Morgunblaðið - 09.10.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
29
iÞingflokksfundur Sjálfstæðisflokksins:
FRAMBJÓÐANDI í EMBÆTTIFORSETA
SAMEINAÐS ÞINGS VALINN í DAG
ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðisflokksins mun í dag velja
frambjóðanda til embættis forseta Sameinaðs þings,
en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er útlit fyr-
ir að kosið verði á milli Þorvaldar Garðars Kristjáns-
sonar, sem gegndi embætti forseta Sameinaðs þings
síðastliðið kjörtímabil, Ragnhildar Helgadóttur, sem
gegndi ráðherrastarfi og Salóme Þorkelsdóttur, sem
gegndi embætti forseta efri deildar síðasta kjörtíma-
bil.
Landssamband sjálfstæðis- ályktanir fyrir skömmu, þar
kvenna og einstök félög sjálf- sem mikil áhersla var lögð á
stæðiskvenna sendu frá sér það að kona yrði valin í emb-
ætti forseta Sameinaðs þings. þingmennina þijá um kosn-
Morgunblaðið ræddi í gær við ingu forseta Sameinaðs þings.
„Ekki frambjóðendur
karla eða kvenna“
RAGNHILDUR Helgadóttir var
spurð að þvi hvort hún teldi ekki
meiri líkur á þvi að kona yrði
kjörin í þingflokknum ef sam-
staða hefði verið milli hennar og
Salóme um eina konu í framboði.
„Þingflokkurinn," svaraði Ragn-
hildur, „ákveður hver verður
frambjóðandi flokksins í embætti
forseta Sameinaðs þings, slíkt
semja einstakir þingmenn ekki um
sín á milli."
Þá var hún spurð að því hvort
hún teldi óeðlilegt í tilefni af áskor-
„Undir eigin atgervi
komið að tækifærið
verði að veruleika“
ÞORVALDUR Garðar Kristjáns-
son var fyrst spurður að þvi
hvort það væri óvanalegt að sami
maður gegndi forsetaembætti
tvö kjörtímabil i röð.
„Það fer eftir atvikum," svaraði
Þorvaldur Garðar, „stundum kemur
fyrir að sami maður gegni forseta-
embætti aðeins eitt kjörtímabil.
Fyrir því geta verið ýmsar ástæð-
ur. Flokkur viðkomandi forseta
kann að hafa misst hald á forseta-
embættinu, svo sem vegna þess að
flokkurinn sé kominn í stjómarand-
stöðu. Þá getur verið að sá sem
hefur gegnt forsetaembættinu geti
ekki gert það nema eitt kjörtíma-
bil, svo sem vegna þess að hann
hafí tekið við ráðherraembætti eða
jafnvel horfið af þingi. Ef forseti
hefur ekki gegnt starfí slnu sem
skyldi kann að vera að flokkur hans
vilji ekki hafa hann áfram annað
kjörtímabil sem forseta og kjósi
annan mann I hans stað sem álitinn
er betri. Hins vegar er það svo að
maður sem talinn er hafa gegnt
forsetaembætti stórlýtalaust er
endurkjörinn forseti annað
kjörtímabil ef atvik ekki hamla.
Kann þá sami maður að vera for-
seti ekki aðeins tvö kjörtímabil,
heldur lengur og eru þar um dæmi
fyrr og síðar.“
Þorvaldur Garðar var síðan
spurður að því hvort hann teldi
óeðlilegt að aðrir þingmenn Sjálf-
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
stæðisflokksins fengju nú tækifæri
til að gegna þessari stöðu. „Það
þarf ekki að vera," svaraði hann.
„Hver og einn á hins vegar að eiga
það undir eigin atgervi að tækifær-
ið verði að raunveruleika ef gengið
er út frá að viðkomandi þingflokkur
kappkosti að velja hveiju sinni
hæfustu menn til starfans."
Salóme yrði frambjóðandi með til-
liti til þess að hún sjálf hefði gegnt
ráðherraembætti sl. 4 ár. „Það er
auðvitað ekkert óeðlilegt," svaraði
Ragnhildur, „en í þingflokknum eru
menn ekki frambjóðendur karla eða
kvenna, heldur taka menn þau störf
sem þingflokkurinn felur þeim. Við
erum báðar þingmenn fyrir stór
kjördæmi og kjósendur okkar eru
væntanlega bæði karlar og konur,
SALOME Þorkelsdóttir var einn-
ig spurð að þvf hvort hún teldi
ekki meiri líkur á því að kona
yrði kjörin f þingflokknum ef
samstaða hefði verið milli hennar
og Ragnhildar um eina konu f
framboði.
