Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 68

Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 68
Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA anaa <&&&*> ♦ suzuk| FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 VEM) í LAUSASÖLU 55 KR. Húsnæðismálastjórn: Breytingar á lánakerfinu HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN af- greiddi á aukafundi í gær tillögu um breytingar á húsnæðislána- kerfrnu. Samkvæmt tillögu húsnæðis- málastjómar verður hugsanlega hægt að takmarka lán til umsækj- enda ef þeir eiga fleiri en eina íbúð fyrir eða ef efiiahagsaðstæður þykja gefa tilefni til þess. Ekki náðist full samstaða um þessa til- lögu í stjóminni og greiddu fulltrúar Alþýðubandalags, Kvennalista og VSI atkvæði gegn henni. Félags- málaráðherra mun fjalla um þetta mál á ríkisstjómarfundi í dag. Sigri fagnað íslenska landsliðið í knattspyrnu sigraði það norska 2:1 á Laug- Norðmenn sitja á botninum. Á mynd Bjarna Eiríkssonar fagna ardalsvelli í gærkvöldi í Evrópukeppninni í knattspymu. Við islensku leikmennirnir sigrinum innOega í búningsklefanum. sigurinn færðist íslenska liðið upp í fjórða sæti 3. riðOs en Nánar um Ieikinn/65, 66 og 67. Mikill samdráttur í flakasölu á Bandaríkjamarkaði; Erum að glata mikilvæg- um viðskiptasamböndum - segja forsvarsmenn íslensku sölufyrirtækjanna Hassinnan ur bangsa MAÐUR var handtekinn á þriðju- dag eftir að í ljós kom að hann hafði sent 500 grömm af hassi tO landsins frá Amsterdam. Hass- ið hafi hann falið innan i leik- fangabangsa. Það var böggull frá Amsterdam sem vakti athygli tollvarða í póst- húsinu í Armúla í Reykjavík. Innihald böggulsins var sakleysis- "Ihiiegur leikfangabangsi,- sem við nánari skoðun reyndist úttroðinn af hassi, alls um 500 grömm. Ákveðið var að bíða átekta þar til sendingarinnar væri vitjað í póst- húsi Hafnfírðinga. Það gerðist síðdegis á þriðjudag og var maður- inn, sem er á þrítugsaldri, þá handtekinn. Hann hefur játað að hafa komið hassinu fyrir í bangsan- um og sent hann til landsins. Áætlað verð hassins hér á landi er um hálf milljón króna. Morgunblaðið/Sverrir Leikfangabangsinn og óvenju- legt innihald hans. MIKILL samdráttur hefur orðið í sölu íslenskra fiskflaka á Bandaríkjamarkaði að undan- förnu og að sögn forstjóra islensku sölufyrirtækjanna tveggja, Coldwater og Iceland Seafood Corporation, eru íslend- ingar á góðri leið með að glata mikilvægum viðskiptasambönd- um vestra ef ekki verður breyt- ing tO batnaðar á næstu vikum og mánuðum. Samdrátturinn stafar fyrst og fremst af minnk- andi framleiðslu á flökum fyrir Bandaríkjamarkað, en sá fram- leiðslusamdráttur er aftur rakinn tO mikils skorts á vinnu- afli í frystihúsunum. Hjá Iceland Seafood Corporation, dótturfyrirtækis SÍS, minnkaði heildarsöluverðmæti í ágústmánuði um 5% í dollurum talið miðað við sama mánuð í fyrra, en að magni til varð samdrátturinn um 15%. Að sögn Eysteins Helgasonar, for- stjóra, hefur samdráttur í þorsk- flökum það sem af er árinu orðið um 14% að magni til miðað við sama tíma í fyrra. Eysteinn sagði að staðan væri nú að verða mjög alvarleg, sérstaklega gagnvart þorskflökunum, og ef svo færi fram sem horfði myndi glatast að miklu leyti það starf sem unnið hefur verið í markaðsmálum í Banda- ríkjunum á undanfömum árum og áratugum. Hjá Coldwater, sölufyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, minnkaði heildarsöluverðmæti í ágústmánuði um 15% í dollurum talið miðað við sama mánuð í fyrra og um 