Akraness. Þetta er 80 fermetra húsnæði á annarri hæð í hinni nýju íþróttamið- stöð sem er nú að rísa við íþrótta- völlinn og hafa fjölmargir félagar unnið við framkvæmdir á undanf- ömum dögum og er stefnt að því að ljúka þeim og taka aðstöðuna í notkun þegar leikurinn við Kalmar FF fer fram. Þegar þessari framkvæmd er lokið má segja að stórkostlegar breyting- ar hafí orðið á allri aðstöðu knatt- spymufólks á Akranesi. Eins og kunnugt er af fréttum var í sumar lokið við umfangsmiklar fram- kvæmdir við gerð knattspyrnuvalla og lætur nærri að til sé um 25000 fermetrar af grasvöllum á íþrótta- svæðinu. Mikið hefur verið unnin í sjálfboðaliðsvinnu. Knattspymu- menn á Akranesi vonast til að heimamenn íjölmenni á leikinn og styðji við bakið á strákunum í erfíð- um leik. ■ KARL-HEINZ Rummenigge ákvað í gær að ganga að tilboði Servette í Sviss. Hann gerir ráð fyrir að byija að leika með liðinu um miðjan næsta mánuð. Rummen- igge meiddist fyrir sex mánuðum og þegar Inter keypti Belgann Enzo Scifo var ekki lengur þörf fyrir fyrr- um fyrirliða þýska landsliðsins. Rummenigger er 32 ára, lék 95 landsleiki og Inter greiddi Bayem um 160 milljónir íslenskra króna fyrir þremur ámm fyrir kappann. Rummenigge var knattspymumað- ur Evrópu 1980 og 1981, en hann er þriðji leikmaðurinn, sem fer frá Italíu til Sviss á þessu tímabili. Giancarlo Antognoni fór til Lausanne og Marco Tardelli til St. Gallen. ■ GUÐMUNDUR Baldursson, sem hefur leikið með Breiðablik í 2. deildinni í sumar, fer til Möltu eftir helgi, en þar hefur hann leikið undanfarin tvö keppnistímabil með 1. deildarliðinu Senglea. Guðmund- ur mun samt ekki leika með sínu gamla félagi, heldur fer hann til Hibernians, sem er í úrvalsdeild- inni. Hibemians er eitt besta liðið á Möltu og sló Fram út úr Evrópu- keppni bikarhafa 1971. ■ FRANK Upton hefur fram- lengt samning sinn við 1. deildarlið ÍBK. Upton tók við sökkvandi skipi, en kom því á flot aftur og Keflvík- ingar sluppu við fall. Keflvíkingar eru fyrstir til að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil, en gera má ráð fyr- ir nokkrum breytingum hjá sumum félögum. ■ SIGURÐUR Magnússon, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Astbjörg Gunnarsdóttir sóttu fyrir skömmu ráðstefnu í Osló þar sem fjallað var um almenningsíþróttir undir kjör- orðunum „gerum óvirka virka". 130 fulltrúar víðs vegar að voru á ráð- stefnunni og vakti viðamikið starf ÍSÍ mikla athygli. ■ STÖÐ 2 hefur í sumar sýnt frá stórmótum í golfí víða um heim við miklar vinsældir þeirra fjölmörgu sem sem áhuga hafa á golfíþrótt- inni. Framkvæmdastjóri GR, Björgólfur Lúðvíksson, hefur ver- ið kynnir í þessum vinsælu þáttum og staðið sig mjög vel. Hann segir skemmtilegar sögur um hina fræknu kylfínga sem birtast á skjánum auk þess sem hann lýsir keppninni. Nú hefur heyrst að for- ráðamenn Stöðvar 2 ætli að taxa þessa skemmtilegu þætti af dag- skrá í vetur. Vonandi sjá mennimir að sér þannig að við getum áfram fylgst með bestu kylfíngum heims í golfleik á skjánum hjá þeim Heimi Karlssyni og Björgólfi. Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri ÍSÍ, var fundarstjóri einn morguninn á ráðstefnu um almenningsíþróttir, sem haldin var í Osló. Hann situr hér á milli norsku hlaupadrottningarinnar Greta Waits og George Allan, framkvæmda- stjóra íþróttaráðs Bandaríkjaforseta. NÚTÍMAFIMLEIKAR Morgunblaöið/Bjarni Barabro Carli og Josefa Anderson ræðast hér við á námskeiðinu. Námskeið hér á landi FIMELIKASAMBAND íslands stendur nú fyrir námskeiði í nútímafimleikum sem ætlað er þjálfurum, dómurum og iðk- endum. Kennarar á námskeið- inu eru frá Sviþjóð. Námskeiðið er haldið að tilstuðl- an íþróttasambands íslands, sem í ár varð 75 ára og fékk að gjöf frá íþróttasambandi Svíþjóðar boð um að senda hingað til lands þjálfara ásamt fímleikastúlku til að halda námskeið. _ Þessi gjöf er FSÍ kærkomin og er það von stjómar að námskeið þetta geti orðið til þess að vekja áhuga fimleikafólks, þjálfara og stjóm- enda félaga á þessari fallegu grein fímleikanna. Mikill áhugi hefur verið fyrir nám- skeiði þessu og eru þátttakendur á aldrinum 7 ára og eldri. Námskeið- ið hófst 1. september og lýkur nú um næstu helgi. Að sögn Bimu Bjömsdóttur hjá FSÍ hefur námskeiðið verið mjög vel Morgunblaöið/Bjami Frá námskeiði FSÍ í nútímafimleikum. Josefa Anderson leiðbeinir hér ungum stúlkum á námskeiðinu sem nú stendur yfír. lukkað. „Við erum með þessu að kynna nútímafímleika hér á landi og vonandi verður framhald á, þetta er bara byijunin," sagði Bima. Kennar á námskeiðinu er Barbro Carli sem er mjög góður leiðbein- andi og er starfandi íþróttakennari í íþróttaháskóla í Svíþjóð. Henni til aðstoðar er fimleikastúlkan Josefa Anderson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.