Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
65
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Pétur Arnþórsson
lék síðustu ellefu mínútumar í stað
Ragnars Margeirssonar. Hafði engin
áhrif á leikinn en sýndi þó að þar er
mikill baráttumaður á ferð.
— , ' , ' i ■ i ' ' ■
Signrður Jónsson
lék að nýju sem miðjutengiliður, en hef-
ur oftast náð sér betur á strik. Gaf þó
ekkert eftir og átti góða spretti,v en fékk
gult spjald fyrir óþarfa. Spymti boltan-
um hátt í loft upp er dómarinn dæmdi
á hann.
Ólafur Þórðarson
barðist af miklum krafti að vanda, oft
heldur mikið af kappi en forsjá. Hann
„seldi“ sig nokkuð oft í vamarhlutverk-
inu til að byrjameð, virkaði taugaóstyrk-
ur, en átti góða spretti sóknarlega séð.
Viðar Þorkelsson
stóð sig vel í vamarhlutverki sem útliggj-
andi tengiliður vinstra megin, en í
sóknaraðgerðunum var hann heldur rag-
ur. Slapp þó vel frá leiknum þegar á
heildina er litið.
Bjarni Sigurðsson
virtist eiga að hafa möguleika á að halda
skotinu sem hann varði er Norðmenn
skoruðu. Fyrir utan fáein atvik sem hann
virkaði utan við sig var Bjami öruggur,
hirti fyrirgjafir Norðmanna af miklu ör-
yggi 0g varði einu sinni mjög vel af
stuttu færi.
Gunnar Gíslason
var fastur fyrir sem aftasti maður í vöm-
inni, ákveðinn og fylginn sér. Lék mjög
vel í heildina, vann flest ef ekki öll
návígi og var öryggið uppmálað.
Sævar Jónsson
lék mjög vel í vöminni. Var öruggur í
öllum sínum aðgerðum og gaf aldrei
þumlung eftir, hvorki í skallaeinvígjum
eða í baráttu á jörðu niðri. Gífurlega
sterkur leikmaður. Sennilega einn hans
besti landsleikur fyrr og síðar.
Atli Eðvaldsson
var mjög sterkur eins og Sævar. Unun
var að sjá hvemig hann vann hvert
skallaeinvígið af öðru og einnig var hann
mjög sterkur á „gólfinu" — baráttan og
krafturinn var slík að það var engu líkara
en Jóhannes bróðir hans væri þar á ferð-
*fÍSi >a inni. Ekki leiðum að líkjast!
Ragnar Margeirsson
hélt boltanum vel, vann vel fyrir liðið
og átti sendinguna á Pétur Pétursson
er hann skoraði fyrra markið. Ragnar
var ekki verulega áberandi en gerði þó
góða hluti. Hann fór út af á 79. mín.
fyrir Pétur Amþórsson.
Pétur Ormslev
var lengi að fínna sig í leiknum en eftir
að hann fór í gang lék hann mjög vel.
Pétur sýndi fádæma yfirvegum og ör-
yggi er hann skoraði sigurmarkið — gaf
sér góðan tíma og árangurinn varð eftir
því. Eftirminnilegt sem tryggði eftir-
Pétur Pétursson
bregst aldrei í landsleik. Baráttuvilji
Péturs var mikill að vanda, hann var á
ferðinni allan tímann, fylgdi vel aftur
og var fljótur fram aftur. Pétur skoraði
glæsilegt mark og sendi síðan fallega á
naftia sinn Ormslev er hann gerði sigur-
markið.
minnilegan sigur.
Guðmundur Torfason
átti stórleik í síðustu viku gegn Austur-
Þjóðvetjum þannig að kröfumar voru
miklar nú. Guðmundur var ekki eins
áberandi og þá, en vann þó vel. Kom
vel til baka eins og Pétur en fékk ekki
úr miklu að moða frammi.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Sovétmenn örugg-
ir í úrslitakeppnina
Símamynd/Reuter
Liam Brady, leikmaður írska landsliðsins, leikur hér á Theo Malget, leik-
mann Lúxemborgar-liðsins, á Lansdowne-leikvanginum í Dublin í gærkvöldi.
