Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 67

Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 67 KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA Tvö glæsimörk sendu Norðmenn í neðsta sæti ÍSLENSKA landsliðið vann í gær það norska með tveimur mörkum gegn einu eftir að hafa verið 1:0 undir. Leikmenn ■slenska liðsins léku mjög skynsamlega og uppskáru sig- ur. Nýtingin hjá þeim var einstök. Þeir fengu tvö mark- tækifæri og skoruðu úr þeim báðum. Norðmenn fengu fleiri færi en þeim tóst ekki að nýta þau eins vel og okkar mönnum. Islensku strákarnir hafa leikið betur en sigur er allt sem máli skiptir og hann vannst með skynsömum ieik og tveimur glæsilegum mörkum Póturs Péturssonar og Póturs Ormslev. Með þessum sigri skutumst við upp fyrir Norð- menn í stigatöflunni. Islenska liðið var lengi í gang í gær og fyrstu tuttugu mínútum- ar var það hreinlega yfírspilaðir af frísku liði Norðmanna. Þeir sóttu mun meira, héldu SkúliUnnar boltanum vel og Sveinsson Voru ákveðnari á all- skrífar an hátt. Það voru ekki liðnar nema ell- efu mínútur þegar Norðmenn skoruðu. Börre Meinseth fékk bolt- ann frá Pétri Ormslev, sem blindað- ist trúlega af sólinni, skaut frekar lausu skoti sem Bjami varði. Bolt- inn fór til Jöm Andersen sem skoraði af öryggi í tómst markið. Þama var íslenska vömin steinsof- andi og hún átti eftir að sofna oftar en sem betur fer ekki með sömu afleiðingum. Pétur Pétursson jafnaði metin á 21. mínútu með glæsilegu marki. Sókn- in hófst með því að Guðmundur Torfason sendi með hælspymu á Ragnar Margeirsson. Ragnar lék aðeins fram yfír miðju, gaf á Pétur sem bmnaði að markinu, lék lag- Iega á einn vamarmann Norðmanna og skaut utanfótar með vinstri í nærhomið! Stórskemmtilegt mark. Einn norsku vamarmannanna gleymdi sér alveg og því slapp Pét- ur við rangstöðugildru þeirra að þessu sinni. Norðmenn fengu tvívegis mjög góð marktækifæri fyrir hlé. Bjami varði vel í annað skiptið en í hitt skiptið Staðan Sovétríkin.....6 4 2 0 11:2 10 A-Þýskaland....6 2 2 1 8:2 6 Frakkland........6 1 8 2 3:5 6 ísland...........6 1 2 3 3:11 4 Noregfur.........5 113 2:7 3 Þessir leikir eru eftir í riðlinum; 23. Beptember. Noregur-tsland, 10. október: Austur—Þýskaland-Sov- étrfkin, 14. október: Frakkland- Noregur, 28. oktéber: Sovétrikin- tsland og Austur—Þýskaland- Noregur og 18. névember: Frakkiand-Austur—Þýskaland. hittu norsku sóknarmennimir ekki knöttinn. Íslenska liðið lék mun betur í síðari hálfleik og á köflum ágætlega og á 60. mínútu skoraði Pétur Orms- elv. Atli gaf fram á Pétur Pétursson sem gaf skemmtilega áfram á nafna sinn Ormslev. Pétur var rólegur og yfírvegaður, lék á einn vamamann og skoraði með fallegu skoti í blá- homið. Gunnar Gíslason bjargaði á marklínu skoti frá Jöm Andersen eftir að hann slapp framhjá Bjama sem hljóp út úr markinu á snarvit- lausum tíma. íslensku leikmennimir léku illa framan af leiknum. Þeir virtust taugaóstyrkir og sérstaklega var vömin ósannfærandi. Rangstöðuað- ferð Norðmanna gekk vel upp og hvað eftir annað vom okkar sóknar- menn leiddir í gildmna. Sem betur fer var þetta þó aðeins upphafíð, leikmenn náðu sér flestir á strik er líða tók á leikinn. Þeir héldu boltanum vel er líða tók á enda þurftu Norðmenn þá að gera eitthvað til að reyna að jafna. A stundum fanst mér þeir full róleg- ir en þeir vora ákveðnir í að taka enga áhættu. Það kom ekkert ann- að en sigur til greina. Strákamir léku skynsamlega og uppskám sigur gegn liði sem vann FVakka 2:0 í Osló f júní. Ekki slæm- ur árangur, og raunar mjög góður þegar haft er í huga að þetta er í sjötta sinn sem við vinnum Norð- menn í landsleik í knattspymu. Þeir hafa unnið 15 sinnum og einu sinni hefur orðið jafntefli. Norska liðið var nokkuð þokkalegt og lék vel í fyrri hálfleik. Það verð- ur erfíður leikur í Osló eftir hálfan mánuð en þá mætast liðin að nýju í keppninni. Bestu menn þeirra að þessu sinni vom Hans Henriksen (nr. 2) og Kjetil Osvold (nr.9). '4 - Morgunblaöið/Bjami Eiríksson 2:1 sigri fagnad Pétur Ormselv skorar hér að ofan annað mark íslands í leiknum gegn Norð- mönnum í gær. Hér til hliðar fagnar fyrirliðinn Atli Eðvaldsson Pétri Péturssyni sem skoraði fyrra mark íslands og á myndinni hér að neðan fagnar Guðmund- ur Torfason eins og honum er einum lagið. Með honum á myndinni em Siguijón Sigurðsson læknir liðsins, Sigurður Jónsson og Ólafur Þórðarson em greinilega einnig ^nægðir enda höfum við ekki unnið Norðmenn sfðan 1976 en þá vann ísland 1:0 í Osló og var það fyrsti sigur íslands á útivelli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.