Morgunblaðið - 11.10.1987, Side 30

Morgunblaðið - 11.10.1987, Side 30
78GMÖMUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR >11: OKTÓBER'1987 30 Lambslifur Nú er sláturtíð og við fáum góða, holla og ljúffenga lifur fyrir lítið verð. Að þessu sinni verður boðið uppá ýmsa lifrarrétti í þess- um þætti. Lifur má matreiða á ótal vegu. Eitt ættum við þó allt- af að hafa í huga, en það er að skera hana þunnt. Þykkir lifrar- bitar eru ekki lystugur matur. Lifur er hollur matur með miklu jámi, A- og B-vítamíni, já, það er jafnvel C-vítamín í lifur. Við ættum helst að borða eitthvað grænmeti eða ávexti með lifrinni, eitthvað sem er C-vítamínauðugt, en C-vítamínið hjálpar okkur að nýta járnið. Mörg böm láta illa við lifur, en er það ekki vegna þess að hún ef of þykkt skorin og soðin of lengi. Lifur má ekki sjóða nema í örfáar mínútur. Ann- ars_ verður hún hörð. Ég á þriggja ára gamalt bama- bam, sem virðist lifa á loftinu einu saman, en hún er mjög neyslugrönn, já, jafnvel svo, að maður undrast að bamið skuli vera á lífi og halda heilsu. En þegar á borðum er lifrarpylsa eða steikt lifur, tekst barmð á loft og borðar með góðri lyst. Ég er sann- færð um að lifrin, sem bamið fær a.m.k. einu sinni í viku, á sinn þátt í því að bamið er við góða heilsu. Nú er hægt að fá mjög góða lifrarkæfu í hverri búð, og ætti fólk að gefa bömum sínum lifrar- kæfu á brauðið, og fullorðna fólkið ætti líka að borða lifrar- kæfu. En við þurfum ekki alltaf að kaupa lifrarkæfuna. Það er hægur vandi að búa hana til sjálf- ur. Við getum síðan geymt h na í frysti. Heit lifrarkæfa með soðnu grænmeti og rúgbrauði er herra- mannsmatur. I Danmörku og Svíþjóð er lifrarkæfa jólamatur. Við þurfum ekki annað en fletta dönsku og sænsku blöðunum fýrir jólin, þar em alltaf uppskriftir að lifrarkæfu. Lifrarkæfan er oft soðin eða bökuð í stómm leirmót- um, en mjög hentugt er að nota álmót til að baka hana í. Lifrarbaka 400 g smjördeig (bútterdeig), 500 g lifur, ein lítil lifur, 2 eggjahvítur + 1 eggjarauða, V2 dl rasp, 1 stór laukur, 1 msk. matarolía, væn grein steinselja, V4 tsk. salvia (sage), */8 tsk. nýmalaður pipar, V2 tsk. salt, V4 dl koníak eða V3 dl þurrt sherrý, 1 eggjarauða + 2 tsk. vatn til að smyrja bökuna með. 1. Fletjið deigið út í tvo mis- stóra hringi. Setjið þann stærri inn í og upp með börmunum í bökumóti. 2. Hakkið lifrina einu sinni, setjið í skál. 3. Hitið matarolíuna í potti. Afhýðið laukinn og saxið smátt. Sjóðið laukinn í olíunni í 7 mínút- ur. Hann á ekki að brúnast. 4. Setjið laukinn með lifrinni í skálina, hrærið fyrst eina eggja- rauðu út í, setjið þá raspið út í, síðan allt eggið og loks steinselju, salvíu, pipar og salt. 5. Hrærið koníakið eða sherrý- ið hægt út í. 6. Setjið lifrarmaukið á böku- botninn. Leggið minni deighring- inn ofaná. Pikkið síðan lokið með grófum pijóni. Þrýstið deiglokinu og botninum saman á börmunum. 7. Hrærið eggjarauðuna út með vatninu, smyijið því á bök- una. 8. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn í 180°C. Setjið bök- una í miðjan ofninn og bakið í 25—30 mínútur. Meðlæti: Hrásalat með sýrðum rjóma eða jógúrt. Einnig er gott að bera krydd smjör með þessu. Kartöflupönnukaka með lifur 4 stórar kartöflur, 5 stórar sneiðar beikon, 1 msk. matarolía + 2 msk. smjör, V2 tsk. salt, nýmalaður pipar, 1 lifur, u.þ.b. 500 g, 2 msk. matarolía til að steikja lifrina í, V2 tsk. salt, V8 tsk. pipar, V8 tsk. salvía (sage). 1. Afhýðið kartöflumar og rífið gróft á rifjámi. 2. Skerið beikonið í litla bita. þunnar sneiðar, fjarlægið æðar og taugar. 