Morgunblaðið - 11.10.1987, Page 38

Morgunblaðið - 11.10.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987 4 HULDUSTRÍÐ Þegar William Casey, fv. yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), lézt í vor höfðu þingnefndir, sem rannsökuðu vopnasöluna til írans, ekki átt þess kost að yf irheyra hann. En skömmu fyrir andlátið játaði hann að hafa vitað að hagnaðurinn af sölunni hefði verið notaður til að styrkja „kontra“-skæruliða í Nicaragua, ef trúa má bók eftir Bob Woodward, frægasta „rannsóknarblaðamann“ Bandaríkjanna, sem kom upp um Watergate-málið á sínum tima ásamt félaga sínum á Washington Post. Prentuð hafa verið 600.000 eintök af bókinni, sem hefur þegar vakið deilur, og telja má að hún verði fljótlega söluhæsta bók Bandaríkjanna í flokki bóka sem ekki teljast til skáldsagna í stað . OOB \ „Njósnaveiðara“ SJMÆUR (Spycatcher) Peters Wright um brezku leyniþjónustuna. WILLIAM CASEY: „AÐALMAÐUR LEYNIAÐGERDANNA." Caseys hafi leyniþjónustan hafizt handa um viðamiklar njósna- og leyniaðgerðir og m.a. staðið fyrir morðtilraunum og reynt að múta erlendum ríkisstjómum. Mesta athygli vekur að Casey er sagður hafa fengið stjóm Saudi- Arabíu til að veita Tsjadveijum 15 milljarða dollara aðstoð í stríði þeirra við Líbýumenn, aðstoða hópa andstæðinga kommúnista i þing- kosningunum á Ítalíu í maí 1985 og standa straum af kostnaði við tilraun til að myrða Múhameð Fad- lallah, leiðtoga Hizbollah-samtaka sjíta í Líbanon, sem höfðu ráðizt á bandaríska sendiráðið í Beirút, við- byggingu þess og búðir bandarískra landgönguliða. Starfsmenn CLA yfirheyrðu ýmsa menn, sem vom grunaðir um að hafa tekið þátt í árásinni á sendiráðið, en rannsókn þeirra var hætt þegar einn hinna grunuðu lézt eftir raflostsmeðferð í yfirheyrslu. Misheppnað tilræði Fyrrverandi foringi í SAS, sér- þjálfuðum víkingasveitum Breta, skipulagði tilræðið við Fadlallah í Beirút 8. marz 1985. Sprengja ætl- uð honum varð 80 að bana, 200 særðust, en hann sakaði ekki. Síðan veittu Saudi-Arabar Fadlallah tveggja millj. dala aðstoð gegn lof- orði um að fleiri árásir yrðu ekki gerðar á bandarísk eða saudi- arabísk skotmörk og hann stóð við það. Casey varð „gáttaður“ á því að „hægt væri að leysa svona tröll- aukið vandamál með jafnlítilli fjárupphæð". Samstarfið við Saudi-Araba virð- ist hafa hvatt Casey til að komast að samkomulagi við írana um skipti á hergögnum og gíslum. Þar með gafst færi á að koma fyrir fé á banka í Sviss til að fjármagna fleiri leyniaðgerðir með „vinveittri að- stoð“ Saudi-Araba, ísraelsmanna o.fl. án vitundar Bandaríkjaþings og jafnvel CIA, sem Casey taldi að hefði orðið of svifasein og varkár stofnun þegar framlög til leyniþjón- ustumála voru skert á stjómarárum Jimmy Carter forseta. Casey varð æ fráhverfari „venjulegum leiðum" og mun hafa sagt við embættis- mann í einkasamtali: „Okkur gefst kostur á að móta okkar eigin ut- anríkisstefnu." Casey virðist hafa snúið sér til gamalla samheija úr CIA frá fyrri tíð, þeirra á meðal Johns Shaheen, sem var vinur Qármálamannsins Adnans Khashoggi. Þeir þekktu báðir hergagnasalann Manucher Ghorbanifar, skuggalegasta milli- göngumann vopnasölumálsins. í bók Woodwards er í fyrsta sinn sagt frá þeim mönnum, sem milli- göngumennimir sneru sér til í Teheran. Þeir vom frændi Rafsanj- anis þingforseta og forstöðumaður leyniþjónustu forsætisráðherrans. Bók Woodwards varpar nýju ljósi á störf Caseys fyrir CIA. Höf- undurinn kveðst hafa rætt við gamla manninn í alls rúma tvo sól- arhringa og við 250 aðra heimildar- menn. Mesta athygli vekur sú staðhæfing Woodwards, að Casey hafi tekið miklu meiri þátt í vopna- sölumálinu en hingað til hefur verið talið. Hann segir að Casey hafi „nánast samið" áætlun Olivers L. North undirofursta um leynilegar vopnasendingar til kontra-manna 1984, „gefíð honum fyrirmæli um að koma á fót einkastofnun undir stjóm óbreytts borgara utan ríkis- stjómarinnar" og mælt með Ric- hard Secord, fv. flughershöfðingja, í það starf. Woodward fullyrðir ekki að Casey hafi sagt Ronald Reagan forseta allt af létta og að forsetinn hafi vitað hvemig í öllu lá, en sýn- ir að Casey hafði greiðan aðgang að honum. SADAT: „NEYTTI EITURLYFJA." GADDAFI: BRUGGUÐ LAUNRÁÐ. REAGAN: ILLA Á SIG KOMINN EFTIR TILRÆÐIÐ. Casey var afkastamikill yfírmað- ur og bjargaði CIA úr talsverðri lægð. í bók Woodwards, sem heitir „Hula: Huldustríð CIA“ („hula“ er dulnefni um leyniaðgerðir CIA á síðari árum), segir að undir stjóm Mútur og hleranir Áður en Bashir Gemayel var kjörinn forseti Líbanons 1982 mút- aði CIA honum með 10 milljóna dollara aðstoð við vopnaðar sveitir kristinna manna. CIÁ hafði fengið Gemayel, sem var ráðinn af dögum áður en hann tók við embætti í þjón- ustu sína þegar hann starfaði hjá lögfræðifyrirtæki í Washington laust eftir 1970. Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvadors, var einnig í þjónustu CIA, þótt hann væri talinn óáreið- anlegur að sögn Woodwards. CIA lagði fram stórfé til stuðnings hon- um, en e.t.v. án vitundar hans. Eugenia Charles, forsætisráðherra eyjunnar Dominica á Karíbahafi, fékk 100.000 dollara frá CLA áður en hún hvatti til innrásarinnar í Grenada, ef trúa má Woodward (leyniþjónustan neitar því). CIÁ stóð fyrir leynilegum að- gerðum til að styðja við bakið á stjómum Filippseyja (í tíð Ferdin- ands Marcosar forseta) Súdans og Tsjads og reyndi að grafa undan stjómum Líbýu, Angola, Eþíópíu, Kambódíu, Afghanistans og Nic- aragua. Á árinu 1983 voru aðgerðir á vegum stofnunarinnar 12 talsins 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.