„Ég lít svo á að það sé ekkert
óeðlilegt að þingflokkurinn geti
valið þann þingmann sem hann tel-
ur heppilegt að gegna starfí forseta
Sameinaðs þings nú,“ sagði Salome.
„Ástæðan fyrir því að ég gef kost
á mér er áskorun og hvatning sjálf-
stæðiskvenna, en þær hafa lagt
mikla áherslu á að kona verði valin
að þessu sinni. Ef við erum að keppa
á jafnréttisgrundvelli, er það ekki
rétta leiðin að mínu mati að velja
eina úr fyrirfram, við viljum keppa
á jafnréttisgrundvelli."
Ragnhildur Helgadóttir
en úrslit þessa máls ráðast á þing-
flokksfundi á morgun og þar mun
ég lýsa minni afstöðu."
Salome Þorkelsdóttir
„Viljum keppa á
jafnréttísgrundvelli“
Brids
Arnór Ragnarsson
Landstvímenningur
Bridssambandsins
Eins og fram hefur komið, í út-
sendri Mótaskrá Bridssambandsins
I byijun september og í auglýsing-
um í dagblöðum, mun Bridssam-
band Islands gangast fyrir
samræmdri landskeppni í tvímenn-
ing, þar sem sömu spil eru spiluð
I öllum félögum og reiknað út sem
einn riðill, vikuna 19.—24. október
nk.
Tölvugjöfin, sem forsvarsmenn
félaganna eiga að koma til þess sem
gefur spilin til keppni, verður send
út nk. mánudag frá BSÍ. Keppnis-
gjald pr. par verður aðeins kr. 800,
sem rennur óskipt I húsakaupasjóð
Bridssambandsins. Spilað er um
tvöfaldan skammt bronsstiga í fé-
lögunum, auk þess sem efstu pör í
heildina fá gullstig og viðurkenn-
ingar frá BSÍ. Að lokinni keppni í
hveiju félagi skulu útreikningsskor-
blöðin send til sambandsins í
pósthólf 272 121 Reykjavík, sem
allra fyrst, til að sameiginlegir út-
reikningar liggi fyrir um mánaða-
mótin. Alls verða 33 númer af
spilum send út, en fyrstu 26 númer-
in gilda til landsmóts, því spila má
keppnina í öllum stærðum af riðl-
um, frá 6—16 pör pr. riðill.
Allar nánari upplýsingar varð-
andi Landsbikarkeppni Bridssam-
bands íslands ’87 eru veittar á
skrifstofu BSÍ í s: 91-689360 (Ólaf-
ur)-.
Bridsfélag Akureyrar
Að loknum þremur umferðum af
íjórum í Bautamóti félagsins, er
staða efstu para þessi: Öm Einarsson — Hörður Steinbergsson 1128
Stefán Ragnarsson — Grettir Frímannsson 1072
Pétur Guðjónsson — Frímann Frímannsson 1063
Þormóður Einarsson — Símon I. Gunnarsson 103£r
Jónas Karlsson — Haraldur Sveinbjömsson 1028
Ámi Bjamason — Kristinn Kristinsson 999
Armann Helgason — Alfreð Pálsson 997
Anton Haraldsson — Ævar Armannsson 983
Ami Arason — Tómas Karlsson 947
Stefán Gunnlaugsson, eigandi
Bautans á Akureyri mun svo af-
henda verðlaun í mótslok, þrenn
eignarverðlaun til þriggja efstu
para og að auki farandverðlaun,
sem geymd eru í matsal Bautans,
til sigurvegaranna.
Næsta keppni félagsins verður-
trúlega Landsbikarkeppnin í
tvímenningi, þriðjudaginn 20. októ-
ber en þar á eftir Akureyrarmótið
í sveitakeppni.
í dag opnum við Skógluggann eftir
stórkostlegar endurbætur
OPNUNARTILBOD
í tilefni opnnnarinnar bjóðum við öllum viðskiptavinum góðan afslátt í eina viku
(9. október - 16. október).
Þrátt fyrir miklar breytingar, verða gömlu,
góðu skómerkin áfram hjá
okkur auk nokkurra nýrra skómerkja
PABLÖ - SNOPY - ARAUTO-RAP - ROMIKA - MINIBEL
Öll börn fá blöðrur frá Skóglugganum
Krakkar - Takið pabba og
mömmu með -
SKOGUUGGINN
VITASTÍG 12, SÍM111788. VIÐ LAUGAVEG.
Leiðandi barnaskóverslun
Í20ár