Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Pálmi Gestsson og Randver Þorláksson spauga I beinni útsend-
ingu, og það er greinilegt að Jörundi er skemmt. í baksýn er
Borgarbandið: Karl Möller, Árni Scheving, og Birgir Baldursson.
Morgunblaðið/Sverrir
Slj örnuskemmtun
á Hótel Borg
Keflavík, Vestmannaeyjum og fleiri
stöðum, en þetta var fyrsti þáttur-
inn í fýrirhugaðri þáttaröð, sem á
að heita „í hjarta borgarinnar", og
verður útvarpað beint frá „Borg-
inni“. Hugmyndin er að halda því
áfram að hafa spumingakeppni, þar
sem samkeppnisaðilar í viðskipta-
heiminum etja kappi, og síðan geta
menn hlustað á lifandi tónlist og
gamanmál, hvort sem er á Hótel
Borg, eða inni í stofu heima hjá sér.
Utvarpsstöðin Stjaman gekkst
fyrir skemmtidagskrá í beinni
útsendingu frá Hótel Borg nú á
sunnudaginn. Aðalatriðið í dag-
skránni var spumingakeppni þar
sem áttust við lið frá Sanitas og
Vífílfelli, eða „Pepsí og Kók“. Auk
þess lék Borgarbandið af fíngrum
fram, og þeir Jörandur, Pálmi
Gestsson, og Randver Þorláksson
fóra með gamanmál.
Stjaman hefur áður verið með
beinar útsendingar frá Reykjavík,
Bauð vinunum
í kvöldmat
eftir lát sitt
Morgunblaðið/Sverrir
Starfsmenn Sanitas og Vífilfells skemmtu sér konunglega á skemmtidagskránni, eins og aðrir gestir.
sjóð sem á að styrkja efnilega dans-
ara til náms. Þrátt fyrir allt þetta
örlæti, mun Bob þó hafa skilið eftir
meginhluta eigna sinna og auðs
handa sínum nánustu.
Bob Fosse setti fjölmarga fræga
dans- og söngleiki á svið á Broad-
way og víðar, og hann leikstýrði
m.a. myndinni „All That Jazz“, sem
var tilnefnd til 9 Óskarsverðlauna
árið 1979, en myndin sú var í aðra
röndina sjálfsævisaga Bobs. Hann
hreppti ekki hnossið fyrir bestu leik-
stjóm í það skiptið, en hann vann
Óskarinn fyrir leikstjóm á „Cabar-
et“ árið 1973, og það sama ár fékk
hann Tony-leiklistarverðlaunin fyrir
uppsetningu á Broadway-söng-
leiknum „Pippin", og Emmy-verð-
laun fyrir að stjóma sjónvarpsþætti
Lizu Minelli - afrek sem enginn
hefur leikið eftir.
Þó að dauða Bobs hafí borið
óvænt að, þá vora vinir hans sam-
mála um að hann hefði ekki getað
hugsað sér að kveðja jarðlífíð á
annan hátt - hann dó nefnilega við
hlið konu sinnar á leið á framsýn-
ingu á endurgerð fyrsta söngleiks
síns, „Sweet Charity".
Lát danshöfundarins og leik-
stjórans Bobs Fosses nú á
dögunum var mikið áfall fyrir alla
unnendur danslistarinnar, því Bob
var aðeins sextugur að aldri, og var
enn á fullu við að semja og svið-
setja dansa. Bob vildi hins vegar
alls ekki að fólk færi að gráta lát
sitt í langan tíma, og bauð því bestu
vinum sínum í mat upp á sinn kostn-
að eftir dauða sinn.
