Morgunblaðið - 11.10.1987, Page 35
MORGUNBIAÐjíÐ, SUNNUDAGUH 11- OKTÓHER 1987
75ára:
Sigurður Demetz
Fæðingarvottorðið segir okkur
þetta, og við samkennarar hans
verðum að trúa því, þótt ómögulegt
sé að sjá eða finna á honum þessi
sjötíu og fimm ár.
Síðan Demetz kom til landsins
26. júlí 1955, kl. 11.45, og andaði
að séR sama fjallaloftinu og hann
þekkti heiman frá Tyrol (hans eigin
orð) hefur hann kennt íslendingum
að syngja, ekki aðeins í Reykjavík
heldur og víða um landið, og stjörn-
umar sem Demetz á í barmi sínum
og hjarta eru ekki ófáar orðnar.
Ekki skal reynt að telja upp alla
þá söngvara sem Demetz hefur
þjálfað og alið upp, síðan flugvélin
lenti á Keflavíkurflugvelli forðum
og fyrstu viðbrögð hans, þegar
hann sté á íslenzka grund, voru að
jóðla til íslensku fjallanna, sem
líklega voru of fjarri til þess að
svara á sama hátt og fjöllin heima.
Þannig heilsaði Demetz landinu og
þannig flutti hann kveðjuna frá Ít-
alíu, sem hefur dugað okkur svo
vel. Spor einstaklings virðast stund-
um skráð skýjum ofar og hefði
hljóðfæri Sigurðar ekki orðið fyrir
áfalli er ekki víst að við hefðum
notið hans. Því miður eru fáar hljóð-
upptökur til með Demetz frá hans
tiltölulega stutta en glæsilega ferli
sem óperusöngveiri, en heyrt hefur
undirritaður gamlar upptökur með
honum á atriðum úr óperum Verdis
og Wagners og efast ekki um að
hann hefði átt opna leið inn í hvaða
óperuhús í heiminum sem væri, svo
glæsilegur og stflhreinn er söngur
hans á þessum ólíku viðfangsefn-
um.
En Demetz er kennari, fæddur
kennari og sem slíkur fínnst mér
hann líkjast góðu vínunum sem
batna með árunum. Til þess að
verða góður kennari þarf mikla
reynslu, skilning og væntumþykju
til nemandans, húmor þegar það á
við og skap til þess að beita á rétt-
um augnablikum. Þessa eiginleika
alla á Demetz í ríkum mæli og er
ónískur á. Megi enn líða mörg ár
þar til Demetz hættir að veita okk-
ur af sínum eðalvínum, þá er ég
þess fullviss að hann á eftir að skila
okkur nokkrum stórsöngvurum í
viðbót. Við samkennarar þínir og
nemendur í Nýja tónlistarskólanum
hyllum þig, og þótt þú verðir að
heiman í dag, koma tímar og ráð
þegar Eyja nær þér að árum í
næsta mánuði.
Heill þér.
F.h. Nýja tónlistarskólans,
Ragnar Björnsson, skólastjóri.
Almenna bókafélag-
ið gefur út Stríðs-
fréttaljósmyndarann
JÚNÍBÓK Bókaldúbbs Almenna
bókafélagsins var Stríðsfrétta-
Ijósmyndarinn eftir A.J. Quinnel
i þýðingu Helgu Þórarinsdóttur.
Uppistaðan í efni bókarinnar er
sprengjuárás, sem ísraelskar her-
flugvélar gerðu á írakska kjam-
orkuverið í el-Tuwaitha í júní 1981.
í bókinni fléttast saman þættir úr
sögu samtímans, tilbúnar persónur
og raunverulegar, ofbeldi og blóð-
hefndir í flóknum hildarleik sem var
undanfari árásarinnar. Aðalpersóna
bókarinnar er ljósmyndarinn David
Munger. Hann hverfur sporlaust,
en enginn veit hvert.
A.J. Quinnell er höfundamafn.
Fyrsta skálsaga hans, Einfarinn,
sem kom út hjá Bókaklúbbi AB
1985, vakti mikla athygli beggja
vegna Atlandshafsins og var nefnd
til meiri háttar verðlauna.
Bókin er 271 bls. að stærð. Prent-
un annaðis Prentstofa G. Bened-
iktssonar, en bókband Félágsbók-
bandið hf.
(Úr fréttatilkynningu)
LUCERNE súkkulaðidrykkurinn er
afskaplega bragðgóður hvort sem
hann er blandaður í kalda mjólk
eða heita. Betra bragð í munninn
og góð næring í kroppinn.
ATH. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ.
ISLEIÐ h/f.
HEILDVERSLUN SÍMI 656800
Finest Quality
Sumarauki í október
2Ó. október....19 dagar
Verd frá kr- 26.300 pr. mann í fvíbýli-
Heimferö nóvember um London,
Heegt er aö framlengja dvölina þar.
Fáiðnánaríupplýsingarum verðog ferðatilhögun hjá okkur. Láttu drauminn rætast.
Njóttusóiaroghiýjuá CostaBlancaströndinni íoktóber. Góð greiðslukjör.
FERÐA
Komdu með til Benidorm
Ce+xtcat
MIÐSTOÐIIM Tccutd
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVlK ■ S. 281 33
BJARNI D./SlA