Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 66
&>
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Island - Noregur
2 : 0
Laugardalsvöllur, Evrópukeppni
landsliða, miðvikudaginn 9. sept-
ember 1987.
Mörk íslands: Pétur Pétursson
(21.), Pétur Ormslev (60.)
Mark Noregs: Jörn Andersen
(11.)
Gult spjald: Sigurður Jónsson
(38.)
Dómari: Wilfred Wallace frá Irl-
andi.
Áhorfendur: 5.450.
Lið íslands: Bjarni Sigurðsson,
Gunnar Gíslason, Sævar Jónsson,
Viðar Þorkelsson, Atli Eðvalds-
son, Ólafur Þórðarson, Pétur
Ormslev, Ragnar Margeirsson,
(Pétur Arnþórsson vm. á 79.
mín.), Sigurður Jónsson, Guð-
mundur Torfason, Pétur Péturs-
son.
Lið Noregs: Erik Thorstvedt,
Terje Kojedal, Per Edmund
Mordt, Hans Henriksen, Trond
Sollied, Erik Soler, (Jan Fjære-
stad vm. á 77. mín.), Kai Herlov-
sen, Kjetil Osvold, Vegard
Skogheim, (Arne Erlandsen vm.
á 75. mín.), Jörn Andersen, Börre
Meinseth.
—^. .. . mmmm m Morounblaöiö/Biami Eiríksson
Glæsilegt jofnunarmark
Jöfnunarmark Péturs Péturssonar á 28. mín. var sériega giæsilegt. Eftir að hafa fengið sendingu frá Ragnari Margeirssyni renndi hann sér skemmtilega á
milli tveggja varnarmanna og þrumaði með utanverðum vinstra fæti efst i nærhornið. Frábærlega gert hjá Pétri; norski markvörðurinn átti ekki möguleika á að
verja skot hans.
^w
Morgunblaðiö/Bjarni
Pétri fagnaö
Pétri Péturssyni (11) var fagnað innilega eftir að hafa skorað. fslendingum var
þá ljóst að þeir áttu möguleika í viðureigninni — þeir gengu á lagið og tryggðu
sér sigur. Það er Sævar Jónsson aem fagnar Pétri þarna, en einnig má þekkja
Sigurð Jónsson, Ragnar Margeirsaon og Guðmund Torfason.
~h
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
- Norska markið
Jöm Andersen (10) skorar mark Norðmanna. Hann þurfti ekki annað en að
" „^reka fótinn í boltann og senda hann yfir linuna eftir að Bjami hafði hálfvarið
skotutan úr teig. Sævar, PéturOrmslev, Atli ogBjarni fáekki rönd við reist. i '
Hvað sögðu þeir?
SicffrKKi Hold
„Við unnum og það er fyrir öllu.
Leikmenn virtust eitthvað trekktir
fyrstu tuttugu mínúturnar og léku
þá illa. Það var engin hreyfing
og við misstum boltann oft klaufa-
lega. Þetta lagaðist er leið á og
f sfðari hálfleik léku strákarnir á
.cöflum vel. Baráttan var í lagi
og knattspyrnan ágæt á köflum.
Þeir héldu boltanum vel enda lá
okkur ekkert á. Það verður erfið-
ur leikur á mótu Norðmönnum
eftir hálfan mánuð og vonandi
verða Ásgeir og Arnór orðnir heil-
ir. Annars er ekkert hægt að segja
um hvað gerist á 14 dögum, það
geta einhverjir aðrir meiðst í stað-
inn."
TordGrip,
þjátfari Noromanna
„Ég er svekktur yfír þessum úr-
slitum. Leikurinn sjálfur yar
nokkuð góður og sérstaklega lék-
um við vel í fyrri hálfleik. íslenska
liðið lék vel í síðari hálfeiknum
en við fengum mörg marktæki-
færi og hefðum átt að geta unnið
teikinn. Strákarnir nýttu færin
hins vegar ekki og þá er ekki
hægt að vinna. íslenska liðið var
svipað og ég hafði búist við. Pétur
Pétursson er stórhættulegur leik-
maður og einrúg fannst mér Pétur
Ormslev, Sigurður Jónsson,
Gunnar Gíslaosn og Bjarni í mark-
inu leika vel. Mér fannst Jörn
Andersen bestur í m(nu liði. Leik-
urinn í Osló verður erfiður og ég
vona að allir leikmenn mínir verði
heilir en á síður von á þvi. Þeir
sem meiddust nú um helgina
verða varla orðnir góðir eftir hálf-
an mánuð."
