Morgunblaðið - 24.09.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987 15
Kjaftasögur og
stj órnvaldsákvörðun
vandmeðfarið hlutverk. Sigurður
Karlsson hefur gert margt vel á
undanfömum árum og sumt af-
bragðsvel. En höfuðsmaður hans
verkar ekki sannfærandi á mig.
Kannski var hann einfaldlega of
spenntur á frumsýningu og slíkt
getur staðið til bóta. Framan af var
eins og hann léki einleik á sviðinu
og án þess að ná sambandi við aðra
leikara. Framsögnin var líka ein-
tóna. En þetta lagaðist þegar á leið
sýninguna og var að mestu horfið
þegar kom að hinum óhugnanlegu
leikslokum. Það verður líklega að
teljast til fordóma, en að mínu
mati er Sigurður Karlsson ekki al-
veg rétti leikarinn í þetta hlutverk.
Ragnheiður E. Arnardóttir varð
að gjalda þess að lítið varð úr sam-
leik milli hennar og Sigurðar
Karlssonar. En Ragnheiði tókst það
sem Sigurði tókst örsjaldan, þ.e.a.s.
kalla á samúð áhorfandans. Það er
ekki svo lítið í slíku verki sem Faðir-
inn er.
Geðfelldur var leikur Guðrúnar
Marinósdóttur í hlutverki dótturinn-
ar, en hún leikur nú í fýrsta skipti
í Iðnó. Guðrún Þ. Stephensen kann
á sínar kerlingar, enda var fóstra
hennar það hlutverk sem einna best
var túlkað. Jón Hjartarson í hlut-
verki prestsins og Jakob Þór
Einarsson í hlutverki læknisins voru
báðir viðunandi og samkvæmir
heildarstefnu sýningarinnar. Þá má
einnig nefna Hjálmar Hjálmarsson
og Valdimar Öm Flygenring í
smærri hlutverkum.
Steinunn Þórarinsdóttir, sem
gerði leikmynd og búninga, og Árni
Baldvinsson, höfundur lýsingar,
vinna vel saman að klassískum
ramma sýningarinnar. Leikur ljós-
anna átti sinn þátt í að kalla fram
stemmningu sem við átti í hvert
skipti, en eins og að ofansögðu má
ráða er hún í þyngra lagi. Þórarinn
Eldjárn hefur fyrir sitt leyti skilað
góðu verki með þýðingunni.
eftir Þórð Ingva
Guðmundsson
í siðmenntuðum ríkjum byggja
stjórnvöld ákvarðanir sínar á upp-
lýsingum sem studdar eru töluleg-
um staðreyndum. Ákvörðun
viðskiptaráðherra um að takmarka
aðgang íslenskra fjármögnunar-
leigufyrirtækja að erlendu lánsfé
er ekki byggð á tölulegum stað-
reyndum heldur gróusögum sem
hann ætti manna best auðveldast
með að sannreyna að eru rangar.
Ákvörðun viðskiptaráðherra fel-
ur í sér að minnka það hlutfall
fjárfestingar sem ijármagna má
með erlendum lántökum til að
sporna gegn þenslu og vegna þess
að erlendar lántökur hafa farið
„langt fram úr lánsfjáráætlun"
eins og það er orðað. Sökudólgurinn
eru fjármögnunarleigurnar, þar
sem þær hafa tekið að láni erlendis
2—3 milljarða króna — þar af 1
milljarð til að fjármagna bif-
reiðakaup, að sögn stjórnvalda.
Forsvarsmenn fjármögnunar-
leigufyrirtækja hafa beðið stjórn-
völd um sundurliðun á erlendum
lántökum á árinu 1987 og ekki
fengið, þannig að ekki liggur fyrir
hvernig lánsfénu hefur verið varið,
hvað sé neyslulán, byggingalán og
hvað er véla- og tækjalán? Ráðstöf-
un fjárins skiptir höfuðmáli.
Fjármögnunarleigurnar hafa
íjárfest í vélum og tækjum á þessu
ári fyrir 2.700—3.000 milljónir
króna. 70% af því er tekið að láni
erlendis frá eða um 2.000 milljónir.
Þessi lán eru tekin án allrar ábyrgð-
ar annarra en lántakenda sjálfra.
Önnur erlend lán eru tekin að meira
eða minna leyti með ríkisábyrgð,
eða líklega 8—10 milljarðar. Áðför
stjómvalda að fjármögnunarleigum
hefur í för með sér minnkun er-
lendrar lántöku um 500—700
milljónir á ári, en leiðir til vaxta-
hækkunar og aukins fjármagns-
kostnaðar fyrirtækja vegna aukins
vægis krónunnar í fjárfestingunni
um svipaða upphæð. Samkeppnis-
staða fyrirtækjanna hríðversnar að
sama skapi. Þessi stjórnvalds-
ákvörðun er því ekki skynsöm
ráðstöfun í efnahagsmálum.
Fjármálaráðherra og viðskipta-
ráðherra fullyrða að fjármögnunar-
leigumar hafí tekið að láni 1
milljarð króna til að fjármagna bíla-
kaup á árinu 1987.
