Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
B 9
Æskan 90 ára
eftir ÓlafHauk
*
Arnason
Á morgun eru 90 ár síðan fyrsta
tölublað Æskunnar kom út. 90 ár
eru ekki ýkja langur tími í sögu
þjóðar. Fram undir síðustu aldamót
tók þjóðlífíð yfírleitt ekki markverð-
um breytingum á einni öld eða svo.
En um þessa níu áratugi gegnir
nokkuð öðru máli.
íslendingar eru nú meira en
þrisvar sinnum fleiri en þegar böm-
um og unglingum barst Æskan í
fyrsta sinn. Öll þjóðin var þá all-
miklu fámennari en Reykvíkingar
eru nú, enda þeir 18 sinnum fleiri
á vorum dögum en þá. Meginhluti
þjóðarinnar átti þá heima í sveit en
nú alast flest böm upp í þéttbýli.
Enginn bíll var þá á íslandi og
draumurinn um að fljúga um loftin
blá jafnfjarri og á dögum Ikarosar.
Landssíminn var ekki kominn en
þó í augsýn, útvarp og sjónvarp
langt undan. Orð eins og mengun
og kjamorka urðu ekki til fyrr en
áratugum síðar. Tilraun var gerð
með útgáfu dagblaðs um þessar
mundir. Það varð lítið nema tilraun-
in og hálfur annar áratugur leið
þar til elsta dagblaðið, sem enn er
við lýði, bytjaði að koma út. ísland
var þá hluti Danaveldis og danski
fáninn blakti við hún í kaupstöðum
og kauptúnum við hátíðleg tæki-
færi.
Margt hefur breyst. Þó ekki allt.
„Söm er hún Esja, samur Keilir."
Og bömin em alltaf sjálfum sér lík,
og unglingamir líka þó að blind
gróðahyggjan, sem reynir að
pranga inn á þá gerviþörfum og
gervígleði, eitri líf sumra og S'v'.'pti
þá því skeiði fijórra framtíðar-
drauma sem eðlilegt er að æskuárin
séu.
Gleðilegt er og vekur vonir og
bjartsýni að blað unga fólksins skuli
hafa staðist storma og geminga-
veður breytinga og byltinga. Enn
er Æskan ung og frísk og engin
ellimörk á henni. Enn ber hún boð-
skapinn um heilbrigt líf þeim
kynslóðum sem eru að vaxa úr
grasi. Enn á hún liðsemd þeirra og
vináttu.
Oft var þörf en nú er nauðsyn
að standa vörð um böm vor, rétt
þeirra til þroska og menntunar,
rétt þeirra til að verða ekki ginning-
Ólafur Haukur Arnason
„Ef okkur er ekki alveg
sama um börn vor er
tími til kominn að
spyrna við fótum. Þar
á Æskan veigamiklu
hlutverki að g'egna.
Heill og blessun fylgi
henni og öllum íslensk-
um börnum.“
arfífl gróðalýðs, hvort heldur hann
birtist sem farvegur fyrir glæpi og
afbrigðilega kynóra niðursoðna á
myndbönd eða óheft frelsi bruggara
til að menga og eitra mannlíf og
umhverfí. Helgi Hálfdanarson,
skáldið okkar góða, sagði f blaða-
grein fyrir tveim árum: „Það er
kannski eftir öðru, að nú vilja sum-
ir fyrir hvem mun koma krökkum
upp á að þamba bjór, hvar og hve-
nær sem er, þessa alræmdu róna-
fæðu, sem siðuðu fólki býður við.“
Ef okkur er ekki alveg sama um
böm vor er tími til kominn að
spyma við fótum. Þar á Æskan
veigamiklu hlutverki að gegna.
Heill og blessun fylgi henni og öllum
íslenskum bömum.
Höfundur er áfengisvamarráðu-
nautur.
Læknastofa
Hef opnað stofu í Læknastöðinni hf., Álfheimum
74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga
milli kl. 09.00 og 17.00. Símatími þriðjudaga, milli
kl. 08.00 og 9.00 og föstudaga, milli kl. 12.30 og
13.00 í síma 33569.
Guðmundur Ásgeirsson,
sérgrein: barnalækningar.
ÞREKÆFINGAR
(HRESSINGARLEIKFIMI)
FYRIR KARLA
8 vikna námskeið hefst mánudaginn 5/10
1987 í nýju íþróttahúsi Vals við Hlíðarenda.
Námskeiðið er á morgnanafrá kl. 7.40-8.30.
Áhersla lögð á þolþjálfun, kraft og liðleika.
Ráðleggingar um mataræði, megrun ogþjálf-
un. Þolmælingar.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 84389.
Hilmar Björnsson
íþróttakennari
(■■BMHMMMUnM
ing er auglýsing sem
þú flettir ekki framhjá!
Nú bjóðum við þér þetta
stórgóða 20" litsjónvarp frá
GoldStcir
á sérstöku Gullstjörnutilboði!
Þú klippir bara út
meðfylgjandi afsláttarávísun
og notar hana til kaupa á
þessu ákveðna sjónvarpi.
20" Goldstar CBZ-9225
kostar í dag aðeins
35.600,- krónur, eða
29.980,- krónur gegn
staðgreiöslu. Líttu á
meðfylgjandi töflu er sýnir
hugsanleg greiðslukjör sem
þér bjóðast. Afslátturinn
dregst svo frá heildarverði
sjónvarpsins.
Betra getur það ekki verið!
Greiöslukjör: Lánstlmi: Útborgun:
Raógreióslur VISA 12 mánuöir engin
Eurokredit 11 mánuöir engin
Skuldabréf 6 mánuöir 10.000,-
007 - 0046
VÖRUNR. 20"CBZ-9225 KR.ff.óXPrT
I greiðið HéhodfiaM
skiphdlti jjjp KRÓNUR dÝliyy7l?4f5/
SÍMI 29800 . u , s „ REYKJAVÍK 607?/ 19/?f
RÁK FYRIR TðLVULETUR ■ ÞAÐ ER ÁRÍÐANDIAÐ HÉR FYRIR NEÐAN SJÁIST HVORKI
. ... 7 ... ... ......... .....
: iiiUUkbsnuAðiti .6f.3on
.f>löv0iö(,la 6iv innoUbied i nqov
ÞESSI AUGIÝSING ER UNNIN 1MACINTOSH PLUS TÓLVU FRÁ RADlÓBÚÐINNI