AtliEðvaldsson
„Þetta var „móralskur" sigur fyr-
ir okkur alla. Við hófum leikinn
með 6:0 á bakinu og eftir 10
mínútur vorum við búnir að fá á
okkur eitt af þessum klaufamörk-
um. Sum lið hefðu brotnað á
þeirri stundu, en við rifum okkur
upp, héldum boltanum, gáfum á
næsta mann og nýttum færin.
Normennirnir eru góðir og leiknir
og við gerðum þau mistök að
bakka of mikið í byrjun. í seinni
hálfleik töluðum við meira saman
og þríhyrningaspilið gekk upp.
Ég finn mig mikið betur i þessari
stöðu en úti á kantinum, er meira
í boltanum, hef meiri yfirsýn og
næ betur til hinna. En við verðum
að halda okkur við jörðina. Sept-
ember er okkar besti tími, því nú
eru allir í æfingu. Ef við ætlum
að vinna leiki í október og á vor-
in, verðum við að fá nauðsynlegan
undirbúning vegna strákanna sem
eru hér heima, því þeirra leiktíma-
bili er að ljúíca — með öðrum
orðum þá verðum við að fá æf-
ingaleiki."
Pótur Pétursson
„Þetta var geysilega erfiður leik-
ur. Við spiluðum skynsamlega,
treystum á skyndisóknir, en unn-
um fyrst og fremst á gífurlegri
baráttu. Það var deyfð f þessu hjá
okkur til að byrja með, undir niðri
sat 6:0 leikurinn í manni og svo
mark! Ég hugsaði um það eitt að
skora, þegar ég komst í færið og
það var ánægjulegt að sjá á eftir
honum í netið, en það var mikill
„klassi" að ná þessu upp og
sigra."
PoturOrmalav
„Eg er ofboðslega hress með sig-
urinn, en þetta var spurning um
dagsformið og reyndar hef ég oft
spilað erfiðari leik. Við vorum
lengi í gang, en eftir að við fund-
um hvern annan og fórum að
spila okkar leik jókst sjálfstraust-
ið og um leið greip örvænting
Norðmennina. Allir urðu vitlausir
eftir 6:0 tapið gegn Austur-Þjóð-
verjum og fólk heimtaði sigur í
þessum leik. Menn verða samt að
muna að við erum ekki Evrópu-
meistarar og það má ekki gera
of miklar kröfur. Við getum ekki
spilað „total" bolta í 90 mínútur,
en ef við leikum skynsamlega,
berjumst og höldum boltanum
getum við sigrað hvaða lið sem
er hér á heimavelli."
Slguröur Jensson
„Mér líkaði mun betur að leika
inni á miðjunni, en við vorum ef
til vill of varnarlega sinnaðir til
að byrja með. Mér leið illa þegar
þeir skoruðu, en mótlætið efldi
okkur og það var gott að jafna.
Þegar við náðum forystunni óttað-
ist ég ekki úrslitin. Við lékum
skynsamlega og þetta var „mór-
alskur" sigur."
Qunnar Qfslason
„Gegn Austur-Þjóðverjum vantaði
baráttuna, en nú var allt önnur
stemmning. Það var gott hjá okk-
ur að bugast ekki við markið, við
vorum ákveðnir að berjast til hins
síðasta og það gekk upp. Ég fann
mig vel í leiknum og fannst Norð-
mennirnir ekki erfiðir við að eiga,
en baráttuleysi þeirra kom mér á
óvart."
Óiafur Pórðarson
„Það er mjög gaman að hafa ver-
ið með í tveimur sigurleiicjum með
tyeimur landsliðum á einni viku.
Eg var taugaóstyrkur í byrjun,
en það lagaðist fljótt. Við lögðum
ekki árar í bát þrátt fyrir markið
og baráttan færði okkur sigur.
Sigi Held varð að breyta liðinu
vegna meiðsla, færði menn til á
vellinum og þetta var ekki síður
sigur fyrir hann."
Guonl KJartansson
aðstoðarþjáifari
„Við vorum spenntir á bekknum,
þar til slakur dómari flautaði leik-
inn af. Strákarnir voru taugaó-
styrkir til að byrja með, þeir
sofnuðu og Norðmennirnir skor-
uðu. Það sýnir okkur að athyglin
verður að vera í lagi í 90 mínút-
ur. En þeir ætluðu að gera góða
hluti og fóru á fullt eftir markið,
drógu Norðmennina framar, héldu
boltanum og skoruðu tvö góð
mörk.
Liðin eru svipuð að styrkleika, en
þetta yar spurning um dagsfor-
mið. Á góðum degi getum við
unnið alla, en málið er að allir
geri ávallt sitt besta, meira er
ekki hægt að fara fram á. Allir
vita að aðstæður okkar eru ekki
eins og annars staðar og því er
ljóst að liðið þarf að fá fleiri leiki."