Morgunblaðið - 04.10.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
B 3
með neitt né neinu sóað. Hann lagði
mikið upp úr því, að við krakkamir
leifðum aldrei af matnum okkar og
hann vildi ekki eyða um of í heimil-
ið. Hann vildi við borðuðum hollan
mat og hefðum í alla staði nóg að
bíta og brenna. En munaður var
eitur í hans beinum. Aldrei var vín
á borðum heima enda neytti hann
þess nánast ekki.
Taugakerfi hans var ókyrrt eins
og er með listamenn, en bömum
sýndi hann ótrúlega þolinmæði.
Honum fannst böm spennandi, þau
voru eins og óútsprungin blóm.
Hann var velviljaður maður að
mörgu leyti og hafði samúð með
öllum þeim sem honum fannst eiga
bágt. Hann var alltaf að gefa, en
það var eins með þakkimar og hrós-
ið. Honum virtist þykja óþægilegt
að láta þakka sér.
Á uppvaxtarárunum fann maður
kröfur umhverfisins vegna þess
hvaða föður maður átti. Það gat
verið erfitt að rísa undir því. Ég
hætti í menntaskóla og ákvað að
snúa mér að málaralistinni.Þeim
mislíkaði það í upphafí. En sýndu
því fljótlega skilning og studdu
mig. Enda myndlist og skáldskapur
skyld, felst í báðum listgreinum að
segja frá upplifun. Og pabbi fékkst
við að teikna sjálfur og hlaut að
skilja mína sköpunarþörf.
En faðir minn var auðvitað ekki
alfullkominn frekar en aðrir menn
og átti til að vera bæði eigingjam
og erfiður. Vinnan var honum allt
og hann krafðist fullkominnar til-
litssemi af okkur, þegar hann var
að skrifa. Við urðum að læðast um
og máttum ekki raska ró hans. Oft
fór hann í burtu í nokkrar vikur
eða lengur ef hann var upptekinn
við verkefni, sem honum fannst
mikið ríða á, að hann fengi næði
að vinna við. Seinna reisti hann
lítinn kofa á Nörholm og vann þar.
Þá var eins gott að við krakkamir
værum ekki með háreysti í grennd-
inni.
Var hann glaðsinna maður? Ja,
ég hef kannski aldrei almennilega
hugsað út í það. Hann var traustur
maður og greiðasamur. Á góðum
stundum var hann manna kátastur,
hló hátt og skemmti sér. En hann
var ekki allra. Hann gat verið fljót-
ur upp, reiddist illa, móðgaðist .
En oftast var hann fljótur að
gleyma. En hann var um margt
flókinn persónuleiki og andstæð-
umar toguðust á í skapgerð hans
og skaplyndi.
Þó átti hann til biturð. Sú beizkja
kom sérstaklega fram á andstreym-
isámnum, þegar hann var orðinn
gamall. Þær aðstæður, sem urðu
til, að foreldrar mínir vom ekki
samstíga um hríð, og kemur fram
í „Grónar götur" fengu mjög á
hann. En sem betur fer náðu þau
saman aftur og síðustu ár hans,
vom báðum ljúf. Móðir mín var ung
leikkona, hann miðaldra og viður-
kenndur rithöfundur þegar þau
kynntust. Samband þeirra var djúpt
og náið. Hún hætti að leika, en hún
var listamaður í sér og skrifaði
nokkrar bamabækur, og svo seinna
bók um sambúð þeirra, sem hlaut
miklar undirtektir.. Alla tíð var hún
þungamiðjan í lífi hans.
Eftir að þau giftust skrifaði
hann margar merkustu bækur
sínar. Enda búrekstur og bamaupp-
eldi á herðum móður minnar. Og
henni þakkaði hann, að hann gat
stundað það sem hann þurfti. Að
skrifa. Augljóst er að bækur hans
höfða ekki síður til lesenda nú en
áður og það á við um flestar bækur
hans.Eg hygg hann hafi gengið
mjög í smiðju íslendingasagnanna
og lært af þeim. Hann virti mest
allra íslendingasögumar. Og biblí-
una. Og þegar út í það er hugsað
held ég að hefðbundnar landslag-
slýsingar séu mjög sjaldgæfar í
bókum hans, fremur en í Islend-
ingasögunum og í biblíunni. En
samt hefur lesandi hans mjög ríka
tilfinningu fýrir því sviði sem sög-
umar gerast á.
Ég man þegar hann varð sjötug-
ur og vildi ekki vera heima. Ég og
foreldrar mínir keyrðum til litils
þorps í Suður Noregi og vorum þar
i ró og næði. Pabbi hafði með eina
bók, Snorra-Eddu.“
Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir
í vetur bjóða þaulvanir fararstjórar Flugleiða
nýja og gamalreynda farþega velkomna til hinnar
fögru eyjar GRAN CANARIA, þar sem náðugir
dagar fara í hönd á þægilegum gististöðum,
íslenskum Kanaríförum að góðu kunn, t.d.
San Valentin Park, Bungalow Holican og
Bungalow Princess. Nýtt íbúðahótel bætist í
hópinn, Corona Blanca.
Beint flug án miliilendinga til Gran Canaria:
Sunnudaginn 01.11 ’87 27 daga ferð
Föstudaginn 27.11 ’87 3ja vikna ferð
Föstudaginn 18.12 ’87 3ja vikna ferð
Föstudaginn 08.01 ’88 3ja vikna ferð
< Föstudaginn 29.01 ’88 3ja vikna ferð
3 Föstudaginn 19.02 ’88 3ja vikna ferð
° Föstudaginn 11.03 ’88 2ja vikna ferð
« Föstudaginn 25.03 ’88 2ja vikna páskaferð
< Föstudaginn 08.04 ’88 2ja og 3ja vikna ferðir
með heimflugi um London*
*Tvær nætur í London og er gistingin ekki innifalin í
neðangreindu verði. Möguleiki er að framlengja dvölina í
London.
Verðdæmi: Miðað er við tvo í íbúð.
Flugvallarskattur er ekki innifalinn.
# Frá kr. 44.777 á mann í íbúð á Corona
Blanca í 27 daga, 1.-27. nóv.
# Frá kr. 37.376 á mann í íbúð á Corona
Blanca í tvær vikur.
Brottfarir 11. og 25. mars 1988 og 8. apríl 1988.
Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni;
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIDIR
fyrír þig
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVM
- fólk sem kann sitl fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900
Aðalstræti 9, Sími: 28133 Feríaskrifslola Snorrabraut 29 Simi 26100
OTUHTkC
Hallveigarstíg 1, Sími: 28388
_______________
FERÐASKRIFSTOFAN
POLARIS
Kirkjutorgi4 Sími622 011
.•i.ifiimiuuiiUdiiiHiiíimUiliiiiUijJillUlLiiiii: