Morgunblaðið - 11.10.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar að sjúkrahúsi og
heilsugæslustöð á Hvammstanga frá 1. janú-
ar 1988. Framkvæmdastjóri sér um daglegan
rekstur stofnanna, annast fjármál, skýrslu-
og áætlanagerð, framkvæmd ákvarðana
stjórnar o.fl.
Allar nánari upplýsingar gefa framkvæmda-
stjóri í síma 95-1348, heimasími 95-1629,
og formaður stjórnar í síma 95-1353, heima-
sími 95-1382.
Umsóknir sendist til stjórnar sjúkrahúss
Hvammstanga, 530 Hvammstanga.
Umsóknarfrestur um stöðuna er til 20. októ-
ber 1987.
Stjórn sjúkrahúss Hvammstanga.
R4ÐGJOF OG FAÐNINQNR
Viltu vinna
á lögmannsstofu?
Lögmannsstofa í Kópavogi óskar að ráða
ritara í fullt starf frá næstu áramótum eða
fyrr. Starfið er fólgið í innheimtu, bókhaldi,
bréfaskriftum o.fl. Óskað er eftir starfsmanni
með verslunarpróf eða sambærilega mennt-
un. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af Opus bókhaldskerfi.
Umsóknarfrestur er til 23. október.
Ábendi sf.,
Engjateig 9,
sími 689099.
Matvælafræðingur
meinatæknir
Sölustofnun lagmetis óskar eftir að ráða of-
angreinda aðila til starfa við nýstofnaða
tæknideild sína.
1. Óskað er eftir matvælafræðingi með
nokkra starfsreynslu og sem getur unnið
sjálfstætt.
Helstu störf hans yrðu:
- Vöruþróun.
- Aðstoð við framleiðendur.
- Gæðastýring.
í starfi sínu mun matvælafræðingurinn
hafa mikil samskipti við ýmsa utanaðkom-
andi aðila erlendis sem innanlands.
Viðkomandi þyrfti að geta hefið störf fljót-
lega a.m.k. að hluta.
2. Óskað er eftir meinatækni, sem getur
unnið sjálfstætt. Starfsreynsla æskileg.
Helstu störf hans yrðu:
- Framkvæmd rannsókna og eftirlit með
lagmeti til útflutnings.
í starfi sínu mun rannsóknarmaðurinn
hafa mikil samkipti við aðrar rannsóknar-
stofnanir s.s. Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins.
Viðkomandi mun hljóta starfsþjálfun í
byrjun. Æskilegt er að hann geti hafið
störf eigi síðar en um nk. áramót.
Upplýsingar um störfin veitir Garðar Sverris-
son, forstöðumaður tæknideildar. Umsókn-
um skal skilað fyrir 19. okt. nk.
Sölustofnun lagmetis,
Síðumúla 37,
Reykjavík.
ICEL4ND
!4ðlTERS
Hrafnista í
Reykjavík
Óskum eftir að ráða:
Leiðbeinanda í handavinnu, 50% starf e.h.
Sjúkraiiða í 50 og 100% starf.
Starfsfólk í borðsal, aðhlynningu og ræstingu.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar í síma 38440 frá kl. 10.00-12.00
virka daga.
Skipulagsfræðingur
- arkitekt
Óskum að ráða háskólamenntaðan starfs-
mann til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar frá
1. desember nk. eða eftir samkomulagi.
Æskileg menntun í skipulagsfræðum, arki-
tektúr eða skildum greinum.
Nánari upplýsingar veita starfsmannastjóri
eða bæjarstjóri í síma 96-21000. Umsóknar-
frestur er til 10. nóvember.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Trésmiðir
- verkamenn
Óskum eftir að ráða trésmiði og verkamenn
í vinnu nú þegar. Næg vinna í allan vetur.
Nánari upplýsingar í síma 76747.
Eyktsf.
Sölustörf á
ferðaskrifstofu
Þekkt ferðaskrifstofa í Reykjavík ætlar að
ráða nokkra sölumenn til starfa á næstu vik-
um eða mánuðum.
