Morgunblaðið - 09.10.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞÝSKALAND
Gummersbach með fullt
hús og í sérflokki
Kristján Arason skoraði fimm gegn Nurnberg
GUMMERSBACH vann sinn
fimmta sigur í röð í bundeslig
unni í handknattleik í fyrra-
kvöld og er eitt á toppnum.
Liðið er í sérflokki þessar vikum-
ar og í 5. umferðinni tók það
Numberg í kennslustund á útivelli.
í hálfleik var staðan 12:8, en Kristj-
án Arason og félag-
ar unnu 23:16.
Jóhannilnga Kristján átti góðan
Gunnarssyni leik, skoraði fímm
i -Þýs aan i mörk og þar af tvö
úr vítaskotum, en línumaðurinn
Fitzek skoraði sjö mörk fyrir
Gummersbach. Stjepan Obran frá
Júgóslavíu var markahæstur hjá
Numberg með fímm mörk og þar
af fjögur úr vítaskotum.
PállgóAur
Páll Ólafsson var meiddur en lék
engu að síður með Dusseldorf, er
liðið vann Kiel 18:16 eftir að Kiel
hafði leitt 11:7 í hálfleik. Páll hélt
Waszkiewicz algerlega niðri og
skoraði Pólverjinn ekki mark, en
Páll skoraði tvö. Kiel náði fímm
marka forystu í seinni hálfleik, en
vöm Diisseldorf tók þá við sér og
sóknin gekk upp, liðið skoraði 10
mörk gegn einu á tímabili og sigr-
aði.
Óvæntustu úrslit umferðarinnar
urðu í Dortmund, þar sem heima-
menn unnu Grosswallstadt sann-
gjamt 27:24 eftir að hafa leitt 11:8
í hálfleik. Fyrir keppnistímabilið var
ekki búist við miklu af hinum ungu
leikmönnum Dortmund, en þeir
hafa sýnt að ekki má dæma menn
fyrirfram — em nú í 5. sæti. Kulas
skoraði sex mörk í leiknum, þar af
þrjú úr vítaskotum, en Kovacs og
Bussmeyer skoruðu fímm mörk
hvor. Schwalb var atkvæðamestur
hjá gestunum með sex mörk, þar
af þijú úr vítaskotum. Leikurinn
var mjög hraður, mörg mörk skor-
uð, en engu að síður voru mark-
menn beggja liða bestu menn
vallarins.
SigurAur moA átta mörfc
Sigfurður Sveinsson var markahæst-
ur að vanda hjá Lemgo og skoraði
átta mörk, fjögur úr vítum, en þau
dugðu ekki til, því liðið tapaði 20:17
fyrir Essen eftir að staðan hafði
verið 8:8 í hálfleik. Essen náði fljót-
lega fjögurra marka forskoti eftir
hlé og hélt fengnum hlut — fyrsti
heimasigur liðsins á þessu tímabili.
Kubitzki var markahæstur með sjö
mörk, ljögur víti, en Alfreð Gíslason
skoraði fímm mörk og hefur oft
leikið betur.
Schwabing vann Hofweier 21:16,
þar sem góður vamarleikur heima-
manna sat í fyrirrúmi. Schuppler
var þeirra markahæstur með sex
mörk, en Elezovic skoraði fjögur
fyrir Hofweier.
Kamia kempan Klempel skoraði 14
mörk (þijú úr vítum), er Göppingen
vann Milbertshofen 22:21. Wund-
erlich skoraði 11 mörk fyrir Mil-
bertshofen (átta úr vítum), sem
tapaði sínum þriðja leik í röð og
Gagin skoraði fjögur mörk.
Wallau-Massenheim vann Dorma-
gen 20:19 eftir að staðan hafði
verið 10:6 í hálfleik. Finninn Káll-
mann skoraði fímm mörk fyrir
heimamenn, en Vukoje var at-
kvæðamestur í liði landsliðsþjálfar-
ans með sjö mörk, þar af fímm úr
vítaköstum.
Morgunblaðiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson
SigurAur Svelnsson er með markahæstu mönnum í þýsku bundesligunni
í handknattleik og skoraði átta mörk gegn Essen.
tönm
FOLX
■ MARK La wrenson hefur ekki
náð að tryggja sér sæti í liði Li-
verpool eftir að hann náði sér af
meiðslum, sem hann átti lengi við
að stríða. Lawrenson sagði i gær
að hann ætti erfitt uppdráttar
hjá Liverpool og væri tilbúinn til
að skipta um félag og fara suður
á bóginn. Atti hann þar við Sout-
hampton, en félagið vill fá írann.
" tl TONY Cottee, miðheiji West
Ham hefur verið settur í lands-
leikjabann fram í byijun febrúar
á næsta ári. Cottee var vikið af
velli í vináttuleik gegn Vestur-
þýskalandi í síðasta mánuði og
enska knattspymusambandið sætti
sig ekki við það.
■ JOHN Lyall, framkvæmda-
stjóri West Ham, sem hefur verið
lengur í sama starfínu en nokkur
annar framkvæmdastjóri í 1. deild
á Englandi eða 13 ár, var mjög
gagnrýndur eftir 5:2 tap liðsins
gegn Bamsley í deildarbikarkeppn-
inni. Stuðningsmenn West Ham
sættu sig alls ekki við tapið og
£>urfti Lyall að fara í lögreglufygld
af vellinum. West Ham er einnig
neðarlega í 1. deild, en Lyall situr
sem fastast og var málið ekki einu
sinni rætt á stjómarfundi félagsins
í gær. West Ham hefur aðeins
haft fímm framkvæmdastjóra í 87
ára sögu félagsins, enginn þeirra
hefur verið rekinn og félagið vill
halda þessu meti.
■ HSÍgaf í vikunni út sitt fyrsta
fréttabréf á þessu ári og er það
helgað málefnum fræðslunefndar
sambandsins. Framkvæmdastjóri
HSÍ, Guðni Halldórsson, er jafn-
' framt ritstjóri fréttabréfsins, sem
stefnt er að komi út mánaðarlega.
■ JORGE Valdano, argentíski
landsliðsmaðurinn í knattspymu,
sem búið hefur á Spáni í 10 ár,
hefur loks fengið spænskan ríkis-
borgararétt. í fótboltanum er samt
enn litið á hann sem útlending og
því má Real Madrid ekki nota
hann á meðan Hugo Sanchez og
Milan Jankovic eru í liðinu. Þetta
kemur frekar spánskt fyrir sjónir
og er víst að Valdano og Real
Madrid munu gera allt sem hægt
er til að ekki verði troðið á rétti
Spánveijans frá Argentínu og litið
á hann sem aðra þegna landsins.
■ REAL Madríd á við fleiri
vandamál að stríða. Sem kunnugt
er varð liðið að leika heimaleik sinn
gegn Napólí í 1. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða fyrir luktum
dyrum vegna óláta á leik liðsins
gegn Bayem MUnchen á siðasta
keppnistímabili. Upphaflega var
Real dæmt til að leika tvo leiki í
Evrópukeppni fyrir luktum dyrum,
en dómurinn hefur verið mildaður
— liðið verður að leika næsta heima-
leik í 350 km fjarlægð frá Madríd.
Liðið dróst gegn Porto frá Port-
úgal í annarri umferð og fer fyrri
leikur liðanna fram 21. október í
Valencia á Spáni.
■ ENZO Scifo leikur ekki með
Belgum gegn Skotum í Evrópu-
keppni landsliða í næstu viku. Guy
Thijs, landsliðsþjálfari, tilkynnti
hóp sinn í gær og sagði að Scifo
væri ekki í leikæfingu. „Hann lék
illa gegn Búlgaríu í síðasta mánuði
og var varamaður hjá Milan um
helgina," sagði landsliðsþjálfari
Belga, sem verður einnig án Jean-
Marie Pfaff, markvarðar, en hann
er meiddur.