2. Afhýðið avokadopemrnar, penslið með sítrónusafa, skerið í rif. 3. Setjið hveiti, salt og pipar í plastpoka. Setjið avokadosneið- amar og lifrarsneiðarnar í pokann. Hristið þannig að hveitið þeki allar sneiðamar. 4. Hitið smjör og steikið lifrina og avokadóið í því. Þetta magn þarf að steikja í tvennu eða þrennu lagi. Notið smjörið sam- kvæmt því. Steikið í 4—5 mínútur á hvorri hlið. 5. Setjið soðkraftsduft, vatn og sítrónusafa yfir lifrina. Sjóðið í 2 mínútur. Hrærið þá rjómaost út í. 6. Klippið steinseljuna og strá- ið yfir. Meðlæti: Soðin hrísgrjón og hrásalat. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON laukinn í, 200 g svínaspik. 1. Hitið matarolíuna í potti, afhýðið og saxið laukinn, sjóðið síðan í olíunni í 7 mínútur. Hann má ekki brúnast. 2. Skerið lifrina, kjötið og kryddsíldina í bita. Hakkið það ásamt lauk í kvörn (mixara) eða Lifrarkæfa 500 g lifur 150 g svínaspik 5 sneiðar reykt beikon 1 lítill laukur IV2 tsk. salt V4 tsk. pipar V4 tsk. savía (sage) f \ i V /1 /Vf , trí!. ^ fM V ÍÍ+-V \‘/#v . *\ 1 \\ J v t-' .1 -.4«- , JtJ \ 1 )i j* <T -’l" \l)L 3. Hitið pönnu og steikið bei- konið á henni í 4—5 mínútur. Minnkið þá hitann á pönnunni, setjið matarolíu og smjör á pönn- una. Setjið síðan kartöflumar jafnt yfir. Setjið salt og pipar yfir. Setjið lok á pönnuna og látið bak- ast í 10 mínútur. 4. Leggið hlemm yfir pönnuna, hvolfið kartöflupönnukökunni á hann. Rennið pönnukökunni síðan aftur á pönnuna og bakið í 3-4 mínútur. Setjið pönnukökuna á eldfast fat inn í heitan bakaraofn- inn. 5. Skerið lifrina á ská í ör- þunnar sneiðar. Takið úr henni taugar og æðar. 6. Hitið olíuna á pönnunni og steikið lifrina í henni í 4—5 mínút- ur á fyrri hliðinni, snúið þá við, stráið á hana salti, pipar og salvíu og steikið áfram á seinni hliðinni í 4 mínútur. 7. Leggið lifrina ofan á kart- öflupönnukökuna á fatinu, berið fram. Meðlæti: Hrásalat með eplum. Lifur með avokado 1 lifur, u.þ.b. 500 g, 2 avokadoperur, safi úr 1 sítrónu til að pensla avokadoið með, 3 dl hveiti, V2 tsk. pipar, 1 tsk. salt, 50 g smjör, safí úr V2 sítrónu, V2 tsk. soðkraftsduft, 2 dl vatn, 2 msk. ijómaostur án bragð- efna, fersk steinselja. 1. Skerið lifrina á ská í ör- Næsta uppskrift er úr bók minni 220 ljúffengir lambakjöts- réttir. Lifrarkæfa með kjöti, kryddsíld og spiki V2 lifur, u.þ.b. 350 g, 125 g magurt lambakjöt, 1 lítið kryddsfldarflak, 50 g smjör eða smjörlíki, 50 g hveiti, 3 dl mjólk, 1 tsk. salt, V2 tsk. hvitur pipar, V2 tsk. allrahanda, 1 lítill laukur, 1 msk. matarolía til að sjóða þrisvar sinnum í hakkavél. 3. Hitið smjörið, hrærið út í það hveiti, þynnið með mjólkinni. Setjið salt, pipar og allrahanda í jafninginn, síðan lifrina, laukinn og kryddsíldina. Hrærið vel sam- an. 4. Skerið svínaspikið í örþunn- ar sneiðar. Klæðið aflanga eld- fasta skál eða álmót með sneiðunum. Hellið síðan kæfunni í mótið. 5. Setjið vatn í pott, skálina í vatnið, en gætið þess, að það nái aðeins upp á helming skálarinnar. Sjóðið þannig við hægan hita í 1 klst. 6. Hvolfið á fat. 3 msk. hveiti 1 stórt egg 2 dl mjólk. 1. Hakkið lifrina, svínaspikið og beikonið í kvöm eða hakkavél. Setjið síðan í hrærivélarskál. Setj- ið salt, pipar, salvíu og hveiti út í. 2. Hrærið eggið og mjólkina saman og setjið smám saman út í, hrærið vel á milli. 3. Smyijið eldfast mót eða ál- mót. Hellið lifrarkæfunni í mótið. 4. Hitið bakarofn í 180°C, blástursofn í 160°C. Setjið mótið í miðjan ofninn og bakið í 50—60 mínútur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.