Morgunblaðið - 24.09.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
39
Unnið að malbikunarframkvæmdum framan við samkomuhúsið.
Morgunblaðið/Dagný
Gatnaframkvæmdir upp á
10 milljónir í Garðinum
Garði.
Malbikunarframkvæmdir hafa
staðið yfir í gær og í fyrradag á
einni aðalumferðaræð þorpsins,
Gerðavegi, og hefir gatan verið
lokuð allri almennri umferð.
Nokkrar fiskvinnslustöðvar hafa
átt erfitt með aðföng þessa daga
og forráðamenn verið óhressir
með hve lokunina bar snöggt að.
Segja má að Gerðavegur hafi
verið sundurgrafinn í allt sumar en
þar hafa farið fram jarðvegsskipti,
auk þess sem skipt hefir verið um
vatnslögn og holræsi. Þá var allt
planið fyrir framan samkomuhúsið
einnig grafið upp. Það hefir einnig
verið malbikað auk þess sem sett
verður snjóbræðslukerfí í hluta
þess, það hellulagt og settir kant-
steinar. Þá eru uppi áform um að
setja upp anker á planinu og tyrfa
eitthvað í kring.
Að sögn Ellerts Eiríkssonar
sveitarstjóra eru þessar fram-
kvæmdir upp á 10 milljónir króna.
Verkið var boðið út í vor og átti
Ásverk sf. lægsta tilboðið í jarð-
vinnuna. Það er hins vegar Loftorka
sem sér um malbikunina. Nokkrir
einkaaðilar hafa einnig látið mal-
bika fyrir sig vegi og plön og taldi
Ellert að þar væri um framkvæmd-
ir að ræða upp á 2—3 milljónir.
Af öðrum framkvæmdum
hreppsins nefndi Ellert Eiríksson
lóð í kring um sundhöllina en þar
hefír unglingum í efsta bekk grunn-
skólans verið boðið að tyrfa og ná
sér í pening í ferðasjóð. Þá eru út-
boðsgögn að steypuvinnu og flísa-
lögnum í sundhöllina tilbúin en
hreppsnefnd hefír enn ekki ákveðið
hvenær útboð fer fram.
Þar er gert ráð fyrir 25 metra
langri sundlaug, heitum potti og
vaðlaug fyrir yngri borgarana. Nið-
ur í laugina eiga að vera tröppur
til að auðvelda öldruðum að komast
ofaní og einnig skábraut fyrir hjóla-
stóla. Utboð þetta er undirbúið af
Ámunda Ámundasyni og verkfræði-
stofu Suðumesja.
— Arnór
Morgunbladið/Arnór
Cámi af stærstu gerð stillt upp á skólalóðinni meðan beðið er eftir að Gerðavegur verði opnaður á ný.
Keflavík:
Þjófarnir höfðu
snör handtök
Keflavík.
BIFREIÐIR Bandaríkjamanna á
Keflavíkurflugvelli hafa löngum
orðið fyrir barðinu á óprúttnum
mönnum á Suðumesjum. Sér-
staklega hefur þetta veríð
áberandi ef eigendurnir hafa
orðið að skilja bifreiðir sínar
eftir bilaðar fjarri mannabyggð-
um.
Um helgina velti Bandaríkjamað-
ur bíl sínum á vegarspottanum milli
Sandgerðisvegar og nýja flugvallar-
vegarins. Honum láðist hinsvegar
að láta fjarlægja bflinn eftir at-
burðinn. Ekki var að sökum að
spyija og áður en varði höfðu þjóf-
ar látið hendur standa fram úr
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Bíll frá Skiptingu í Keflavík kominn á staðinn til að sækja bifreið
hins óheppna Bandaríkjamanns.
ermum. Þegar sækja átti bílinn var
búið að stela undan honum dekkj-
um, auk varadekksins, og útvarps-
kerfinu.