Reynsla í ferðaskrifstofustörfum eða við far-
miðasölu hjá flugfélögum er að sjálfsögðu
vel þegin en ekki skilyrði.
Leitað er að fólki, sem hefur til að bera áhuga
á ferðastarfsemi, ríka þjónustulund, vilja og
metnað til að ná árangri, að ógleymdum sölu-
mannshæfileikum og aðlaðandi framkomu.
Sóst er eftir fremur ungu fólki (20-35 ára)
sem hefur áhuga á að afla sér reynslu og
þekkingar í framtíðarstarfi eða a.m.k. til
nokkurra ára.
Störfunum fylgja námskeið og þjálfun hér á
landi ásamt kynnis- og námsferðum til út-
landa.
Hér er um spennandi möguleika að ræða
fyrirfólk, sem kýs að starfa í lífrænni og sívax-
andi atvinnugrein á öflugri og framsækinni
ferðaskrifstofu.
Málakunnátta er óhjákvæmileg. Verslunar-
skólamenntun, stúdentspróf eða hliðstæð
menntun/reynsla eru lágmarksskilyrði en
reynsla af tölvum er æskileg.
Góð laun og hlunnindi eru í boði fyrir trausta
og reglusama sölumenn.
Umsóknir þurfa að vera ítarlegar. Þær verði
sendar afgreiðslu Mbl. fyrir 20. október
merktar: „Ferðaskrifstofa - 6120“.
Algjörum trúnaði er heitið.
Öllum verður svarað.
Afgreiðslustarf
- Álfheimar
Starfsmaður óskast til afgreiðslustarfa í Álf-
heimabakaríi, Álfheimum 6. Vinnutími frá kl.
7.30-13.00 annan hvern dag en 13.00-19.00
hina.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Brauðs hf., Skeifunni 11, eftir kl. 12.
Brauð hf.
Sa)
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI
Fóstru eða starfsmann með uppeldis-
menntun vantar í fullt starf.
Starfsreynsla á barnaheimili æskileg.
Umsækjandi þarf að geta hafið starf sem
fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
96-22100-299.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ritari
óskast á lögmannsstofu í Reykjavík. Æskileg
menntun er stúdentspróf frá V.í. og einhver
reynsla í tölvuvinnu. Góð íslensku- og reikn-
ingskunnátta áskilin. \
Umsóknir er greini meðal annars frá starfs-
reynslu, menntun og aldri leggist inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 16. október merkt:
„Ritari - 4805“.
Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins,
Sæbraut 1-2, Seltjarnarnesi
Deildaþroskaþjálfar
Tvær stöður deildaþroskaþjálfa á athugunar-
deild Greiningarstöðvar eru lausar. Starfið
felst í meðferð og greiningu fatlaðra barna
á forskólaaldri og ráðgjöf til foreldra og ann-
arra fagaðila. Starfið býður upp á fjölþætta
reynslu í fötlunum barna með náinni sam-
vinnu við aðrar fagstéttir.
Upplýsingar gefa deildarstjóri athugunar-
deildar og forstöðumaður í síma 611180.
Umsóknir ásamt upplýsingum urti menntun
og fyrri störf berist Greiningarstöð fyrir 20.
október nk.
Viltu góð laun?
Plastprent hf. sem er nýflutt í glæsileg húsa-
kynni, óskar eftir að ráða starfsmenn til
verksmiðjustarfa. Við leitum' að kven- og
karlmönnum á aldrinum 16-50 ára.
Boðið er upp á góða starfsaðstöðu, fastar
eða hreyfanlegar vaktir og mjög mikla tekju-
möguleika fyrir hæft starfsfólk.
Ef þú hefur áhuga komdu þá á morgun eða
þriðjudaginn milli kl. 14.00 og 17.00 og
ræddu við Einar Þorsteinsson.
Sennilega getum við boðið þér vinnu og laun,
sem þú getur sætt þig vel við.
Piastprent hff.
W Fosshálsi 17-25,
sími 685600-
'—