Morgunblaðið - 11.10.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
4
HULDUSTRÍÐ
Þegar William Casey, fv.
yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar (CIA),
lézt í vor höfðu þingnefndir,
sem rannsökuðu
vopnasöluna til írans, ekki
átt þess kost að yf irheyra
hann. En skömmu fyrir
andlátið játaði hann að hafa
vitað að hagnaðurinn af
sölunni hefði verið notaður
til að styrkja
„kontra“-skæruliða í
Nicaragua, ef trúa má bók
eftir Bob Woodward,
frægasta
„rannsóknarblaðamann“
Bandaríkjanna, sem kom
upp um Watergate-málið á
sínum tima ásamt
félaga sínum á
Washington
Post. Prentuð
hafa verið
600.000 eintök
af bókinni, sem
hefur þegar
vakið deilur, og
telja má að hún
verði fljótlega
söluhæsta bók
Bandaríkjanna í
flokki bóka sem
ekki teljast til
skáldsagna í stað . OOB \
„Njósnaveiðara“ SJMÆUR
(Spycatcher) Peters Wright
um brezku leyniþjónustuna.
WILLIAM CASEY:
„AÐALMAÐUR LEYNIAÐGERDANNA."
Caseys hafi leyniþjónustan hafizt
handa um viðamiklar njósna- og
leyniaðgerðir og m.a. staðið fyrir
morðtilraunum og reynt að múta
erlendum ríkisstjómum.
Mesta athygli vekur að Casey er
sagður hafa fengið stjóm Saudi-
Arabíu til að veita Tsjadveijum 15
milljarða dollara aðstoð í stríði
þeirra við Líbýumenn, aðstoða hópa
andstæðinga kommúnista i þing-
kosningunum á Ítalíu í maí 1985
og standa straum af kostnaði við
tilraun til að myrða Múhameð Fad-
lallah, leiðtoga Hizbollah-samtaka
sjíta í Líbanon, sem höfðu ráðizt á
bandaríska sendiráðið í Beirút, við-
byggingu þess og búðir bandarískra
landgönguliða. Starfsmenn CLA
yfirheyrðu ýmsa menn, sem vom
grunaðir um að hafa tekið þátt í
árásinni á sendiráðið, en rannsókn
þeirra var hætt þegar einn hinna
grunuðu lézt eftir raflostsmeðferð
í yfirheyrslu.
Misheppnað tilræði
Fyrrverandi foringi í SAS, sér-
þjálfuðum víkingasveitum Breta,
skipulagði tilræðið við Fadlallah í
Beirút 8. marz 1985. Sprengja ætl-
uð honum varð 80 að bana, 200
særðust, en hann sakaði ekki. Síðan
veittu Saudi-Arabar Fadlallah
tveggja millj. dala aðstoð gegn lof-
orði um að fleiri árásir yrðu ekki
gerðar á bandarísk eða saudi-
arabísk skotmörk og hann stóð við
það. Casey varð „gáttaður“ á því
að „hægt væri að leysa svona tröll-
aukið vandamál með jafnlítilli
fjárupphæð".
Samstarfið við Saudi-Araba virð-
ist hafa hvatt Casey til að komast
að samkomulagi við írana um skipti
á hergögnum og gíslum. Þar með
gafst færi á að koma fyrir fé á
banka í Sviss til að fjármagna fleiri
leyniaðgerðir með „vinveittri að-
stoð“ Saudi-Araba, ísraelsmanna
o.fl. án vitundar Bandaríkjaþings
og jafnvel CIA, sem Casey taldi að
hefði orðið of svifasein og varkár
stofnun þegar framlög til leyniþjón-
ustumála voru skert á stjómarárum
Jimmy Carter forseta. Casey varð
æ fráhverfari „venjulegum leiðum"
og mun hafa sagt við embættis-
mann í einkasamtali: „Okkur gefst
kostur á að móta okkar eigin ut-
anríkisstefnu."
Casey virðist hafa snúið sér til
gamalla samheija úr CIA frá fyrri
tíð, þeirra á meðal Johns Shaheen,
sem var vinur Qármálamannsins
Adnans Khashoggi. Þeir þekktu
báðir hergagnasalann Manucher
Ghorbanifar, skuggalegasta milli-
göngumann vopnasölumálsins. í
bók Woodwards er í fyrsta sinn
sagt frá þeim mönnum, sem milli-
göngumennimir sneru sér til í
Teheran. Þeir vom frændi Rafsanj-
anis þingforseta og forstöðumaður
leyniþjónustu forsætisráðherrans.
Bók Woodwards
varpar nýju ljósi
á störf Caseys
fyrir CIA. Höf-
undurinn kveðst
hafa rætt við
gamla manninn í
alls rúma tvo sól-
arhringa og við 250 aðra heimildar-
menn. Mesta athygli vekur sú
staðhæfing Woodwards, að Casey
hafi tekið miklu meiri þátt í vopna-
sölumálinu en hingað til hefur verið
talið. Hann segir að Casey hafi
„nánast samið" áætlun Olivers L.
North undirofursta um leynilegar
vopnasendingar til kontra-manna
1984, „gefíð honum fyrirmæli um
að koma á fót einkastofnun undir
stjóm óbreytts borgara utan ríkis-
stjómarinnar" og mælt með Ric-
hard Secord, fv. flughershöfðingja,
í það starf. Woodward fullyrðir ekki
að Casey hafi sagt Ronald Reagan
forseta allt af létta og að forsetinn
hafi vitað hvemig í öllu lá, en sýn-
ir að Casey hafði greiðan aðgang
að honum.
SADAT:
„NEYTTI EITURLYFJA."
GADDAFI:
BRUGGUÐ LAUNRÁÐ.
REAGAN:
ILLA Á SIG KOMINN EFTIR
TILRÆÐIÐ.
Casey var afkastamikill yfírmað-
ur og bjargaði CIA úr talsverðri
lægð. í bók Woodwards, sem heitir
„Hula: Huldustríð CIA“ („hula“ er
dulnefni um leyniaðgerðir CIA á
síðari árum), segir að undir stjóm
Mútur og hleranir
Áður en Bashir Gemayel var
kjörinn forseti Líbanons 1982 mút-
aði CIA honum með 10 milljóna
dollara aðstoð við vopnaðar sveitir
kristinna manna. CIÁ hafði fengið
Gemayel, sem var ráðinn af dögum
áður en hann tók við embætti í þjón-
ustu sína þegar hann starfaði hjá
lögfræðifyrirtæki í Washington
laust eftir 1970.
Jose Napoleon Duarte, forseti
E1 Salvadors, var einnig í þjónustu
CIA, þótt hann væri talinn óáreið-
anlegur að sögn Woodwards. CIA
lagði fram stórfé til stuðnings hon-
um, en e.t.v. án vitundar hans.
Eugenia Charles, forsætisráðherra
eyjunnar Dominica á Karíbahafi,
fékk 100.000 dollara frá CLA áður
en hún hvatti til innrásarinnar í
Grenada, ef trúa má Woodward
(leyniþjónustan neitar því).
CIÁ stóð fyrir leynilegum að-
gerðum til að styðja við bakið á
stjómum Filippseyja (í tíð Ferdin-
ands Marcosar forseta) Súdans og
Tsjads og reyndi að grafa undan
stjómum Líbýu, Angola, Eþíópíu,
Kambódíu, Afghanistans og Nic-
aragua. Á árinu 1983 voru aðgerðir
á vegum stofnunarinnar 12 talsins
4