Ekki komu miðlar, eða neins
' konar andakukl hér við sögu, heldur
vora fyrirmæli í erfðaskrá Bobs þar
sem höfðinginn skipaði svo fyrir að
25.000 dalir - eða um ein milljón
íslenskra króna - skyldu teknir frá
til að 66 nafngreindir vinir hans
gætu „fengið sér í gogginn á minn
kostnað." Ekki vitum við enn hvort
vinimir era búnir að fara í kvöld-
mat, en það hefur þá ekki verið
dónaleg samkoma, því á listanum
vora m.a. Dustin Hoffman, Liza
Minelli, Roy Scheider, Jessica
Lange, Neil Simon, og E.L. Doct-
orow.
Auk þessa ánafnaði Bob Fosse
öðram vinum sínum, og ýmsum
góðgerðarstofnunum, töluvert fé,
og ijórar milijónir fóra í að stofna
Þau Bo og John Derek segjast vera hæstánægð með að dveljast
saman öllum stundum á búgarði sinum.
Bo Derek er
ánægð í
einangrunmni
Bo Derek hugsar mikið nm
heilsuna, og eyðir miklum tíma
í að matreiða hollustufæði fyrir
sig og eiginmanninn.
álaginu sem starfínu fylgdi, en Bo
fékk hann til að taka upp heilsu-
samlegri lifnaðarhætti. Þau hjónin
taka nú lífínu með stakri ró, og
fara oft í langar ferðir á hestbaki
um fjöllin, eða fara út á sjó á segl-
skútu sinni. John er konu sinni
ákaflega þakklátur fyrir að hafa
fengið hann til að skifta um stefnu
í lífínu; „Bo kenndi mér að elska
lífíð“ segir hann.
Þau Bo og John era samt ekki
alveg sest í helgan stein, þau era
að leggja drög að nýrri kvikmynd,
og Bo segist hafa áhuga á að leika
í tveimur eða þremur myndum í
viðbót. Hún segist vilja eignast böm
einhvemtíma í framtíðinni, en í
augnablikinu er hún hæstánægð
með lífið á búgarðinum, þar sem
hún dvelur yfírleitt með John 24
Man einhver eftir Bo Derek?
Leikkonan sem sló í gegn í
myndinni „10“, og var hýllt sem
kyntákn níunda áratugarins, hefur
ekki sést á hvíta tjaldinu í langan
tíma, eftir að hafa leikið jafn
hörmuleg hlutverk og frumskógar-
konuna Jane í jafri hörmulegri
endurgerð gömlu Tarsan-mynd-
anna.
Bo segist ekki hafa lagt kvik-
myndaleik endanlega á hilluna, en
hún segist hins vegar vera hæstán-
ægð með lífíð svo lengi sem hún
fái að lifa í friði með eiginmanni
sínum, leikstjóranum John Derek.
Þeir vora fáir sem spáðu hjónaband-
inu langlífí, þegar John kvæntist
hinni 17 ára gömlu Mary Collings,
eins og Bo hét þá, fyrir fjórtán áram
síðan. Bæði var, að aldursmunurinn
á hjónunum var býsna mikill, eða
30 ár, og svo hafði John átt í erfið-
leikum með fyrri hjónabönd sín, því
Linda Evans og Ursula Andress
yfírgáfu hann báðar eftir að hann
hafði gert þær að stjömum. John
gerði Bo líka að stjömu, en hún
hljópst ekki á brott strax á eftir,
þvert á móti hefur samband þeirra
hjóna orðið nánara og betra eftir
því sem árin hafa liðið.
Bo og John búa á afviknum stað
á búgarði í fjöllunum fyrir ofan Los
Angeles, þar sem þau halda hesta
sína og hunda. „Það er rétt að við
eigum ekki marga vini,“ segir Bo,
„en samband okkar Johns er mjög
náið, og við þurfum í raun ekki á
öðram að halda.“ John var eitt sinn
vinnusjúklingur, og hann var orðinn
veill fyrir hjarta af streitunni og
Höfðinginn Bob Fosse ásamt vinkonu sinni, Lizu Minelli, sem fékk
að borða á kostnað Bobs ásamt 65 öðrum útvöldum.
tíma á sólarhring.
fclk í
fréttum