■ BAYERN MUnchen vill fá
enskan miðheija í sínar raðir. í
sumar reyndu vestur-þýsku meist-
aramir að fá Mark Hateley, en
hann fór til Mónakó. Þá hafa þeir
árangurslaust gert hosur sínar
grænar fyrir Mark Hughes, og vilja
fá hann lánaðan frá Barcelona út
keppnistímabilið. Því ætlar Jupp
Heynckes, þjálfari Bayern að
horfa á leik Danmerkur og Wales
í næstu viku. En sá sem félagið
vill helst fá núna er Clive Allen.
Hann verður hins vegar ekki laus
Srr en í vor.
I GORDON Duríe skoraði öll
Gordon Durle, sem er fyrir miðju á myndinni, skoraði fjögur mörk fyrir
Chelsea í 2. umferð í deildarbikamum, en allt kom fyrir ekki — Chelsea féll
úr keppninni. Til hægri við hann er Mirandinha frá Brasilíu, sem hefur lofað
20 mörkum í vetur fyrir Newcastle.
§ögur mörk Chelsea í leikjunum
tveimur gegn Reading í 2. umferð
ensku deildarbikarkeppninnar, en
þau nægðu ekki til að komast
áfram. Chelsea vann seinni leikinn
3:2, en Reading þann fyrri 3:1.
■ IAN Rush gengur frekar illa
að aðlagast á Ítalíu. Hann segist
sakna félaganna og fjölskyldunnar
í Englandi, ítalskan er vandamál
og eina fólkið sem hann nái sam-'
bandi við séu Michael Laudrup og
frú, sem tala ensku.
■ AGANEFND knattspymu-
sambands Evrópu fjallaði í gær um
atvik, er gerðist eftir seinni leik
Vals og Wismut Aue í fyrstu um-
ferð Evrópukeppni félagsliða. Þá
kastaði áhorfandi dós í einn leik-
mann þýska liðsins og gaf eftirlits-
dómarinn skýrslu um málið. Ekki
hafði frést af fu.idinum seint í
gærkvöldi, en Ellert B. Schram,
formaður KSÍ á sæti í aganefndinni
og vonandi hefur hann getað forðað
Valsmönnum frá því að fá sekt.
U-21 LIÐIÐ
Haraldur
og Einar
í hópnum
Haraldur Ingólfsson ÍA og Einar
Páll Tómasson Val em í lands-
liðshópnum, sem skipaður er
leikmönnum tuttugu og eins árs og
yngri, en liðið leikur við Tékka í
næstu viku eins og greint var frá
í Morgunblaðinu í gær. Þeir vom
valdir í stað Andra Marteinssonar
KR, sem gaf ekki kost á sér vegna
atvinnu sinnar, og Hlyns Birgisson-
ar í Þór. Að öðm leyti er hópurinn
eins og áður var sagt frá.
GOLF
Bænda-
glíma GR
Bændaglíma Golfklúbbs
Reykjavíkur sem fresta varð
um síðustu helgi fer fram í Grafar-
holti á morgun, laugardag. Leikið
verður með hefðbundnum hætti og
hefst keppni kl. 14.00.
Skólamót
ígolfi
Skólamót í golfí verður haldið í
Grafarholti á sunnudaginn.
Ræst verður út frá kl. 09.00 til
10.30.
Þetta er í þriðja sinn sem slíkt skóla-
mót er haldið. Keppnin að þessu
sinni er einstaklingskeppni með og
án forgjafar eins og á síðasta ári,
auk þess verður um sveitakeppni
að ræða. Þrír verða í hverri sveit
en tveir telja. Hver skóli má senda
eins margar sveitir og óskað er.
Nánari upplýsingar um mótið gefur
Karl Ómar í síma 74854.