Bið ég ráðherrana að lesa auglýs-
ingu viðskiptaráðuneytisins frá 6.
maí 1986 um erlenda fjármögnun-
arleigu á vélum og tækjum og
lántöku í því sambandi.
Þessi auglýsing veitti fjármögn-
unarleigufyrirtækjunum heimildina
til að taka erlend lán á eigin ábyrgð
til að fjármagna kaup á vélum og
tækjum og var eitt mesta spor til
fijálsræðis í viðskiptum sem stigið
var í tíð síðustu ríkisstjórnar. I þess-
ari auglýsingu er birtur listi yfir
tæki sem fjármagna má í erlendri
mynt. Jafnframt á að senda alla
samninga til gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans til staðfestingar.
Samkvæmt auglýsingunni er al-
„í þessari auglýsingn
er birtur listi yf ir tæki
sem fjármagua má í
erlendri mynt. Jafn-
framt á að senda alla
samninga til gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans
til staðfestingar. Sam-
kvæmt auglýsingunni
er algerlega bannað að
fjármagna kaup á
fólksbílum með erlend-
um lántökum. Engin
fjármögnunarleiga
kæmist upp með að
gera samning um kaup
á fólksbíl í erlendri
mynt vegna eftirlits
Seðlabankans.“
gerlega bannað að fjármagna
kaup á fólksbílum með erlendum
lántökum. Engin fjármögnunar-
leiga kæmist upp með það að gera
samning um kaup á fólksbíl í er-
lendri mynt vegna eftirlits Seðla-
bankans.
Spurningin, sem stendur eftir,
vegna staðhæfingar stjórnvalda um
1 milljarðs króna lántöku erlendis
til fólksbílakaupa, er hvort fjár-
mögnunarleigurnar hafi notað
erlend lán til að gera samninga
Þórður Ingvi Guðmundsson
um kaup á fólksbílum i íslenskum
krónum.
Ekkert fjármálafyrirtæki get-
ur leyft sér þá áhættu að taka
lán í einni mynt og endurlána
það í annarri mynt. Það er hreint
fjárhættuspil sem getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Fjármögnunarieigufyrirtækin
eru rekin á faglegum grundvelli.
Því er útilokað að þau taki geng-
isáhættu sem felst í því að breyta
erlendum lánum í Ián i íslenskum
krónum.
Af þessum sökum stenst ekki
fullyrðing stjómvalda varðandi er-
lendar lántökur til fjármögnunar á
bifreiðakaupum og ákvörðunin er
að meira eða minna leyti byggð
á misskilningi, vanþekkingu og
kjaftasögum. Ríkisstjórnir í upp-
lýstum þjóðfélögum geta ekki leyft
sér slíka hegðun.
Höfundur er framkvæmdastjóri
fjármögnunarfyrirtækisins Lind-
arhf.
nia
VIDEO CASSETTE
RECORDER
HR-D210E vits
\ /r'"*w.. REAPY
x/F^SLJsfcrern
VaXQ RROQftAM *
UMBOÐSAÐILAR:
AKUREYRI: HLJOMDEILD KEA, HLJÓMVER
HUSAVÍK: KF ÞINGEYINGA, RADiÓVER
NESKAUPSTAÐUR:BULAND
REYÐARFJÖRÐUR: MYNDBANDALEIGAN
EGILSSTAÐIR: KF HÉRAÐSBUA
SEYÐISFJÖRÐUR: KF. HÉRAÐSBÚA
DJÚPIVOGUR: KASK
HÖFN: KASK
VÍK: KF. SKAFTFELLINGA
HVOLSVÖLLUR: KF RANGÆINGA
HELLA: VIDEOLEIGAN
SELFOSS: MM BÚÐIN
ÞORLÁKSHÖFN: RÁS
KEFLAVlK: HLJÓMVAL
Ég vel JVC myndbandstækið
vegna gæðana
Með afspilun og upptöku á
JVC HR-D210 tækinu fást
bestu myndgæði sem ég hef séð.
JVC er brautryðjandi í
nýjungumþróun og þjónustu.
JVC er traust vörumerki.
kr 41700
I 'St.gr.verð
Kjör við allra hæfi, VISA, EURO og skuldabréf.
FACO HF LAUGAVEGI89 S: 13008
VESTMANNAEYJAR: SJONVER
HAFNARFJÖRÐUR: RADÍÓROST
AKRANES: SKAGARADÍÓ
BORGARNES: KF BORGFIRÐINGA
STYKKISHÓLMUR: HÚSIÐ
GRUNDARFJÖRÐUR: GUÐNI E. HALLGRIMSSON
HELLISSANDUR: BLÓMSTURVELLIR
ÍSAFJÖRÐUR: PÓLLINN
BÚÐARDALUR: ÁSUBUÐ
BORÐEYRI: KF HRUTFIRÐINGA
BLÖNDUÓS: KF. HÚNVETNINGA
SAUÐÁRKRÓKUR: HEGRI
SIGLUFJÖRÐUR: AÐALBÚÐIN
ÓLAFSFJÖRÐUR: VALBERG
DALVÍK: ELEKTRÓ