SOVÉTMENN tryggðu sér sœti
í úrslitakeppni Evrópumótsins
í knattspyrnu er þeir gerðu
jafntefli, 1:1, gegn Frökkum í
Moskvu í gærkvöldi. Sovót-
menn hafa því hlotið 10 stig í
riðlinum og er ekkert lið sem
getur náð þeim að stigum. .
Alexei Mikailiehenko skoraði
jöfnunarmark Sovétmann
þegar stundarfjórðungur var til
leiksloka. Jose Toure skoraði fyrir
Frakka strax á 13. mínútu með
hörkuskalla eftir sendingu frá
Manuel Amoros.
Evrópumeistaramir frá því 1984,
Frakkar, verða því að sitja heima
er úrslitakeppnin fer fram í Vestur-
Þýskalandi í júní á næsta ári. Þeir
hafa aðeins hlotið 5 stig úr sex leikj-
um. Sovétmenn hafa 10 stig og
Austur-Þjóðverjar eru í öðru sæti
með 6 stig eftir 5 leiki.
Frakkar voru sterkari í fyrri hálf-
leik en Sovétmenn í þeim seinni
þrátt fyrir að Igor Belanov, knatt-
spymumaður Evrópu, yrði að fara
af leikvelli í upphafí seinni hálfleiks
vegna meiðsla.
írarefstir
írar tryggðu sér efsta sæti í 7. riðli
Evrópukeppninnar með 2:1 sigri á
Luxemborgurum í Dublin í gær-
kvöldi. Luxemborgarar náðu óvænt
forystu í leiknum með marki Armin
Kring á 29. mínútu. Frank Staple-
ton jafnaði fyrir íra þremur mínút-
um síðar og Paul McGrath skoraði
svo sigurmarkið á 76. mínútu.
írar voru mun betri og áttu mörg
hættuleg marktækifæri. „Þetta var
leikur hinna glötuðu marktæki-
færa,“ sagði Jack Charlton, þjálfari
íra, eftir leikinn.
Staðan í riðlinum eftir leikinn í gær
er þessi:
friand.............7 3 8 1 8:5 9
Búlgarfa...........5 3 2 0 10:3 8
Belgia.............5 2 3 0 18:4 7
Skotland...........5 1 2 2 4:5 4
Luxemborg...........6 0 0 6 2:20 0
Fyrstl slgur Flnna
Finnar gerðu sér lítið fyrir og unnu
Tékka sannfærandi, 3:0, í Helsinki
í gærkvöldi. Leikurinn var liður í
6. riðli Evrópukeppninnar. Þetta var
fyrsti sigur Finna í keppninni og
kom hann full seint til að þeir eygi
möguleika í úrslitakeppnina.
Tékkar vom betri til að byija með
eða allt þar til Ari Hjelm skoraði
fyrir Finna á 29. mínútu. Finnar
fór síðan á kostum í síðari hálfleik
með Aki Lahtinen sem besta mann.
Ismo Lius skoraði annað markið
með skalla á 72. mínútu og síðan
innsiglaði Petri Tiainen sigurinn
með marki átta mínútum fyrir leiks-
lok.
Finnski landsliðsþjálfarinn Martti
Kuusela, sem hættir með landsliðið
eftir þetta tímabil, sagði að Finnar
hafí spilað einn sinn besta leik í
langan tíma.
Wales slgraöi Danmörku
Wales skaust í efsta sæti 6. riðils
Evrópukeppninnar með því að sigra
Danmörku, 1:0, í Cardiff í gær-
kvöldi. Mark Hughes skoraði
sigurmarkið á 19. mínútu leiksins.
