Morgunblaðið - 09.10.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Sláturfj árflutning-
ar úr Brokey á Breiða-
firði til Stykkishólms
Stykkishólmi.
BROKEYINGAR komust í hann krappan við flutning á sláturfé úr
Brokey í Stykkishólmi á mánudaginn var. Hugðust þeir koma fénu
til Stykkishólms en um það leyti sem þeir voru komnir meira en
hálfa leið, áttu svona hálftíma ferð á leiðarenda, var veður orðið
svo erfitt og vont að vonlaust var að halda ferðinni áfram. Farmur-
inn var í þrem bátum sem hafa verið notaðir til fjárflutninga og taka
á sig veður og eins og þarna stóð á var varla hægt að fara fetið.
Voru þeir þá komnir undir Skoreyjar sem eru ekki langt frá Hólmin-
um. Var því ekkert um annað að gera en leita vars og koma fénu á
beit og það var gert.
Fréttaritari átti örfá orð við Guð-
jón Hjaltalín á miðvikudag þar sem
hann ásamt félögum sínum var að
koma fénu úr bátunum upp í flutn-
ingabíl á bátabryggjunni. Hann
sagði að þetta hefði verið það eina
sem þeir gátu gert á mánudaginn
og á þriðjudag hafi ekki verið viðlit
að ná í féð til að koma því á áfanga-
stað. En á mánudagsmorgun, þegar
veðri slotaði, hafí þeir farið til að
ná fénu og hafí það gengið vel og
um það leyti sem þeir komu inn í
eyjar hafí verið komið allt að því
logn.
„Ég held við höfum aldrei verið
í neinni verulegri hættu en það
getur alltaf farið illa þegar veður
er vont og við með svona þungan
og erfiðan flutning, en þetta fór
allt vel. Við vorum 5 saman og allt
samhentir menn,“ sagði Guðjón.
í Brokey hefír ekki verið vetrar-
dvöl í nokkur ár. Féð hefír gengið
þama sjálfala en fylgst með því
vel. Bræðumir Vilhjálmur og Jón
Hjaltalín bjuggu seinastir þarna.
Vilhjálmur er kominn yfír áttrætt
og Jón yfír nírætt. Hvort byggðin
verður lögð þama alveg í eyði seg-
ir landbúnaðarstefnan ef til vill
mest til um og svo eins hitt að það
em önnur viðhorf til eyjabúskapar
en áður. En hús em þar góð og við
haldið. Við eigum kannski eftir að
sjá ljós í eyjum aftur.
— Árni
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Fénu ýtt upp í fjárflutningabílinn. Bátamir sem féð var flutt í heyra brátt sögunni til. Áður vora fjár-
flutningar algengir en í dag eru þeir mjög fátíðir.
Kjötmarkaðurinn á síðasta verðlagsári:
Nautgr ipakj ötssalan j ókst um
20%, kmdaldötssalan minnkaði
loðdýrafóður 48 tonn og rýmun
nam 122 tonnum. Birgðir kinda-
lqöts í landinu vom um 2.400 tonn
samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
Framleiðsluráðs.
Framleiðsla nautgripakjöts á
verðlagsárinu var 3.211 tonn sem
er svipað og árið áður. Salan var
3.167 tonn, 538 tonnum, eða 20,5%,
meiri en árið áður. Birgðir naut-
gripakjöts vom um 980 tonn,
nokkru minni en á sama tíma árið
áður.
Framleidd vom um 2.200 tonn
af fuglakjöti, svipað og árið áður.
Salan jókst úr 1.795 tonnum í 1.935
tonn, eða um tæp 8%. Framleiðslu-
ráð áætlar birgðir fuglakjöts 575
tonn 1. september sl., en þær vom
taldar vera 320 tonn á sama tíma
árið áður. Mest var framleitt hjá
sláturhúsunum ísfugl í Mosfells-
sveit og Dímon á Hellu, 750—775
tonn hjá hvom húsi.
Vetraráætlun Ut-
sýnar komin út
75% aukning í hópferðum Útsýnar í sumar
SALA á kindakjöti á innanlands-
markaði minnkaði um rúm 500
tonn á síðasta verðlagsári. Hefur
kindakjötsneyslan ekki verið
minni um árabil. Aftur á móti
jókst sala á flestum öðrum kjöt-
tegundum, þannig að á heildina
litið varð kjötneysla landsmanna
meiri en áður. Áberandi mest var
söluaukning á nautgripakjöti,
rúm 500 tonn, eða um 20%.