Greinilegt var að menn höfðu
ekki notað nein vettlingatök við að
ná útvarpinu úr bflnum, því mæla-
borðið var stórskemmt eftir atgang-
BB
Keflavíkurflugvöllur:
Ullarvörur fyrir
40 milliónir á ári
kofloxríL
ULLARVÖRUR seljast eins og
heitar lummur í verslun varnar-
liðsins „Navy Exchange“ á
Keflavíkurflugvelli. Að sögn
Trausta Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra verslunarinnar,
nam árssalan hátt í milljón
Bandaríkjadala eða um 40 millj-
ónum íslenskra króna á síðasta
ári.
Trausti sagði söluna á ullarvör-
unum yfirleitt jafna og góða og
oftast hefði starfsfólk hans ekki
undan að taka upp nýjar vörur.
Hann sagði að það vekti athygli að
þrátt fyrir nýtt og fjölbreytt litaúr-
val kysu Bandaríkjamenn að kaupa
ullarvöruna í sauðalitunum. Þeir
segðu að flíkur í skærum litum
minntu meira á eftirlíkingar.
Thomas A. Rizzo, yfirmaður
verslunarinnar, sagði að þessi deild
væri honum sérstaklega hugleikin
og þeir hefðu prentað sérstakan
bækling til að kynna íslensku ullar-
vörurnar. „Navy Exchange" væri
stór keðja verslana og þeir hefðu
fengið pantanir alla leið frá Japan.
Öll met hefðu þó verið slegin á leið-
togafundinum í Reykjavík, því þá
hefðu ullarvörur selst fyrir 8 millj-
ónir íslenskra króna á hálfum
mánuði.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Trausti Björnsson framkvæmdastjóri til vinstri ásamt Sigríði Jóns-
dóttur deildarstjóra og Thomas A. Rizzo yfirmanni „Navy Exchange"
í íslensku deildinni.
Nefnd undirbýr sundur-
greiningu dómsvalds
og framkvæmdavalds
JÓN Sigurðsson dómsmálaráð-
herra hefur skipað 9 manna
nefnd til þess að vinna að tillögu-
gerð um aðskilnað dómsvalds og
framkvæmdavalds. Er þetta í
samræmi við starfsáætlun rikis-
stjórnarinnar.
Nefndinni er ætlað að vinna að
tillögugerð um aðskilnað dóms- og
stjómsýslustarfa hjá dómaraemb-
ættum utan Reykjavíkur og um þær
breytingar sem af því leiða.
Nefndin skal í tillögugerð sinni
hafa það að leiðarljósi, að eigj sé
blandað saman störfum á sviði
dómssýslu og umboðsstjómar og
að fyllilega sé tryggt að dómstólar
séu óháðir í störfum sínum.
Einnig skal nefndin fjalla um
umdæmaskipan héraðsdómstóla og
gera tillögur þar að lútandi ásamt
tillögum um þær breytingar aðrar
í skipan og starfí héraðsdómstóla
og embætta sýslumanna og bæjar-
fógeta, sem að mati nefndarinnar
þykja tímabærar.
Tillögum sínum skal nefndin
skila í fmmvarpsformi til dóms-
málaráðuneytisins fyrir 1. febrúar
1988.
í nefndinni eiga sæti: Bjöm Frið-
finnsson, aðstoðarmaður ráðherra,
formaður; Bogi Nilsson, rannsókn-
arlögreglustjóri; Eiríkur Tómasson,
hæstaréttarlögmaður; Friðjón Guð-
röðarson, sýslumaður; Guðmundur
Einarsson, framkvæmdastjóri;
Markús Sigurbjömsson, borgarfóg-
eti; Ólöf Pétursdóttir, héraðsdóm-
ari; Pétur Hafstein, sýslumaður og
bæjarfógeti, og Þór Vilhjálmsson,
hæstaréttardómari.
Vinsælu vetrarskórnir
eru komnir
Svartir og brúnir,
loðfóðraðir.
St. 36-41
Verð
3.222,-
Fást í
Stjörnuskóbúðinni,
Laugavegi96
ogSkóseli,
Laugavegi 44.