Morgunblaðið - 24.09.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
35
Reuter
Fótboltamenn í verkfall
Bandarískir fótboltamenn standa verkfalls-
vörð fyrir utan æfingasvæði Washington
Redskins í gær. Verkfall 1.500 atvinnumanna
í bandaríska fótboltanum hófst i gær eftir
að samningaviðræður við samtök eigenda
félaganna fóru út um þúfur. Að meðaltali
eru árstekjur fótboltamannanna 230.000 doll-
arar, eða 9,2 milljónir islenzkra, en þeir telja
það ónóg og vilja launahækkun. MeðaUaunin
segja ekki alla söguna, margir hafa margf-
alt hærri laun en flestir lægri. Lágmarks
byrjunarlaun, sem eru algeng, eru 50.000
dollarar, eða 2,0 miiyónir. Kraflzt er 90.000
dollara, 3,6 milljóna, en vinnuveitendur bjóða
60.000 dollara, 2,4 milljóna króna. Aðeins
einu sinni áður hefur komið til verkfalls fót-
boltamanna í Bandaríkjunum. Það var árið
1982 og stóð það í 57 daga.
Þjónustumiöstöö EIMSKIPS í
Sundahöfn er vettvangur góðra
atvinnutækifæra.
Þessa dagana leitum viö aö
starfsmönnum til framtíöarstarfa
í eftirfarandi stöður:
1. Tækjastjórn
2. Lagerstörf (8 tímar á dag)
3. Almenn störf á hafnarsvæði
Framkvæmd Ólympíuleikanna í Seoul:
S-Kóreumenn bíða með
að svara Norðanmönnum
Seoul, Panmuiyon, Reuter.
SUÐUR-Kóreumenn frestuðu i
fyrradag að svara tillögu Norð-
ur-Kóreumanna um tvíhliða
viðræður ríkjanna um skiptingu
Ólympfuleikanna.
Talsmaður Ólympíunefndar Suð-
ur-Kóreu sagði að viðbragða væri
að vænta í dag og yrðu skilaboð
til yfírvalda í Norður-Kóreu afhent
í Panmunjon-þorpinu á landamær-
um ríkjanna. Von var á viðbrögðum
Suður-Kóreumanna í fyrradag en
tafír verða á þeim þar sem hlutað-
eigandi aðilar hafa ekki gert upp
hug sinn til tillagna Norðanmanna,
að sögn talsmannsins.
Talsmaðurinn vildi ekki greina
frá því á hvaða lund svarið yrði,
en ftilltrúi í Ólympíunefnd suður-
Kóreu sagði að tilboði Norðan-
manna um viðræður ríkjanna
tveggja um skiptingu leikjanna yrði
hafnað. „Alþjóðaólympíunefndin
(IOC) verður að eiga aðild að öllum
viðræðum um framkvæmd leikj-
anna," sagði hann.
IOC hefur_haldið fjóra fundi með
fulltrúum Suður- og Norður-Kóreu
um skiptingu leikjanna á undanf-
ömum tveimur árum í þeim tilgangi
að koma í veg fyrir þann möguleika
að kommúnistaríki hundsi leikina.
Suður-Kóreumenn hafa boðið að
nokkrar keppnisgreinar verði
haldnar I Norður-Kóreu. Norðan-
menn hafa ekki tekið endanlega
afstöðu til þeirra tilboða né sáttatil-
lögu IOC. Hafa Norðanmenn að
undanfömu gert tilkall til fleiri
greina en Sunnanmenn segja að
tíminn hlaupi frá grönnum þeirra.
Verði þeir að samþykkja tillögu IOC
eða eiga það annars á hættu að fá
ekki neitt af leikjunum. Fulltrúi í
Ólympíunefnd Suður-Kóreu sagði
að nýir fundir með Norðanmönnum
væm óþarfír þar til þeir hefðu gert
upp hug sinn til síðasta tilboðs IOC.
Juan Antonio Samaraneh, forseti
IOC, sendi sl. fímmtudag öllum
aðildarlöndum Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar formlegt boð um
þátttöku í leikjunum, sem hefjast í
Seoul 17. september á næsta ári.
Við það tækifæri sagði Samaranch
að hann mundi eiga fund með Mik-
hail S. Gorbachev, aðalritara
Kommúnistaflökks Sovétríkjanna, í
þeirri von að fá hugsanlegri heima-
setu kommmúnistaríkja afstýrt.
Kvaðst hann vona að af fundinum
yrði fyrir 17. janúar næstkomandi,
en þá rennur út frestur, sem ríkin
hafa til að ákveða þátttöku í leikjun-
um í Seoul.
William T. Pendley, yfírmaður
sveitar Sameinuðu þjóðanna, sem
heldur uppi vörzlu í Panmunjon,
varaði Norður-Kóreumenn í fyrra-
dag við tilraunum til að trufla
Ólympíuleikina í Seoul. Á fundi
sameiginlegrar nefndar, sem fylgist
með framgangi mála á vopna-
hléslínunni, sakaði Pendley Norð-
ur-Kóreumenn um vísvitandi
tilraunir til að auka á spennu í
þeirri von að það fældi ríki heims
frá leikjunum.
„Ef þið reynið með einhveijum
hætti á næstunni að vega að friði
og stöðugleika á Kóreuskaganum á
næstunni verðið þið látnir sæta
fullri ábyrgð. í því sambandi mun
lítt stoða að reyna að villa um fyrir
mönnum með ýktum og upplognum
ásökunum," sagði Pendley.
Hjá okkur er góður vinnuandi,
næringaríkt mötuneyti og lifandi
starfsmannafélag.
Ef þú hefur áhuga á góöri vinnu
meö mikla framtíðarmöguleika
þá skaltu hringja í síma 689850
Framtíðar-
starfið
færðu hjá
EIMSKIP
Hringdu strax og skrdðu þig á skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið.
v
HRFSS
I.ÍKAMSRÆKX OG IJOS
BÆJARHRAUNI A / VIÐ KEFLAViKURVEGINN / SÍMI 65 2212
Tólf vikna námskeið í jazz-ballett hefjast í nœstu viku.
Hver tími hefst á upphitun, teygju- og þolœfingum. Kennd verða
undirstöðuatriði í klassískum ballett, einnig dansar, hringir og stökk.
Nemendasýning verður í lok námskeiðs. Foreldrar geta fylgst með
tveimur œfingum.
VERÐ FYRIR 12 VIKUR:
4.950 KR.
8-10 ára Sunnudagar kl. 11.30
Föstudagar kl. 17.30
10-12 ára Sunnudagar kl. 12.00
Föstudagar kl. 17.00
13-15 ára Sunnudagar kl. 13.00
Föstudagar kl. 18.00