Birgðir kjöts í landinu við lok
verðlagsársins, þann 1. septem-
ber síðastliðinn, voru rúm 4.000
tonn.
Út úr slátmn sauðfjár haustið
1986 komu tæp 13.000 tonn af
kindakjöti. Sala á innanlandsmark-
aði á verðlagsárinu 1986/87 var
8.695 tonn, 519 tonnum eða 5,6%
minni en árið áður, samkvæmt
skýrslu Framleiðsluráðs landbúnað-
arins. Út vom flutt nærri 4.000
tonn, á haugana fóm 111 tonn, í
Svefneyjamál:
Afgreiðsla
tafist
vegnaanna
AFGREIÐSLA svokallaðs Svefn-
eyjamáls hefur tafist hjá embætti
ríkissaksóknara, vegna anna við
embættið.
Mál þetta kom upp þegar sambýl-
isfólk var kært fyrir kynferðislega
misnotkun stúlkna, sem höfðu dval-
ið hjá þeim í sumarbúðum. Að sögn
Hallvarðs Einvarðssonar, ríkissak-
sóknara, hafa annir tafíð afgreiðslu
málsins. Hann sagði þó, að nú færi
að styttast í afgreiðslu.
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn
hf. hefur gefið út glæsilega lit-
prentaða _ vetraráætlun
1987/1988. Átælun þessi er 32
bls. að stærð og prentuð i miklu
upplagi.
I inngangsorðum undir fyrir-
sögninni „Ferðavetur framundan"
er spáð miklum ferðalögum íslend-
inga í vetur. Þar segir:
„Allt bendir tii að íslendingar
verði á faraldsfæti í vetur. Nú er
Áreitti börn
MAÐUR sýndi böraum kynfæri
sín við Hólmgarð á miðvikudag.
Þegar lögreglan kom á vettvang
var maðurinn horfinn og hefur
ekki náðst til hans enn.
Það var skömmu fyrir kl. 21 á
miðvikudagskvöld sem maðurinn
áreitti bömin í almenningsgarði á
milli Hólmgarðs og Hæðargarðs í
Reykjavík. Bömin létu þegar vita
af þessu og var kallað á lögregl-
una. Þegar hún kom á vettvang var
maðurinn á bak og burt.
lokið góðu sumri í ferðalögum
landsmanna. Hjá okkur í Útsýn
jókst íjöldinn í hópferðum sumars-
ins um 75% frá sumrinum 1986,
sem engu að síður var annasamt.
Lífsmynstur íslendinga hefur
tekið öram breytingum á undanf-
ömum áram. Hluti af þeim breyt-
ingum felst í því að landsmenn
gera vaxandi kröfur til þess að
hafa tök á að ferðast til annarra
landa, kynnast framandi þjóðum og
víkka sjóndeildarhringinn. Bættur
kaupmáttur og auknar ráðstöfunar-
tekjur að undanfomu gera fleiram
kleift að láta ferðadraumana ræt-
ast.
í vetraráætlun kynnum við ykkur
ýmsa möguleika til að stytta
skammdegið.
Hér er um ýmsar nýjungar að
ræða, en við höldum einnig tryggð
við hefðir sem skapast hafa á und-
anfömum áram. Utsýn býður allar
hugsanlegar stórborgarferðir,
leiguflug í sólina á Spáni, skíðaferð-
ir — jafnvel til Spánar. Kanaríeyjar
og Madeira era á sínum stað,
Florida með vaxandi þunga, svo og
Bandaríkin í heild og Karabíska
hafíð svo nokkuð sé nefnt. Við
skyggnumst inn í öll heimsins hom
eins og best sést á því að Heims-
reisuklúbbur Útsýnar heldur alla
leið til Kína í vetur.
Hjá okkur situr þjónustan í fyr-
irrúmi. Hún er byggð á aldarþriðj-
ungs reynslu og samböndum sem
eiga að tryggja viðskipavinum Út-
sýnar besta verðið.
Við fögnum ferðavetri framund-
an og bjóðum ykkur velkomin —
með Utsýn um allan heim."
Vetraráætlun Útsýnar liggur
frammi á ferðaskrifstofunni í Aust-
urstræti 17 og hjá umboðsmönnum
um land allt.
(Fréttatilkynning'.)