34% að magni. Flakasalan var að magni til 49% minni en í ágúst í fyrra og um 35% minni að verðmæti. Magnús Gústafsson, for- stjóri Coldwater, sagði að ágúst- mánuður væri að vísu alltaf versti mánuðurinn hvað sölu varðaði, og því ekki rétt að draga ályktun af einum mánuði. Ástandið væri þó engu að síður mjög alvarlegt og þróunin hefði verið í þessa átt allt frá síðustu áramótum. Fyrstu átta mánuði ársins hefði samdrátturinn í heildarsölu numið um 20% að magni til miðað við sama tíma í fyrra og um 4% að verðmæti í doll- urum talið. í flökunum hefði samdrátturinn verið 29% í magni og 13% í verðmætum. Aðspurður hvort einhver við- skiptasambönd hefðu þegar glatast vegna þessa skorts á hráefni frá íslandi sagði Magnús: „Með þessu framferði erum við þegar búnir að segja ýmsum viðskiptavinum okkar að við séum ekki eins áreiðanlegir og þeir héldu að við værum. Þetta þýðir ennfremur að við galopnum dymar fyrir þá sem hafa áhuga á að sinna þessum markaði og sjá framtíð í honum, sem til dæmis Kanadamenn virðast gera, enda leggja þeir mikla áherslu á þennan markað." Steingrímur Hermannsson um bandarísku ráðuneytin: Utanríkisráðuneytið óánægt með meðferð viðskiptaráðuneytisins Frá Jóni Ággeiri Sigurðwyni, fréttaritara STEINGRIMUR Hermannsson utanrikisráðherra mætti ekki á viðræðufund með Bandaríkja- mönnum i Ottawa i gærmorg- un, þegar í ljós kom að þar voru mættir fulltrúar við- skiptaráðuneytisins i Washing- ton. „Ég held að þeir í Washington geri sér annað hvort ekki grein fyrir þvi hvað þetta mál er orðið alvarlegt eða að viðskiptaráðuneytinu hefur aftur tekist að halda málinu hjá sér,“ sagði Steingrímur Her- mannsson í viðtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins. „Ingvi Ingvarsson sendiherra vakti að minni ósk athygli á því Morgunblaðflins f Ottawa. að þetta mál gæti þróast í miklu stærra og erfíðara mál milli þjóð- anna, þannig að hvalveiðarnar væru nánast aukaatriði," sagði Steingrímur. „Ingvi vakti meðal annars athygíi á að samkvæmt skoðanakönnun hefur orðið veru- leg breyting á fylgi við veru vamarliðsins á íslandi." Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra hafði óskað eftir því að rætt yrði um utanríkismál í Ottawa, en Bandaríkjamenn voru einungis undir það búnir að ræða hvalveiðimál. Heimildir herma að Dr. Calio og félagar hafí lagt til að íslendingar leggi vísindaáætl- un sína fyrir vísindanefnd Al- þjóðahvalveiðiráðsins. Fróðir menn telja að sú málsmeðferð taki í það minnsta þijá mánuði. „Við höfum fengið þær fréttir úr bandaríska utanríkisráðuneyt- inu að þeir séu ákaflega óhressir með meðferð viðskiptaráðuneytis- ins á málinu. Af einhveijum ástæðum fer viðskiptaráðuneytið sínu fram á öllum fundum sem hafa verið haldnir," sagði Steingrímur Hermannsson. Utanríkisráðherra kvaðst reiðubúinn að ræða við Banda- ríkjamenn á íslandi, en minnti ennfremur á að hann hittir George Shultz utanríkisráðherra þegar þing Sameinuðu þjóðanna verður sett í New York síðar í mánuðin- um. Hann sagði að ekki hafi verið gerður baktjaldasamningur vegna hvalamálsins. „En þeir hafa hótað staðfest- ingarkæru og það alvarlegasta er að við höfum á tilfínningunni að þá muni Japanir ekki kaupa af okkur hvallqötið. Það er í raun og veru það sem veldur okkur vandræðum. Ef við værum örygg- ir um að Japanir keyptu af okkur hvalkjötið, þá tel ég að við mynd- um ekki hika við veiðamar," sagði Steingrímur Hermannsson utan- ríkisráðherra í Ottawa í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.