Mark Hughes átti mjög góðan leik
og skoraði nú loks mark fyrir lands-
liðið; hans fyrsta með liðinu í tvö
ár og á Wales nú möguleika á að
komast í úrslitakeppni í fyrsta sinn
í 30 ár.
Wales var betra liðið í fyrri hálfleik
en bakkaði í þeim seinni. Þá sóttu
Danir án afláts en tókst ekki að
skora og má þakka það stórgóðri
markvörslu Neville Southall. Hann
varði tvívegis meistaralega frá Pre-
ben Ellqær og svo bjargað einu sinni
á línu.
Staðan í 6. riðli er þessi:
Wales...............4 2 2 0 7:2 6
Danmörk.............5 2 2 1 3:2 6
Tékkóslóvakía.......5 1 3 1 5:5 5
Finnland............6 114 4:10 3
VINÁTTULANDSLEIKIR
Littbarski skoraði
beint úr homspymu!
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR unnu
Englendinga 3:1 í vináttulands-
leik í knattspyrnu f Dússeldorf
í gærkvöldi. Pierre Littbarski
var hetja Vestur-Þjóðverja,
skoraði tvö mörk.
Leikurinn var mjög vel spilaður
af beggja hálfu og mátti varla
sjá að um æfingaleik væri að ræða.
Vestur-Þjóðveijar voru sterkari í
fyrri hálfleik og
skoraði Littbarski
tvö mörk á níu
mínútum um miðjan
fyrri hálfleik. Það
FráJóhanni
Inga i
Þýskalandi
og Reuter
fyrra með þrumuskoti frá vítateig
og það síðara beint úr homspymu.
Gary Lineker minnkaði muninn fyr-
ir Englendinga rétt fyrir leikhlé
eftir vamarmistök Vestur-Þjóð-
veija. Englendingar sóttu meira í
síðari hálfleik og kom Immel mark-
vörður í veg fyrir að þeir skomðu,
hann varði oft meistaralega. Það
var svo þvert á gang leiksins að
varamaðurinn Wolfram Wuttke
skoraði þriðja mark Vestur-Þjóð-
veija með góðu skoti frá vítateig
þegar sjö mínútur vom til leiksloka.
Fimm þúsund Englendignar vom á
meðal 50.000 áhorfenda á leikvang-
inum í Dusseldorf.
Skotar unnu Ungverja
Skotar unnu Ungveija 2:0 í æfínga-
landsleik í knattspymu í Glasgow
í gærkvöldi. Það var framheijinn
Ally McCoist sem skoraði bæði
mörk heimamanna.
McCoist skoraði sitt fyrsta mark
fyrir Skotalnd á 35. mínútu með
skoti sem fór undir Petet Disztl,
markvörð. Síðan skoraði hann aftur
á 61. mínútu með þmmuskoti frá
vítateig. Sigur Skota var sanngjam
og hefði getað orðið enn stærri.
HANDKNATTLEIKUR
Júgóslavinn
ráðinn í gærdag
LYFTINGAR
Guðmundur setti
íslandsmet
Handknattleikssambandið réð í gær Júgóslavann
Bradimir Slovko sem landsliðsþjálfara kvenna til
eins árs. Hann kemur til landsins 1. október. Slovko
hefur fengist við þjálfun í heimalandi sínu undanfarin
18 ár, en á sínum keppnisferli lék hann hátt í 200
landsleiki. ,
>1 TJT/ scfif, hiigv ti/léíi •
Guðmundur Helgason, KR, setti í gærkvöldi ís-
landsmet í 100 kg flokki ólympískra lyftinga, á
innanfélagsmóti Ármanns, er hann lyfti samanlagt
347,5 kg. Þetta var fyrsta íslandsmetið í lyftingum í
3 ár. Gamla metið í flokknum átti Birgir Borgþórsson
xRferYffi ^ slsiol íhc'j otda