Út úr slátran á svínum komu
1.915 tonn af svínakjöti á verðlags-
árinu, 122 tonnum meira en árið
áður. Heildarsalan á árinu var
1.950 tonn, sem er 181 tonni, eða
10,2%, meira en árið á undan.
Birgðir minnkuðu á árinu og vora
25 tonn í lok verðlagsársins.
Framleiðsla og sala á hrossakjöti
minkaði heldur á árinu. Framleiðsl-
an var 706 tonn og salan 710 tonn,
og minnkaði salan um 6,1% frá
árinu á undan. Birgðir vora 57 tonn
í lok verðlagsársins, 11 tonnum
minni en við upphaf ársins.
Kjötneysla á Islandi hefur aukist
á undanfömum áram. Á síðasta
verðlagsári vora seld 16.457 tonn
af helstu kjöttegundum, nærri 300
tonnum meira en árið áður. Sam-
svarar kjötneyslan nærri 67 kg á
hvert mannsbam í landinu. Arið
1983 var hún rúmlega 63 kg á
mann.
Innanlandssala á kindakjöti á
verðlagsárinu samsvarar 35,6 kg á
mann, en var um 44 kg árið 1983.
Enn er kindakjötsneyslan þó meira
en helmingur af kjötneyslu lands-
manna. Nautgripakjötið sótti mjög
á á árinu, var 12,5 kg á móti rúm-
um 9 kg árið 1983. Neysla á svína-
og fuglakjöti eykst stöðugt. Á
síðasta ári samsvaraði sala svína-
kjöts um 8 kg á mann og fuglakjöts
um 7,9 kg á mann, samanborið við
rúmlega 3 kg hvor tegund árið
1983. Hrossakjötsneyslan hefur
verið 3—3,5 kg á mann undanfarin
ár en fór niður í 2,9 kg á síðasta ári.
Satnbandshús-
in keypt fyrir
280 milljónir
SAMKOMULAG hefur náðst um kaup ríkissjóðs á húsnæði Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga við Sölvhólsgötu i Reykjavík og
Lindargötu, þe. Sambandshússins og Edduhússins svokallaða, og er
stefnt að því að undirrita kaupsamning í dag. Hvorugur aðilinn
hefur viljað gefa upp kaupverð en samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er það 280 milljónir króna. Reiknað er með að þessi kaup
borgi sig á 10 áram en fyrirhugað er að flytja í húsin ráðuneyti sem
hingað til hafa verið f leiguhúsnæði.
Gólfflötur húsanna er alls 5800
fermetrar, þar af er Sambandshúsið
um 4100 fermetrar. Gert er ráð
fyrir að Sambandið rými húsin að
ári liðnu frá undirritun samningsins
en opið er í samkomulaginu að
Sambandið getur rýmt hluta hús-
anna fyrr, eða leigt hluta þeirra
lengur.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins bauð fjármálaráðuneytið
upphaflega 210 milljónir í húsið en
Sambandið vildi fá yfír 100 milljón-
um meira. Lengi virtist sem ekki
næðist saman því bilið breikkaði
frekar en hitt við endurmat tilboð-
anna, en síðan komst skriður á
viðræðumar.
Gert er ráð fyrir að Sambandið
flytji bækistöðvar sínar í Kópavog
en viðræður hafa staðið yfír við
eigenda Smárahvammslands um að
Sambandið kaupi þar 25 hektara.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Kjartan P. Kjartansson forstöðu-
maður fjármáladeildar Sambands-
ins að ekki hefði enn verið skrifað
undir neina samninga við eigendur
Smárahvammslands í Kópavogi
ekki yrði skrifað undir neinn kaup-
samning nema rætt hefði verið
formlega við borgarstjóra Reykja-
víkur áður.
Ríkisstjórnin fól íjármálaráð-
herra í sumar að ná samkomulagi
um kaup á skrifstofuhúsi Sam-
bandsins. Fyrirhugað er að þangað
flytjist þau ráðuneyti sem ekki hafa
verið hýst við Amarhólinn, heil-
brigðis og tryggingarmálaráðu-
neytið, utanríkisráðuneytið,
landbúnaðarráðuneytið, félags-
málaráðuneytið og samgönguráðu-
neytið. Einnig mun menntamála-
ráðuneytið fá þar inni með
skrifstofur sínar. Þessi ráðuneyti
hafa hingað til verið í leiguhúsnæði.